Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 2
2 %éttir LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 LlV Deilur krata í Hafnarfirði: Ummæli bæjarstjór- ans valda mikilli reiöi - óheppilegt orðalag, segir Guðmundur Árni Stefánsson Ummæli Ingvars Viktorssonar, bæjarstjóra í Hafnarflröi, í seinni sjónvarpsfréttum RÚV aö loknum fulltrúaráðsfundinum á fimmtu- dagskvöld hafa vakið reiði og hörð viðbrögð þeirra sem andvígir eru núverandi meirihlutasamstarfi. Ingvar sagði um nefndina sem kos- in var á fundinum og á aö fara yfir meirihlutasamstarflð að hún væri fyrst og fremst til að skoða innri mál krata í Hafnarfirði og myndi starfa mörg næstu ár. Hann nefndi ekki að hún ætti að skoða gagnrýn- um augum núverandi meirihluta- samstarf. „Það er alveg ljóst að ummæli Ingvars koma illa við marga og hann sleppti ýmsu sem i plagginu um nefhdina stendur," sagði Magn- ús Hafsteinsson, formaður Alþýðu- flokksfélags Hafnarfjarðar, í samtali við DV í gær. Magnús var í þessari sömu sjón- varpsútsendingu og sagði allt annað um verkefni nefndarinnar en Ingv- ar. „Það er alveg rétt að við töluðum í austur og vestur um þessa nefnd og hlutverk hennar. Það er hins vegar alveg ljóst, og stendur í plagg- inu, að nefndin á að fara ofan í og skoða núverandi meirihlutasam- starf. Ég geri mér grein fyrir því að menn munu takast á um þetta mál áfram innan nefndarinnar," sagði Magnús. „Ég kannast við reiði sumra manna vegna þessara ummæla bæj- arstjórans sem segja má að hafi ver- ið óheppileg. Aöalatriðið í mínmum huga er að nefndin er komin á. Hún á að taka fyrir samstarfsgrundvöll meirihlutasamstarfsins og hún á að vinna hratt. Ég vænti þess að svo verði," sagði Guðmundur Ámi Stef- ánsson alþingismaður í samtali við DV. -S.dór Aöalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Strýtu á Akureyri, á sjávarkambinum viö verksmiöjuna þar sem allt er hreint og þrifalegt eins og vera ber. DV-mynd gk Akureyringar standa sig vel í mengunarvörnunum Dagskrárstjóri rásar 2: Enginn bar af Sigurði - segir Heimir Heimir Steinsson útvarpsstjóri ákvað í gær að endurráða Sigurð G. Tómasson sem dagskrárstjóra rásar 2 hjá Ríkisútvarpinu til næstu fjög- urra ára. Heimir gerir þetta gegn vilja meirihluta útvarpsráðs sem vildi fá Lilju Á. Guðmundsdóttur í starfið þegar atkvæði voru greidd sl. miðvikudag. Eftir atkvæða- greiðsluna hitti Heimir alla um- sækjenduma 13 að máli áður en hann gerði upp hug sinn. „Sigurður G. Tómasson hefur ver- ið dagskrárstjóri í fjögur ár og stað- ið sig einkar vel. Þó að margir góðir kostir væru í boði þá var enginn svo áberandi góður að hann bæri af Sig- urði G. Tómassyni,“ sagði Heimir við DV um ákvörðun sína. Hann sagði þetta ekki í fyrsta sinn að hann gengi gegn meirihlutavilja útvarps- ráðs, slíkt hefði gerst margoft áður. Ekki náðist í Lilju í gær en Sig- urður sagðist i samtali við DV vera ánægður með að þeirri óvissu væri lokið sem hófst með því að staðan var auglýst laus í vor. Þómnn Sveinbjamardóttir, full- trúi Kvennalista, var einn þeirra út- varpsráðsmanna sem greiddi Lilju atkvæði. Um ákvörðun Heimis vildi hún ekki annað segja en að út- varpsráð væri eingöngu umsagnar- aðili, útvarpsstjóri hefði öll völd í hendi sér. Þómnn Gestsdóttir var ein þeirra þriggja kvenna úr Sjálfstæðis- flokknum í útvarpsráði sem greiddi Lilju atkvæði sitt. Hún sagði það ljóst að Sigurður væri á margan hátt hæfur útvarpsmaður en hún hefði viljað sjá breytingar. -bjb DV, Akureyri: „Ástandið í heild hefur greinilega batnað mjög mikið. Við fylgjumst t.d. reglulega með ástandinu í Poll- inum og tökum sýni sem fara til rannsóknar. Við erum að sjá dælu- stöðvar rísa hverja af annarri og allt miðar þetta að því að koma frá- rennsli bæjarins út í fjörðinn og að Pollurinn og strandlengja bæjarins verði sem hreinust. Þetta mál lítur vel út og er í góðum farvegi," segir Sigurður Bjarklind, starfsmaður hjá heilbrigðisfulltrúa á Akureyri, um ástand mengunarmála á strand- lengjunni á Akureyri og í Pollinum. Þeir sem DV ræddi við um þetta mál vora á einu máli um að ástand umhverfimálanna á Akureyri hefði batnað mjög á undanfömum ámm. Þeir nefna ekki síst þær miklu framkvæmdir sem Akureyrarbær hefur staðið fyrir varðandi frá- rennslismál en nú styttist óðum í að allt frárennsli frá bæjarbúum verði leitt í pípum út fyrir Glerárósa og þaðan langt út á fjörð. Fiskvinnslufyrirtækin hafa einnig staðið sig vel. Útgerðarfélag Akureyringa stendur vel að sínum málum og hleypir ekki úrgangi í sjóinn og hjá Niðursuðuverksmiðj- mini Strýtu er til staðar fullkomn- asti hreinsibúnaður sem völ er á og mengun er ekki að sjá í sjónum við þessi fyrirtæki. Þá eru menn á einu máli um að ástandið við Krossanes- verksmiðjuna hafi farið mjög batn- andi og í bígerð sé að auka mengun- arvamir þar. -gk MTV á íslandi Upptökulið frá bresku tónlistar- stöðinni MTV er statt á íslandi þessa dagana. Ástæðan fyrir veru upptökuliðsins hér mun vera sú að stöðin er að gera þátt um skemmt- analíf á Norðurlöndum. Núna stendur til aö mynda íslenska skemmtanalífið sem virðist hafa vakið athygli víða erlendis að und- anfornu. -ilk Þú getur svarað þessari spurningu með því að hringia í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Ji 1 Nei 2 904 1600 A meirihluti bæjarstjórnar í Hafnarfirði að sitja áfram? Vandi Sjúkrahúss Reykjavíkur: Bjartsýni á lausn fyrir mánaðamót „Ég var í dag á fundi með Qár- málaráðherra og borgarstjóra um málefni Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þar vorum við að ræða tillögur frá því í mars um samhæfingu á viss- um deildum sjúkrahúsanna, svo sem öldrun og endurhæfingu, þjónustuþætti ýmiss konar, inn- kaup, skrifstofuhald og tæknimál. Ég tel að við getum náð verulegum sparnaði með þessu þegar til lengri tíma er litið. Við erum nú að fjalla um með hvaða hætti þetta veröur gert. Þessari vinnu verður að ljúka fyrir næstu mánaðamót því að bráðavandi Sjúkrahúss Reykjavíkur verður leystur um leið og menn hafa komið sér sam- an um þau skref sem þarf að stíga til framtíðar í þessum málum. Ég er bjartsýn á að þetta takist,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigöisráðherra í samtali við DV i gær. Eins og skýrt hefur verið frá í DV lagði stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur til að fjölda starfsfólks yrði sagt upp vegna fjárskorts. Fjármálaráðherra hefur sagt að aukaljárveiting fáist ekki nema fram komi tillögur til lausnar vandanum sem sýna sparn- að og séu til frambúðar. „Ég ýti á að fyrmefndum tillög- um verði sem allra fyrst hrint í framkvæmd. Ef við geram það og náum fram þeim sparnaði sem við teljum að þær leiði af sér er fjár- magn tryggt. Auk þess er hér ekki verið að tala um aðgerðir sem bitna munu á sjúklingum. Sagði Ingibjörg Pálmadóttir. -S.dór Selfoss: Ijálmurinn bjargaði Strákurinn hjólaði beint í hlið- a á bílnum og ég er ekki í okkram vafa um að hjálmurinn jargaði honum. Hann fékk kúlu ið gagnaugað en ég efast um að lann hefði lifað þetta af ef hann lefði ekki verið með hjálminn. Það tórsér nefnilega á bílnum þar sem ijálmurinn skall á honum,“ segir uðmundur Pálsson á Selfossi, fað- 7 ára drengs sem hjólaði á bíl í { Guðmundur segir að strákurinn jafi hjólað út á blindgötu og ekki (ætt að sér en hann hafi áreiðan- ;ga lært það að hjálmurinn sé lífs- auðsynlegur. -sv Akureyri: Kýrin drapst - bifreiðin stórskemmd Keyrt var á kú við bæinn Akur, skammt innan Akureyrar í gær. jKýrin mun hafa drepist nærri sam- stundis og bíllinn skemmdist mjög mikið. j Að sögn lögreglunnar á Akureyri |r spurning hvemig dæmt sé í mál- úm sem þessum. Þar þurfi að taka giröingarmál og fleira til athugun- pr. Grunur leikur á að ekki hafi ver- iö nógu vel girt á þeim stað þar sem |ýrin var. -sv Velta í Staðarsveit | Lögreglunni í Ólafsvík barst til- kynning um bílveltu við Ölkeldu í Staðarsveit í gærmorgun. Þegar hún kom á staðinn var ökumaður- ihn farinn. Hann hafði meiðst eitt- hvað á höfði og hafði fengið far á sjúkrhús i Stykkishólmi. Eftir hjól- irum að dæma virðist bílstjórirm tafa misst bílinn út fyrir kant öðr- im megin en beygt of skarpt inn á veg og hafnað utan vegar hinum negin. Bíllinn skemmdist nokkuð hikið. -sv 'tuttcir fréttir Færri líkamsmeiðingar Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt um 284 líkamsmeiðingar fyrstu sjö mánuði ársins. Fyrstu sjö mánuðina í fyrra var tilkynnt um 304 líkamsmeiðingar eða 20 fleiri en nú. RÚV greindi frá. Ekki tekið fyrir Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur tók ekki fyrfr erindi Ármanns- fells um byggingu háhýsa við Kirkjusand í dag. Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir að það yröi tekið af dagskrá, skv. RÚV. Tímakaup hækkar Tímakaup landverkafólks hækkaði um 6,9% á tímabilinu frá fyrsta ársfjórðungi 1995 fram til fyrsta ársfjórðungs 1996, að sögn Bylgjunnar. Laun af- greiðslukvenna hækkuðu um 9,5%. Lax drepst Hátt í 200 tonn af laxi hafa drep- ist í eldiskvíum í Seyðisfirði i sumar vegna þörungamyndunar í sjónum. Tjónið nemur 20-30 milíjónum króna. Stöð 2 greindi frá. 113 stöður auglýstar Stöður 113 heilsugæslulækna voru auglýstar til umsóknar í gær. Formaður Félags heilsu- gæslulækna segir það dapurlegt því læknamir vilji snúa til baka aö breyttum forsendum. -GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.