Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 15 Langur vinnudagur er þjóðarstolt „Fólki myndi farnast illa ef þaö færi aö slæpast heima hjá sér síödegis..." segir Gísli m.a. í grein sinni. Eftir að við íslend- ingar komumst inná Evrópska efnahags- svæðið fóru að berast út hingað hinar furðulegustu tilskip- anir um vinnutilhög- un og verklag. Fyrst var amast við þeim sið að leyfa hömum og unglingum að nota skólafríin, öll kvöld og flestar helgar til að afgreiða í sjopp- um, stórmörkuðum og myndbandsleig- um. Síðan var nýlega upplýst að dýralækn- ar frá EFTA hefðu skrifað róg og níð um íslenskar fiskvinnslustöðvar og sagt að þær stæðust ekki ein- hverja staðla sem taka ekkert mið af hinum séríslensku aðstæðum. Og loks var höfuðið bitið af skömminni með því að banna bíl- stjórum almenningsvagna að aka með farþega lengur en níu tíma á dag. Hvað á svona afskiptasemi að þýða? Vinnusemi mótmælenda er samgróin okkur Æ síðan við bættum trúarsiðina á 16. öld höfum við íslendingar reynt að tileinka okk- ur vinnusemi mót- mælenda. Við höfúm magnað upp þá vissu að vinnan væri dyggð og myndi ekki aðeins gefa okkur daglegt brauð á hvers manns disk heldur líka ei- lifðarvist á himnum þar sem vinnulúnar hendur fyndu loks sinn frið. Okkur hef- ur þótt hetra að vinna en hangsa, hetra að hamast en hugsa. Og lengi framan af tækniöldinni var líka göfugra að standa og puða i aðgerð eða við slátt en að sitja við skrifborð og vinna án sýnilegrar líkamlegrar áreynslu. Þessi göfgun vinnunnar hefur skilað miklum efnahagsframför- um um norðanverða Evrópu og í Ameríku. Þar hafa stjórnendur fyrirtækja þó víða komist á þá skoðun að menn þreytist af vinnu sinni. Að þreyttir menn skili hvorki jafn góðu né jafn miklu dagsverki og þeir sem séu sæmilega út- hvíldir. Til að hámarka afköst og gæði halda þeir að 6-8 tíma vinna á dag, fimm daga vikunnar, sé hæflleg. Forsætisráðherrann okkar hef- ur jafnvel tekið undir þetta og haldið ávörp um að langur vinnu- dagur komi niður á afköstum og gæðum vinnu. En stjórnendur is- lenskra fyrirtækja eru þjóðlegri en svo að þeir láti útlenda spekinga og einn forsætisráðherra hafa áhrif á sig. Þeir vita sem er að vinnan göfgar manninn. Fólki myndi farnast illa ef það færi að slæpast heima hjá sér síðdegis, spjalla við nágranna sína og lifa einhverju lífi utan vinnunnar eins og frést hefur að íslendingar á Jót- landsheiðum hafi tamið sér eftir að þeir fluttust þangað fyrir skömmu, liðhlaupar úr íslenska vinnusamfélaginu. Séríslenskar aöstæður kalla á aukavinnu Framleiðhi íslenskra fisk- vinnslufyrirtækja er miklu minni en hjá sambærilegum fyrirtækjum í nágrannalöndunum. Það stafar þó ekki af því að íslenskir launa- menn séu óduglegri en starfsbræð- ur þeirra og systur í útlöndum - eins og Jótlandsfararnir geta vitn- að um. Það stafar af því að vinnan er skipulögð með tilliti til yfir- vinnunnar. Án hennar væri engin vinna. Sérstaða okkar íslenska veiði- mannasamfélags veldur því að hér hljóta menn að snúast öndverðir gegn öllum hugmyndum um stytt- ingu vinnutíma. íslensk vinnu- semi er hluti af okkar þjóðlegu sérkennum, eitt af því sem gerir okkur að þjóð. Eða til hvers vor- um við að stofna lýðveldi á Þing- völlum ef einhverjir útlendingar eiga svo að geta bannað okkur að vinna eins lengi og þrekið leyflr? Gísli Sigurðsson Kjallarinn Gísli Sigurösson íslenskufræðingur „En stjórnendur íslenskra fyrir- tækja eru þjóðlegri en svo að þeir láti útlenda spekinga og einn forsætisráðherra hafa áhrif á sig. Þeir vita sem er að vinnan göfgar manninn. “ Gígur til útflutnings Umhverfisráðherra hefur fallist á gjallnám úr Seyðishólum með ákveðnum skilyrðum þrátt fyrir mótmæli hátt á annað þúsund sumarbústaðaeigenda á svæðinu en sem kunnugt er þá er eina stærstu sumarbústaðabyggð lands- ins að finna í Grímsnesinu. Seyðishólar eru, ásamt Kerinu, mikið náttúruundur og fjölsóttir af ferðamönnum. Þessir gígar eru ein af örfáum eldstöðvum í hyggð sem enn eru tiltölulega heillegar og aðgengilegar fyrir ferðamenn enda vinsæll áningarstaður þeirra fjölmörgu sem leggja leið sína að Gullfossi, Geysi og Skálholti ár hvert. Gjallgíga eins og Seyðishóla er óvíða, eða nánast hvergi, að finna í heiminum nema á íslandi. Gegn hagsmunum ferðaþjónustunnar Með því að leyfa útflutning gjall- gígsins eru stjórnvöld að ganga gegn eigin stefnu í ferðamálum þar sem lögð er áhersla á vistvæna ferðaþjónustu. Þetta aukna álag á vegakerfið mun einnig auka út- gjöld ríkisins til vegamála en þar var yfir 800 milljóna króna niður- skurður á þessu ári og samkvæmt fréttum af fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar verður áframhald- andi niðurskurður á næsta ári. Stjórnvöld verða því að gera það upp við sig, ef þau ætla að láta mótmæli hags- munaaðila og umhverfissinna sem vind um eyrun þjóta og hefja þessa miklu gjallflutn- inga úr landi, hvemig þau ætla að mæta aukn- um útgjöldum til vegamála. Við höfum kynnt ísland sem hreint og ómengað land og varið miklu fé til slíkra kynningarmála á erlendum vett- vangi. Ferðaþjónusta er helsti vaxtarbroddur í atvinnulífinu og því er mikilvægt að við stöndum vörð um þá ímynd sem við höfum skapað og lagt áherslu á fram að þessu. Sú imynd mun hrynja á ör- skömmum tíma ef erlendir ferða- menn sjá tugi flutningabíla á dag aka heilum eldgíg á hrott á næstu tólf árum en það er sá tími sem talið er að gjallnámið taki. Framtíöarhagur eöa stundargróöi? Gjall- eða grjótnám sem þetta hefúr lengi verið bannað vegna umhverfissjónarmiða víða í Evrópu. Leitað er til íslendinga um kaup á efni til vegagerðar, m.a. vegna þess að ís- lensk stjórnvöld hafa hvorki fylgst nógu vel með þróun umhverfis- verndar í heiminum né fært löggjöf í umhverf- ismálum til samræmis við siðaðar þjóðir sem við viljum þó bera okk- ur saman við. Búast má við hörðum viðbrögð- um grannþjóða okkar í Evrópu þegar þær frétta að efni til vega- gerðar, sem þær eru að kaupa í Evrópuhraðbrautina, sé hluti af einstakri eldstöð frá ferða- mannaparadísinni íslandi. Jafnvel þriðjaheimslönd eins og Kenía og Tansanía, sem byggja afkomu sína að stórum hluta á ferðaþjónustu, hafa vit á að vernda náttúruna, enda væri annað eins og að pissa í skóinn sinn. Umhverfisráðherra verður því að láta þaö verða sitt fyrsta verk þegar þing kemur saman í haust að leggja fram frumvarp til laga um bann við svo stórfelldum nátt- úruspjöllum sem hér um ræðir. Sýni hann málaflokki sínum ekki þá lág- marksvirðingu verður að ná víð- tækri samstöðu maðal þingmanna um að grípa í tau- mana og stöðva strax þessa ósvinnu. Við meg- um ekki láta mis- vitra sveitarstjórn- armenn fóma framtíðarhagsmun- um þjóðarinnar fyrir stundarhags- muni og skjótfenginn gróða ör- fárra manna. Fyrirhugað gjallnám í Seyðis- hólum í Grimsnesi stangast á við stefnu stjómvalda í ferðaþjónustu sem samgönguráðherra kynnti í vor. Það mun líka hafa ófyrirsjá- anlegar afleiðingar fyrir hina fjöl- förnu ferðamannaleið til Gullfoss og Geysis og auka stórlega útgjöld hins opinbera til vegagerðar. Þetta mál er áfellisdómur um ástand umhverfismála hér á landi og skilning stjórnvalda á því hvar hagsmunir þjóðarinnar liggja. Ásta R. Jóhannesdóttir „Ferðaþjónusta er helsti vaxtar- broddur í atvinnulífinu og því er mikilvægt að við stöndum vörð um þá ímynd sem við höfum skapað og lagt áherslu á fram að þessu.“ Kjallarinn Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður Með og á móti Á að leggja ÍSÍ niður í nú- verandi mynd? Sparnaður „Þær hug- myndir sem ég hef lagt fram um endurskipu- lagningu æðstu stjórnar íþrótta- hreyfíhgarinnar gera ráð fyrir að fSÍ verði leyst upp og stofnað í Tryggvi Geirs- stað þess, ann- son> formaður ars vegar Þnittar. Ólympíusamband íslands og hins vegar grasrótarsamtök sem ég nefni íþróttastarfið. Þannig mætti að mínu mati spara um- talsvert fé og skipuleggja hreyf- inguna upp á nýtt. Eins og mál- um er nú háttað er grasrótin að vinna á tveimur stöðrnn, annars vegar innan ÍSÍ og hins vegar í UMFÍ, en innan Ólympíunefndar starfa sérsamböndin og i raun eru öll erlend samskipti og afrek- siþróttir að færast þangað. Ég treysti þeim algjörlega til að ann- ast þann þátt. Mér er ljóst að sameining grasrótarinnar í ein samtök mun taka einhvern tíma. Á meðan unnið væri að því eiga íþróttabandalög og héraðssam- bönd að taka forystu í endur- skipulagningu fSÍ með það í huga að draga úr rekstrarkostn- aði, endurskipuleggja starfssvið og meirka stefnu um skiptingu lottófjár, m.a. með því að taka slíkar ákvarðanir úr höndum stjórnar ÍSÍ. Ég hef ástæðu til að ætla að góð samstaða geti náðst í grasrótinni í þessari vinnu. Þær tillögur sem fram hafa komið um sameiningu ÍSÍ og Ólympíu- nefndar eru því miður andvana fæddar. Það þarf að fara aðrar leiðir þar sem endurskipulagn- ing snýst um málefni en ekki menn.“ Skipulagsmál „Ég tek hug- myndir Tryggva ekki alvarlega en tel eðlilegt að ræða þær og skoða. Hug- myndirnar snúa að tveimur þátt- um, skipulagi og íjármálum. Stefán Kon- Hann gleymir ráðsson, fram- því að sérsam- kvstjóri ISI. böndin 22 eru mynduð af héraðs- samböndum og íþróttabandalög- um sem eru nauðsynleg í íþrótta- starfinu. Þau myudu þvi hvort sem er mæta á þing samtakanna hvorra um sig. Á sama tíma og sameining hefúr farið fram og er í bígerð eins og víða, t.d. í Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Sviss, skuli menn ekki sjá hið skipulagslega og félagslega hag- ræði. Þetta sýnir smákóngaveld- ið í hnotskurn. Hugmyndir Tryggva varðandi tvenn ný sam- tök gera ráð fyrir óbreyttu ástandi og hafa því lítið að segja um hagræðingu á toppnum og í íþróttahreyfingunni. Það er mið- ur að Tryggvi skyldi ekki kynna sér betur reikningana sem hann fékk í pósti og kynnti alþjóð áður en æðsti aðili íþróttanna, íþrótta- þing ÍSf, fékk þá til skoðunar og afgreiðslu. í þeim 48 milljónum sem eftir eru að mati Tryggva í rekstri ÍSf gerir hann ekki ráð fyrir ferða-, útbreiðslustyrkjum, verkefnasjóði og fleiri kostnaðar- liðum sem fara beint beint út í starf hreyfingarinnar og teljast hvorki til yfirstjómar né skrif- stofukostnaðar. Þannig verða um 24 milljónir eftir í yfirstjórn og skrifstofu, eða um 12% sem verð- ur að teljast afar lítið. Ég legg áherslu á að við leysum skipu- lagsmálin málefnalega og hætt- um stríðsrekstri í fjölmiðlum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.