Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Page 9
Símamynd Reuter MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 9 Utlönd Sarah Ferguson leysir frá skjóöunni í viðtölum: Blá og marin eftir barsmíðar Bryans Sarah Ferguson, hertogaynja af York og fyrrum eiginkona Andrésar Bretaprins, sagði í blaðaviðtali sem birtist í gær að fyrrum elskhugi hennar, fj ármálamaðurinn John Bryan, hefði barið hana sundur og saman i reiðikasti eftir að hún hafði neitað honum um að sjá dagbókina hennar. í viðtali við breska blaðið Independent on Sunday segir Fergie að barsmíðarnar hafi átt sér stað í marsmánuði 1995. Þau höfðu verið í kvöldverðarboði og byrjað að rífast um innhald dagbókarinnar. Hann ' reif svo dagbókina og dreifði tætlun- um um herbergið. „Ég viidi ekki leyfa honum að sjá hvað ég hafði skrifað. Þá barði hann mig. Ég var öll blá og marin á hand- leggjunum því ég notaði þá til að verja mig. Ég held að engin kona vilji láta berja sig og svo er um mig,“ sagði Fergie í viðtalinu. Þetta viðtai er eitt margra sem hún hefur veitt undanfarið til að kynna sjálfsævisögu sína sem nefn- ist My Story eða Saga mín. Þar dregur hún upp heldur niðrandi Fergie með sjálfsævisögu sína. Engu nær eftir matvælaráðstefnu Leiðtogar heims fordæmdu hung- ur á matvælaráðstefhu Sameinuðu þjóðanna í Róm í síðustu viku. En við lok ráðstefnunnar í gær voru menn enn á byrjunarreit vegna djúp- stæðs ágreinings um hvort fijáis og óhindruð heimsviðskipti með mat- væli gætu orðið til að seðja hungur 800 milljóna jarðarbúa sem þjást af vannæringu. Ágreiningur auðugra rikja við þróunarlöndin um viðskipti setti mestan svip á ráðstefnuna. Banda- ríkjamenn lögðu til að viðskipti með matvæli yrðu alveg frjáls. Þannig væri hægt að komast að rótum hung- urvandans. En Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, þótti stela senunni á laugar- dag þegar hann réöst á kapítalisma, nýfrjálshyggju og lögmál „hins villta markaðar". Hann sagði skuldir og vanþróun vera að drepa hungraða íbúa jarðar. Einn fulltrúi þriðja heimsins réðst harkalega á Vestur- lönd fyrir að fleygja matvælum á haugana meðan milljónir um állan heim svelta. Brasilía: Fimmtíu milljónir ekki í þjóðskrá Um 50 milljónir Brasilíumanna næstum þriðjungur skráðs íbúa fjölda, hefur ekkert fæðingarvottorí eða önnur skjöl sem sanna að þeii séu í raun til í skilningi laganna Brasilískt dagblað skýrði frá þessi um helgina. Þar kom fram að um 99 þúsund óskráð böm hefðu fæðst 199 og mörg þeirra myndu deyja án þes að hafa verið til samkvæmt þjóc skrám. Vitnaði blaðið til sérfræí inga sem sögðu að fjöldi óskráðr íbúa skekkti alla tölfræði um brasi ískt þjóðfélag, þar á meðal bam; dauða. Reuti mynd af konungsfjölskyldunni. Fergie hefur aldrei átt sérstaklega upp á pallborðið hjá Bretum og féll í ónáð þegar birtar vom myndir af henni þar sem hún var berbrjósta við sundlaug i Suður-Frakklandi. Ekki bætti úr skák að John Bryan saug á henni tæmar. En þrátt fyrir erfiða tíma segir Fergie að Elísabet tengdamóðir sín hafi alla tíð stutt við bakið á sér og geri enn. „Ég elska manneskjuna. Ég elska hana í tætlur," segir Fergie í áðurnefndu viðtali. Loks gaf hún í skyn að hún og Andrés gætu byrjað saman á ný en vék sér undan þegar gengið var á hana varðandi þau mál. Reutpr niuiitifimmiii ][lllll 1 llllUj liiiii Mikið úrval SPARIFATNAÐI Kjólar, skokkar, peysur, vesti og skyrtur. Kápur og úlpur. Flott föt á stelpur og stráka. 15% afsláttur af MP sokkabuxum, ný mynstur. Opið Iaugardaga í nóv. til kl. 16.00 Sendum í póstkröfu - sendum bækllnga út á land ef óskað er. Nýtt kortatímabil BARNASTIGUR BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955 SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461 Húsgögn gæði BORflSTOFUSTÚ IIR <>\ 9,900 °\ 12.300 Að Vfy /<so- 13.500 r° 0, r)uin í stí[ 12.500 i 3000 m2 sýningarsalur 6.900 Opið virka daga 9-18 Laugardaga 10-16 Sunnudaga 14-16 •• TM - HUSGOGN SíSumúla 30 - Sími 568 6822

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.