Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1996, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 1996 Utlönd Stuttar fréttir dv Stríðandi aðilar í Tsjetsjeníu starfa í einu og öllu eftir vopnahléssamningum: Lebed bíður fundar en ekkert bólar á Jeltsín Rússneskar hersveitir hófu brott- flutning frá Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, eftir að yfirmenn hers- ins og tsjetsjenskir skæruliðar leystu deilu sem spratt vegna þess að skæruliðar höfðu tekið rúss- neska bílalest. En meðan aðilar stríðsins í Tsjetsjeníu starfa í samræmi við vopnahléssamninga frá í síðustu viku bíður Alexander Lebed, örygg- isráðgjafi Rússa, eftir fundi með Boris Jeltsín forseta þar sem forset- inn mun fjalla um áætlanir hans um pólitíska lausn átaka sem varað hafa í 20 mánuði og kostað þúsund- ir manna lífíð. Talsmenn Rússa og skæruliða í Tsjetsjeníu sögðu í gær að þeir hefðu náð samkomulagi um öll at- riði vopnahléssamningsins frá í síö- ustu viku og engar hindranir væru í veginum fyrir framhaldi friðsam- legra aðgerða. Samkvæmt samning- um munu rússneskar hersveitir hverfa á brott frá Grosní og suður- hluta Tsjetsjeníu. Búist var við að brottflutningi rússneskra hermanna frá suðurhluta lýðveldisins lyki í gær en frá öðrum svæðum í dag eða á morgun. Er vopnahléð enn virt af báðum aðilum. Talsmaður Lebeds sagði í gær að uppkast að samningi um pólitíska framtíð Tsjetsjeníu hefði verið sent Jeltsín forseta en hann er í fríi skammt frá Moskvu. Vonaðist Lebed til að Jeltsín mundi hitta sig í dag eða ræða við sig í síma. Engin ummæli fengust frá Kreml um mögulegan fund þeirra félaga. Jeltsín gaf Lebed óskorað umboð til að leysa deiluna í Tsjetsjeníu en hefur ekki hitt hann í eigin persónu í margar vikur. Lebed hefur ekkert látið uppi um einstök atriði pólitísks samnings um framtíð Tsjetsjeníu en sam- kvæmt heimildum Reuters-frétta- stofunnar verður ekki tekið á sjálf- stæðismáli Tsjetsjena fyrr en landið hefur jafnað sig eftir hið mann- skæða stríð. Fjarvera Jeltsins hefur leitt til vangaveltna um að hann geti verið svo heilsuveill að hann geti ekki tekið á málinu eða þá að hann vilji bíða og sjá hvort Lebed takist það verk sem honum var ætlað. Jeltsín hefur einungis komið tvisvar fram ópinberlega síðan hann var endur- kjörinn forseti í byrjun júlí. Reuter Eins og úlfur Tveggja ára stúlka frá Puerto Rico byrjaði í gær i meðferð við mjög sjaldgæfum sjúkdómi. Ein- kenni sjúkdómsins eru þau að hálft andlit stúlkunnar er þakið löngum dökkbrúnum hárum og er hún því að hluta til eins og maður í úlfslíki. Á hægri hlið andlits stúlkunnar er stór valbrá sem er alþakin hárum og er það mjög sjaldgæft sjúkdómsein- kenni. Næstu ár geta orðið stúlkunni mjög erfið. Einkennin hafa í fór með sér auknar líkur á húð- krabbameini en læknar freist- uðu þess í gær að setja heil- brigða húð á andlit hennar. Að- gerðin tók margar klukkustund- ir og sögðu læknar hennar að hún hefði gengið mjög vel en stúlkan þyrfti að gangast undir margar aðgerðir til viðbótar. Fjöldi her- manna varö fyr- ir eituráhrifum Fjöldi bandarískra hermanna, sem tók þátt í Flóastríðinu í Kúvæt og írak 1991, varð fyrir efnavopnum án þess að hafa nokkurn tíma fengið vitneksju um það. En yfirmenn í banda- ríska hernum bjuggu yfir vit- neskju um mögulega eitrun þeg- ar árið 1991. Þeir gerðu sér fyrst í fyrra grein fyrir því að hér gæti verið alvara á ferð. Samkvæmt leynilegri skýrslu, sem nú hefur verið gerð opinber, kemur fram að efnavopn hafi veriö geymd í vopnabúri íraka sem bandarískir hermenn sprengdu í loft upp í mars 1991 um það bil sem Flóastríðinu lauk. En það var ekki fyrr en í vor að þeir 150 hermenn, sem þátt tóku í aðgerðinni, fengu upplýs- ingar þess efnis að þeir hefðu mögulega orðið fyrir áhrifum sinnepsgass og sarin sem ráðast á taugakerfið. Margir hermann- anna hafa haft sjúkdómsein- kenni sem mögulega má rekja til eiturefnanna. Alls hafa 60 þúsund fyrrum hermenn úr Flóabardaga beðið um sérstaka læknisrannsókn til að ganga úr skugga um hvort þeir hafi þar orðið fyrir varan- legu heOsutjóni. Reuter Sylvia Svíadrottning mætir með blómvönd á setningarathöfn alþjóðlegrar ráðstefnu um kynferöislega misnotkun barna. Eitt þúsund manns sækja ráöstefnuna í Stokkhólmi og munu næstu fimm daga ræöa hvernig hægt er að koma í veg fyrir barnaklám, barnavændi og aðra kynferðislega misnotkun barna. Símamynd Reuter Flokksþing demókrata í Chicago: Forsetafrúin á mjúku nótunum Flokksþing demókrata í Chicago hélt áfram í gær og voru aðalræðu- menn kvöldsins Hillary Clinton for- setafrú og Jesse Jackson sem er þekktastur fyrir baráttu sína fyrir borgaralegum réttindum blökku- manna. Ræða Hillary Clinton var á mjúku nótunum og eyddi hún drjúg- Vinningar í HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings Heiti potturinn 28. ágúst ‘96 kom á miða nr. 5424 Hillary Clinton um tíma í að tala um fjölskylduna og gildi hennar. Hún talaði um þær vonir sem hún og forsetinn bæru í brjósti til bama í landinu og fjöl- skyldna þeirra. Það var greinilegt að hún kom inn á mál sem repúblikanar lögðu mikið upp úr á sínu flokksþingi og að hún vill breyta áliti almennings á sér jafnt og forsetanum. Forsetafrúin, sem hörðustu gagn- rýnendur segja að stjórni Hvíta Húsinu, talaði i gær sem góða eigin- konan. Hún hefur verið mikið gagn- rýnd og sagðist hafa orðið fyrir stöðugum árásum repúblikana síð- ustu fjögur árin. Þeir segi hana kalda, stjórnsama og róttæka. Áður en Hillary Clinton sté í pontu ávarpaði Jesse Jackson full- trúa þingsins og undirbjó jarðveg- inn fyrir forsetafrúna. Hann hélt uppi miklum vörnum fyrir hana og sagðist gera það af heilindum og honum bæri siðferðisleg skylda til þess. Það þarf vart að taka fram að salurinn ætlaði bókstaflega að rifna af fagnaðarlátum. Lögbanni frestað Tryggingafyrirtækið Lloyd’s í London fékk í gær frestað lög- banni vegna skulda fyrirtækisins i Baltimore í Bandaríkjunum. Lögbannið hefði getað orðið fyrir- tækinu að falli. Flugræningjar yfirheyrðir Breska lögreglan yfirheyrir nú flugræningjana sjö sem rændu farþegaflugvél frá Súdan í fyrra- kvöld. Flugræningjarnir kröfðust pólitísks hælis á Englandi. Á batavegi Móðir Ter- esa, sem varð 86 ára í gær, er nú á batavegi en hún liggur á spítala vegna malaríu og hjartveiki. Læknar segja horfumar góðar en hún sagði í gær að hún vildi helst komast heim svo hún gæti haldið líknar- starfi sinu áfram. Þrjár sprengingar Þrjár öflugar sprengjur sprungu á eynni Korsíku í morg- un en um 20 sprengjur hafa sprungið á eynni sl. tvær vikur. Talið er að hópar, sem krefjast aukins sjálfstæðis eyjunnar, standi að baki tilræðunum. Á lausu Miklar rigningar í Belgíu höml- uðu í morgun uppgrefti lögreglu sem býst við að finna fleiri lík í barnaklámsmálinu. Endanlegur skilnaður Gengið verð- ur endanlega frá skilnaði Karls Breta- prins og Díönu prinsessu í dag. Díana missir konunglegan titil sinn en verður hér eftir Díana prinsessa af Wales. Tóku snák og hauka Tollarar í Egyptalandi tóku tvo menn sem reyndu að smygla snáki og tveimur haukum úr landi. Málaði páfagauka Ástrali, sem málaði venjulega páfagauka til að láta þá líta út fyr- ir að vera mun verðmætari, var fangelsaður fyrir svik. Bættur hagur í fjármála- frumvarpi dönsku ríkis- stjórnarinnar er séð fram á aukinn hag- vöxt, minna at- vinnuleysi og minnkun fjár- lagahalla meðan meginhluta vel- ferðarkerfisins er haldið uppi. Breti tekinn Albönsk yfirvöld hafa handtek- ið Breta sem grunaður er um aö hafa misnotað tvo unga drengi kynferðislega. Matareitrun Um 800 farþegar á ferju i gríska Eyjahafinu veiktust af matareitr- un. Flytja varð fjóra, þar af tvö böm, í sjúkrahús. Frakkar gagnrýna Frönsk stjó'rnvöld gagnrýndu Afríkuríki fyrir að vilja ekki hamla gegn straumi flóttamanna til landsins. Þeir sæktust í auð en enduðu nær allslausir. Hafna Meri Eistneska þingið hafnaði í þrí- gang tillögu um að Lennart Meri, forseti landsins, yrði endurkjör- inn. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.