Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 29 Fréttir Samningur Flugleiða og Halldórs Blöndal um kynningu á Internetinu: Verið að smíða hjólið upp á nýtt - segja forráðamenn Skýrr sem ásamt Fjarhönnun hafa þróað Ask Nýr samningur Flugleiða og sam- gönguráðuneytisins um samstarf ferðaþjónustuaðila í landkynningu á íslandi á Intemetinu vakti athygli margra. Meðal þeirra sem urðu undrandi voru forráðamenn Skýrr og Fjarhönnunar sem síðustu ár hafa verið að þróa upplýsingakerfið Ask. Askur er á upplýsingastandi á 25 stöðum á landinu og frá því í vor hefur hann verið á Internetinu með öllum þeim möguleikum sem bjóð- ast á standinum. Þá er unnið að markaðssetningu Asks erlendis, m.a. í Bandaríkjunum. Þorsteinn S. Þorsteinsson hjá Skýrr hefur ásamt Hallgrími Thor- steinssyni og fleirum unnið að þró- un Asks undanfarin ár í samstarfí við Fjarhönnun. Þorsteinn sagði við DV að menn væra greinilega að reyna að smíða hjólið upp á nýtt. Eyða ætti vinnu í hluti sem þegar væru til staðar. í fyrrnefndum samningi er gert ráð fyrir að gagna- grunnurinn verði tilbúinn fyrir lok þessa árs en um þriggja ára átaks- verkefni er að ræða. Verkfæriö er til „Það er verið að tala um að ríkið og Flugleiðir ætli að fjárfesta fyrir 18 milijónir í verkfæri til að koma á framfæri ferðaupplýsingum um ís- land. Þetta verkfæri heitir Askur og hefur verið til í nokkur ár. Það er í sjálfu sér af hinu góða að eiga í sanngjamri samkeppni og því fógn- um við ef til væri að dreifa jafnrétt- isgrundvelli. Það hlýtur þó að telj- ast skondið að ríkisvaldið með tak- mörkuð ijárráð sé að styrkja frjálsa framtakið til verka sem ekki sé beinlínis þörf á eins og í þessu til- felli. Margt annað myndi skattborg- arinn vilja sjá styrkt sem hefði fyr- ir það þörf,“ sagði Þorsteinn. Askur á upplýsingastandi byggist á snertiskjá með óteljandi vaimögu- leikum. Upplýsingarnar eru á f]ór- um tungumálum auk íslenskunnar, þ.e. norsku, ensku, þýsku og frönsku. Notandinn getur farið fram og aftur í leit að upplýsingum sem koma ferðamönnum og öðram gest- um landsins til góða. í útfærslu Asksins á Intemetinu er notast við tölvumúsina í að koma sér áfram. Skipurit upplýsingakerfisins sést nánar á meðfylgjandi grafi. Auk þess að hanna myndræna út- færslu Asksins hefur Skýrr búið til öflugt dreifikerfl sem sér um að mata upplýsingum í standana og á netið. Dreifikerfið býður m.a. upp á þá möguleika að skrá og telja alla notkun Asksins, t.d. hvað margir þýskumælandi notendur hafa spurt um bændagistinguna. Upplýsingar sem þessar koma auglýsendum og ferðaþjónustuaðilum tnjög til góða. Þeir hafa líka notfært sér þetta enda eru yfir 600 aðilar og þeim fer fjölg- andi. Bara á þessu ári hafa notend- ur Asksins farið 2,4 milljónum sinn- um inn á hann á þeim 25 stöðum sem standarnir eru uppi á landinu. Er það nálægt því að vera rúmlega 50% meiri notkun en ailt árið í fyrra, sem var fyrsta árið í núver- andi útgáfu. Þúsundir á netinu Frá því Askur fór á Internetið í vor hafa þúsundir manna kynnt sér hvað þar er í boði. Þorsteinn sagði þessa þjónustu mjög mikilvæga fyr- ir innlenda sem erlenda ferðamenn og ferðaþjónustuaðila. „Sem dæmi þá geta útlendingar leitað sér allra upplýsinga á Inter- netinu um ísland og þá ferðamögu- leika og þjónustu sem í boði er. Þetta er sá miðill sem nær lengst í að upplýsa ferðamenn, ekki bara í auglýsingaformi heldur ekki síður með hagnýtum fróðleik og upplýs- ingum,“ sagði Þorsteinn. Slóð Asks á Internetinu er: Stöðumælar hafa aldrei verið teknir í löggildingu: Lágmarkskrafa að hlut- laus aðili taki þá út - segir viðskiptavinur, lög frá 1992 kveða á um það Karlmaður hafði samband við DV og sagðist hafa lent í því fyrir nokkru að borga fullt gjald í stöðumæli en komið að honum tíu mínútum síðar, tíminn verið útrunninn og hann búinn að fá sekt, sem reyndar hefðii verið felld niður-eftir að mælirinn hefði verið skoðaður. „Fólk lendir í því að fá stöðu- mælasektir og ef þær eru ekki greiddar era þær eflaust sendar í innheimtu til lögfræðings. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa fólks að mælarnir séu prófaðir og teknir út af hlutlausum aðila, t.d. Löggildingarstofunni,“ sagði þessi ónafngreindi maður í samtali við DV. „Lögin um löggildingu mæli- tækja eru frá 1992 og með þeim var verksvið Löggildingarstofunn- ar víkkað mjög verulega. Við höf- um unnið að því jafnt og þétt að taka utan um hvem hlutinn af öðram, ef svo má segja, og við munum að sjálfsögðu skoða stöðu- mæla ef það verður mat okkar að þeir flokkist undir þessi lög,“ seg- ir Þór Gunnarsson hjá Löggilding- arstofunni þegar DV spurði hvort ekki væri ástæða til þess að Lög- gildingarstofan tæki út stöðu- mæla og greiðsluvélar Bílastæða- sjóðs. Hann sagði það aldrei hafa verið gert. í lögunum segir að skylt sé að löggilda öll mælitæki sem notuð séu hér á landi til þess að mæla stærðir sem hafa áhrif á verð eða afgjald í hvers konar viðskiptum með vöru og þjónustu og skatt- og gjaldstofna. DV hafði samband við Stefán Haraldsson, framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs, og sagðist hann ekkert vilja segja um málið að svo stöddu. Hann myndi hins vegar verða sér úti um lögin og kanna málið. Stefán sagði afar sjaldgæft að upp kæmi ágreiningur um stöðu- mæla en virkt skráningarkerfi væri með bilunum. Hann sagði staurana aðeins vera skoðaða þeg- ar upp kæmi ágreiningsmál. -sv Helstu aðstandendur Asksins hjá Skýrr að skoða útgáfuna á Internetinu. Á borðinu situr Þorsteinn S. Þorsteinsson, forstöðumaður Asks og Upplýs- ingaheima, Hörður Hauksson kerfisfræðingur situr í stolnum og fyrir aftan stendur Hallgrímur Thorsteinsson, hönnuður Asks. DV-mynd BG UPPLÝSINGAKERFIASKS Áskrifendur fá Z0% otn miin himih' aukaafslátt af smáauglýsingum DV Dodge Dynasty ‘92, ek. 38 þús. mílur, ssk., grár. Verð 1.410.000. Nissan Sunny station 4x4 '94, ek. 63 þús. km, bsk., vínrauður, álfelgur o.fl. Verð 1.250.000. Mercedes Benz 300 E ‘95, ek. 148 þús. km. Verð 1.290.000. Tilboðsverð 880.000 stgr. Dodge Intrepid ‘93, ek. 30 þús. mílur, ssk., grænsans. Verð 1.790.000. Tilboðsverð 1.490.000 stgr. BÍLASALAN BÍLFANG ehf. Borgartúni 1b Símí 552 9000 FÍB Honda Civic LSi ‘92, ek. 62 þús. km, 3 d., blár. Fallegur bíll. Verð 970.000. Suzuki Sidekick JLXi ‘92, ek. 63 þús. km, ssk., einn eigandi. Verð 1.230.000. VW Golf CL ‘95, Renault Clio RT ‘94, ek. 45 þús. ek. 45 þús. km, bsk., 3 d., blár. km, ssk., 4 d., rauður. Verð 1.030.000. Verð 930.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.