Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 44
52 jfréttir
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 JU’V
Ólafur Unnsteinsson, formaður Öldungaráðs FRÍ:
F
A hálfrar aldar æfinga-
og keppnisafmæli
„Árið 1992, sama ár og ég var
ólympíuþjálfari, varð ég fyrir því
hrikalega óhappi að brotna á hægri
hendi þegar ég féll á gólfið við
kennslu í körfubolta. Ég mölbrotn-
aði um úlnlið og varð það til þess að
ég varð að fara í fjóra uppskurði.
Árið eftir fótbrotnaði ég og sleit lið-
bönd á hægri fæti. Ég lagði þó ekki
árar í bát heldur mætti öllum á
óvart aftur til keppni,“ segir Ólafur
Unnsteinsson, formaður Öldunga-
ráðs Frjálsíþróttasambands íslands
meiðslin, bestur íslendinga i sínum
aldursflokki í kúluvarpi og kringlu-
kasti. Hann segist nú vera farinn að
ná sér ótrúlega vel og vill gjarnan
halda ótrauður áfram keppni og
þjálfun.
Ólafur var frá keppni vegna
meiðslanna í tvö ár en hefur keppt í
kringlukasti frá 1994. Hann lenti í
eOefta sæti í Evrópumóti i Aþenu í
júní 1994 og aftur í heimsmeistara-
keppni i Buffalo í Bandaríkjunum í
fyrra. Hann hefur haldið ótrauður
Ólafur Unnsteinsson byrjaði að æfa frjálsar íþróttir sjö ára en keppti í fyrsta
skipti 12 ára gamall. Á myndinni er hann að keppa á Melavellinum gamla í
Reykjavík, þá 18-19 ára og íslandsmethafi í fimmtarþraut unglinga.
og margfaldur Islandsmeistari ung-
linga og öldunga.
Ólafur á að baki langan æfinga-
og keppnisferil en hann byrjaði að
æfa frjálsar íþróttir fyrir 50 árum,
þá sjö ára gamaU i Hveragerði, og
keppti í fyrsta skipti 12 ára gamaU.
Hann er einn fremsti íþróttamaður
landsins, hefur keppt í fjölmörgum
íþróttagreinum, sett mörg met og
kynnst og keppt við ýmsa af fær-
ustu íþróttamönnum heims. Ólafur
starfar nú sem íþróttakennari við
Fjölbrautaskólann í Ármúla. Þar
hefur hann haft í læri marga af fær-
ustu íþróttamönnum landsins auk
þess að hafa þjálfað marga þeirra.
Ánægjan mikil
„Slysið kostaði það að ég varð að
hætta keppni í uppáhaldsgreinum
mínum, kúluvarpi og kastþraut.
Vegna meiðslanna er ég skugginn af
sjálfum mér í keppni. Ég held þó
álfram að keppa í kringlukasti en
kasta um fimm metrum styttra en
eUa hefði verið,“ segir þessi frækni
íþróttamaður sem er, þrátt fyrir
áfram og stóð meðal annars fyrir
þvi nú í sumar að níu manna hópur
öldunga tók þátt i Evrópumeistara-
mótinu í Malmö í Svíþjóð.
„Ánægjan af íþróttunum er svo
mikil að ég sé mig ekki hætta
keppni. Enginn íslendingur hefur
keppt jafnt oft í öldungaflokki á
stórmótum erlendis, til dæmis Róm
og Melboume,“ segir Ólafur.
Úl í Barcelona
er minnisstætt
Ólafi er ýmislegt minnisstætt af
þessum langa íþróttaferli og telur
að sér sé einna minnisstæðast sem
þjálfara að hafa fengið að vera þjálf-
ari og flokksstjóri íslensku frjálsí-
þróttamannanna sem fóru á ólymp-
íuleikana í Barcelona fyrir fjórum
árum. Þá hafi íslendingar fengið
besta heUdarútkomu af ólympíu-
leikum þó að frægasta einstaka af-
rekið hafi verið það þegar Vilhjálm-
ur Einarsson fékk silfurverðlaun í
þrístökki í Melboume 1956.
„Á Ólympíuleikunum í Barcelona
gekk íslendingum best á ólympíu-
leikum á þessari öld. Spjótkastarinn
Sigurður Einarsson varð fimmti og
Vésteinn Hafsteinsson varð ellefti.
Pétur Guðmundsson og Einar ís-
leifsson voru í 14. sæti og hand-
boltaliðið varð í fjórða sæti, sem er
frábær árangur," segir hann.
Keppti við
Al Oerter
Ólafur hefur kynnst fjölmörgum
erlendum og innlendum íþrótta-
mönnum og honum er mjög
minnisstæður fjórfaldur
ólympíumeistari í kringlu-
kasti A1 Oerter frá Banda-
ríkjunum. Hann segir
að það hafi verið ein-
stakt í sögunni að
hann hafi sigrað
á fjórum ólymp-
íuleikum. Það
hafi ekki verið
leikið eftir fyrr
en Carl Luis sigr-
aði í langstökki
ólympíuleikunum í
sumar.
„Ég sat á Ólympíu-
leikvanginum í Róm 1960
og sá A1 Oerter sigra. Síð-
an átti ég eftir að keppa við
hann í Bandaríkjunum sem
íslandsmethafi i kringlukasti
50 ára, 49,10 m árið 1989. Það er
mér alveg sérstök tilfínning að hafa
upplifað þetta, að fá tækifæri til að
keppa við þennan fræga íþrótta-
mann. Mér þykir vænt um svo
margt í þessu starfí, þjálfað marga
og leitt fjölmörg lið til sigurs bæði á
íslandi og í Danmörku," segir hann.
Skipulagt
keppnisferðir
Árin 1960-1961 bjó Ólafur í Dan-
mörku á sumrin og þjálfaði og æfði
á vegum frjálsíþróttadeildar Ála-
sur-
Gis-
arson,
UMSB,
varð
þriðji í 40
ára flokki í
stangarstökki.
Ólafur segir að
keppnin í Malmö hafi
verið mjög ánægjuleg.
Opnunarhátíðin hafi ver-
ið einkar glæsileg og þul-
Olafur Unnsteinsson, frjálsíþróttamaðurinn urjnn ^afi kynnt íslend-
frækni, á 50 ára æfinga- og keppnisafmæli um iny,na Sem íslensku vik-
þessar mundir. Síöustu árin hefur hann unnið aö ingana. Hann bendir á að
málefnum öldunga, skipulagt keppnisferðir og ísiensku öldungarnir hafi
keppt sjálfur á stórmótum í útlöndum. sótt móf víða um heim og
DV-mynd GS fengið lifla styrki, þeir
sem hafði á að skipa mörgum lands- hafi kostað keppnisferðalög sín að
liðsmönnum. Siðustu áratugina hef- mestu sjálfir.
ur Ólafur unnið mikið starf á veg- -GHS
borgar og árin 1973-
’75 starfaði
hann sem
þjálfari
eins
sterkasta
félagsliðs
Dan-
merkur,
AK 73 í
Kaup-
manna-
höfn,
um frjálsíþróttasambandsins og lagt
mikla orku í frjálsíþróttastarf öld-
unga. Hann hefur meðal annars
skipulagt keppnisferðir til útlanda
og hafa íslensku öldungarnir staðið
sig þar með prýði, nú síðast á Evr-
ópumeistaramóti öldunga í Malmö i
Svíþjóð. Þar voru 3638 keppendur
frá 36 Evrópulöndum.
íslensku öldungarnir komust í úr-
slit í átta greinum í Malmö, hlutu
ein gullverðlaun , silfur og brons og
settu sjö íslandsmet. Árný Heiðars-
dóttir, Óðni, varð Evrópumeist-
ari í 40 ára flokki í
þrístökki, Trausti
Sveinbjömsson,
FH, hlaut silfur í
400 metra
grinda-
hlaupi og
Krist-
Níu öldungar fóru á Evrópumeistaramót í Malmö í Svíþjóð í sumar og náðu frábærum árangri. Á myndinni eru frá
vinstri: Ólafur J. Þórðarson, ÍA, Jón H. Magnússon, ÍR, Þórður B. Sigurðsson, KR, Árný Heiöarsdóttir, Óðni, Ólafur
Unnsteinsson, HSK, Guðmundur Hallgrímsson, UÍA, Þór Magnússon, í R, og Trausti Sveinbjörnsson, FH, fyrir utan
leikvanginn í Malmö. Á myndina vantar Kristján Gissurarson, UMSB.