Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 23
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996
31
DV
Fréttir
Leitar- og bjorg-
unarhundar eru
nauðsynlegir
DV. Seyðisfirði
Björgunarsveit SVFI á Seyðis-
firði hélt kynningarfund nýlega á
starfi leitarhunda, þjálfun þeirra
og uppeldi og notkun í leitarstörf-
um eftir snjóflóð og hliðstæðar
náttúruhamfarir.
Fundinn sátu 30-40 manns, þar
á meðal menn sem voru á þjálfun-
amámskeiði á Eiðum um meðferð
og kennslu leitarhunda.
Hér á Austurlandi em leitar-
hundar í Neskaupstað, Seyðisfirði
og Egilsstöðum. Deildin i Nes-
kaupstað hefur lengst haldið leit-
ar- og björgunarhunda og kom
m.a. hundur þaðan til hjálpar á
Flateyri í fyrrahaust.
Uppeldi og þjálfun leitarhunda
er mikið vandaverk og útheimtir
mikla þolinmæöi auk þess sem
það er kostnaðarsamt og tíma-
frekt. Það er höfuðnauðsyn að
hundurinn og þjálfarinn gjörþekki
hvor annan, því fullkomið traust
verður að ríkja milli þeirra, svo að
geta og góðir eiginleikar hundsins
njóti sin síðar þegar á reynir.
Deildimar þrjár hér eystra hafa
fengið skoskan þjálfara til að leið-
beina sér, en þar i landi er löng og
góð reynsla af starfi björgunar-
hunda. Á þessu sviði, sem og öll-
um öðmm, er náin og góð sam-
vinna milli deildanna og styðja
þær hver aðra í þessum miklu
ábyrgðar- og alvörustörfum.
J.J.
Flugleiðir og VISA-ísland hafa ákveðiö að gefa út sameiginlegt greiðslukort sem gefur viðskiptamönnum fyrirtækj-
anna kost á að ávinna sér punkta í Vildarkerfi Flugleiða þegar kortin eru notuö til greiðslu við tiltekin fyrirtæki hér-
lendis. Er hér um að ræða sammerkt tvenndarkort og er fyrirhugað aö kortin komi á markað í byrjun nóvember nk.
Hér má sjá Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, og Einar S. Einarsson, forstjóra VISA, handsala samninginn eftir
undirritun. DV-mynd S
Sveitarfélög á Norðurlandi vestra:
Mikil umræða og at-
vinnumál í brenni-
depli á ársþingi
DV, Fljótum
Mikil umræða var um horfur og
markmið í atvinnumálum á árs-
þingi samtaka sveitarfélaga á Norð-
urlandi vestra (SSNV) sem haldið
var að Löngumýri í Skagfirði á dög-
unum.
Sigurður Tómas Björgvinsson,
starfsmaður kynningarmiðstöðvar
Evrópurannsókna, greindi á þing-
inu frá vinnu samstarfshóps sem
lætur sig uppbyggingu og þróun at-
vinnu í kjördæminu varða. Nýverið
fékkst staðfest að Evrópusambandið
mundi styrkja verkefni sem hópur-
inn er að láta vinna. Verkefhið bein-
ist m.a. að athugun á þeirri þekk-
ingu sem er í fyrirtækjum á svæð-
inu og kannaðir eru möguleikar á
samstarfi þeirra á ýmsum sviðum,
ekki síst varðandi markaðssetn-
ingu.
Á þinginu gerði Jón Magnússon,
starfsmaður Byggðastofnunar á
Sauðárkróki, grein fyrir þeim at-
vinnuþáttum sem Byggðastofnun
hefur aðstoðað við undanfarið í
Norðurlandi vestra.
Þar er ferðaþjónustan fyrirferð-
armest enda hefur hún vaxið mest
atvinnugreina í kjördæminu á síð-
ustu árum að mati Jóns. Hann sagð-
ist telja það á vissan hátt gæfu þessa
svæðis hvað sveitarstjórnarmenn
hefðu verið opnir fyrir þeim mögu-
leikum sem ferðaþjónustan hefur
upp á að bjóða í atvinnulegu tilliti.
Jón sagðist telja að nú væru orðnir
svo miklir afþreyingarmöguleikar
fyrir ferðamenn í kjördæminu að
ferðamenn gætu dvalist þar margar
vikur án þess að verða uppiskroppa
með viðfangsefni.
-ÖÞ
TILBOÐSDAGAR
Meiri háttar tilboðsdagar
þessa viku, frá
mánudegi til
laugardags,
vegna
breytinga á
uninni.
<
VERÐDÆMI:
Vetrarpeysur frá 2.990 kr.
Buxur frá 2.990 kr.
SISSA-TÍSKUHÚS
Hverfisgötu 52 - Sími 562 5110
Ath. Sendum í póstkröfu
Erum fluttir
í Skeifuna 17C
(við hliðina á Hagkaup)
Gott úrval notaðra bíla
í/eríð velkomin
UTBOÐ
F.h. Húsnæöisnefndar Reykjavíkur er óskaö eftir tilboöum
í:
1. Gler
2. Blikksmíöi
í 102 ibúöir viö Álfaborgir/Dísaborgir i Reykjavík.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 10.000 kr.
skilatr. fyrir hvort verk.
Opnun tilboöa: miðvikud. 2. okt. nk, kl. 11.00, á sama staö.
hnr 126/6
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
sjálfseignarstofnunar innar Skógarbæjar, óskar eftir
tilboöum í múrverk innanhúss fyrir hjúkrunarheimilið Skógar-
bæ aö Árskógum 2 í Reykjavík. Helstu verkþættir eru
gólflögn, hlaönir innveggir og múrhúöun hlaðinna veggja.
Útboösgögn eru afhent á skrifst. vorri gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboöa: fimmtud. 10. okt. nk, kl. 11.00, á sama staö.
bgd 127/6
Innkaupastofnun Reykjavikur, f.h. sjálfseignarstofnunar-
innar Skógarbæjar, óskar eftir tilboöum í pípulagnfr fyrir
hjúkrunarheimiliö Skógarbæ aö Árskógum 2 í Reykjavík.
Verkið tekur til fullnaöarfrágangs vatns- og hitakerfa,
frárennslislagna og hreinlætistækja.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri frá þriöjud. 24.
sept. nk. gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboöa: fimmtud. 17. okt. nk, kl. 11.00, á sama staö.
bgd 129/6
F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. er óskaö eftir tilboöum í
leikskólann Arborg í Reykjavík. Verkið felst í breytingum og
endurbótum á eldra húsnæöi, fullnaöarfrágangi á 175 m!
viðbyggingu ásamt frágangi lóðar vegna viöbyggingarinnar.
Framkvæmdum á að liúka 15. áaúst 1997.
Útboösgögn eru afhent á skrifst. vorri gegn 10.000 kr. skilatr.
Opnun tilboöa: þriöjud. 15. okt. nk, kl. 14.00, á sama staö.
bgd 130/6
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16