Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996
5
DV
Fréttir
Uppbygging heilsugæslustöðva:
Höfuðborgarsvæðið hefur
forgang að þessu sinni
- segir Kristján Erlendsson, skrifstofustjóri heilbrigðisráðuneytisins
í samningi
þeim sem heil-
brigðisráðuneytið
gerði við Félag
heimilislækna á
dögunum er gert
ráð fyrir upp-
byggingu heilsu-
gæslustöðva og að
þessu sinni hefur
höfuðborgarsvæð-
ið forgang.
„Það eru til
áætlanir um
byggingu heilsu-
gæslustöðva á
höfuðborgarsvæð-
inu en þar er
þörfin er mest. í
Kópavogi er byrj-
að að byggja
heilsugæslustöð,
síðan er gert ráð
fyrir að reisa
heilsugæslustöðv-
ar í Fossvogi og
Grafarvogi. Segja má að þetta séu
þær stöðvar sem hafa forgang enda
þörfin fyrir þær brýnust. Síðan eru
á Reykjavíkursvæðinu aðrir staðir
sem þarf að skoða betur,“ sagði
Kristján Erlendsson, skrifstofustjóri
heilbrigðisráðuneytisins, í samtali
við DV.
Hann segir að enn vanti heilsu-
gæslustöð í Vogahverfi. Uppi hafa
verið ráðagerðir um að bæta úr því
smátt og smátt. Fyrst með því að
bæta við lækni í Lágmúlastöðina en
síðan verði reist sérstök stöð.
„I heilsugæslustöðinni í Árbæjar-
hverfi er mikil þörf á að fjölga um
einn lækni. Von
er til þess að það
losni húsnæði við
hliðina á heilsu-
gæslustöðinni og
að hægt verði að
stækka stöðina
sem því nemur.
Þá má nefna Hafn-
arfjörö. Þar eru of
fáir læknar miðað
við fólksfjölda og
eins í Garðabæ.
Þá er heilsugæslu-
stöðin í Mosfells-
bæ í of litlu hús-
næði og loks er
spurning um mið-
bæjarsvæðið í
Reykjavík. í því
sambandi hefur
verið horft til þess
að setja aftur upp
heilsugæslustöð í
Heilsuvemdar-
stöðinni,“ sagði
Kristján.
Hann segir að i uppsagnarbréfum
heimilislæknanna hafi komið fram
að það væri á höfuðborgarsvæðinu
sem skórinn kreppti og leggja bæri
áherslu á að leysa vandann þar.
Hvað viðkemur landsbyggðinni
sagði hann að þar væru mál í sæmi-
legu standi nema þá helst í Reykja-
nesbæ.
Uppbygging heilsugæslustöðva
úti á landi hefur verið látin ganga
fyrir höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan
er sú að víðast hvar á landinu hafa
ekki verið önnur úrræði. En önnur
voru til staðar á höfuðborgarsvæð-
inu.
-S.dór
Eyborgin við bryggju hjá Slippstöðinni Odda á Akureyri, giæsilegt skip
eftir mikla lengingu í Noregi. DV-mynd gk
Hrísey:
Eyborgin gjörsamlega nýtt skip
DV, Aknreyri:
Eyborg EA-59 er komin til
landsins eftir mikla lengingu í
skipasmíðastöð í Noregi, en þar
var skipið lengt úr 26 metrum í 45
metra svo segja má að um nýtt
skip sé að ræða að miklu leyti.
Eyborginni, sem er í eigu Borg-
ar hf. í Hrísey, var eftir komuna
til heimahafnar siglt tO Akureyr-
ar þar sem skipið er nú hjá Slipp-
stöðinni Odda. Að sögn Inga
Björnssonar, framkvæmdastjóra
Slippstöðvarinnar, er verið að
setja vinnslubúnað fyrir rækju- og
boífiskvinnslu í skipið en að því
loknu heldur það til veiða. -gk
r
"\
'mm vinh7
ULFALDINN '96 er um helgina
'Sumarhátíð SÁÁ „ÚLFALDINN '96“ verður haldin
í Galtalækjarskógi nú um helgina (19.-21. júlí).
Þetta er útihátíð fjölskyldunnar og ALLIR sem
vilja skemmta sér með góðu fólki í vímuefhalausu
umhverfi eru hjartanlega velkomnir.
Staðurinn:
Aðstaðan í Galtalækjarskógi er frábær eins og flestir
vita. Meira að segja er skjól innanhúss ef þörf
krefur. Náttúrufegurð er einstök og hægt að komast
í veiði.
Dagskráin:
Kvöldvaka, útigrill fyrir alla, sérstök barnadagskrá
með Magnúsi Scheving, hestar og hestakerrur fyrir
börnin, íþróttamót, dansleikir bæði kvöldin með
KK og félögum, ásamt Bjarna Ara og Ruth
Reginalds, veitingasala, trúbadorinn Leo Gillespie,
happdrætti, hugvekja, opinn AA-fundur o.fl.
Aðgangur:
Fyrir fullorðna 2.500 kr. og ókeypis fyrir börn 13
ára og yngri. Rútuferðir frá SÁÁ á föstudag.
Samtök áhugafólks
Upplýsingar í síma 581-2399 vímuefnavandann
J