Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Blaðsíða 26
34
imm
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 B lV
Ég ætla aldrei aftur í megrun:
f
Arni hefur
losnað við 28
kg á hálfu ári
- markmiðið er 99 kg kjörþyngd fyrir 1. júní
Hinn 10. ágúst sl. steig Ámi Sig-
urðsson, 29 ára gamll Reykvikingur,
á vigtina sem oftar. Hann var 156,6
kg. Þar með var hann kominn aftur
upp í þá þyngd sem hann var í þeg-
ar hann hóf megrun árið 1988. Sú
megrun stóð langt fram á næsta ár
og þegar henni lauk hafði Ámi lést
um 60 kg og stóð þá i 100 kg. Óneit-
anlega stórglæsilegur árangur hjá
honum. Hinn 10. ágúst sl. varð Ámi
hins vegar að horfast í augu við það
að allur fyrri árangur var tapaður.
„Ég fann svo greinlega að þessi
þyngd og meðfylgjandi líkamlegt
ástand var farið að há mér verulega.
Gilti það bæði í einkalífi og í starfi,"
sagði Árni Sigurðsson þegar við
ræddum við hann. Ég var alltaf of
feitur, alveg frá því að ég var ungur
strákur. Þess vegna veit ég að svona
ofurþungi veldur því að maður
missir sjálfstraustið. Ég veit líka að
annað fólk fær gjaman ranga mynd
af feitu fólki. Ómeðvitað álítur fólk
hinn feita bæði latan og væmkær-
an. Sumir sjá þar líka einhvern
taumlausan munaðarsegg.
Meira og minna er þetta auðvitað
ómeðvitað sem fólk metur hina feitu
á þennan hátt. Ég veit hins vegar að
þetta mat er alls ekki rétt svona
yfirleitt og sjálfur tel ég mig ekki í
hópi hinna lötu og værukæru mun-
aðarseggja og vil ekki líta þannig út
í augum annars fólks.
Staða mín i ágúst sl. var orðin
þannig, hvort sem mér líkaöi betur
eða verr, að komið var að tímamót-
um. Ætlaði ég, 29 ára gamall maður-
inn, að sætta mig við það til fram-
búðar að eiga í erfiðleikum með að
ganga upp stiga? Ætlaði ég að sætta
mig við þær horfur að geta innan
fárra ára ekki reimað skóna mina
hjálparlaust. Ætlaði ég að sætta mig
við það líf að fara úr rúminu á
morgnana og aka síðan í vinnuna
Til sðlu Chevrolet Blazer LT árg. ’95
Búnaður m.a.: 6 cyl 4,3 Vortec vél, 4 þrepa
sjálfskipting, leðurklædd innrétting, ABS, loft-
púði, CD, álfelgur, ek. aðeins 17 þús. km.
Verð kr. 3.250,- Ath. skipti og/eða lán.
Nánari uppl. í síma 896-6612 eða 555-3773
„Ég átti von á því í byrjun að Árni mundi tæplega endast lengur en í tvær til þrjár vikur en það er því miður oftast
raunin þegar menn ætla að taka sér hressilegt tak eins og Árni byrjaði á í ágúst sl.,“ sagði Björn Leifsson, forstjóri
World Class. Myndin er af því þegar Björn vigtaði Árna Sigurðsson fyrr í þessari viku. í Ijós kom að 28 kg takmarkið
hafði náðst og ekki tapast aftur í jólasælunni. Vigtin sýndi 127,6 kg. Stefna Árna er sú að hinn 1. júní nk. verði hann
kominn niöur í 99 kg. DV-mynd Hilmar Þór
Aukin ökuréttindi
Leigubifreið Vörubifreið Hópbifreið
Ökuskóli S.G. Suðurlandsbraut 16, óskar nemendum sínum gleðilegs
árs og gæfu í umferðinni á nýbyrjuðu ári.
Fyrstu námskeiðin á nýju ári verða haldinn í
Revkiavík og Keflavík
Náskeiðin hefjast mánudaginn 20. janúar kl: 18:00 ef næg
þátttaka fæst. Upplýsingar í símum 581-1919 og 892-4124
LEIGDBIRREID - VORUBIFREID - HÚPBIFREID
þar sem ég sæti allan daginn. Og að
því loknu færi ég heim þar sem ég
dytti sitjandi eða liggjandi i sófann
við sjónvarpið, þar sem ég væri þar
til ég brölti inn í rúm?
Niðurstaðan var sú, að svar mitt
var nei. Ég vildi ekki sjá fram á
svona líf gæti ég fundið leið til aö
koma í veg fyrir það með einhveij-
Umsjón
Ólafur Geirsson
um hætti,“ sagði Ámi Sigurðsson.
Hann sagðist hafa fundið að hon-
um var ofboðið og raunar líka hans
nánustu. „Ég fann að tími var kom-
inn til aðgerða. Megrun hafði ég
reynt eins ég sagði áður. Sú aðferð
dugði mér greinilega ekki. Hvað var
þá eiginlega til ráða?
Ámi Sigurðsson sneri meðvitað
við blaðinu. Hann ákvað að taka
upp nýjan lífsstíl. Það byggðist m.a.
á því að hann ákvað að fara ekki í
megrun, sem er vissulega djörf
ákvörðun hjá manni, sem er tæp 160
kg um það bil 60 kg fyrir ofan kjör-
þyngd.
Það var siðan 10. ágúst sl. sem
Ámi Sigurðsson steig á vigtina í
Líkamsræktinni World Class og
fékk formlega staðfestingu þess hjá
Bimi Leifssyni framkvæmdastjóra
að þyngdin væri 156,6 kg. í dag hinn
10. janúar hefur Ámi lést niður í 127
kg. _
„Ég setti mér meðvitað markmið,
sem fólst í því að missa 28 kg fyrir
árslok og það tókst mér að standa
við. Nú stefni ég að því að vera orð-
inn 99 kg hinn 1. júni nk.,“ sagði
Ámi. „Þetta hefur verið mikið starf
og oft erfitt, sérstaklega í byrjun en
sá árangur, sem ég hef þegar náð,
styrkir mig mikið.“
Trimmsíða DV ætlar að fylgjast
vel með Áma Sigurðssyni á næstu
vikum og mánuðum. Mun honum
takast að ná markinu? Verður hann
kominn niður í 99 kg hinn 1. júní
nk.? Við fylgjumst spennt með gangi
mála.