Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1996, Side 9
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996
Utlönd
9
I
)
Meirihluti Breta vill af
nema konungsveldið
Skoðanakönnun, sem gerð var í
Bretlandi í gær, leiddi í ljós að
meirihluti Breta vill afnema kon-
ungsveldið þar í landi áður en Karl
prins verður konungur. Yfir 42 þús-
und manns tóku þátt í könnuninni
og vildu 52 prósent þátttakenda af-
nema konungsveldið en 48 prósent
þeirra voru á móti því.
Könnunin var gerð daginn eftir
að gengið var lagalega frá skilnaði
Karls Bretaprins og Díönu
prinsessu og kennir almenningur
prinsinum um og ekki síst vegna 26
ára sambands hans við Camillu
Parker Bowles.
Díana kennir Camillu ekki síður
um hvemig fór en hún sagði
einmitt í viðtali tyrir tæpu ári að
það hefðu verið þrir í þessu hjóna-
bandi sem væri fullmikið.
Þegar verið var að ganga frá
skilnaðinum lét Díana í það skína
að hún hefði aldrei viljað skilja,
Elísabet drotning Bretlands.
hún hefði verið neydd til þess og
hún ætlaði þess vegna ekki að gera
það þegjandi og hljóðalaust. Það
vakti mikla athygli fjölmiðla að
Díana var með giftingarhringinn á
sér og túlka margir það sem merki
þess að hún ætli ekki að hverfa
hljóðlega af sjónarsviðinu.
Will Carling, fyrrum rugby-
stjama, sem sagður er hafa átt í ást-
arsambandi við Díönu prinsessu,
gekk frá skilnaði við konu sína á
fimmtudag, aðeins 24 stundum eftir
að Karl og Díana gengu frá sínum
málum. Nafn prinsessunnar var
ekki nefnt en eiginkonan, Julia Car-
ling, kennir Diönu um hvernig fór.
Wiil Carling hefúr hins vegar alla
tíð haldið því fram að þau hafi að-
eins verið vinir.
Það er greinilegt að konungsfjöl-
skyldan þarf að hafa sig alla við til
að vinna sig í álit hjá bresku þjóð-
inni og hafa leiðtogar kirkjunnar
ekki síst áhyggjur vegna þess að ef
Karl prins verður konungur verður
hann höfúð ensku þjóðkirkjunnar.
Reuter
Franska bændur grunar aö nautakjöt sé flutt inn frá löndum utan Evrópusambandsins og skoöa því farma vörubíla
sem koma frá Bretlandi. Bændur hafa einnig sett upp vegatálma víða í Frakklandi til að mótmæla fallandi veröi nauta-
kjöts í kjölfar kúariðu.
Fylgi við nýjungar í fíkniefnamálum:
Ríkisheróín
gefiö í Danmörku á
næsta ári
DV, Kaupmannahöfn:
„Að sjálfsögðu verður hugmyndin
um ókeypis dreifingu á heróíni að
veruleika. Öll skynsamleg rök mæla
með því,“ segir Preben Brandt, for-
maður fikniefnanefndar Danmerk-
ur. Hann reiknar með því að hug-
myndin komist í framkvæmd strax
á næsta ári. Stórbærinn Óðinsvé
hefur þegar sótt um að vera heima-
bær fyrir slíka tilraun.
Hugmyndin nýtur mikils fylgis í
Danmörku og hafa fjölmargir
stjómmálmenn í öllum flokkum og
sérfræðingar á öllum sviðum mælt
meö að ríkið útdeili heróíni ókeypis
til langt leiddra fíkniefnaneytenda.
Þannig vilja menn veita neytendun-
um eðlilegra líf sem losi þá út úr
vítahring afbrota en um leið séu
þeir undir eftirliti. Glæpir munu
minnka og hin mikla fjárþörf fíkni-
efnaneytenda hverfur. Úm leið verð-
ur stoðunum kippt undan þeim
glæpakóngum sem stýra innflutn-
ingi og sölu efnanna.
í byrjun næsta mánaðar fer heil-
brigðisráðherra Dana og heilbrigð-
isnefnd þingsins til Zúrich í Sviss
til að kynna sér framgang þessara
mála. Þar hefur heróíni verið út-
deilt ókeypis til langt leiddra fikni-
efiianeytenda í þrjú ár. Tilraunin
þykir hafa tekist svo vel að þegar er
búið að framlengja hana um tvö ár.
í vikunni lýsti fikniefnanefnd
Jafnaðarmannaflokksins sig fylgj-
andi hugmyndinni en það er stærsti
stjómmálaflokkur Danmerkur og
ríkisstjómarinnar.
Yvonne Herlöv Andersen heil-
brigðisráðherra neitar hins vegar
að samþykkja áætlun um fria dreif-
ingu heróíns nema fullnægjandi
sannanir sýni fram á ágæti tilraun-
arinnar. Haustferðin til Sviss getur
orðið afgerandi í þeim efnum. -pj
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins, Austurvegi 4,
Hvolsvelli, þriðjudaginn 3. sept-
ember 1996, kl. 15.00, á eftir-
________farandi eignum:______
Eyvindarmúh, Fljótshlíðarhreppi,
þingl. eig. Benóný Jónsson og Sigríð-
ur Viðarsdóttir. Gerðarbeiðandi er
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Gerðar, 75%, Vestur-Landeyjahreppi,
þingl. eig. Ólafur Þór Ragnarsson.
Gerðarbeiðendur eru Byggingarsjóð-
ur ríkisins, húsbréfadeild, og Kaupfé-
lag Rangæinga.
Hólavangur lln, Hellu, þingl. eig.
Rangárvallahreppur. Gerðarbeiðandi
er Byggingarsjóður verkamanna.
Hraukur II, Djúpárhreppi, þingl. eig.
Jón Ingþór Haraldsson og Ingibjörg
Lilja Karlsdóttir. Gerðarbeiðandi er
Byggingarsj. ríkisins, húsbréfadeild.
Öldubakki 13, Hvolsvelli, þingl. eig.
Haraldur Skarphéðinsson. Gerðar-
beiðandi er Byggingarsj. ríkisins,
húsbréfadeild.
SÝSLUMAÐURINN
í RANGÁRVALLASÝSLU
GRUNNSKOLINN
í BORGARNESI
óskar eftir tungumálakennara.
Upplýsingar í síma 437-1229 og utan
vinnutíma 437-1297 og 437-1579.
Sfl BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
■ ■ BORGARTÚNI 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMl 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Spöng - miðsvæðis í Borgarholti Deiliskipulag miösvæöis í Borgarholti - Spöng - er til kynningar í sýningarsal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa á 1. hæö í Borgartúni 3 alla virka daga frá 9-4 og stendur til 26. september nk.
UPPB0Ð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Útgarði 1, Húsavík, sem hér segir, á eftir- farandi eignum: Garðarsbraut 62-64, Húsavík, 9,62%, ásamt vélum og tækjum, þingl. eig. Bakaríið Kringlan hf., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður, þriðjudaginn 3. sept- ember 1996 kl. 10.00.
Gmndargarður 11, íbúð 0203, Húsa- vík, þingl. eig. Omar Egilsson og Oddfríður B. Helgadóttir, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður verka- manna, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Aðalbraut 32, Raufarhöfn, þingl. eig. Óm Trausti Hjaltason, gerðarbeið- andi sýslumaðurinn á Húsavík, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Lindarholt 6, Raufarhöfn, þingl. eig. Jón Eiður Jónsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Álftanes, Aðaldælahreppi, þingl. eig. Völundur Hermóðsson, ^erðarbeið- andi Vátryggingafélag Islands hf., þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Pálmholt 3, Þórshöfn, þingl. eig. Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Ásgata 12, efri hæð, Raufarhöfn, þingl. eig. Sigrún Bjömsdóttir, gerð- arbeiðandi Valgarður Stefánsson ehf., þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Pálmholt 8, Þórshöfn, þingl. eig. Þórshafnarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Bakkavegur 4, Þórshöfn, frysti- og sláturhús ásamt vélum og tækjum, þingl. eig. Þrotabú Kaupfélags Lang- nesinga, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands, Akureyri, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
Skútahraun 2a, Reykjahlíð, þingl. eig. Sæþór Kristjánsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og sýslu- maðurinn á Húsavík, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 10.00.
UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stillholti 16-18, Akranesi, þriðjudaginn 3. september 1996 kl. 11.00, á eftirfarandi eignum: Merkigerði 10, þingl. eig. Jens I. Magnússon, gerðarbeiðandi Akra- neskaupstaður.
Presthúsabraut 25, þingl. eig. Gyða Jóhannesdóttir, gerðarbeiðandi Líf- eyrissjóður verslvmarmanna. Presthúsabraut 31, þingl. eig. Ragn- heiður Gunnarsdóttir, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður ríkisins. Skagabraut 5a, efri hæð og ris, þingl. eig. Sigurður Þór Gunnarsson, gerð- arbeiðendur Akraneskaupstaður og Byggingarsjóður ríkisins. Skólabraut 25a, þingl. eig. Jón Sig- urðsson, gerðarbeiðandi Ákranes- kaupstaður.
Akursbraut 22, efsta hæð, þingl. eig. Selma Guðmundsdóttir, Bettý Guð- mundsdóttir, Björgheiður Jónsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir, gerðar- beiðendur Jöfur hf., Landsbanki ís- lands, lögfræðideild, og Lífeyrissjóð- ur starfsm. ríkisins.
Andrea, skipaskrámr. 2241, þingl. eig. Viktoríu bátar ehf., gerðarbeið- endur Akraneskaupstaður og Brynjar Sigtryggsson.
Sóleyjargata 13, efri hæð, þingl. eig. Rannveig María Gísladóttir, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Deildartún 7, neðri hæð, þingl. eig. Svavar Hafþór Viðarsson og Kolbrún Belinda Kristinsdótth) gerðarbeið- endur Búnaðarbanki Islands, Akra- nesi, og Byggingarsjóður ríkisins. Stillholt 4, þingl. eig. Jóhann Ágústs- son og Hrafnhildur Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík- isins.
Vallarbraut 1, 03.01., þingl. eig. Sig- rún Karlsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður vélstjóra, útibú. Vesturgata 78, neðri hæð, þingl. eig. Þórarinn Kristján Finnbogason, gerð- arbeiðandi Búnaðarbanki íslands, Akranesi.
Einigrund 29, þingl. eig. Húsnæðis- nefnd Akraness, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna. Einigmnd 6, 02.02., þingl. eig. Sigrún Damelsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður verkamanna og Eini- grund 6-8, húsfélag.
Vitateigur 1, efri hæð, þingl. eig. Hrefna Sigurðardóttir, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins og húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar. Æðaroddi 32, lóðarréttindalaust hest- hús, þingl. eig. Kristján Snær Leós- son, gerðarbeiðandi Akraneskaup- staður.
Garðabraut 45, 01.04, þingl. eig. Hús- næðisnefnd Akraness, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður verkamanna. Hjarðarholt 17, efri hæð, þingl. eig. Jóna Björk Guðmundsdóttir og Jó- hannes Sigurbjömsson, gerðarbeið- endur Akraneskaupstaður, húsbréfa- deild Húsnæðisstofnunar og Kredit- kort hf.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI