Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 2
2
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996
Fréttir
Tugmilljóna tjón og allt ónýtt í 1929 eftir mikinn bruna:
Brunavarnakerfi á undan-
þágu og nýtt á leið upp
„Þaö er svo skammt liðið frá því
að þetta gerðist að maður hefur
ekki náð að hugsa til enda hversu
mikið tjónið er. Ljóst er þó að það
skiptir tugum miújóna króna. Hér
er allt ónýtt innan dyra en ég veit
ekki hvernig húsið er að öðru
leyti,“ segir Bjarki Ríkharðsson,
framkvæmdastjóri skemmtistaðar-
ins 1929 á Akureyri. Staðurinn eyöi-
lagðist þegar mikill eldur kom upp í
húsinu næstliðna nótt.
Bjarki sagði að fariö hefði verið
fram á það að nýtt brunavamakerfi
yrði sett upp í húsinu, gamla kerfið
hefði verið á undanþágu og nýtt á
leiðinni. upp. Hann sagði menn frá
tryggingafélagi strax myndu meta
tjónið og kanna skemmdir á nær-
liggjandi húsum. Einhverjar
skemmdir hefðu orðið í verslun og á
veitingastað sem liggja við
skemmtistaðinn.
Slökkviiiðið á Akureyri var kallað
að 1929 um klukkan átta í gærmorg-
un. Þá logaði eldur út um suðaustm--
hlið hússins og er talið að hann hafi
verið búinn að krauma nokkra
klukkutíma. Dansað var í húsinu um
nóttina og yfirgáfu starfsmenn það
um klukkan hálffimm.
Slökkviliðið réðst til inngöngu á
tveimur stöðum og var þá mikiil
eldur í húsinu. Fljótt og vel gekk að
slökkva mestan eldinn en liðið átti í
erfiðleikum með einangrun, reiðing
og sagkurl á miililofti. Einangrunin
er mjög eldfim og þurfti að rjúfa
þakið á nokkrum stöðum til þess að
komast að eldinum. Vakt var við
húsiö fram eftir degi í gær.
Gunnar Jóhannsson, hjá rann-
sóknardeild lögreglunnar á Akur-
eyri, sagði við DV í gærkvöld að ekk-
ert hefði komið fram sem gefið gæti
vísbendingu um upptök eldsins.
Hann sagði rannsókn vera í fullum
gangi en gat ekki svarað því hvort
hann teldi að hún gæti skilað þeim
einhveiju sem gagn væri að. -sv
Vestfjarðaheimsokn forsetahjónanna
Heimsókn forseta íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, og Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdóttur, eiginkonu
hans, um sunnaverða Vestfirði lauk
í gær, eftir þriggja daga ferðalag um
Barðastrandarsýslu. Þau lentu á
Reykhólaflugvelli á fóstudaginn og
byrjuðu á að skoða þörungaverk-
smiðjuna í Karlsey. Undir kvöld var
ekiö til Króksfjarðarness og síðan
að Skógum þar sem forsetinn lagði
blómsveig aö minnisvarða þjóð-
skáldsins, Matthíasar Jochumsson-
ar. Á laugardag skoðuðu forseta-
hjónin m.a. Byggða- og flugminja-
safnið að Hnjóti í Örlygshöfn, ásamt
því að skoða minnisvarða um Pétrn-
og Ásthildi Thorsteinsson og Mugg
aö Tungu á Bíldudal. Forsetahjónin
gistu svo á Patreksfirði.
I gær skoðuðu þau m.a. Vatneyr-
arbúð undir leiðsögn Gísla Ólafs-
sonar bæjarstjóra. Forsetinn lagði
blómsveig að minnisvarðanum um
þá sem fórust í snjóflóðinu á Pat-
reksfirði árið 1083 en þaðan var
ekiö til messu í Saurbæjarkirkju,
þar sem sr. Hannes Björnsson mess-
aði. Seinnipartinn í gær fóru for-
setahjónin í siglingu til Flateyjar-
með flóabátnum Baldri, þar sem
hreppsnefnd Reykhólahrepps og
íbúar Flateyjar og Skáleyja tóku á
móti þeim. Eftir að hafa þegið
kvöldverð i veitingastofunni Vogi í
Flatey var siglt til baka og ekið til
Patreksfjarðar þar sem heimsókn-
inni lauk og flugu forsetahjónin
þaðan í gærkvöldi. -gdt
Stuttar fréttir
Hafnarfjörður:
Mótframboð
í fulltrúaráði
Sjálfstæðis-
flokksins
„Þetta lítur út fyrir að vera send-
ing frá Bakhjarli, samtökum Jó-
hanns G. Bergþórssonar. Mér sýnist
að menn sem starfa utan flokks séu
þarna að gera út mótframbjóðanda.
Manni finnst það óviðeigandi. Ég
hefði kosið að afgreiða þennan aðai-
fund án átaka af því að nú þyrftum
við frekar að berja í brjóstin og
þétta ræðumar heldur en að takast
á innbyrðis," segir Þórarinn Jón
Magnússon, formaður fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði.
Kristinn Andersen, stjórnarmaö-
ur í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélag-
anna, hefur gefið kost á sér til for-
manns fulltrúaráðsins á aðalfundi
þess sem haldinn verður 3. október.
Kristinn neitar því að mótframboð
sitt blandist deilunum við Jóhann
Gunnar Bergþórsson og Ellert Borg-
ar Þorvaldsson og segist ekki vera
stuðningsmaður Jóhanns Gunnars
eöa útsendari Bakhjarls.
„Mér finnst tímabært að breyta
svolítið um áherslur í flokksstarf-
inu. Mér finnst að það þurfi ákveð-
in kaflaskipti í flokksstarfinu því að
það eru kosningar eftir rúmt ár og
mér finnst rétt að fulltrúaráðið hafi
val á þessum fúndi,“ segir Kristinn.
Aðalfundir ailra Sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði voru haldnir á
laugardag. Eftir fundinn áttu fund-
armenn sameiginlegan hádegisverð-
arfund með þingmönnum flokksins
og um kvöldið hittust sjálfstæðis-
menn svo á dansleik. Þetta er í
fyrsta sinn sem Sjálfstæðisfélög
þann hátt á að halda aðalfundi sina
samtímis.
„Þetta tókst það vel til að það lýs-
ir hvorki neinni óánægju né sýnir
að þama sé flokkur í molum. Menn
em mjög hamingjusamir eftir þenn-
an dag,“ segir Þórarinn Jón. -GHS
Sautján ára
með fíkniefni
Piltur á átjánda ári var handtek-
inn í Kópavogi aðfaranótt laugar-
dags með nokkuð af fíkniefnum,
amfetamini og marijúana. Upp
komst um piltinn eftir heföbundið
eftirlit lögreglu og var hann hand-
tekinn. -sv
Sveit Landsbréfa vann nauman sigur á sveit íslandsmeistara Samvinnuferða-Landsýnar í úrslitaleik bikarkeppni
Bridgesambands íslands með 138 impum gegn 136 í gær. Nýkrýndir bikarmeistarar hampa hér verðlaunum sínum.
Frá vinstri eru Sigurður Sverrisson, Sævar Þorbjörnsson, Sverrir Ármannsson, forseti Bridgesambandsins, Kristján
Kristjánsson, sem afhenti verðlaunin, Guðmundur Páll Arnarson, sem heldur á farandbikarnum, Jón Baldursson og
Þorlákur Jónsson. DV-mynd Sveinn
Glóð reyndist í reimum á færibandi sem höfðu ofhitnað og bráðnað í Aburðarverksmiðjunni og var slökkviliðið i
Reykjavík kallað á staðinn. DV-mynd S
Útkall í Áburöarverksmiöjuna:
Rykið eins og púður
„Menn hafa alltaf nokkum við-
búnað þegar farið er í Áburðarverk-
smiðjuna og það er óskemmtilegt að
fara í útkall þangað. Áburðurinn er
gífúrlega eldfimur og rykið af hon-
um virkar eins og púður. Eftir á má
þó segja að engin hætta hafi verið á
ferðum," segir Ragnar Sólonsson,
varðstjóri slökkviliðsins í Reykjavík,
en tilkynning barst mn reyk og eld í
Áburöarverksmiðjunni í Gufunesi
laust upp úr hádegi á laugardag.
Enginn eldur var í húsinu þegar
slökkviliðið kom á staðinn en glóð í
reimum á færibandi sem höfðu of-
hitnað og bráðnað og af þeim lagði
mikinn reyk. Slökkviliðið fullvissaði
sig um að engin glóð væri eftir I hús-
inu og viðgerðarmenn frá verksmiðj-
unni komu á staöinn til þess að gera
við. -sv
Vélar til Bahrein
Fyrirtækið Altech-JHM hefúr
selt vélar og þekkingu fyrir 200
milljónir króna til álvers í
furstadæminu Bahrein. Að sögn
RÚV hafa fyrirspurnir borist
víðs vegar að úr heiminum.
Ríkislögreglustjóri?
Fyrsti ríkislögreglustjóri
landsins verður líklega ráðinn
fyrir áramót og ný lögreglulög
taka gildi næsta sumar. Nöfh
Boga Nilssonar og Eiríks Tómas-
sonar hrl. hafa verið nefnd. Stöð
2 greindi frá.
Gæslan kærð
Þyrluþjónustan hefur kært
Landhelgisgæsluna til Sam-
keppnisráðs fyrir að fara út fyr-
ir verksvið sitt. Sjónvarpið
greindi frá.
Hlýindaskeið að hefjast
Ýmislegt bendir tii að hlýinda-
skeið sé að hefjast, samkvæmt
Stöð 2. Suöurhiíð Esjunnar er
snjólaus í fyrsta skipti í 30 ár.
Þarf að bæta vegina
Forseti Islands telur brýnt að
stórbæta vegakerfið á sunnan-
verðum Vestfjörðum. Forseta-
hjónin hafa verið þar í opinberri
heimsókn. RÚV greindi frá.
Laus við hafnbann?
Kandamenn ætia ekki að
leggja hafnbann á íslensk skip ef
áætlanir um veiðar á næsta ári
veröa hóflegar. Sjónvarpið sagði
frá.
Oddi vill selja HP
Prentsmiðjan Oddi, sem eign-
aðist Helgárpóstinn fyrir helgi,
hefur auglýst blaðið til sölu. Út-
varpiö sagði frá.
Tíska fyrir hunda
í gær var haldin í Reykjavík
tískusýning fyrir hunda. Margir
hundar þola ekki íslenska veðr-
áttu og þurfa hlífðarfatnað, skv.
Stöð 2.
MA fær Ijóðasafn
MA hefur verið ánafnaö einu
stærsta ljóðasafhi, sem til er í
einkaeigu á Islandi, að sögn Út-
varps.
Vatnsból þorna upp
Vatnsból sveitabæja á Héraði
hafa þornaö upp því ekki hefur
rignt frá því um mánaðamót.
-GHS
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já
Nel
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á að takmarka kattahlad
og binda leyfum?