Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Blaðsíða 2
2 fréttir
★' TÍr •
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 UV
Yfirmaöur fíkniefnalögreglunnar gaf fíkniefnamanni meömæli fyrir byssuleyfi:
Lögreglu- og ráðuneytis-
stjóri vissu um meðmælin
- Björn gekk á fund beggja og taldi miðað viö viðbrögð að skýringarnar væru fullnægjandi
„Það má deila um hvort rétt-
mætt sé að lögreglumaður skrifi
upp á og gefi dæmdum manni með-
mæli. Hins vegar var ég enginn úr-
skurðaraðili í þessu máli,“ sagði
Bjöm Halldórsson, yfirmaður
fikniefnadeildar, í samtali við DV,
aðspurður um hvort rétt væri að í
starfi sínu hefði hann með uppá-
skrift sumarið 1994 mælt með
byssuleyfi til handa dæmdum
sakamanni í fíkniefhaheiminum.
Bjöm sagði að hann gæti ekki gef-
ið upp hvað hefði legið að baki
ákvöröun hans um aö skrifa upp á
fyrir manninn. Uppáskrift Bjöms
komst „í hámæli innan lögreglunn-
£ir“ haustið 1994. Þá var Bjöm ný-
hættur i fíkniefhadeildinni og hafði
hafið nám í lagadeild Háskóla ís-
lands. í nóvember sama ár ákvað
Bjöm hins vegar að ganga á fund
Böðvars Bragasonar lögreglustjóra
og Þorsteins Geirssonar, ráðuneyt-
isstjóra í dómsmálaráðuneytinu, og
greina þeim frá umræddri uppá-
skrift og þeim ástæðum sem höfðu
legið að baki því aö hann ákvað að
setja nafn sitt á byssuumsókn saka-
mannsins.
Eftir framangreinda fundi með
lögreglustjóranum og ráðuneytis-
stjóranum, sem vom sinn í hvora
lagi, taldi Bjöm að skýringar hans
hefðu verið fuilnægjandi. Á árinu
1995 hætti Bjöm námi við HÍ.
Hann hóf síðan störf hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. Áður en
árið var úti hafði hann síðan að
nýju tekið við starfi sínu sem yfir-
maður fíkniefnadeildar sem hann
gegnir enn.
„Ég vil hvorki játa þessu né
neita,“ sagði Þorsteinn Geirsson,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, í samtali við DV í gær
um það hvort Bjöm Halldórsson
hefði greint honum frá uppáskrift
sinni á leyfisumsóknina og þær
ástæður sem lágu að baki uppá-
skriftinni.
„Það sem liggur hins vegar fyrir
er að við höfum staðfest að beiðni
hafi komið frá þessum manni,
Franklín Steiner, þar sem hann ósk-
aði eftir byssuleyfi, og að Bjöm
Halldórsson var meðmælandi. Við
höfum líka staðfest að við höfhuð-
um umsókninni," sagði Þorsteinn.
Þegar spurningin um fundinn
með Bimi var ítrekuð sagði Þor-
steinn:
„Ég minnist þess ekki sérstaklega
en vil ekkert fullyrða um það. Þess
vegna vil ég hvorki játa því né
neita.“
Ekki náðist í Böðvar Bragason
lögreglustjóra í gær.
-Ótt
Hinar heföbundnu janúarútsölur eru nú i algleymingi og víöa hægt aö gera góö kaup. Búast mó viö örtröö um helg-
ina þegar vinnandi fólk eygir glætu til aö fata sig upp fyrir áriö sem nú fer í hönd. Svo góöar eru útsölurnar orönar
aö kaupmenn fhuga jafnvel aö markaössetja þær á erlendri grund. DV-mynd Hilmar Þór
Verkfallshótanir verkalýösleiötoganna:
Leiki menn sér að eldi
getur oröið eldsvoði
- segir framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins
Stöð 3 fær liðsauka:
Magnús ráð-
inn sjón-
varpsstjóri
- fjórir nýir ráðnir
Magnús E. Kristinsson var í
fyrrakvöld ráðinn framkvæmda-
stjóri íslenskrar margmiðlunar
hf. og sjónvarpsstjóri Stöðvar 3.
Þá vom fjórir nýir starfsmenn
ráðnir til Stöðvar 3 í gær.
Magnús hefur verið einn af
þremur framkvæmdastjóram ís-
lenska útvarpsfélagsins hf. og
mun hann þegar hefja störf hjá
nýja fyrirtækinu. Nýju starfs-
mennirnir sem um ræðir era þeir
Jón Axel Ólafsson, sem verið hef-
ur dagskrárstjóri Bylgjunnar,
Thor Ólafsson, sem verið hefur
auglýsingastjóri íslenska útvarps-
félagsins, Hannes Jóhannsson,
sem verið hefur tæknistjóri ís-
lenska útvarpsfélagsins, og Magn-
ús V. Sigurösson sem veriö hefur
framleiðslustjóri hjá Jslenska út-
varpsfélaginu.
Fjórmenningarnir munu starfa
með framkvæmdastjóra í sérverk-
efnum við uppbyggingu Stöðvar 3.
-RR
Kópavogur:
Fimm teknir
með eiturlyf
Tveir ungir menn vora stöðvað-
ir á bíl i Kópavogi í nótt grunaðir
um fíkniefiianeyslu. Við leit í bíln-
um fundust fikniefiii, m.a. hass.
Þrír vora síðan teknir á gangi í
morgun og á þeim fundust leifar
af amfetamíni, sprauta og illa
fengin ávísanablöð. PUtunum
tveimur var sleppt eftir yfir-
heyrslur en hinir þrír vora enn í
haldi í gærkvöldi. Ekki var talið
ólíklegt að þeir hefðu eitthvaö
sem þeir þyrftu ef tU vUl að létta
af samviskunni. Mennimir, sem
era 16 til 30 ára, voru teknir á
gangi þar sem þeir voru aö koma
af stað sem þekktur er fyrir fíkni-
efnaneyslu. Þeir hafa ítrekað kom-
ið við sögu lögreglu. -sv/-RR
„Mér sýnist að menn séu þama
að spana hver annan upp. Það er
gömul saga og ný að ef menn leika
sér að eldinum getur orðið elds-
voði,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, þegar hann
var inntur álits á ummælum ýmissa
verkalýðsleiðtoga þess efnis að
verkfoll blöstu við á næstu vikum.
Bábilja aö hér séu laun lægst
Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestíjarða, og fleiri
verkalýðsleiðtogar hafa sagt að það
sé móðgun við verkalýðshreyfing-
una að tala um 2 til 3 prósenta
launahækkun. Þórarinn var inntur
álits á þessu:
„Afganguriim af heiminum er þá
ekki mjög móðgunargjam. Meðal-
launabreytingar í öllum ríkjum
OECD á síðasta ári vora 3 prósent.
íbúar þessara landa era nálægt ein-
um miiljarði."
- Era menn ekki þar með hærri
laun en hér tíðkast, alla vega hér í
Mið- og Norður-Evrópu, þannig að 3
prósent skipti meira máli þar en
hér?
„Það er hreinasta bábilja að ís-
lendingar séu lægst launaðir allra
þjóða, hreinlega ómerkileg tugga.
Ég skal viðurkenna að við erum
lægri en þeir sem hæstir era en við
erum langtum hærri en þeir sem
lægstir era af þessum þjóðum. Og
við erum i samkeppni við þessar
þjóðir allar og getum því ekki látið
eins og við séum einir í heiminum
og látiö að lund okkar. Ég vil benda
á í þessu sambandi að viö erum með
hærri fjölskyldutekjur en bæði
Bretar og Frakkar en við erum
lægri en Danir í beinu kaupi.
Loddaraháttur
Hitt er rétt að við skilum fleiri
vinnustundum á fjölskyldu hér á
landi en í nágrannalöndunum. Við
eigum hins vegar að geta aukið af-
köst okkar og við eigum líka að geta
sótt fram til meiri tækni. Slíkt mun
skila bættum kjörum. Það er hreinn
loddaraháttur að halda þvi fram að
við gerð einstakra kjarasamninga
geti orðið einhver grundvallarbreyt-
ing á kjörum fólks. Þetta eiga allir
að vita því það er búið að reyna svo
oft að gera þannig kjarasamninga,“
sagði Þórarinn V.
Veröbólgan á fulla ferö
Hann fullyrðir að 10 prósenta
hækkun á kauptaxta myndi þýða 12
til 15 prósenta kauphækkun því
alltaf verði gerðir einhverjir sér-
kjarasamningar með.
„Það færi sjálfsagt ekki allt úr
skorðum við það. En ef við semdum
um 10 prósenta hækkun kauptaxta
myndi 3 til 4 prósenta gengisfelling
yerða um leið. Það era nefnilega
ekki stjómvöld heldur markaður-
inn sem nú ákveður gengið. Verð-
bólgan yrði 8 til 9 prósent fyrsta
árið og síðan stigvaxandi. Þetta vita
þeir sem era með hæstu kaupkröf-
umar því þeir era allir með kaup-
máttartryggingu í sínum kröfum.
Með fyrmefndri kauphækkun er
bara verið að biðja um gamla ferlið
í þessum málum," sagði Þórarinn V.
Þórarinsson. -S.dór
stuttar fréttir
Fimm rannsóknar-
prófessorar
Fimm mönnum verður boðin
ráðning í tímabundnar stöður
rannsóknarprófessora við Há-
skóla íslands til fimm ára. Þeir
eru Þór Whitehead, Þorvaldur
Gylfason, Eiríkur Steingríms-
son, Hjörleifur Einarsson og
Þórður Runólfsson.
Columbia-álveriö
Umhverfisnefnd Alþingis
ætlar að fjalla um staðsetningu
Columbia-álversins á Grundar-
tanga. Formaður hennar segir
að nefndin eigi sjálf frumkvæði
að þessu þótt málið sé ekki í
hennar höndum. RÚV segir frá
þessu.
Hafísvetur yfirvofandi
Mikill ís er á Grænlands-
sundi og talin er ástæða til að
óttast að hann veröi með mesta
móti við íslandsstrendur í vet-
ur. Siglingaleið út af Kögri er
nú varasöm vegna rekíss og
stakra jaka.
Mikið gjaldeyrisút-
streymi
Mikill gjaldeyrir streymir nú
úr Seðlabankanum og kennir
einn bankastjóranna óvissuá-
standi á vinnumarkaði um.
Gjaldeyrisstaða bankans um
áramót var betri en um árabil-
RÚV segir frá.
Flmm stjórar fara
Fimm stjómendur, þar á
meöal markaðsstjóri, auglýs-
ingastjóri, dagskrárstjóri og
framleiðslustjóri, hjá íslenska
útvarpsfélaginu hafa hætt störf-
um og ráðiö sig hjá Stöð þrjú.
Hollensk
atvinnusköpun
Hollenskt orkufyrirtæki hef-
ur áhuga á að taka þátt í at-
vinnustarfsemi og nýsköpun á
Austurlandi, m.a. með því að
koma á fót frístundagörðum og
nýherjabúðum. Einnig skoðar
fyrirtækið útflutning á raf;
orku um sæstreng. RÚV sagði
frá.
Járnblendið stækkað
Þriðja ofninum verður bætt
við þá sem fyrir era í járn-
blendiverksmiðjunni. Um er að
ræða þriggja milljaröa fjárfest-
ingu. Stjóm Jámblendifélags-
ins ákvað þetta í gær.
Ósammála stofnanir
Náttúruvemd ríkisins krefst
vothreinsibúnaðar í álver á
Grundartanga auk þurrhreinsi-
búnaðar. Hollustuvemd ríkis-
ins telur það óþarfa.
-SÁ
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mfnútan
J6 S Nel 2
j rodd
FOLKSINS
904 1600
Er rétt að staðsetja álver
í Hvalfirðinum?