Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 40
Vumingstölur laugardaginn 21.09/96 2 8 9 2128 (32 Heildarvinningsupphæð 10.303 Vinningar Fjöldi vinninga VinningsupphxÖ 1.5qf5 æsSL0 6.724.179 2.4qfSÍ P:4 132.670 3. 4qfS 117 7.820 4.3qf5 JL810 560 KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagbiað MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 Haraldur Böðvarsson: Drauganet í skrúfu togarans - varðskip sótti skipið Varðskip var sent til aðstoðar tog- aranum Haraldi Böðvarssyni á Halamiðum í gærmorgun. Togarinn hafði fengið rækjutroll, svokallað drauganet, í skrúfuna og gat ekki hreyft hana. Reynt var að skera úr á staðnum en vegna þess hversu fast trollið var og mikill veltingur var ákveöið að varðskipið myndi draga togarann inn í ísafjarðardjúp. Þar gekk mönnum betur að athafna sig og var trollið skorið úr skrúf- unni. -sv Veðurá Faxaflóasvæði næstu vikux - samkv. tölum frá Veöurstofu íslands - HÍtastíg- á 12 tíma bili 14 c° Úrkoma - á 12 tíma bili 18 mm 16 14 12 mán. þri. miö. fim. fös. MÁ EKKI BÚA TIL GOTT HANDRIT ÚR ÞESSU? Leikskólinn Hólakot við Suðurhóla brann til kaldra kola: Aðeins útvegg- irnir standa eftir - 23 börn heima mánudag og þriðjudag, segir forstöðukona „Það er vitaskuld stjórnar Dag- vistar barna að finna lausn á þess- um húsnæðisvanda sem upp er kominn en við höfum sett okkur í samband við foreldra þeirra 23 bama sem eru hjá okkur og farið fram á að þeir hafi bömin heima mánudag og þriðjudag. Við mun- um i samráði við Dagvist bama leita lausna eins fljótt og auðið er. Það er Ijóst að þetta er mikið rask og í alla staði mjög erfitt,“ segir Elínborg Þorláksdóttir, forstöðu- kona á Hólakoti, leikskóladeild út frá Suðurborg við Suðurhóla, en húsið gereyðilagðist í eldi aðfara- nótt sunnudags. „Það lagði mikinn reyk upp frá öllu þakinu þegar við komum á vettvang og það tók okkur nokkum tíma að finna eldinn því hann var á millilofti. Eftir að við höfðum rofið þakið náðum við fljótt tökum á ástandinu og slökkt- um eldinn fljótt, sagði Ragnar Sól- onsson, varðstjóri slökkviliðsins í Reykjavík, í samtali við DV í gær. Slökkviliðið í Reykjavík var kallað að leikskólanum um sex- leytið í gærmorgun og má segja að þar hafi allt brunnið sem brannið gat. Aðeins steyptir útveggimir standa uppi. Húsið er talið gjör- ónýtt. Sést mun hafa til manna í hús- inu skömmu áður en reyksins varð vart og vinnur Rannsóknar- lögregla ríkisins að rannsókn málsins. „Það hefur ekkert komið fram í okkar rannsókn sem gefur okkur tilefni til þess að fullyrða að kveikt hafi veriö í húsinu. Ég er ekki að segja að það kunni ekki að hafa verið gert en vonandi mun rannsókn okkar leiða það í ljós. Það tekur yfirleitt nokkurn tíma að fá niðurstöðu og þangað til hún liggur fyrir fullyrði ég ekki neitt,“ segði Guðmundur Gígja hjá RLR I samtali við DV í gærkvöld. -sv Eldur var í millilofti á Hólakoti og gekk mönnum erfiölega aö finna hann. Rjúfa þurfti þak til þess arna en eftir þaö gekk fljótt og vel aö slökkva. Húsiö er ónýtt og hafa foreldrar þeirra 23 barna sem þar hafa dvalið veriö beðnir um aö hafa börnin heima í dag og á morgun á meöan leitað er lausna í húsnæöismálunum. DV-mynd S Miklu stolið: Þurfum jafn- vel að fresta frumsýningu Djöflaeyj- uíinar - segir Friðrik Þór „Við áætlum að tækin sem stolið var séu virði einnar til tveggja milljóna króna en aðaltjónið er í því efni sem geymt er inni á tölvunum, samningum, hcmdritum, ljósmynd- um og öðru slíku. Við höfum ekki alveg gert okkur grein fyrir afleið- ingunum en svo gæti farið að við yrðum að fresta frumsýningunni á Djöflaeyjunni sem fyrirhuguð var 3. október," segir Friðrik Þór Friðriks- son kvikmyndagerðarmaður en brotist var inn á skrifstofu íslensku kvikmyndasamsteypunnar aðfara- nótt sunnudags. Friðrik segir að tvær öflugur Power Macintoshtölvur og ferða- tölva hafi verið teknar, tökuvél og myndbandstæki, auk ávísanaheftis og stimpla. „Við höfum engar vísbendingar um hver eða hverjir fóm hérna inn en þetta er mjög bagalegt fyrir okk- ur. Við verðum líklega alla vikuna að reyna að vinna upp það sem var inni á tölvunum og tengist frumsýn- ingunni. Við emm fáliöuð og sjáum það síðar í vikunni hvort við náum að halda áætlun í sambandi við frumsýninguna." -sv Akureyri: Ekiðá Ijósastaur Um miðjan dag í gær var bíl ekið á ljósastaur á Hörgárbraut, skammt norðan við Glerárbrú. Ökumaður og tveir farþegar voru fluttir á slysadeild en samkvæmt upplýsing- um sem DV fékk á slysadeild Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri munu meiðsl þeirra hafa verið minni háttar. Ekki var vitað um til- drög slyssins í gær. -sv komst upp fyrir tilviljun Þjófnaður í „Það er tilviljuninni einni fyrir að þakka að þetta komst upp strax á fóstudagskvöldið því þá gátum við látið sitja fyrir bílnum og hirt öku- manninn. Annars hefði þetta ekki uppgötvast fyrr en á morgun (í dag) og þá veit enginn hvernig hefði gengið að finna þýfíð,“ segir Guð- Bolungarvík mundur Fylkisson hjá lögreglunni á ísafirði en lögreglan í Bolungarvík, ísafirði og Hólmavík vann saman að handtöku manns sem fór inn í Vél- smiðju Bolungarvíkur á fóstudags- kvöld, stal þaðan verkfæram fyrir um hálfa milljón og tók síðan sendi- bíl fyrirtækisins traustataki til þess að koma sér undan. Lögreglan á Hólmavík kom auga á bílinn á Steingrímsfjarðarheiði og sá hvar maður stökk út úr honum og hljóp út í myrkrið. Hann var síðan handtekinn í næsta bíl sem kom á eft- ir og reyndar einnig sá sem honum ók. Ljóst þykir eftir yfirheyrslur að maðurinn hefur verið einn að verki. Hvorki bílstjórinn, sem tók hann upp í, eða maður sem handtekinn var í Bolungarvík strax á föstudags- kvöld vegna grans um aðild tengjast málinu ekki á neinn hátt. Þjófurinn er heimamaður í Bolungarvík og biður hann nú dóms. -sv Veðrið á morgun: Rigning og skúrir víðast hvar Á morgun verður austankaldi en norðaustan stinningskaldi eða allhvasst á Vestfjörðum. Rigning eða skúrir verða víðast hvar á landinu og hiti á bilinu 7 til 14 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 ÞR08TUR SeENDIBil—A.STÖO 533-IOOQ i É Kvöld- og helgarþjónusta NSK kúlulegur I sew Suðurlandsbraut 10 - Slmi 568 6499

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.