Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 10
10 MANUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 Spurningin Lesendur Ertu sátt við aö senda barnið þitt í Nesjaskóla? (Spurt í Nesjaskóla) Þorbjörg Helgadóttir: Ég held bara að mér lítist vel á þetta. Guðlaug Árnadóttir: Þetta verður mjög gott og skemmtilegt. Guðný Svavarsdóttir: Alveg prýði- lega, mjög vel. Hansína Valþórsdóttir: Já ég er voðalega vel sátt við Nesjaskóla. íslendingar ribbaldar - breyting til bölvunar Jóhann Þórðarson lögrf. skrifar: í DV 16. sept. sl. er frétt sem fjall- ar um breytingu á tækjabúnaði sem notaður er við slátrun á sauðfé í sláturhúsi KVH á Hvammstanga nú í haust. Fram kemur í fréttinni að hjá sláturhúsinu sé nú breskur ráð- gjafi sem leggur til að í stað flán- ingsbekkja, talíu og blóðbands komi búnaður fyrir hangandi fláningu og blæöingu og nýr gæruafdragari. Ljóst er að með þessari breytingu á slátrunaraðferð fæst miklu verra kjöt sökum þess að ef sláturgripur- inn er hengdur upp áður en búið er að blæða úr skrokknum verður kjötið blóðmengað og svipar þá til fisks sem ekki er blóðgaður á rétt- um tíma. Það hefur alltaf verið talið nauðsynlegt að láta sláturgripinn liggja á blóðbandi eða bekk í vissan tíma áður en hann er hengdur upp til þess að blóðið fari úr kjötinu - þ.e. frá því að gripurinn er aflífgað- ur og blóðgaður. Það er grundvall- aratriði að allt blóð fari úr skrokkn- um. Það þarf engan speking til að sjá það og skilja að um leið og skrokk- urinn er hengdur upp þá þrengir það svo mjög að blóðæðunum vegna tognunar á vöðvunum að blóðstrey- mið úr skrokknum lokast að mestu. Þetta var ljóst öllum bændum sem slátruðu heima hér áður fyrr svo og starfsmönnum í sláturhúsum. Það var eitt af grundvallaratriðum til að fá gott kjöt að láta blæða vel úr kjöt- inu. Með því að hleypa blóðbandinu og hengja skrokkinn strax upp eftir Vonandi hefur breski ráðgjafinn ekki vinninginn í slátrun sauðfjár hér á landi, segir Jóhann m.a. blóðgun fáum við miklu verra kjöt, sem nálgast að vera eins og af sjálf- dauðum grip, með vondu bragði og litlu geymsluþoli. Hér er ég að tala um hvernig við íslendingar viljum fá kjötið. Ég trúi því varla að til séu þeir erlendu aðilar sem vilja heldur blóðblandað kjöt, sem þá um leið er dökkt heldur en ljóst og blóölaust kjöt eins og reynt hefur verið að hafa það hér á landi. Hætta er á að ef þetta blóðblandaða kjöt fer á markað erlendis, með því auka- bragði og útliti sem því fylgir, verði það alveg til að loka fyrir markað- inn. Vonandi verður okkur hér á landi ekki boðið upp á kjöt sem hef- ur hlotið sláturmeðferð þá sem hinn breski ráðgjafi er að koma hér á, og ég tel að vanir starfsmenn í slátur- húsum hljóti að vera á móti þessari nýju slátrunaraðferð sem hefur áhrif á bragðgæði kjötsins. Blóðmengað kjöt á höfunum? Pálmi skrifar: Ég fæ ekki betur séð og heyrt en við íslendingar séum orðnir þekkt- astir fyrir ribbaldahátt á höfunum þar sem einhver branda veiðist. Nú hafa Kanadamenn íhugað að setja hafnbann á íslensk fiskiskip haldi þau uppteknum hætti að stunda rækjuveiðar á Flæmingjagrunni í blóra við samþykktir fiskveiði- nefndar sem hefur eftirlit með veið- um á Atlantshafinu norðanverðu. Og þetta er ekki eina dæmið. Það er ekki nóg að geta veifað túlkun EES á broti Norðmanna á út- gerðarfyrirtækinu Snæfellingi um að meina togara þeirra að leggjast að bryggju í Noregi þegar skipið bil- aði. Það bætir ekki okkar stöðu. Við erum þekktir fyrir okkar þrumu- skot á fiskimiðum vítt og breitt hér á norðurslóðum og svífumst einskis þegar sá gállinn er á okkur. Eina ráðið til að ná okkar fyrra orðspori - að vera heiðarleg og leið- andi fiskveiðiþjóð - er að taka tillit til veiðitakmarkana alls staðar þar sem þeirra er getið. Ekki síst alþjóða- samþykkta. Annars kann svo að fara að við verðum útilokaðir á fengsæl- um fiskimiðum þar sem við þurfum sannarlega að eiga aðgang eins og á miðunum út af Nýfundnalandi. Þeir endast vel þeir amerísku - í besta flokki notaðra bíla Guðmundur Óskarsson skrifar: Það getur tekið tíma að standa í kaupum á notuðum bíl, en ég hef haft þann sið gegnum árin að festa mér frekar notaðan vel með farinn bíl en leggja háar fjárfúlgur í nýjan þar sem nýr bíll fellur hratt í verði fyrstu árin og þurfi maður svo að selja að skömmum tíma liðnum er venjulega um talsvert tap að ræða. Ég hef líka hallast fremur að þeim amerísku en öðrum tegundum bif- reiða, bæði með endingu í huga og öryggi sem er mun meira í þeim. Sérstaklega eldri gerðunum. Ég var að endumýja hjá mér ný- lega og fór á allar bílasölur í Reykja- vík til að leita að góðum vel með QJIÍSIKQBM þjónusta allan sólarhringinn Lága bilanatíöni, útbúnaö og öryggiö metur bréfritari mest í amerísku bílun- um. förnum amerískum bíl. Ekki er mikið úrval af notuðum amerískum bílum, enda eftirsóttir af kunnáttu- mönnum um bíla og því ekki mikið um skipti. Ég fann þó einn ágætan bíl af Chrysler-gerð sem hafði aðeins ver- ið í eigu tveggja aðila, vel með far- inn vagn. Ég tek bílasölur með not- aða bíla fram yfir umboðin sem líka selja notaða bíla. Ekki síst vegna þess að fljótlegt er oft að ná í sjálfa eigendur notuðu bílanna á hinum viðteknu bílasölum en hjá umboð- unum, sem eiga gjarnan bílana, er ekki eins aðgengilegt að ræða sögu bílsins. Ég hef orðið talsverða reynslu í þessum viðskiptum gegnum tiðina, og fuOyrði að amerískir bílar eru í besta flokki notaðra bíla yfirleitt. Og það þótt þeir séu komnir vel við aldur. Lága bilanatíðni, útbúnað og öryggi met ég þó mest og aflt er það að finna í amerískum bfium, sem hafa enst lengst allra bíla á Islandi. DV Borgarar að> stoði lögreglu Þórunn hringdi: Eigum við að sniðganga vandamál borgarinnar hvað varðar helgardrykkjuskap, ólæti og ofbeldisverk? Nei, þetta er vandamál sem aOir verða að takast á við og leysa. Ég legg til að borgaralegri skyldu verði komið á þannig aö nokkrir menn og konur, segjum 10 til 15 manns, verði til aðstoðar viö löggæslu um helgar í miðborginni. Tfi vara: Að ráða hóp fólks tfi að- stoðar til að halda uppi lögum og reglu um helgar, og Reykjavíkur- borg greiði þann kostnað sem þessu fylgir. Fyrri tifiagan er þó mun heppfiegri og eðlilegri í sið- væddu þjóðfélagi. Bamaklámið á Alþingi: Nefndin skilaði ekki áliti Jón Stefánsson skrifar: Fólk er orðlaust yfir þeim fá- dæma lufsuhætti löggjafans að ljúka ekki við að afgreiða frum- varp dómsmálaráðherra um barnaklám. Þaö er eins og þing- menn forðist að taka afstöðu til málsins. Það var lagt fyrir á Al- þingi sl. vetur og kom lítfilega til umræðu og að því loknu sent til aUsherjarnefndar, þar sem málið lognaðist út af, því aUsherjar- nefnd skilaði aldrei áliti eins og henni bar skylda til. Margir spyrja sjálfa sig hvort hér sé um viðkvæmt mál að ræða fyrir ein- hverja á Alþingi. Orðaiagið „gróft“ barnaklám bendir tfi þess að einhverjir vilji ekki þunga refsingu fyrir að hafa slíkt efni í vörslu sinni. Nýtt nafn í stað íslands Jóhann skrifar: Ég hef verið að lesa þanka um að breyta nafninu ísland í eitt- hvað hlýlegra og faUegra. Ég er sammála og er viss um að fátt yrði meira til framdráttar ferða- málum hér á landi en ef landið fengi nýtt og aðlaðandi nafn. Það eru nefnilega ekki margir í heim- inum sem þekkja ísland og þeir fáu sem vita hvar það er telja það ekki vænlegt til heimsóknar. Þetta skilja e.t.v. ekki ferðamála- frömuðir hér og vilja fremur berjast við vindinn en játa að baráttan um ferðamenn er aUtof, aUtof kostnaðarsöm, einungis vegna hins fáránlega nafns á landinu. Kringlubúðir á laugardögum Birna Bjömsd. hringdi: Ég heimsótti Kringluna ásamt fjölskyldunni laugard. 14. sept. sl. Fólki af landsbyggðinni finnst eins og það sé í útlöndum að spranga þarna og kíkja í verslan- ir og kaupa að sjáifsögðu. En þama er stór gaUi á. Þennan laugardag var sumum búðunum lokað kl. 16, öðrum kl. 17 og svo Hagkaupi kl. 18 (bravó fyrir Hag- kaupi). Og aðalkaffistaðnum var lokað kl. 17. Engan veginn nógu gott. Allt gott hjá Gallup litla Kristján Jónsson skrifar: Hann GaUup litli á íslandi er hress þessa dagana. Hann puðrar frá sér hverri gleðikönnuninni eftir aðra; um velgengni forseta okkar o.fl. o.fl. Nú síðast sagði GaUup litli að fólk hér á landi væri nú mun bjartsýnna en i fyrra á batnandi horfur í efna- hagsmálum á næstu 12 mánuð- unum. Ekki síst á batnandi hag heimilanna. Líklega hefur GaUup litli ekki verið mikið á landinu í sumar, en komið heim endur- nærður úr sól og sumri Spánar eða Sarasota og dembt sér í að hringja í kunningjana sem með honum voru í ferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.