Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1996, Blaðsíða 32
40 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1996 13 ~\T fólk_______________________________________________________________________ íslensk kona fer til rannsóknarstarfa í Bosníu: Fyrir 15 árum var Eva Elvira Klonowski i skíðaferö í Sviss ásamt fjölskyldu sinni. Á meðan hún skemmti sér á skíðum voru herlög sett á í heimalandi hennar, Pól- landi, og þar upphófst mikill ófrið- ur. Hún gat ekki hugsað sér að fara til baka þar sem kommúnisminn var allsráðandi og ári síðar endaði þessi pólska fjölskylda hér á íslandi og er nú orðin íslensk. Eva starfar á Rannsóknarstofnun Háskólans og kann vel við að vera íslendingur. „í rauninni er ég enn í skíöaferð- inni og líkar bara vel,“ segir Eva. Hún er nú samt ekki alltaf á skíð- um. Öðru nær. Eva er doktor í rétt- armannfræði og afrekaði það meira að segja að vera yngsti doktor Pól- lands, aðeins 25 ára gömul. Síðan þá hefur hún sótt námskeið og starfs- reynslu til Bandaríkjanna og í fyrra vann hún við greiningu beina sem fundist höfðu i Skriðdal. i Leysti hrottaiegt morðmál Eva var sem oftar að vinna við rannsóknarstörf í Bandaríkjunum á síðasta ári og lenti hún þá i æsilegu morðmáli og átti stóran þátt í að leysa það. „Það var þannig að 9 ára drengur hvarf á leiðinni heim úr skólanum í Miami. Gerð var gríðarleg leit og fjölmiðlar blésu málið upp en allt án árangurs. Svo kom að því að konu eina á búgarði í Miami var farið að gruna einn vinnumanna sinna um að stela skartgripum frá sér. Hún ákvað að fara inn í herbergið hans og komast til botns í málinu. í stað þess að finna skartgrip- ina fann hún hins vegar skólatösku sem á var skrifað nafn piltsins sem hvarf. Hún kallaði í lögregluna sem handtók vinnumann- inn umsvifalaust en hann laug upp hverri sögunni á fætur annarri. Að lokum sagðist hann hafa óvart keyrt á piltinn og þannig hefði hann dáið. Vinnumaðurinn sagðist hafa orðið hræddur og ekki vitað hvað hann átti að gera. Þá sagðist hann hafa tekiö upp á því að henda líkinu út i vatn. Lögreglan hóf þá víð- tæka leit í öllum ná- lægum vötnum og skurðum en allt kom fyrir ekki. Það var ekki fyrr en einn lögreglumannanna veitti þremur risa- stórum tunnum á búgarðinum at- hygli sem hjólin fóru að snúast fyr- ir alvöru. Við nán- ari athugun kom í ljós að það var búið að steypa upp í tunnumar. Þegar steypan var svo at- huguð nánar kom i »Ég er hræddust ljós að lík piltsins var þar ofan í.“ Þá kom Eva til sögunnar í þessu máli af því að nú þurfti að ganga úr skugga um dánarorsök piltsins. Hafði hann verið drepinn eða ekki? Var vinnumaðurinn morðingi eða ekki? Nauðgað, skotinn og stunginn „Við gátum greint það á beinun- um hvemig hann dó. Það var ljóst að byssukúla hafði farið í gegnum hann og banað honum. Svo kom í ljós að eftir að hann dó hafði hann verið stunginn ótal sinnum með risastórum bambushnif. Þá var sag- an komin á hreint. Vinnumaðurinn hafði sem sagt rænt piltinum og ját- aði að hafa svo nauðgað honum líka. Þegar pilturinn hljóp svo af stað heim varð vinnumaðurinn hræddur um að hann myndi kjafta frá svo hann skaut hann á flóttanum. Svo stakk hann líkið margoft, bútaði það niður og setti í tunn- umar hann fyllti steypu, ir Elvira með hryllingi. En hvemig stóð á því að hún var fengin til aö rannsaka málið? „Mér hafði hlotnast sá heiður að fá Fulbright-styrkinn og var því að vinna við rannsóknir í FAU-háskóla í Flórída. Það var bara tilviljun að ég var þama einmitt á þessum tíma og þar af leiðandi fengin til verksins ásamt tveimur kunningjum mínum. Það er mjög ánægjulegt að hafa fengið tækifæri til að hjálpa lögregl- unni að fá réttlætinu fullnægt." í fjöldagrafir í Bosníu Það hefði sjálfsagt fáa gmnað að mannfræðistarfið gæti verið mjög spennandi. Auðvelt er að ímynda sér mannfræðing vera að fást við beinahrúgur inni á rannsóknar- stofu þar sem ekkert spennandi ger- ist. Því er í raunveruleikanum alls ekki þannig farið og nú er hún Eva meira að segja að fara til Bosníu i þeim tilgangi að grafa upp lík í fjöldagröfum. Af hverju skyldi hún nú vera að leggja upp í svo langa og hættulega ferð? „Það er góð spuming,“ segir hún og hlær. „Ég er í alþjóðlegum sam- tökum og nafh mitt er á ákveðnum lista yfir mannfræð- inga. Það er ör- ugglega bara til- viljun að nafn mitt skyldi hafa verið valið af list- anum. Reyndar em fáir mann- fræðingar í Evr- ópu með menntun á við mína en í Banda- ríkj- Eva við rannsóknarstörf í Bandarikjunum ásamt Mehmet Yasar Iscan pró- fessor. viö aö fá brjósklos í fjöldagröfunum," segir Eva Elvira Klonowski. unum er nóg af þeim. Ég er alla vega að fara út og er full tilhlökkun- ar.“ Lífshættuleg rannsókn Eva fer út á vegum Alþjóðadóm- stólsins i Haag. Ástæðan fyrir rann- sókninni sem hún mun taka þátt í er að sanna að mennimir í fjölda- gröfunum hafi verið myrtir. Serbar em sterklega gmnaðir um að hafa staðið fyrir fjöldamorðum þar en þeir vilja ekki viðurkenna það og nú er það Evu og fleiri mann- fræðinga að skera úr um mál- ið. Talið er að um 15 þúsund manns séu grafhir í fjölda- gröfunum. Það verður því nóg að gera hjá rannsóknar- fólkinu. „Það er ekkert mál að sjá það á beinunum hvort um karl eða konu hafi verið að ræða. Eins er hægt að sjá hæð fórnar- lambsins og aldur. Við ætlum auk þessara atriða að reyna að bera kennsl á líkin. Ef einhver hefur átt við einkennandi sjúkdóm eða beinbrot að stríða er hugsan- lega hægt að bera kennsl á viðkomandi. Líklega era þetta mest- megnis karlmenn og það era því tugir þúsunda kvenna sem vona að þær fái ein- hverjar upplýsingar um sína menn. Við fáum vemd frá herjum Sam- einuðu þjóðanna af þvi að í raun gætum við verið í lifshættu. Það er mikill fjöldi fólks á þessu svæði sem vill alls ekki að sannleikurinn verði leiddur í Ijós og þeim hinum sömu er þar af leiðandi alls ekki vel við vera okkar þama,“ segir Eva og er hvergi bangin. En kviðir Eva ekkert fyrir þessu ævintýri? „Ég er ekki hrædd við að verða drepin eða að sjá einhvem óhugnað. Þetta er starfið mitt og mér finnst þetta spennandi. Auk þess er sjálf- sagt ekkert verra að enda lífið með því að vera skotin í fjöldagröf held- ur en að deyja í rúminu. Það eina sem ég er hrædd við er að fá brjósklos, ég er nefnilega frekar slæm í bakinu, og þá fyrst gæti komið babb í bátinn. Það væri alltof svekkjandi að þurfa að hætta rann- sókninni," segir hin galvaska Eva Elvira. Fimmtugsafmæli í fjöldagröf? Eiginmaður Evu heitir Irek Adam Klonowski og er matvæla- verkfræðingur hjá Iðntæknistofn- un. Þau eiga tvær dætur, Alexöndra og Moniku, en þær eru 17 og 13 ára. Hvemig fjölskyldu Evu líður gagn- vart fýrirhugaðri ferð hennar er auðvelt að ímynda sér. Hvað sem þvi líður heldur Eva af stað þann 24. ágúst til fjöldagrafa í Bosníu þar sem hún verður næstu mánuðina. Eva verður 50 ára í nóvember og kannski á það fyrir henni að liggja að halda upp á afmælið sitt í fjölda- gröf í Bosníu. -ilk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.