Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1996, Qupperneq 44
52
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 1996
Sjómenn eru ekki samstiga
þessa dagana.
Félagar okkar
semja sig niður
„Það sem mér sámar mest er
að á sama tíma og við erum að
berjast fyrir bættum kjörum eru
félagar okkar á öðrum skipum
að semja sig niður í verði á okk-
ar kostnað.“
Sveinbjörn Orri Jóhannsson,
stýrimaður á nótaskipinu Sól-
felli.
Betra að þeir í Brussel
stjómi
„Ríkisstjómin er i allsherjar-
stríði við launþega og það væri
miklu betra að fá Brussel til að
stjóma málum hérlendis."
Guðmundur Gunnarsson,
form. Rafiðnaðarsambandsins,
í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Skrýtin bókhaldsaðferð
„Borgin á að selja sjálfri sér
fasteignir fyrir 800 milljónir
króna sem síðan á að nota til
þess að staga í 800 milljóna
króna gat í borgarbókhaldinu."
Árni Sigfússon borgarfulltrúi, í
DV.
Vinimir Davíð og
Hjörleifur
„Mér frnnst skörin færast upp
í bekkinn þegar ekki gengur
hnífurinn á milli Hjörleifs Gutt-
ormssonar og formanns Sjálf-
stæðisflokksins."
Hrafnkell A. Jónsson verka-
lýðsleiðtogi, í Alþýðublaðinu.
Skipt um lögheimili
„Það lítur hrikalega út að all-
ur okkar kvóti skuli skipta um
lögheimili."
Kristín Karlsdóttir, starfsmaður
í Meitlinum í Þorlákshöfn, í DV.
Þyrlur
Fyrsta hugmyndin að ein-
hvers konar loftskrúfu kom frá
málaranum mikla, Leonardo da
Vinci, sem hann festi á blað árið
1480, loftskrúfu sem snerist á
lóðréttum öxli. En það er ekki
fyrr en í lok 19. aldarinnar að
farið er að hugsa um þyrlur af
alvöru og fyrsta loftferðin var
farin árið 1907 þegar franski vél-
virkinn Paul Cornus hóf sig á
loft og komst í tveggja metra
hæð i þyrlu sem knúin var
sprengihreyfli. Vélin vó 260 kg
og hreyfillinn var 24 hestöfl.
Blessuð veröldin
Fyrsta þyrlan sem flaug einn
kílómetra í hringflugi hóf sig á
loft 4. maí 1924. Þyrlusmiðurinn
var Frakkinn Etuienne Oem-
ichen. Árið 1936 smíðuðu síðan
Louis Breguet og Rene Dorant
þyrlu sem gerði allt sem henni
var ætlað, sveif kyrr yfir tiltekn-
um stað, flaug út á hlið, flaug í
ýmsar áttir alllengi, en mest var
þó um vert að hún lenti með
fyllstu nákvæmni í fijálsu svifi.
Þyrillinn
Saga þyrilsins er nátengd þró-
unarferli þyrlunnar. Árið 1908
tók Rússinn Igor Sikorsky, sem
flust hafði til Bandaríkjanna, að
velta fyrir sér þyrilbúnaði og
skrúfublöðum. Þyrillinn tryggði
að þyrlan héldist á lofti og þok-
aðist áfram í senn.
Snjókoma og slydduél
988 mb lægð um 300 km suður af
Reykjanesi þokast norðaustur og
grynnist heldur. 1028 mb hæð er
Veðrið í dag
yfir Norðaustur-Grænlandi.
í dag verður hvöss norðaustanátt
og snjókoma á norðvestanverðu
landinu, en breytileg átt og gola eða
kaldi og slydduél i öðrum landshlut-
um. Frost 2 til 5 stig norðvestan til,
en um eða rétt yfir frostmarki ann-
ars staðar.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
hæg breytileg átt og slydduél. Held-
ur hlýnandi veður.
Sólarlag í Reykjavík: 15.35
Sólarupprás á morgun: 11.08
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.28
Árdegisflóð á morgun: 05.53
Veórið kl. 12 í gœr:
Akureyri alskýjað -7
Akurnes alskýjaö -2
Bergsstaöir alskýjað -5
Bolungarvík snjóél -5
Egilsstaöir alskýjaö -7
Keflavíkurflugv. alskýjaö -2
Kirkjubkl. snjókoma 0
Raufarhöfn snjókoma -4
Reykjavík alskýjaö -3
Stórhöfði snjókoma 0
Helsinki alskýjaö 3
Kaupmannah. þokumóóa 2
Ósló rigning 5
Stokkhólmur skýjaö 3
Þórshöfn súld 8
Amsterdam þokuruðningur 3
Barcelona skýjað 15
Chicago snjókoma -3
Frankfurt alskýjað 1
Glasgow Rigning og súld 10
Hamborg þokumóöa -1
London þokumóóa 5
Lúxemborg þokumóóa -2
Madrid skýjað 11
Malaga hálfskýjaö 13
Mallorca rigning 12
Orlando hálfskýjaö 14
Paris þokumóða 1
Róm þokumóöa 12
Valencia rigning 9
Nuuk skýjaö -11
Vín frostúði 0
Winnipeg alskýjaö -9
Ormur Guðjón Ormsson uppfinningamaður:
Hef verið meira og minna alla ævi í grúski
DV, Suðurnesjum:
„Faðir minn, sem var handlag-
inn maður, átti mikið af verkfær-
um. Þegar ég var 12 ára gamall fór
ég að nota hefilinn hans og var það
ekki vel séð af hans hálfu. Þegar ég
var að stelast í hefilinn heflaði ég í
nagla svo gamli maðurinn þurfti að
brýna tönnina. Ég tók þá upp á því
að smiða mér hefil sjálfur sem
gekk ágætlega. En mig vantaði eftii
í tönnina og sá engin önnur ráð en
að klippa gjörð af síldartunnu og
brýna egg á hana,“ sagði Ormur
Guðjón Ormsson, 76 ára uppfinn-
ingamaður í Njarðvík. Ormur Guð-
jón hefur unnið að því á þriðja ár
að hanna handfang til þess að nota
á veiðarfæri fyrir handfærabáta.
Einnig hefur hann hannað gervi-
beitu úr plasti fyrir skakkróka.
Báðar uppfinningarnar eru ný-
komnar á markað og hafa reynst
mjög vel.
Maður dagsins
„Ég hef verið meira og minna
alla mína ævi í einhverju grúski.
Þegar ég finn upp á einhverju hef-
ur þaö komið af sjálfu sér og er
nokkuð sem ég ræð ekki viö. Það
eru margir erfiðleikar sem upp-
Ormur Guðjón Ormsson.
finningamaður þarf að yfirstíga en
samt anar maður út í þetta aftur og
aftur. Ég hef aldrei hugsað út frá
því sjónarmiði að græða peninga.
Þetta hefur aldrei gefið neitt af sér
nema puðið og baslið. Hins vegar
er þetta mjög skemmtilegt og eins
fylgir því mikil alvara. Það er æð-
islega gaman ef ég finn að ég er að
gera hluti sem notendur hafa þörf
fyrir en það er líka jafnömurlegt að
daga uppi með hlutinn og það eina
sem stendur eftir eru skuldir. Það
fer mikill timi í þetta og því fylgir
mikill kostnaður þó að ekki séu
stærri hlutir en t.d. handfangið."
En ætlar Ormur Guðjón að halda
áfram að finna upp á nýjungum?
„Þetta er eins og að vera fikifl. Það
er nyög erfitt að hætta en ég get
allavega hvílt mig á þessu. Fólk fer
að hætta að taka mig trúanlegan í
bankastofnunum vegna þess að ég
er orðinn svo gamall og hugsar ör-
ugglega um það hvernig ég ætli að
borga lánið til baka. Núna langar
mig helst til að taka það rólega og
slappa af í nokkur ár. Kannski
dútla við að mála mynd af sjálfum
mér og mála síðan yfir hana aftur.“
Ormur Guðjón á nokkur áhuga-
mál fýrir utan uppfinningar. „Ég
hef verið svolítið að mála en ekki
lagt í það að sýna verkin. Ég hef
gefið þau til vina og ættingja ef
þeir vilja á annað borð fá þau. Þá
hef ég smíðað hluti úr tré eða
jámi.“
Ormur Guðjón, sem er rafvirkja-
meistari að mennt, vann síðast á
Keflavíkurflugvelli í 23 ár en hætti
þegar hann var 72 ára. Hann fædd-
ist í Hafnarfirði og er uppalinn á
Snæfellsnesi. Eiginkona Orms Guð-
jóns er Sveinbjörg Jónsdóttir og
eiga þau tvær dætur saman. Svein-
björg átti tvö böm fyrir frá fyrra
hjónabandi og Ormar Guðjón 4
börn. -ÆMK
Hafharfjarðarslagur
í handboltanum
í kvöld eru á dagskrá tveir leik-
ir í handboltanum og einn i körfu-
bolta. Aðalleikur kvöldsins er
viðureign Hafnarfjarðarliöanna
FH og Hauka. Haukar hafa oftast
staðið í skugganum af FH en nú
em það Haukamir sem era að
flestra mati með sterkara lið og
þar sem leikurinn fer fram í
Strandgötunni, á heimavelli
Hauka, þá verða þeir að teljast sig-
urstranglegri. Leikurinn hefst kl.
20. í 1. deild kvenna er einn leikur
jþróttir
og er það viðureign sömu liða og
fer hann einnig fram í íþróttahús-
inu við Strandgötu. Einn leikur er
í 1. deild kvenna í körfubolta og
fer hann fram 1 Kennaraháskólan-
um. ÍS tekur á móti Breiðabliki og
hefst leikurinn kl. 20. Á morgun
er svo einn leikur í úrvalsdeild-
inni, þá leika Haukar og Tinda-
stóll í Hafharfirði.
Dúndurfréttir
á Gauknum
Sem fyrr
býður Gauk-
ur á Stöng
upp á lifandi
tónlist á
hverju
kvöldi og í
kvöld er það
hljómsveitin
Dúndurfrétt-
ir sem leikur
fyrir gesti
staðarins.
Dúndurfréttir er skipuð tónlistar-
mönnum sem sumir hverjir era
Skemmtanir
starfandi í öðrum hljómsveitum
og leikur hressilega rokktónlist.
Það eru svo hinir eldhressu Pap-
ar sem taka við af Dúndurfréttum
á Gauknum.
Bridge
Það virðist ekki vera neinn hægð-
arleikur fyrir NS að hnekkja þremur
gröndum i þessu spili. Spilið kom fyr-
ir í sveitakeppni í Danmörku þar sem
spiluð voru forgefin spil, sömu spil á
öllum borðum. Langflestir þeirra sem
voru i þremur gröndum, fengu 9 slagi
eða jafnvel fleiri. Landsliðsspilararnir
Allan Cohen og Lars Munksgaard,
sem sátu í AV, urðu hins vegar að láta
sér nægia 8 slagi eftir hárfína vörn
NS, Jörgen Priess og Svend Erik Erik-
sen. Vestur hafði sýnt í sögnum
sterka hendi með 5-4 i spaða og hjarta
en það kom ekki í veg fýrfr að suður
spilaði út spaðatíu í upphafi:
4 G2
Á2
♦ G875
* 109875
4 6
«4 D103
♦ K10942
* K632
4 K10983
•4 9874
♦ Á63
* G
Cohen leist ekki vel á útspflið og
hafði ekki mikinn áhuga á að leggja
samninginn að veði með því að svína
spaðadrottningunni. Hann stakk upp
ásnum og sú spflamennska gaf NS
nokkuð forskot í vörninni. Hjarta-
fimmunni var spilað úr blindum og
Priess gerði rétt í því að fara strax
upp með ásinn og spfla spaðagosa.
Sagnhafi mátti ekki taka þann slag og
þá spflaði Priess tigulfmununni. Erik-
sen hefði gefið samninginn ef hann
hefði notað tígulásinn, en hann setti
þristinn og drottningin í blindum átti
slaginn. Sagnhafi getur ekki tekið 9
slagi því vörnin á enn samgang í tígl-
inum. Sagnhafi reyndi sitt besta og
fór að taka slagi sína í þeirri von að
andstæðingarnir hentu vitlaust af sér.
Norður henti einu laufi og einum tígli
í hjörtun og þegar vestur spilaði
norðri inn á síðasta laufið hélt suður
eftir tígulásnum og spaðakóngnum.
ísak Örn Sigurðsson
4 AD754
«4 KG65
4 D
* ÁD4