Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 36
44 MANUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 Er Einar Karl á sálnaveiöum? Erindreki á sálnaveiðum „Skilin á milli A-flokkanna eru dýpri en svo, bæöi málefnalega og tilfmningalega, að varla má búast við miklum árangri af starfi erind- rekans Einars Karls, nema ef vera skyldi á sviði sálnaveiða." Guðný Guðbjörnsdóttir alþingis- maöur, i Degi-Tímanum. Strútar á íslandi „Búfræðingar telja Island af ein- hverjum ástæðum kjörlendi fyrir strúta, kannski vegna þess að hér er nóg af sandi.“ Guðmundur Andri Thorsson, í DV. Sýndartillögurnar „Þorsteinn Pálsson, hefur hvað eftir annað flutt sýndartillögur um sameiningu sýslumannsembætta og fækkun þeirra.“ Jón Baldvin Hannibalsson alþingis- maður, í Alþýðublaðinu. Ummæli Tónlist og klósett „Það að semja tónlist er eins og að fara á klósettið, þetta er eitt- hvað sem maður verður að gera.“ Friðþjófur Sigurðsson tónlistar- maður, í DV. Vill sitja einn að kökunni „Gunnar, sem er fyrirferðarmik- iil verktaki, unir því illa að sitja við sama borð og aðrir verktakar sem sækjast eftir verkum hjá Reykjavíkurborg." Alfreð Þorsteinsson, um Gunnar Birgisson, formann bæjarráðs Kópavogs, í Degi-Tímanum. Nálastungu- lækningar Kínverjar voru farmr að stunda nálastungulækningar um 2000 árum fyrir timatal okkar. í kin- verskri heimspeki er rætt um jafn- vægi milli orkusviðanna tveggja „yin“ og „yang“, en samkvæmt þeirri kenningu streymir lífsorkan eftir 14 línum eða baugum á hör- undi manna. Hver sjúkdómur er skýrður á þann veg að orku- straumur hafi rofnað og er lækn- ing fengin með því að virkja fleiri eða færri punkta á straumrásun- um. Slíkt er oftast gert með nálum en einnig með nuddi og varma. Á síðari árum er farið að nota raf- straum og jafnvel leysigeisla. Blessuð veröldin Raflost til lækninga Fyrstu mennimir sem gerðu til- raunir með raflost vom ítalimir H. Cerlæetti og L. Bini sem áriö 1936 hófu tilraunir á dýrum og tveimur ámm síðar hófu þeir tilraunir á fólki. Sendu þeir rafstraum í gegn- um heilann og hugðust kalla fram flogaköst sem nota mætti til lækn- inga á geðklofa. Dregið hefur úr rannsóknum á þessum sviðum í seinni tíð. Stungusprautan Á 15. öld varpaði ítalinn Gattin- ara fram hugmyndum um stungu- sprautuna. Það voru hins vegar Englendingamir C. Wren og R. Boyle sem gerðu hagnýtar tiiraun- ir á þessu sviði árið 1657. Læknir- inn Anel í her Lúðvíks XIV. notaði stimpilsprautu. Árið 1869 kom fyrsta glersprautan fram á sjónar- sviðið. Allhvasst Um 700 km suðvestur af landinu er 982 mb lægð sem hreyfist hægt austnorðaustur. Skammt suðvestur af Jan Mayen er 999 mb lægð á Veðrið í dag hreyfingu norðaustur. 1022 mb hæð er yfir sunnanverðri Skandinavíu. í dag verður allhvöss eða hvöss norð- austanátt norðvestan til, norðaust- an stinningskaldi suðvestanlands en austankaldi í öðmm landshlut- um. Um landið norðan- og austan- vert verður rigning en skúrir suð- vestan til. Hiti verður á bilinu 4 til 13 stig, kaldast á Vestfjörðum en hlýjast á Suðvesturlandi. Sólarlag í Reykjavlk: 19.24 Sólarupprás á morgun: 7.17 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.21 Árdegisflóð á morgun: 3.50 í dag Veðrið kl. 12 á hádegi í gœr: Akureyri rigning 9 Akurnes rigning 8 Bergstaöir rigning 8 Bolungarvík rigning 7 Egilsstaöir skýjaö 12 Keflavíkurflugv. hálfskýjaó 11 Kirkjubkl. rigning 8 Raufarhöfn alskýjaö 8 Reykjavík úrkoma í grennd 11 Stórhöfði rigning 9 Helsinki skýjaö 12 Kaupmannah. skýjaö 12 Ósló skýjað 12 Stokkhólmur skýjaö 15 Þórshöfn skýjaö 14 Amsterdam súld 10 Barcelona skýjaö 20 Chicago léttskýjaó 12 Frankfurt alskýjaö 12 Glasgow skýjaö 13 Hamborg léttskýjað 14 London úrkoma í grennd 14 Los Angeles mistur 18 Madrid hálfskýjaö 20 Malaga léttskýjaö 22 Mallorca skýjaö 23 París skýjaö 12 Róm skýjaó 23 Valencia léttskýjaö 24 New York léttskýjaö 19 Nuuk heiöskirt 2 Vin súld á sið.kls. 13 Washington skýjaö 18 Winnipeg þokumóða 11 Guðmundur Ingibersson: Þroskandi að takast á við eitthvað nýtt DV, Suðurnesjum: „Það er mikið unnið þessa dag- ana og verður alveg fram að móti. Við ætlum meðal annars að gefa út áhugaverðan og veglegan bækling um mótið. Við erum mjög spenntir og vonumst til að mótið takist mjög vel og ætlum að leggja okkur alla fram til að svo verði," sagði Guð- mundur Ingibersson, gjaldkeri íþróttafélagsins Ness sem er íþrótta- félag hreyfihamlaðra og þroska- heftra á Suöumesjum. Þrátt fyrir ungan aldur ætlar fé- lagið að ráðast í stærsta verkefni sitt til þessa. Það er íslandsmótið í boccia sem fram fer í íþróttahúsinu Maður dagsins við Sunnubraut í Keflavík 17.-19. október. Nes hefur aldrei haldið ís- landsmót fyrr í sögu félagsins. „Við höfum aldrei fyrr haldið svona stór- mót. Undirbúningur hefur staðið í allt sumar og fór á fullt í ágúst. Þetta er búið að vera strembið en ég er mjög bjartsýnn á að þetta muni ganga allt upp og þegar upp verður staðið verður mótið mjög eftir- minnilegt í alla staði." Guðmundur segir að búast megi Guðmundur Ingibersson. við miklum fjölda fólks á mótið. „Það verða um 200 keppendur og tæplega 100 aöstoðarmenn auk fjölda gesta. Þá er von okkar að Suð- urnesjamenn fiölmenni á mótið sem mun veita okkur mikinn styrk þeg- ar upp er staðið. Þá mun Lions- klúbburinn Keilir í Keflavík verða með dómgæslu. Á laugardagskvöld- ið verður glæsilegt lokahóf með verðlaunaafhendingu, mat og dansi." Framkvæmd mótsins og vinnan hingað til hefur verið í höndum for- manns félagsins, Gísla Hlyns Jó- hannssonar, og Guðmundar sem hafa staðið sig frábærlega vel í öll- um undirbúningi. Nes á 5 ára af- mæli í nóvember og segir Guð- mundur að það sé meðal annars þess vegna að þeir haldi mótið og þeim sé fullkomlega treyst til þess. Skráðir félagar í Nesi eru tæplega 90 og er Guðmundur einn af stofn- endum félagsins. „Það er geysilega gaman að standa i þessu. Þá er þetta mjög þroskandi að takast á við eitt- hvað nýtt.“ Guðmundur, sem er hreyfihaml- aður, hefur meðal annars æft boccia en mun ekki taka þátt i mótinu þar sem hann hefur ekki tíma til þess. Allur tími hans fer í framkvæmd mótsins. Hann starfar hjá Sparisjóði Keflavíkur í innlánsdeild og hefur gert það i 11 ár. „Ég er mjög ánægð- ur að vinna hjá Sparisjóðnum. Það er gott og skemmtilegt fólk sem vinnur þar.“ Áhugamál Guðmundar fyrir utan boccia og Nes eru íþróttir og lyfting- ar en hann hefur keppt í þeirri íþrótt á móti fatlaðra. „Ég var áður fyrr að lyfta en hef ekki gefið mér tima til þess undanfarið en hef alltaf verið á leiðinni. Það er mikill tími sem fer í Nes og hefur alltaf verið að aukast undanfarin ár og er þaö mjög skemmtilegt." -ÆMK Myndgátan Viljalaust verkfæri ...—■ /6/9 Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði DV Ein mynda Kristjáns Jóns Guönasonar viö þekkta íslenska þjóösögu. Málverk, teikningar og klippi- myndir í dag opnar Kristján Jón Guðnason sýningu á málverk- um, teikningum og klippimynd- um í Eden í Hveragerði. Kristján hefur áður sýnt á samsýningum og einnig haldið nokkrar einka- sýningar. Myndir hans eru gerð- ar við íslenskar þjóösögur og þá sérstaklega íslensk ævintýri sem Kristjáni finnst vera óplægður akur hvað varðar myndskreyt- ingar. Sýningar Sænsk grafík í anddyri Norræna hússins stendur nú yfir sýning á grafik- listaverkum eftir Ullu Fries. Fries notar koparstungutækni við að vinna myndir sínar. Kop- arstungan veitir henni færi á að túlka náttúruna í einfaldleika sínum og hreinleika og sækir hún myndefnið til hins smæsta í náttúrunni. Fyrirmyndimar eru margs konar skordýr, bjöllur, flugur. lirfur og smáplöntur. Sýningunni lýkur 29. september. Bridge Þetta spil er forvitnilegt fyrir margar sakir. Samningurinn er 3 hjörtu í suð- ur og vestur spilar út tígulþristi í upp- hafi. Hvernig gengur spUiö með dæmi- gerðri vörn og sókn? Suður gjafari og enginn á hættu: ♦ ÁKD542 V 62 ♦ K54 ♦ 73 4> 108 » D75 ♦ Á1092 * 10842 ♦ 6 * KG109843 * G8 * K96 Suður Vestur Norður Austur 3 pass pass pass Ef spilið kæmi fyrir í tvímenn- ingskeppni myndi það eflaust ganga þannig á mörgum borðum; lítið spil úr blindum og austur á fyrsta slag- inn á ás. Austur spilar litlu laufi (eða laufáttunni), sagnhafi setur kónginn og vestur ásinn. Hann tek- ur nú slag á laufgosa og vestur skiptir síðan yfir í spaða í þeirri von að austur eigi einspil eða eyðu í þeim lit (ef hann á einspil, er hægt að sækja spaðastungu, inni á tromp- ás). Sagnhafi tekur tvo hæstu í spaða, hendir laufi heima og svínar síðan hjartaáttu. Tígulkóngur er innkoma til að endurtaka svíning- una og sagnhafi fær 9 slagi. Vörnin getur gert betur. Þá gengur spilið þannig: austur fær á tígulás, spilar laufi, kóngur hjá sagnhafa, ás frá vestri og síðan laufgosi. Síðan hnekkir vestur spilinu með því að spila laufdrottningu og styttir blind- an í trompinu. Þannig tryggir hann austri slag á trompdrottningu. En sagnhafi gat líka gert ráð fyrir lauf- ásnum í vestur og sett laufníuna í stað kóngsins. Þá getur vestur tekið slag á gosa og ás en getur ekki stytt blindan með þriðja laufinu. Hins vegar, ef austur spilar lauftíu í öðr- um slag, á sagnhafi aldrei mögu- leika á að vinna spilið. ísak Öm Sigurðsson * G973 Á -f D763 * ÁDG5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.