Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 28
36
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996
Sitt sýnist hverjum um þá ráð-
stöfun að flytja Landmælingar
íslands til Akraness.
Hreppaflutn-
ingar að sov-
éskum hætti
„Það er ekki forsvaranlegt að
flytja fólk hreppaflutningum
með sovéskum hætti.“
Pétur Jónsson borgarfulltrúi, í
Alþýöublaðinu.
í fangið á þeim sem
flúið var frá
„Þau virðast ætla að hoppa
Ummæli
beint upp í fangið á einmitt þeim
sem þau voru að flýja á sínum
tíma.“
ísólfur Gylfi Pálmason um
Þjóðvakaþingmenn, í Tíman-
um.
Öflug kynningarvinna
„Þessarar sýningar verður
fyrst og fremst minnst fyrir
kraftmikla og einbeitta kynning-
arvinnu.“
Arnór Benónýsson um Stone
Free, í Alþýðublaðinu.
Eskatologískt ívaf
„Frammúrstefnuspunanú-
tímajass með eskatologísku
ívafi.“
Jakob Bjarnar Grétarsson, í Al-
þýðublaðinu.
Flokkar í einum
líkama
„Ef þeir ætla að fara yfir stig
samvinnunnar inn í einhvers
konar sameiningu, þá tel ég að
það ætti að ganga fyrir sig með
þeim hætti að flokkarnir yrðu að
einum líkama."
Össur Skarphéðinsson, í Al-
þýðublaðinu.
Enginn einstaklingur hefur selt fleiri
plötur en Elvis Presley.
Söluhæstu
söngvararnir
Það vill svo til að þeir tveir
söngvarar, sem hafa selt flestar
plötur i heiminum, Bing Crosby og
Elvis Presley, létust báðir 1977.
Ekki voru þeir þó af sömu kynslóð,
Crosby fæddist 1904 og Presley
1935. Hinn 9. júní 1960 var Bing
Crosby afhent platínuplata til þess
að minnast þess að seldar höfðu
verið 200 milljónir af hljómplötum
með söng hans, árið 1970 fékk hann
sams konar viðurkenningu, en þá
höfðu selst ufir 300 milljónir platna
með honum. Á löngum ferli söng
Bing Crosby inn á 2600 smáskífur
og sendi frá sér 125 albúm.
Blessuð veröldin
Elvis Presley hefur þó gert það
betur. Á ferli sínum söng hann inn
á plötur 170 lög sem komust á hina
ýmsu vinsældalista. Frá árinu 1956
hafa verið gefin út 80 breiðskífualb-
úm með honum sem seljast enn í
miklu upplagi eftir að geislaplatan
kom til sögunnar og er hann nú tal-
inn söluhæsti söngvari allra tíma
en engar nákvæmar tölur eru yfir
sölu á plötum hans.
Hæg sunnan- og suðvestanátt
Yfir Bretlandseyjum er 1029 millí-
bara heldur minnkandi hæð, sem
hreyfist lítið, en á norðanverðu
Grænlandshafi er 1000 millíbara
Veðrið í dag
lægð, sem þokast norðnorðaustur.
Önnur lægð er skammt suðvestur af
Hvarfi og hreyfist hún í austurátt.
Fremur hæg sunnan- og suðvest-
anátt á landinu, víðast kaldi en st-
inningskaldi á stöku stað suðvestan-
lands. Sunnan og vestanlands verða
skúrir en að mestu þurrt en skýjað
annars staðar. Hiti 12 til 20 stig,
hlýjast austanlands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnangola eða kaldi og dálítil súld
í dag en suðvestangola og skúrir í
nótt og 1 fyrramálið. Hiti 10 til 14
stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.15
Sólarupprás á morgun: 3.53
Síðdegisflóð 1 Reykjavík: 20.12
Árdegisflóð á morgun: 8.32
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaö 13
Akurnes þoka í grennd 10
Bergsstaðir skýjaö 13
Bolungarvík skýjaó 12
Egilsstaöir skýjað 13
Keflavíkurflugv. þokumóöa 10
Kirkjubkl. rigning 11
Raufarhöfn skýjaö 12
Reykjavíic alskýjaó 12
Stórhöföi skýjað 10
Helsinki skýjað 13
Kaupmannah. léttskýjað 15
Ósló léttskýjaö 13
Stokkhólmur skýjaö 11
Þórshöfn skýjað 10
Amsterdam skýjaö 13
Barcelona heiðskírt 23
Chicago þrumuveöur 21
Frankfurt léttskýjaö 14
Glasgow mistur 12
Hamborg skýjaó 13
London léttskýjaö 13
Los Angeles mistur 18
Lúxemborg léttskýjað 13
Madríd heiöskírt 19
Mallorca heióskírt 20
París heiðskírt 15
Róm heiöskírt 21
Valencia heiöskírt 19
New York heiöskírt 26
Nuuk þoka 2
Vín skýjaö 14
Washington alskýjað 27
Winnipeg hálfskýjaö 21
Om Ævar Hjartarson, unglingalandsliðsmaður í golfi:
í góðum málum ef við fáum sterkan vind
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er síðasta mótið mitt með
unglingalandsliðinu og við stefn-
um að sjálfsaögðu á að vinna mót-
ið. Það er plús fyrir mig að vera á
heimavelli. Ég setti mér meðal
annars það takmark fyrir þetta
sumar að vinna Norðurlandamót-
ið og þá einstaklingskeppnina,"
sagði Öm Ævar Hjartarson,
golfarinn snjalli i Golfklúbbi Suð-
urnesja og einn lykilmaðurinn í
unglingalandsliði íslands sem hóf
í morgun keppni á Norðurlanda-
Maður dagsins
mótinu sem fram fer á Hólmsvelli
í Leiru. Þar eru mættir 50 kepp-
endur, 10 frá hverju landi, og
skipa 6 strákar og 4 stúlkur sveit-
imar. Spilaðar verða 36 holur í
dag og 18 á morgun.
Öm Ævar er greinilega í mjög
góðu formi um þessar mundir og
setti stefnuna hátt fyrir sumarið.
Eitt af takmörkum hans náðist
þegar hann sigraði glæsilega í
meistararflokki karla á meistara-
móti Golfklúbbs Suðumesja ný-
lega og gerði gott betur þegar
hann jafnaði vallarmetið.
Örn Ævar Hjartarson.
En er Örn Ævar stressaður fyr-
ir Norðurlandamótið?
„Ég hef verið svolitið stressaður
og það veldur aukapressu að mað-
ur setur markið hátt og gerir
kannski of miklar kröfur til sín.
Ég held að þetta mót verði meira
spennandi en verið hefur. Það er
ekkert lið afgerandi best. Veðrið
getur sett strik í reikninginn og
skipt miklu máli. Ef sterkur vind-
ur verður þá held ég að við séum i
góðum málum enda vanari alls
kyns veðri heldur en hinir spilar-
amir.“
Öm Ævar er 18 ára nemi á nátt-
úrufræðibraut við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Hann vinnur í sumar
á golfvelli GS, meðal annars við að
kenna byrjendum golf. Hann hefur
unnið mörg mót og hlotið fjölda
titla á sinum ferli. Þeir helstu og
stærstu eru Drengjameistari 1992
og Unglingameistari í fyrra, sem
Öm Ævar segir vera eftirminni-
legast á ferlinum hingað til.
Örn Ævar byrjaði 7 ára að æfa
golf þegar faðir hans keypti handa
honum golfsett. „Ég fór alltaf með
pabba á golfvöllinn og var mjög
ánægður með fyrsta settið mitt. Ég
hef ekki stoppað síðan. Ég stefni á
að fara utan í nám eftir stúdentinn
og spila golf með. Síðan er stóri
draumurinn að komast í atvinnu-
mennskuna.“
Áhugamál hans fyrir utan golfið
er körfubolti og allt sem téngist
útivem. En hver er sterkasta hlið
hans í golfinu?
„Ég er sterkastur frá teig inn á
flöt en veikasta hliðin, ef svo má
segja, er púttið. Ætli maður hafi
nógu mikla trú á sjálfum sér við
að setja kúluna ofan í. Þetta er allt
spurning um dagsformið, það
skiptir miklu máli.“ -ÆMK
Myndgátan
Fé á fæti
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði
DV
Himbriminn mun sigla um Þing-
vallavatn með þá sem áhuga
hafa á í sumar.
Útsýnissiglingar
á Þingvallavatni
Nú gefst ferðamönnum tæk-
ifæri til að njóta náttúru Þing-
vallasvæðisins af báti á vatninu,
en nýverið var stofnað fyrirtæk-
ið Þingvallavatnssiglingar sem
býður upp á einnar og hálfrar
klukkustundar siglingu, þar sem
spjallað er um það helsta sem
fyrir augu ber í landslaginu, líf-
ríkið, söguna, skáldskapinn,
þjóðsögurnar og mannlíf við
vatnið að fornu og nýju. Lagt er
af stað frá Skálabrekku um 10
km vestan Þingvalla. Siglt er
austur með löndum þjóðgarðs-
ins, méð suðvesturströndinni
þaðan sem fallegt er að sjá upp
að háhitasvæðinu á Nesjavöllum
og loks að eyjunum Nesjaey og
Sandey þar sem vatnið er dýpst.
Útivera
Báturinn sem notaður er í
þessar ferðir heitir Himbriminn
í höfuðið á einkennisfugli vatns-
ins. Áætlanir Himbrimans eru
kl. 10 á morgnana alla þriðju-
daga, fimmtudaga og föstudaga
og kl. 10, 13 og 15 laugardaga og
sunnudaga.
Skógarganga
Eins og undanfarna fimmtu-
daga bjóða skógræktarfélög á
höfuðborgarsvæðinu almenningi
í skógargöngu. í kvöld verður
upphaf göngunnar við Baldurs-
haga i Reykjavík, kl. 20.00. Geng-
ið verður um Rauðavatnsstöðina
um Trippadal og endað við Ell-
iðavatn.
Bridge
Þátttaka hefur verið með ágætum
í sumarbridge í Reykjavík undan-
farna daga og algengt orðið að vel
yfir þriðja tug para taki þátt á hverj-
um degi. í sumarbridge í gær kom
þetta spil fyrir. Algengasti samning-
urinn var oftast nær fjórir eða sex
spaðar, en einstaka pör teygðu sig
lengra. Sagnir gengu þannig á einu
borðanna, austur gjafari og enginn
á hættu:
4 53
* DG7
4 G10987
* 1075
* ÁG74
V K2
4 ÁKD2
* K92
4 98
«4 Á654
4 643
* D843
Austur Suður
14 pass
2«4 pass
2 grönd pass
Vestur Norður
24 pass
24 pass
6 grönd p/h
Austur, Guðmundur Sveinsson,
ákvað að opna á einum spaða þó að
punktastyrkur i opnun væri ekki
fyrir hendi. Vestur taldi góða mögu-
leika á að grandslemma væri jafn
vænleg og spaðaslemma, enda er
gulls ígildi að fá tíkallinum meira í
tvímenningi. Suður ákvað að hefja
vömina á því að leggja niður hjarta-
ásinn í upphafi og hann hefur ef-
laust búist við því að sagnhafi
myndi gera kröfu til afgangsins af
slögunum að loknu því útspili. Þeg-
ar austur lét það ógert, ákvað suður
að spila sig út á spaða. Guðmundur
varð nú að taka slagina í réttri röð,
tók hjartakóng, tvo hæstu í laufi og
renndi síðan niður spaðaslögunum.
Norður stóðst ekki þrýstinginn í
hjarta og tígli og hjartatían varð
tólfti slagurinn. Suður missti af
tækifærinu í öðrum slag. Hann
hefði brotið upp þvingunarstöðuna
með því að spila tígli.
ísak Öm Sigurðsson