Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1996, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1996 „Það sem við erum að kenna hérna er hvernig upplýsingum er komið á framfæri þannig að þær séu ekki bara í fallegum búningi heldur hafi líka áhrif,“ segi Guðmundur Oddur Magnússon, kennari í grafískri hönnun í Myndlista- og handíða- skóla íslands. Hann kennir nemend- um sínum meðal annars hvemig upplýsingar og boðskapur er settur fram á Internetinu og öðrum miðl- um. Enn fremur vinna nemendur hans mikið á tölvur enda er grafísk hönnun öll komin þangað inn. Guð- mundur segir að tölvan marki þriðju stóru byltinguna í prentlist- inni en hinar voru lausaletursprent Gutenbergs og vélvæðing prentunar í iðnbyltingunni. „Svo kemur að því að tölvan verður nothæf fyrir prent- og skjámiðla í lok níunda áratugar- ins og þá fer öll uppsetning fram á skjánum, annað umhverfi er ekki til í dag. Þetta gildir um bækur, blöð, vörumerki og hvaðeina sem felur í sér skilaboö," segir Guðmundur . Góð uppsetning mikilvæg Að hans sögn er greinilegt að eft- ir því sem vefsíðum fjölgar er það æ mikilvægara að geta skapað sér sér- stöðu með góðri hönnun. „Lítið af þessu er raunverulega sett upp ef svo má segja, megninu er bara klastrað upp. Það eru nefnilega svo margir sem hafa tæknina og þekk- ingu til að búa til vefsíður en það eru færri sem kunna að setja þær vel upp. Þetta eru menn famir að Grafísk hönnun: Netið er að fyllast af rusli - segir Guðmundur Oddur Magnússon puömundur OrJóur Magnusson, ttftildarsljori ) graJiskn hönnun i MyncJlista- og handiöaskóla ls- lanrJs er hér lengst til heegri og meft honum a mynóínni eru fcraqa Halldórsson kennari oq nemepriur þeirra vió nýja margrriiðluiiarlblvu sem nokkrar slorar aijglý«át»jj.-i- stotur gáfu deildinni nýlega. reka sig á,“ segir hann. Guðmundur leggur áherslu á að sömu reglur gildi um uppsetningu vefsíðna og til dæmis dagblaðna. „Þegar Netið varð að veruleika fóm allir af stað og hrúguðu upp heima- síðum. Það verður hins vegar að hafa í huga að á vefsíðu verður að tengja saman myndir, merki og texta á sama hátt og gert er í prent- miðlum enda lesum við enn á sama hátt þó miðillinn hafi breyst. Þetta er meðal annars það sem er verið að kenna hér,“ segir Guðmundur. Hann segir taka mun lengri tíma að læra slíka uppsetningu en að læra forritun. Meiri ásókn líkleg Hann býst við því að ásóknin í nám í vefsíðúhönnun muni aukast verulega eftir því sem notkunin á Netinu verður meiri. „Þetta gerist þegar menn átta sig þetur á því að framsetning á þekkingu er ekki bundin við texta. Nú er ég að kenna fólki sem er nokkuð langt komið í grafískri hönnun. í framtíðinni má hins vegar búast við því að við þjóð- um upp á nám fyrir þyrjendur í uppsetningu á vefsíðum, enda er mikil þekking og reynsla í notkun myndmáls fyrir hendi hér í Mynd- lista- og handíðaskólanum," segir Guðmundur að lokum. -JHÞ Keppni hunda f gegnum Netift er lyftistöng fyrir hundaáhugamenn á fslandi, segir Agnes Ýr Þorláksdóttir, formaftur íþróttadeildar Hundaræktarfélags ís- lands. Rose TatOO * Syndicate Wors * Kilrathi Soujo • f/laking ID4 • r/ladden 97 tlltimate Soccer f/lan 2 • NHL 97 Fly Fishing • Soviet Strikc • Crash Bandicoot • Wipeout 2097 • Formula 1 LflUGAVEGUR 96 Siini 525 5066 Hundakeppni á Netinu Einangrunin rofi n - segir Agnes Ýr Þorláksdóttir, tölvukennari og hundaáhugamaður Fæstir tengja hundakeppni og Internetið saman en hversu ótrúlegt sem það virðist þá hafa nokkrar hundakeppnir með aðstoð Intemets- ins verið haldnar og gengið vel. Kennt með tölvupósti „Þetta byrjaði allt á því að ég komst í samband við bandarískan hundaþjálfara í gegnum póstlista á Internetinu. Ég spurði þar hvort þjálfari gæti komið hingað til að kenna okkur hundarækt og hún svaraði um hæl og kom hingað í sumar. Þegar hún var farin heim hélt hún áfram að kenna okkur í gegnum tölvupóstinn og við höfum keppt við skólann hennar í gegnum Netið,“ segir Agnes Ýr Þorláksdótt- ir en hún er formaður íþröttadeild- ar Hundaræktarfélags íslands og kennari í Tölvuskóla Reykjavíkur. Lyftistöng íslenskir hundar hafa þegar keppt við erlenda með aðstoð Inter- netsins og staðið sig vel. Keppt er í hverju landi á stöðluðum brautum. Stigin sem hundamir fá eru síðan send með Netinu og reiknuð saman. Nýlokið er landskeppni milli Banda- ríkjanna, íslands og Suður-Afríku. ísland og Bandaríkin kepptu um næstsíðustu helgi en Suður-Afríka í gær. Að sögn Agnesar er slík keppni lyftistöng fyrir hundaáhugamenn. „Þetta rýfur einangrun okkar og sama má segja um Breta. Ef íslensk- ur hundur fer utan til keppni þarf hann að dveljast í sóttkví hér á landi í sex vikur en á Bretlandi í sex mánuði. Hingað til höfum við keppt í nemendakeppni en í lok mánaðarins stendur til aö keppa í alvöru landskeppni með aðstoö Netsins. Þá verða okkur sendir ná- kvæmir uppdrættir af brautum í gegnum Netið,“ segir Agnes. Það stendur til að setja upp vefsíðu um hundakeppnir og býst Agnes við að þeirri vinnu ljúki fljótlega. „Þar verða myndir af hundunum og texti um þá. Þá geta menn skoðað mynd- ir af hundunum sem er verið að keppa á móti.“ -JHÞ Heitustu tölvuleikirnir PP loilrir rU-IBIKII 1. (1) Championship Manager II 2. (3) Flight Simulator 6.0 3. (-) Syndicate Wars 4. (9) Daggerfall 5. (-) Pirates Gold 6. (7) Quake 7. (2) Z 8. (-) Flight.Simulator 9. (-) Settlers II 10. (-) Time Commando 1. Marathon Infinity 2. Warcraft II 3. Lucas Arts Archives 4. Top Ten Mac Pack II 5. Descent II Playstation 1. Wipeout 2097 2. Tekken 2 3. Formula 1 4. Starfighter 3000 5. Mickeyls Wild Adventure Game Boy 1. Toy Story 2. Donkey Kong Country II 3. Prehistoric Man 4. Super Mario Land II 5. Wave Race 1. Toy Story (Megadrive) 2. Virtual Fighter (Saturn) 3. Sega Rally (Saturn) 4. Pocahontas (Megadrive) 5. Story of Thor II (Saturn)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.