Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 34
42 tónlist
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996
Topplag
Loksins, loksins, loksins hafðist
það hjá Tracy Chapman. Hún er
loksins komin i toppsætið eftir að
hin yndislega Emilíana Torrini
hafði haldið því í fimm vikur.
Núna getur Tracy Chapman
brosað gegnum tárin enda kom-
in á toppinn með lag sitt, Give Me
One Reason. Hún hefur verið sjö
vikur á lista með Give Me One
Reason.
Hástökkið
írska hljómsveitin The Cran-
berries gerir það gott þessa vik-
una og á hástökk vikunnar. Hún
geysist upp um sex sæti og ætlar
sér kannski að ná topplaginu af
henni Tracy Chapman. Hver veit
?
■'''
Hæsta
nýja lagið
Núna kætast smámeyjar úti um
allt land þar sem hjartaknúsar-
amir og hetjumar í Bon Jovi
heilla þær allar upp úr skónum
með laginu Mrs Robinson. Það
skýst alla leið upp í 9. sæti og það
er engan bilbug á þeim að finna.
Áhrifaríkt
bann?
Bresku hljómsveitinni Shed
Seven hefur verið bannað að
koma fram í Skandinavíu eftir
skrautlega uppákomu eftir tón-
leika í Ósló fyrr í sumar. Þar
gengu liðsmenn sveitarinnar
berserksgang í búningsherbergj-
um vegna óánægju með aðstöð-
una og þjónustuna. Lögðu þeir
húsnæðið nánast í rúst að sögn
tónleikahaldara sem hafa síðan
fengið aðra tónleikahaldara til
liðs við sig við að útiloka Shed
Seven frá frekara tónleikahaldi í
Skandinavíu. Einn liðsmanna
Shed Seven tók fregninni um
bannið létt og sagðist guðsfeginn
að þurfa ekki að heimsækja
þennan útnára aftur.
Óheilla-
tónleikar
ÍHljómsveitin Oasis hélt á dögun-
um heljarmikla tónleika í
Skotlandi og tókust þeir að sögn
geysilega vel þrátt fyrir að þrjú
íslenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV oq Coca-Cola á íslandi. Listinn erniðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum í sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali “World Chart" sem framleiadur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
■
|
hörmuleg banaslys vörpuðu á þá
skugga. Fyrir það fyrsta varð upp-
hitunarhljómsveitin The
Charlatans að hætta við þátttöku
vegna fráfalls hljómborðsleikar-
ans Rob Collins en hann beiö bana
Íí bílslysi 23. júlí. Þá tókst ekki bet-
ur til en svo við undirbúning tón-
leikanna að vörubílstjóri beið
bana er hann klemmdist milli
vörubíls og lyftara og þriðja dauðs-
fallið tengt tónleikunum átti sér
stað þegar maður nokkur á leið á
tónleikastað lenti í árekstri og lést.
Smashing
Pumpkins
auglýsa
Liðsmenn Smashing Pumpkins
eru þessa dagana að leita sér að
nýjum trommuleikara en sem
kunnugt er ráku þeir Jimmy
Chamberlain eftir að hann var
handtekinn á dögunum vegna
gruns um að hafa útvegað tón-
leikahljómborðsleikara sveitar-
innar banvænan skammt af
heróíni. Talsmenn sveitarinnar
segja ekkert hæft i fregnum um að
Chad Smith, trommari Red Hot
Chili Peppers, verði eftirmaður
Chamberlains og segja að auglýst
verði eftir nýjum tommara.
Hrakfalla-
bálkur
Eins og við segjum frá annars stað-
ar hér á síðunni fórst Rob Collins,
hljómborðsleikari The
Charlatans, í bílslysi fyrir nokkru.
Collins var hálfgerður hrakfalla-
bálkur því fyrir tæpum tveimur
árum tók hann í einhverju bríaríi
þátt í vopnuðu ráni sem mistókst
og varð hann veskú að sitja marga
mánuði í fangelsi fyrir vikið. Fé-
lagar hans ákváðu að fyrirgefa
honum syndimar og héldu stöðu
hans innan sveitarinnar opinni á
meðan hann sat inni. Ekki tók þó
betra við þegar hann slapp út því
hljómsveitin hugðist fara í tón-
leikaferð til Bandaríkjanna en
þarlend yfirvöld voru ekki á því
að hleypa tukthúslimnum Collins
inn í sína paradís og fyrir vikið
fóru Ameríkudraumar hljóm-
sveitarinnar meira og minna í
vaskinn. Enn hefur ekki verið ráð-
ið í stöðu Collins i The Charlatans
en Martin Duffy, liðsmaður
Primal Scream, hefur hlaupið í
skarðið sem stendur.
-SþS-
Yfjrumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helqi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson