Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1996, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996
33
Myndasögur
Fréttir
Frásögn Koraks: „Þegar menn Ronchi
ætluöu aö sprengja iestina var hurðum
vagnanna skyndilega hrundið upp!
e
Hvað ertu að
gera, mamma?
Ég er að yrkja g
ástarljóð. 1
Ertu að grínaet? Þú
hefur þá funílið þér
mann á endanum?
/
Nei, ekki enn þá.
En éa, hugsa jákvætt.
Jóhannes Báröarson, til vinstri, og Þorvaröur Þórðarson meö tvo laxa
sem þeir fengu í Elliöaánum í gær. Fyrir framan þá eru synir Jóhannesar,
Jón Ómar og Gunnar Þór. Þeir Jóhannes og Þorvaröur fengu sinn
fiskinn hvor en þetta var fyrsta veiðiferð Jóhannesar í árnar.
DV-mynd MS
Elliðaárnar í sumar:
Ekkert
hefur borið
á kýlaveiki
- mun betri veiði en í fyrra
„Það hefur ekkert borið á kýla-
veiki hér í sumar, ekkert örlað á
slíku. Þetta gerist þrátt fyrir að
vatnsmagn og veðurfar hafi verið
með mjög svipuðu móti og í
fyrra,“ sögðu veiðiverðimir Magn-
ús Sigurðsson og Skúli Kristins-
son við EUiðaárnar í gær.
I fyrra gerði kýlaveikin mönn-
um gramt í geði og í sumar hafa
veiðimenn, sem rennt hafa fyrir
lax í ánum, ekki farið varhluta af
fyrirbyggjandi aðgerðum til að
spoma við útbreiöslu veikinnar.
Til allrar lukku hefur þessi vágest-
ur ekki látið á sér bera. „Það hefði
ekki farið fram hjá nokkmm
manni ef þetta hefði verið á ferð-
inni hér í sumar. Úr þessu eru
mjög litlar líkur á að kýlaveikin
geri vart við sig,“ sögðu þeir veiði-
verðir enn fremur.
Mun betri veiði en í fyrra -
svipaðar göngur?
Veiði í Elfiðaánum í sumar hef-
ur verið mun betri en í fyrra það
sem af er veiðitíma. Á hádegi í
gær vom komnir 1.062 laxar á
land en 929 á sama tíma í fyrra. Á
morgunvaktinni veiddust 8 laxar
og sögðu veiðimenn talsvert vera
af laxi á efri ánni.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
kem til veiða í Elliðaánum. Það
var skemmtilegt að sjá þetta og
það skemmir aldrei fyrir að fá lax.
Við voram mest á efri hluta ár-
innar og sáum eitthvað af fiski.
Hann virtist þó ekki láta mikið á
sér bera,“ sagði Jóhannes Bárðar-
son í samtali við DV í gær en
hann var á stöng í Elliðaánum
með Þorvarði Þórðarsyni. Þeir fé-
lagar fengu tvo laxa.
Auk laxanna átta sem veiddust
á morgunvaktinni i gær kom einn
tveggja punda regnbogasilungur á
land en slíkir fiskar eru frekar
sjaldséðir gestir í Elliðaánum.
Erfitt er að gera sér grein fyrir
göngum í Elliðaámar í sumar.
Teljarar við ána hafa verið meira
og minna bilaðir í allt sumar og
þvi verður að taka niðurstöður
þeirra með miklum fyrirvara. Lík-
legt er að svipað magn af laxi hafi
gengið í ámar og í fyrra. Bagalegt
er ef ekki er hægt að sjá til þess að
teljararnir séu í lagi og slíkt til
skammar þeim sem hlut eiga að
máli. -SK