Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Page 6
6 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 JjV stuttar fréttir Kona vill í forsæti Frönsk kona, Catherine Lalu- miere, sækist eftir embætti for- seta Evrópuþingsins þótt nán- ast sé öruggt að Spánverjinn José-Maria Gil-Robles verði kjörinn á þriðjudag. Karl til Hong Kong Karl Breta- prins verður fulltrúi bresku konungsfjöl- skyldunnar þegar Kínverj- um verða af- hent yfirráð í Hong Kong í júní í sumar og mun hann gista um borð í kon- unglegu lystisnekkjunni Brit- anniu á meöan á dvölinni stendur. Lang til Mílanó Jack Lang, fyrrum menning- armálaráðherra Frakklands, hefur verið skipaður leikhús- stjóri eins virtasta leikhúss ítal- íu, Litla leikhússins í Mílanó. Moröum fækkar Morð í London voru 144 á ný- liðnu ári, allnokkru færri en á síðasta ári og reyndar færri en nokkru sinni síðastliðin fimmt- án ár. ESB brýnir raustina Talsmaður framkvæmda- stjómar ESB sagði í gær að Bosníu- Serbar fengju ekki að- stoð nema þeir færu í einu og öllu eftir gerðum friðarsamning- um. Lofa hugrekki Bandarísk stjómvöld hafa lof- að hugrekki Shevardnadzes, for- seta Georgíu, fyrir yfirlýsingu um að stjórn hans íhugi að aflétta friðhelgi eins diplómata síns sem átti þátt í banaslysi í Washington. Vont ár fram undan Prestar af santeríatrúnni, sem margir Kúbverjar aðhyllast, hafa spáð því að styrjaldir, sjúkdómar og fátækt muni setja svip sinn á nýbyrjað ár. Tudjman lítur betur út Franjo Tudjm- an, forseti Króa- tíu, sem sagður er þjást af krabbameini, kom fram opin- berlega í gær í fyrsta sinn í tíu bragði og miklu sjá en áður. Ekkjan frjáls Ekkja Envers Hoxa, komm- únistaleiðtoga Albaníu, losnaði úr fangelsi í gær eftir fimm ára vist. Reuter daga, glaður í hraustlegri að Atvinnuleysi í Bretlandi: Taliö verða úr sög- unni um aldamót Sölugengi breska pundsins fyrir nákvæmlega ári var rúmlega 101 kr. en var í gær 114,42 kr. og má ef til vill hafa það til marks um efnahags- líf í Bretlandi um þessar mundir. Breskir hagfræðingar spá því að atvinnuleysi verði úr sögunni í Bretlandi um aldamótin og landið komist þar með í hóp þeirra rikja Evrópu þar sem ekkert atvinnuleysi er samkvæmt skilgreiningu Evrópu- sambandsríkja, en sú skilgreining miðast við 5% atvinnuleysi. Tvö ES- lönd falla undir þessa skilgreiningu nú, þau eru Lúxemborg með 3% at- vinnuleysi og Austurríki með 4,1% atvinnuleysi. „Atvinnuleysisprósentan í Bret- landi er nú 6,9% og hratt faUandi og ég verð hissa ef hún verður ekki komin niður fyrir 5% innan næstu þriggja ára,“ segir Kevin Gardinar, hagfræðingur hjá Morgan Stanley- stofnuninni, við fréttamann Reuters. Hann segir að störfum Qölgi hratt í Bretlandi og séu mönn- uð jafnharðan. -SÁ Mótmælendur í Belgrad farnir í bílaleik: Umferðaræðum í miðborginni lokað Tugþúsundir stuðningsmanna serbnesku stjórnarandstöðunnar lokuðu öUum umferðciræðum í mið- borg Belgrad í gær á 54. degi mót- mælanna gegn svikum stjómvalda í sveitarstjómarkosningum i landinu í nóvember. Stjórnarandstæðingar segjast hafa verið rændir sigrinum í mörgum helstu borgunum. Lögreglan reyndi með litlum ár- angri að beina umferð frá miðborg- inni til að koma i veg fyrir að liðs- menn Zajedno, samfylkingar stjóm- arandstöðunnar, gætu notað bíla sína til að skapa umferðaröngþveiti á helsta annatíma, að sögn sjónar- votta. Umferðarhnútar eru ný leið stjómarandstæðinga til að ergja yfirvöld. Hundmð liðsmanna óeirðalög- reglunnar voru einnig á götum borgarinnar og varð það aðeins tU að auka á spennuna. Námsmönnum hafði áður tekist með þrautseigju sinni að fá lögregluna tU að láta af varðstöðu sinni og leyfa mótmæl- endum að fara í fjöldagöngu, þrátt fyrir að slíkt hefði verið bannað í síðasta mánuði. „Við eigum ekki í deUu við lög- regluna, hún er einnig lögreglan okkar. En við eigum í átökum við stjómvöld sem hafa stolið atkvæð- unum okkar,“ sagði Vuk Draskovic, einn leiðtoga Zajedno, við um 25 þúsund manna hóp sem hafði kom- ið saman á torgi i miðborginni. Mótmælendur áttu von á því að sendinefnd bandarískra þingmanna mundi slást I lið með þeim en þing- mennirnir komu til Belgrad í gær tU að leggja áherslu á það við Slobodan Milosevic forseta að hann virti leikreglur lýðræðisins í Serbíu. Reuter Eitt ár er nú liðiö frá því Francois Mitterrand Frakklandsforseti lést. Gestir og gangandi í bænum Jarnac fóru að gröf forsetans látna í gær til aö heiðra minningu hans. Kirkjugarðurinn verður lokaður f dag þar sem fjölskylda Mitt- errands kemur þar saman til að minnast hans. Sfmamynd Reuter Ráðherra í bresku stjórninni í vanda: Sagði flesta betlara á göt- um landsins vera skoska Ráðherra í bresku ríkisstjórninni kaUaði yfir sig mikla reiði í gær þegar hann sagði að flestir beUarar á götum Bretlands væru skoskir. David Maclean, ráðherra innan- ríkismála og sjálfur Skoti, sagði að heimilisleysingjar kysu sjálfir að lifa eins og þeir gerðu. „Ég læt þá aUtaf fá eitthvað. Ég læt þá heyra hvað mér finnst,“ sagði Maclean í blaðaviðtali. „Flest- ir þeirra eru skoskir og ég hef ekki enn rekist á neinn sem hefur beðið kurteislega og rólega um peninga. Það eru ekki tU neinir alvöru beU- arar. Þeir sem eru þurfandi fá aUa þá félagslegu aðstoð sem þeir þarfn- ast.“ Stjómarandstæðingum í Verka- mannaflokknum leist ekki par vel á ummæli ráðherrans og sögðu þau vera móðgun við Skota hvar sem þeir væru. Verkamannaflokksþingmaðurinn Henry McLeish, sem sjálfur er einnig Skoti, var yfir sig hneykslað- ur. „Athugasemdir Davids Macleans eru skammarlegar og móðgun við aðra Skota," sagði McLeish. Hlutskipti heimilislausra betiara hafa verið mjög í sviðsljósinu í Bret- landi að undanfomu, eða frá því Tony Blair, leiðtogi Verkamanna- Uokksins, lýsti í vikunni yfir stuðn- ingi sínum við harðlínustefnu lög- reglunnar gegn jafnvel smæstu af- brotum á götum borga landsins. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm tunna 0 N 24,66 D J ÍViðræöur áfram þrátt fyrir sprengjutilræði ísraelar, PLO og Bandaríkja- stjóm reyndu í gær að draga úr áhrifum sprengjutilræðisins í Tel Aviv á fimmtudag á friðarviðræð- umar. Þrettán manns særð- | ust þegar tvær sprengjur sprungu nærri | strætisvagnamiðstöð í miðborg- ( inni. IBenjamin Netanyahu, forsæt- isráðherra ísraels, sagði að svaraö yrði af fyllstu hörku ef arabar frá sjálfstjórnarsvæðun- um reyndust hafa komið sprengjunum fyrir. Embættismenn ísraela og Palestínumanna sögðu að þeir mundu halda áfram viðræðum við Dennis Ross, samninga- mann Bandarikjastjórnar, m.a. um sjáifstjóm í Vesturbakka- I bænum Hebron. Glæpasagnahöf- j undur skrifaði um eigin dauða Bandaríski glæpasagnahöf- '■ undurinn Eugene Izzi, sem í fannst hangandi úr glugga skrif- stofu sinnar í háhýsi í Chicago í ? síðasta mánuði, skildi eftir sig handrit þar sem því er fjálglega lýst hvernig söguhetjan sleppur úr sams konar klípu. | Þegar lík Izzis fannst utan á J húsinu var hann i skotheldu íí vesti. Hlaðin skammbyssa lá á gólfi skrifstofu hans. Háls hans var ekki brotinn og ekki hefur : enn verið kveðið upp úr um j dánarorsökina. Ýmsir vinir rithöfundarins | telja að hann hafi ekki framið | sjálfsmorð og segja að hópur hægriöfgamanna hafi haft í hót- I unum við hann vegna efnisöflun- ; ar fýrir næstu skáldsögu sína. Getum hefur verið leitt að því 1 að Izzi hafi verið að æfa atriði í : skáldsögu sinni. Þar kemst hetj- I an aftur inn og drepur þá sem f! hengdu hann utan á húsið. Loftbelgsmenn stefna á hnatt- flug um helgina Tveir loftbelgsmenn, Sviss- I lendingur og Belgi, hyggjast I leggja upp í hnattflug á bylting- arkenndum belg sínum um helg- ina ef aðstæður í háloftunum leyfa. Mennirnir vonast til að i verða fyrstir til að ijúka slíku | Uugi en breska auðkýfingnum Richard Branson mistókst það i fyrr í vikunni. „Það lítur út fyrir að aðstæð- ur verði ákjósanlegar frá laugar- dagskvöldi til sunnudagsmorg- uns,“ sagði Bernard Piccard, | svissneskur geðlæknir, sem æti- ■ ar sér að komast á spjöld sög- I unnar ásamt belgíska flugmann- inum Wim Verstraeten. Díana prinsessa hittir fórnarlömb jarðsprengna Díana prinsessa fer til An- góla um helgina til að hitta fórnarlömb jarðsprengna í | landinu og er heimsókn hennar liður í I herferð Rauða ií krossins gegn notkun slíkra morð- og lim- | lestingartóla. Talið er að í I landinu hafi verið lagðar níu I mifljón jarðsprengjur í tuttugu ára borgarastyrjöld, ein fyrir I hvern íbúa, og hvergi í heimin- Ium hafa fleiri misst útiimi af völdum sprengna þessara. Reuter DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.