Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1996, Síða 17
16
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1996
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1996
25
íþróttir
íþróttir
ENGLAND
Deildabikarinn
2. umferð - fvrri lelkir:
Barnet-West Ham .............1-1
Blackpool-Chelsea............1-4
Bristol City-Bolton .........0-0
Coventry-Birmingham..........1-1
Leeds-Darlington.............2-2
Southampton-Peterborough .... 2-0
Stoke-Northampton............1-0
Swindon-Q.P.R................1-2
Everton-York City............1-1
Middlesboro-Hereford.........7-0
Nott. Forest-Wycombe.........1-0
Sheff. Wed-Oxford............1-1
Wimbledon-Portsmouth.........1-0
Það bar helst til tíðinda að ítalinn
Fabrizio Ravanelli skoraði Qögur
mörk fyrir Middlesboro í gærkvöldi
gegn Hereford. Úrvalsdeildarliðin
Everton, Leeds, Sheff. Wed og West
Ham voru í vandræðum gegn neðri
deildaliðum.
SKOTIAND
------------------
Deildahikar - 8-liða úrslit:
Rangers-Hibernian ......4-0
SVÍÞJÓD
Úrvalsdeildin:
Djurgárden-AIK ..............0-2
Bikarkeppnin - 3. umferð:
Enkuping-Hammarby ...........0-2
Vásterás-Örebro .............1-2
Falkenberg-Örgryte...........1-3
I $ UNDANKEPPNI HM
---------------------
6. riöill:
Tékkland-Malta.........6-0
1-0 Berger (12.), 2-0 Nedved (24.), 3-0
Berger (62.), 4-0 Kubik (77.), 5-0
Smicer (83.), 6-0 Frydek (87.)
Júgóslavía 2 2 0 0 9-1 6
Tékkland 1 1 0 0 6-0 3
Spánn 1 1 0 0 6-2 3
Slóvakía 1 1 0 0 2-1 3
Færeyjar 3 0 0 3 4-11 0
Malta 2 0 0 2 0-12 0
Vináttuleikur:
Rúmenia-Sameinuðu furstad. 1-2
0-1 A1 Bolooshi (5.), 1-1 Vladoiu (60.),
1-2 Saeed (71.)
1. DilLD KARLA
Sigurpáll Aðalsteinsson, leik-
maður Fram sem lék með KR í
fyrra, byrjaði mótið í banni en
verður klár í næsta leik.
Sigurður Valur Sveinsson
gerði 9 af 17 mörkum sínum
fyrir HK úr vítaköstum. Sjö
komu eftir gegnumbrot og eitt af
linu. Óskar Elvar Óskarsson,
fyrirliði HK, fískaði 6 vítaköst
handa Sigurði.
„Þetta er frábær hópur, góð
umgjörð og góður þjálfari. Við
lékum ekki vel í dag en eigum
meira inni.”, sagði Njörður
Árnason, einn af nýliðum Fram-
ara, sem gerði út um leikinn
með marki í lokin. Njörður kom
til Framara frá ÍR.
Fram (13) 25
HK (13) 23
0-2, 5-5, 5-8, 9-12,12-12, (13-13), 17-17,
21-17, 21-20, 24-21, 24-23, 25-23.
Mörk Fram: Oleg Titov 9/4,
Njörður Ámason 4, Magnús Arn-
grímsson 4, Daði Hafþórsson 3, Guð-
mundur Pálsson 2, Páll Beck 2, Sig-
urður Guðjónsson 1.
Varin skot: Reynir Reynisson 20/1.
Mörk HK: Sigurður Sveinsson
17/9, Gunnleifur Gunnleifsson 4, Ósk-
ar Elvar Óskarsson 2.
Varin skot: Hlynur Jóhanness. 14.
Brottvisanir: Fram 8 mín., HK 6.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson, koma vel
undan sumri.
Áhorfendur: Um 200.
Maöur leiksins: Reynir Þór
Reynisson, Fram.
Skoraði ellefu mörk
- Patrekur Jóhannesson átti stjörnuleik með Essen í gærkvöldi
Patrekur Jóhannesson virðist
vera í feiknalega góðu formi um
þessar mundir af marka má
frammistöðu hans í fyrstu tveimur
leikjunum með Essen í þýsku 1.
deildinni í handknattleik. Patrek-
ur og félagar hans i Essen mættu
Wallau Massenheim í gærkvöldi
og fór Essen með sigur af hólmi,
28-25, í hörkuleik. Patrekur gerði
alls 11 mörk i leiknum, fjögur
þeirra úr vítaköstum.
Wallau Massenheim, undir
stjórn Kristjáns Arasonar, hafði
fjögurra marka forystu í hálfleik,
12-16. í síðari hálfleik tók Essen
smám saman leikinn í sínar hend-
ur, vann upp forskot Wallau og
tryggði sér síðan sigurinn.
20 mörk í tveimur leikjum
Patrekur hefur því alls skorað
20 mörk í fyrstu tveimur leikjum
Essen. Hann skoraði 9 mörk gegn
Minden á sunnudaginn var. Hann
er að sjálfsögðu í hópi marka-
hæstu leikmanna í deildinni.
„Sérlega ánægöur meö
nýtinguna hjá mér“
,„Ég er mjög ánægður með gengi
liðsins þessa dagana. Við erum að
leika vel og byrjunin lofar góðu.
Það er gott að vera búnir að vinna
fyrstu tvo leikina. Mér persónu-
lega gekk vel í þessum leik og nýt-
ingin í skotunum var sérlega góð,“
sagði Patrekur Jóhannesson í sam-
tali við DV eftir leikinn.
-JKS
Hafnaði tilboði frá Þýskalandi
DV, Eyjum:
Einn burðarása liðs ÍBV í hand-
knattleik, Arnar Pétursson, fékk
fyrir skömmu tilboð frá þýska 2.
deildar liðinu M-Statt um að spila
með liðinu í vetur. Amar afþakkaði
boðið og ætlar að spila með ÍBV.
Arnar stóð sig frábærlega með
ÍBV síðastliðinn vetur og var valinn
í íslenska landsliðið i vor. Þýska lið-
ið var að leita að leikstjómanda og
barst ábending um Amar. Félagið
gerði Arnari ágætt tilboð þar sem
honum gafst meðal annars kostur á
að fara í nám í vetur. Arnar, sem er
tvítugur að aldrei, afþakkaði hins
vegar boðið en hann vildi klára
samninginn með ÍBV auk þess sem
hann og unnusta hans eiga von á
barni innan skamms.
Amar sagði í samtali við DV að
hann væri ekki nema tvítugur að
aldri og væri ekki tilbúinn að fara
út í atvinnumennsku.
„Ég hafnaði tilboðinu núna. Ég
var búinn að skrifa undir samning
við ÍBV og þar er spennandi vetur
fram undan. Tilboðið kom mjög
óvænt upp á en ég vonast til að geta
farið út síðar meir,“ sagði Arnar.
-ÞoKu
Erfið fæðing
- sagði Einar Þorvarðarson
DV, Selfossi:
„Eg er ánægður með stigin, við
náðum því sem við ætluðum,“ sagði
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftur-
eldingar, eftir leikinn við Selfoss í
gærkvöldi. „Þetta var erfið fæðing
og við hikstuðum mikið eins og eðli-
legt er í fyrsta leik. Við vissum að
þetta yrði erfitt því það er alltaf
erfitt að spila á Selfossi,“ sagði Ein-
ar.
Afturelding er spáð sigri á ís-
landsmótinu en þeir léku þó ekki
eins og sannir sigurvegarar. Þeir
áttu oft í basli með að samstilla leik
sinn en þrátt fyrir það höfðu þeir þó
undirtökin allan tímann og sigur
þeirra var verðskuldaður. Selfoss-
liðið var ekki með á nótunum í upp-
hafi leiks en sótti í sig veðrið þegar
á leið og náði að jafna leikinn í upp-
hafi síðari hálfleiks en síðan ekki
söguna meir.
Leikurinn snerist að mestu leyti
um heimkomu þeirra Sigurjóns
Bjamasonar og Einars Gunnars Sig-
urðssonar sem gengu til liðs við Aft-
ureldingu frá Selfossi. Selfyssingar
gerðu sitt besta í að stöðva þá en
gekk illa því Sigurjón fór á kostum
og Einar Gunnar var öflugur í
skyttuhlutverkinu. Þeir léku fyrr-
verandi félaga sína oft grátt og þrátt
fyrir að Selfossvörnin væri á köfl-
um mjög þétt þá skoruðu þeir félag-
amir samtals niu mörk.
Bergsveinn Bergsveinsson varði
vel allan leikinn en Sigurður
Sveinsson fór fyrir sóknarmönnum
Aftureldingar.
Hjá Selfossliðinu stóð Björgvin
Rúnarsson ágætlega fyrir sínu.
-GKS
0-1, 3-1, 6-7, 11-8, 13-10, 17-12, (17-14),
18-14, 19-18, 24-20, 25-24, 27-26, 27-29,
28-29.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson
9/4, Þorkell Magnússon 6, Gústaf
Bjamason 4, Rúnar Sigtryggsson 4,
Aron Kristjánsson 3, Petr Baumruk 2/1.
Varin skot: Bjami Frostason 8.
Mörk KA: Róbert Duranona 13/3,
Sergei Ziza 7/3, Jóhann G. Jóhanns-
son 3, Sævar Ámason 3, Björgvin
Björgvinsson 2, Leó Öm Þorleffsson 1.,
Varin skot: Guðmundur A. Jóns-
son 7.
Brottvísanir: Haukar 6 mín., KA10.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og
Gunnar Viðarsson, þokkalegir.
Áhorfendur: Rúmiega 600.
Maður leiksins: Róbert Dura-
nona, KA.
Um 300 KA-menn
Um 300 KA-menn vora meðal
áhorfenda í Hafnarfirði í gær-
kvöldi og veittu liði sínu gifur-
legan stuðning. Það lofar góðu
fyrir útileiki KA-liðsins í vetur.
Barattan byrjuo
Haukamaöurtnn Petr Baumruk fær
óblíöar móttökur hjá vörn KA-manna i
leik liöanna í gærkvöldi. DV-mynd BG
TBR lagði
Belgana
TBR sigraði belgísku meistarana
St. Traiden, 4-3, í fyrstu umferðinni
í Evrópukeppni félagsliða í bad-
minton sem hófst í Hollandi í gær.
Tryggvi Nielsen, Elsa Nielsen og
Vigdís Ásgeirsdóttir sigraðu í ein-
liðaleik og þær Vigdís og Elsa í tví-
liðaleik. Sveinn Sölvason tapaði í
einliðaleik, Tryggvi og Njörður
Ludvigsson sigraðu í tvíliðaleik og
Njörður og Katrín Atladóttir í
tvenndarleik. TBR átti að spila við
Spoje Bratislava frá Slóvakíu í
morgun og síðan við Táby frá Sví-
þjóð og Estreito frá Portúgal.
Tveir reyndustu menn TBR,
Broddi Kristjánsson og Ámi Þór
Hallgrímsson, eru ekki með liðinu
að þessu sinni.
„Vi6 fengum
blóð í kjaftinn“
- óvæntur sigur ÍR á Stjörnunni
1. DEILD KARLA
Nokkuð var um það að leik-
menn væru að leika gegn sínu
gamla félagi t Ásgarði í gærkvöldi.
ÍR-ingarnir Hans Guömundsson og
Magnús Þórðarson hafa báðir leik-
ið með Stjörnunni og Stjömumað-
urinn Einar Einarsson lék með ÍR
á síðasta tímabili. Þá er Brynjar
Kvaran, liðsstjóri Stjörnunnar,
fyrrum þjálfari ÍR.
„Þetta er vissulega góð byrjun hjá
okkur, við fengum blóð í kjaftinn
við að sjá að okkur var spáð neðsta
sætinu. Það er gaman að nær allir
leikmenn liðsins eru ÍR-ingar og við
eram aðeins með einn „útlending" í
liðinu en það er gamli Hafnfirðing-
urinn Hans Guðmundsson," sagði
Frosti Guðlaugsson, fyrirliði ÍR-
inga, eftir að þeir höfðu unnið góð-
an sigur á Stjörnunni, 24-26.
ÍR-ingar áttu sigurinn fyllilega
skilið. Þeir börðust vel og leikgleðin
- skein úr hverju andliti. Hrafn Mar-
geirsson varði frábærlega og ungur
og efnilegur leikmaður, Ragnar
Óskarsson, lék einnig
mjög vel. Hans lék sinn fyrsta leik
með ÍR og skoraði síðustu tvö mörk-
in með fallbyssuskotum.
Stjörnumenn ollu vonbrigðum og
margir leikmenn liðsins virkuðu
mjög þungir og virðast hreinlega í
lítilli æfingu. „Það era margir byrj-
unarerfiðleikar, fleiri en ég reikn-
aði með. Það vantaði allan aga og
leikmenn voru að spila of mikið
sem einstaklingar. Þessi leikur seg-
ir ekkert til um árangur liðsins í
vetur. Ég er bjartsýnn og sé stórt
ljós handan við hæðina,“ sagði
Valdimar Grímsson, þjálfari og leik-
maður Stjörnunnar, en hann var yf-
irburðamaður í liði sínu. -RR
Eftir að FH-ingar voru búnir
að missa boltann klaufalega í
nokkrum sóknum í röð gegn Val
náði Ásgeir Ólafsson, liðsstjóri
þeirra, í boltann, skoðaöi hann og
sagði: „Er hann blautur eða hvaö,
helv.... boltinn?!“
Fótboltinn var greinilega enn
ferskur i minni kynnis Vals-
manna. Eftir eitt marka sinna var
Guðjón Árnason, fyrirliði FH,
kynntur sem Guðjón Þórðarson.
Heiðmar Felixson, örvhenta
skyttan hjá KA, verður sennilega
ekki oröinn leikfær fyrr en eftir
einn mánuð. Hann meiddist í
knattspymuleik með Dalvik.
Haukar hafa komist að sam-
komulagi við Martve frá Georgíu
um að spila báða Evrópuleiki lið-
anna hér á landi, 19. og 20. október.
Róbert Duranona stimplaði sig
með glæsibrag inn í íslandsmótið í
ár. Hann gerði fyrsta mark leiksins
með þrumuskoti eftir 25 sekúndur
og áður en yfir lauk voru mörkin
hans orðin 13.
Sautján mörk
Sigga ekki nóg
- Fram vann nýliðaslaginn við HK
„Ég er mjög ánægður með stigin
tvö en ekki eins ánægður með leik
minna manna. Við vorum seinir í
gang, lékum illa í vöminni og sókn-
arleikurinn var köflóttur, duttum
niður en annars gott inni á milli. En
það eru fyrst og fremst stigin sem
skipta máli,” sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Fram, eftir
sigur á HK, 25-23, í Safamýrinni i
gærkvöldi í slag nýliðanna.
Fram teflir fram mjög breyttu liði
frá því í 2. deildinni í fyrra. Af
þeim ellefu leikmönnum sem Guð-
mundur notaði í leiknum vora sjö
nýliðar og er víst að leikur liðsins á
eftir að slípast þegar líða fer á mót-
ið. Liðið er skipað ungum leik-
mönnum og verður að teljast til alls
líklegt í vetur.
Lið HK var nánast óbreytt frá því
í 2. deildinni í fyrra. Mikið mæddi á
þjálfara liðsins á meðan ekkert kom
út úr hornum og línu. Það er ljóst
að ekki þýðir að keyra liðið áfram á
fáum mönnum og HK-menn verða
að nýta breidd liðsins.
„Þetta voru ekki sanngjöm úrslit
því við áttum fyllilega skilið annað
stigið. Við náum að leiða leikinn en
gerum tekníska feila í sókninni í
lokin. Framaramir náðu að refsa
okkur með mörkum úr hraðaupp-
hlaupum. Við áttum möguleika í
restina en Reynir bjargaði þeim í
markinu,” sagði Sigurður Sveins-
son, þjálfari HK, en hann gerði 17
mörk í leiknum. -ÞG
Nu er roðin kom-
in að Inga Rafni
- meistarar Vals ekki auðunnir í vetur
íslandsmeisturum Vals hefur ekki
verið spáð sérstöku gengi í vetur, enda
eru margir snjallir leikmenn horfnir á
braut. En þeir sýndu gegn FH í gær-
kvöldi að á Hlíðarenda er nóg af strák-
um til að fylla í skörðin og Valsmenn
fóru létt með Hafnarfjarðarliðið, 26-19.
Miðað við leikinn í gærkvöldi er ljóst að
Valur lætur titilinn ekki af hendi bar-
áttulaust.
Ingi Rafn Jónsson hefur lengi staðið í
skugganum af landsliðsmönnum Vals en
nú er hans tími greinilega kominn.
„Þetta byrjar ágætlega en það er 21 leik-
ur eftir af deildinni. Fyrir mig er breyt-
ingin mikil, það hefur samt verið gaman
af þessu undcmfarin ár, ég hef lært mik-
ið og notið góðs af þvi að spila með góð-
um mönnurn," sagði Ingi Rafn sem átti
stórleik í sókn og vörn. Skúli Gunn-
steinsson var drjúgur á línunni og Guð-
mundur Hrafnkelsson í markinu. Þrátt
fyrir að margir séu farnir er nóg breidd
enn í Valsliðinu. Svo eiga þeir homa-
mennina til góða en þeir virtust enn
vera í sumarfríi í gærkvöldi.
FH-ingar gætu hins vegar átt mjög erf-
iðan vetur fram undan. Guðjón Árnason
og Hálfdán Þórðarson bera liðið uppi
ásamt Gunnari Beinteinssyni þjálfara.
„Þetta er ekki besta byrjunin og það er
ljóst að menn verða að hafa fyrir hlut-
unum til að vinna leiki. Við gerðum
mikið af mistökum, misstum boltann
hvað eftir annað og svo varði Guðmund-
ur vel. Við vorum yfirspenntir í byrjun
og misstum leikinn strax úr höndunum
á okkur,“ sagði Gunnar Beinteinsson við
DV eftir fyrsta 1. deildarleikinn sem
þjálfari. -VS
0-2, 2-2, 2-6, 4-7, 5-9, 7-10, 3-12,
(12-13) 13-14, 15-15, 15-18, 18-19,
19-23, 21-26, 24-29.
Mörk Selfoss: Björgvin Rúnars-
son 7/1, Alexey Demidov 5, Hjörtur
Pétursson 4, Einar Guðmundsson 4,
Sigfús Sigurðsson 2, Erlingur Klem-
enzson 2.
Varin skot: Hallgrímm- Jónasson
7/1, Gísli Guðmundsson 7.
Mörk Afttireldingar: Siguröur
Sveinsson 6/1, Páli Þóróffsson 5, Ein-
ar Gunnar Sigurðsson 5, Bjarki Sig-
urðsson 5, Sigurjón Bjamason 4, Al-
exei Trúfan 2, Þorkeli Guðbrandsson 2.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 12.
Brottvísanir: Seffoss 8 mín, Aftur-
elding 10 mín.
Dómarar: Um 350.
Áhorfendur: Rögnvald Erlingsson
og Stefán Amaldsson. Höfðu góð tök
á leiknum.
Maður leiksins: Sigurður
Sveinsson, Aftureldingu.
Sá fyrsti á Selfossi
Þetta var fyrsti sigur Afturelding-
ar á heimavelli Seffyssinga.
Matthías Matthíasson, þjálfari
IR, kom ekkert inn á I gærkvöldi.
Matthías sagði að sínir menn
hefðu leikið það vel að hann hefði
ekki getað skipt sér inn á. „Ég verð
að sjá til hvort ég kemst í liðið á
næstunni."
„KA-menn beittu okk
ur fantabrögðum"
- sagði fyrirliði Hauka eftir ósigur, 28-29, gegn Akureyrarliðinu
„Ég var mjög ánægður með síðari hálf-
leikinn og strákamir sýndu hörkukarakt-
er. Það var taugaveiklun hjá okkur í fyrri
hálfleik, vömin var slök og sóknin gekk
ekki alveg en þetta small saman í þeim
seinni þegar menn losnuðu við stressið.
Fyrir leikinn var ég í mikilli óvissu hvar
liðiö stæði en frammistaða strákanna, eink-
um í seinni hálfleik, kom mér skemmtilega
á óvart þó svo að sigurinn hefði getað lent
hvorum megin sem var,“ sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari KA, eftir sætan sigur á
Haukum í Firðinum, 28-29.
Leikur liðanna var hraður og nokkuð
fjörugur. Varnarleikur og markvarsla
beggja liða var ekkert til að hrópa húrra
fyrir en KA-menn náðu að þétta sína vörn
undir lokin og það gerði gæfumuninn. Hall-
dór Ingólfsson komst best frá leik
Haukanna, Þorkell Magnússon sýndi góða
takta í hominu í fyrri hálfleik og þeir Rún-
ar Sigtryggsson og Gústaf Bjamason léku
ágætlega. Haukamir hafa sennilega farið
aö fagna sigri of snemma og það kann
aldrei góðri lukku að stýra. Mikið býr í
Haukaliðinu og það kæmi á óvart ef það
yrði ekki í toppbaráttunni í vetur.
„KA-menn beittu fantabrögöum á okkur
í seinni hálfleik og þetta líktist ekki nein-
um handbolta. Ég fékk að kynnast því sjálf-
ur þarna inni á línunni. En þeir börðust
betur en við og imnu leikinn og við verðum
bara að taka okkur á,“ sagði Gústaf Bjarna-
son, fyrirliði Hauka.
KA-menn voru seinir í gang. Vömin og
markvarslan vora í molum í fyrri hálfleik
og sóknin oft vandræðaleg. Allt annað var
uppi á teningnum í síðari hálfleik og þá
kannaðist maður við KA-liðið eins og það
var að spila á síðasta tímabili. Róbert Dura-
nona var Haukunum erfiður og Rússinn
Sergei Ziza lofar góðu og gæti vel fyllt
skarð Patreks með ágætum. Hann hefur
gott auga fyrir samleik og er skemmtilegur
gegnumbrotamaður. Þessir tveir leikmenn
héldu KA inni í leiknum og neituðu að gef-
ast upp þegar á móti blés.
-GH
Sigurður allur
að koma til
Sigurður Jónsson, sem meiddist
um síðustu helgi í leik með Örebro,
er allur að koma til og ætlar að
reyna að leika með liðinu gegn
Gautaborg um næstu helgi.
Rúnar Kristinsson skoraði fyrir
Örgryte í bikarkeppninni í gær
gegn Vasterás. -EH/Svlþjóð
Fram bikarmeistari
Framarar urðu í gær bikarmeist-
arar í 2. flokki karla þegar liðið
lagði Keflvíkinga að velli, 2-1, i úr-
slitaleik sem fram fór í Sandgerði.
Það var Eggert Stefánsson sem kom
Fram yfir en Hjörtur Fjeldsted jafn-
aði fyrir Keflvíkinga. Þegar ein
minúta var til leiksloka tryggði
Magnús Guðmundsson Fram sigur-
inn. -ÆMK
Dagur í
aðgerð
á íslandi
Dagur Sigurðsson, landsliðsmað-
ur í handknattleik, sem handcir-
brotnaði á æflngu hjá félagi sínu
Wuppertal í Þýskalandi, ákvað að
gangast undir aðgerð vegna meiðsla
sinna á íslandi. Aðgerð stóð til í
Wuppertal en Dagur kaus heldur að
fara heim.
Hann gekkst undir aðgerð í gær
og framkvæmdi Stefán Carlsson
læknir hana. Hún gekk að óskum
og er jafnvel talið að hann geti haf-
ið æfingar og keppni fyrr en talið
var í fyrstu. -JKS
„Fádæma slóðaskapur félagaskiptanefndar"
Magnús Sigmundsson markvörður, sem gekk til liðs við Hauka frá ÍR, fékk ekki
að leika með Haukum í gærkvöldi. í fréttatilkynningu, sem Haukar sendu frá sér
í gærkvöldi, stendur meðal annars:
„Vegna fádæma slóðaháttar úrskurðaraðila innan félagaskiptanefndar HSÍ, sem
hefur tekið þá einkennilegu ákvörðun að fresta úrskurði til morguns (í dag) um
hvort samkomulag er ÍR og FH gerðu um félagaskipti Magnúsar árið 1992 sé í gildi.
Haukar, sem gengið hafa frá öllum sínum málum og höfðu engin afskipti af áður-
nefndu samkomulagi, þurfa nú að sætta sig við þessa óskiljanlegu ákvörðun.“
Sigurjón fékk „Chicken"
Handknattleiksdeild Selfoss bauð Sigurjón Bjarnason og
Einar Gunnar Sigurðsson velkomna í íþróttahúsið með
blómum. Vinnufélagar Sigurjóns í S.G. búðinni á Selfossi
bættu um betur og gáfu honum bílnúmer með áletraninni
„Chicken“.
Þegar 12 mínútur voru eftir af leiknum fékk Einar Gunn-
ar sína þriðju brottvísun og var þar af leiðandi vísað af leik-
velii við mikinn fögnuð stuðningsmanna Selfossliðsins.
Haukar (17) 28
KA (14) 29
Selfoss (12) 24
Aftureld. (13)29
Stjarnan (10)24
ÍR (12)26
1-1, 3-2, 4-4, 6-6, 8-7, 9-10, (16-12).
12-13, 14-14, 14-17, 16-19,18-21, 21-21,
22-24, 24-24, 24-26.
Mörk Stjönmnar: Valdimar
Grímsson 13/6, Jón Þórðarson 3,
Magnús Magnússon 3, Einar Einars-
son 2, Hilmar Þórlindsson 1, Einar B.
Ámason 1, Konráð Olavson 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson
8/1, Axel Stefánsson 4.
Mörk ÍR: Ragnar Óskarsson 8/3,
Hans Guðmundsson 6, Jóhann Ás-
geirsson 5/2, Magnús Þórðarson 4,
Frosti Guðlaugsson 3.
Varin skot: Hrafn Margeirsson
19/1, Pétur Magnússon 1.
Brottvlsanir: Stjarnan 8 mín., ÍR
8 min.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmars-
son og Amar Kristinsson. Góðir í
fyrri hálfleik en frekar mistækir í
þeim síðari.
Áhorfendur: Um 350.
Maður leiksins: Hrafn Margeirs-
son,ÍR.
Valur (13) 26
FH (11) 19
0-1, 2-3, 9-3, 9-6, 11-7, 12-10, (13-11),
14-12,17-12, 19-13, 23-16, 25-18, 26-19.
Mörk Vals: Ingi Rafn Jónsson 8,
Skúli Gunnsteinsson 7, Jón Kristjáns-
son 5/2, Daníel S. Ragnarsson 2, Ari
Allansson 2/1, Davíð Ólafsson 1, Kim
Hougard 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 12/2, Örvar Rúdólfsson 3/1.
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 5,
Guðjón Ámason 5, Valur Amarson 4,
Knútur Sigurðsson 2, Guðmundur
Pedersen 2/1, Gunnar Beinteinsson 1.
Varin skot: Magnús Árnason 0,
Jónas Stefánsson 10.
Brottvlsanir: Valur 4 min., FH 2.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og
Guöjón L. Sigurðsson - sæmilegir en
Ólafur kemur betur undan sumri.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Ingi Rafn Jóns-
son, Val.
Kim skoraöi strax
Grænlendingurinn Kim Hou-
gard kom í fyrsta skipti inn á hjá
Val gegn FH þegar tvær mínútur
voru eftir og byrjaði vel - skoraði í
fyrsta skoti.