Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Side 10
10
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997
tikhús
Leikfélag Reykjavíkur hundrað ára:
Erfitt að halda alltaf byr í seglum í listgreinum
- segir Vigdís Finnbogadóttir, formaður afmælisnefndar
„Reykjavík verður menningar-
borg Evrópu árið 2000 og það er
mikil fjöður í hattinn fyrir þennan
höfuðstað að eiga þessa virðulegu
öldnu listastofnun sem Leikfélag
Reykjavíkur er,“ segir Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrum forseti og for-
maður afmælisnefndar Leikfélags
Reykjavíkur, sem er eitt hundrað
ára í dag. Vigdís var leikhússtjóri
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í átta ár,
frá 1972-1980, og hefur afskaplega
sterkar taugar til þess síðan.
Hátíðamefndin, sem er skipuð
heiðursfélögum Leikfélagsins ásamt
leikhúsráði hefur unnið að dag-
skránni í tvö ár. Heiðursfélagar eru
auk Vigdísar Sveinn Einarsson, Jón
Sigurbjörnsson, Baldvin Tryggva-
son, Halldór Laxness og Steindór
Hjörleifsson. Auður Laxness situr
fundi nefndarinnar fyrir hönd Hall-
dórs Laxness. í nefndinni sitja fyrir
hönd leikhúsráðs Örnólfur Thors-
son, Þórhildur Þorleifsdóttir, Þor-
leikur Karlsson og Páll Baldvin
Baldvinsson.
Leikfélag Reykjavíkur var stofn-
að mánudaginn 11. janúar 1897. í til-
efni afmælisins verða tvær frum-
sýningar. Á fimmtudag var leikritið
Dómínó eftir Jökul Jakobsson frum-
sýnt og í kvöld verður leikritið
Fagra veröld eftir Karl Ágúst Úlfs-
son frumsýnt en það er samið í
kringum Reykjavíkurljóð Tómasar
Guðmundssonar með tónlist eftir
Gunnar Reyni Sveinsson. Sérstök
hátíðardagskrá verður á sunnudags-
kvöldið í Borgarleikhúsinu.
Eingöngu íslensk verk
Á afmælisárinu verða eingöngu
sýnd íslensk verk, svo til öll frum-
flutt nema Domino. Efnt var til leik-
ritasamkeppni á afmælisárinu og 24
verk bárust. í tilefni 100 ára afmæl-
is Leikfélags Reykjavíkur hefur ver-
ið gefið út frímerki með mynd af
Stefaníu Guðmundsdóttur og gömlu
Iðnó. Einnig hefur
verið gefið út
dagatal ís-
landsbanka.
í haust
kemur
út
saga Leikfélags Reykjavíkur í 100 ár
með fjölda mynda. Höfundar ritsins
eru sagnfræðingarnir Þórunn Valdi-
marsdóttir og Eggert Þór Bern-
harðsson. í Borgarleikhúsinu verð-
ur einnig sýning á afmælisárinu í
bílakjallara leikhússins þar sem
hægt verður að fara í ævintýra-
ferð og skoða minningar um
list leikhússins. Sýningin
verður opnuð í dag.
það sé bjargfastur vilji til þess að
lyfta sér yfir þetta óheppilega tíma-
bil í sögu þess. Það koma erfiðir
tímar í öllum listastofnunum sem
ég þekki og síð-
an
Islendingar
njóta virð-
ingar
Frá sýningu LR
Ragnarsson.
í lönó á Saumastofunni eftir Kjartan
Að sögn
Vigdísar
njóta ís-
lendingar
mikillar
aðdáun-
ar og
virðing-
ar fyrir
hæfi-
leika-
ríkt leik-
húsfólk
og marg-
ir erlend-
ir gestir
sækja
leiksýn-
ingar hér
á landi.
„Leiklist
á íslandi er
mjög sterk
og stendur
jafhfætis
því sem
ágætast er
annars stað-
ar. Þessir
yndislegu
litlu leikhópar
eru ekki hvað
síst góðir og ég
held að þessi áhugi
tengist sagnaarfi
okkar íslendinga þvi
við höfum mjög gaman af
því að hlusta á sögur og segja
sögur,“ segir Vigdís.
Erfiðleikar til að sigrast
á þeim
Þegar Vigdís horfir til stöðu Borg-
arleikhússins segir hún að hún sé
nú um stundir heldur dapurleg en
að erfiðleikar séu ekki
til neins annars
en að sigrast á
þeim og lyfta sér
yfir þá.
„Mér dettur
ekki annað í
hug en að
Borgarleik-
húsið eigi
aftur eftir
að rísa.
Stoðir Borg-
arleikhúsins
kunna að
svigna ef
mikið er
álagið en
þær brotna
aldrei. Ég sé
ekki betur en að
verður
brautargengið betra. Það er mjög
erfitt að halda alltaf byr í seglum í
listgreinum," segir Vigdís.
Vigdís óskar eftir því að listinni
verði veitt meira fé og að stutt sé
betur við bakið á Borgarleikhúsinu.
En hún bendir einnig á að alls stað-
ar í heiminum hafi það tekið ákveð-
in ár að aðlagast nýjum aðstæðum.
Hjarta borgarinnar
„Borgarstjóri sagði sjálfur að
Leikfélag Reykjavíkur væri hjarta
borgarinnar og yrði það alltaf. Ég
fagnaði því mjög og fannst hún vel
víðsýn og hafa næman skilning þeg-
ar hún sagði þetta,“ segir Vigdís.
Vigdísi þykir mjög vænt um
Borgarleikhúsiö enda upplifði hún
árin í Iðnó þegar verið var að safna
fé til byggingar hússins.
„Þegar Leikfélagið var 50 ára var
Þjóðleikhúsið búiö að standa hálf-
byggt á Hverfisgötunni og allir
höfðu þráö að komast úr þessu
gamla húsi sem Iðnó var. Það varð
mikil blóðtaka hjá Leikfélaginu þeg-
ar Þjóðleikhúsið var tekið í notkun
og við lá að LR yrði lagt niður. Upp
úr 1950 tóku nokkrir yngri leikarar
þá ákvörðun að halda áfram að
leika í Iðnó og áttu gott liðsinni
margra þeirra eldri. LR var rekið af
hugsjón og framsýni um að það
væri rúm fyrir tvö leikhús í Reykja-
vík. Það finnst mér aðdáunarvert
framtak,“ segir Vigdís.
Sjálfboðavinna í
Iðnó
Leikarar Leikfélags
Reykjavíkur unnu
til að byrja með í
sjálfboðavinnu og
höfðu önnur
störf á daginn.
Það kom að
því að leik-
„Mér dettur
ekki annað í
hug en að
Borgarleik-
húsið eigi
aftur eftir
að dafna og
blómstra í
framtíð-
inni,“ segir
Vigdís
Finnboga-
dóttir.
hússtjóri var
ráðinn til leik-
hússins og leik-
arar fastráðnir.
Fyrsti leikhús-
stjórinn var
Sveinn Einars-
son. Þarna stigu
margir öndvegis-
leikarar þjóðarinnar
sín fyrstu skref á
sviði.
. „Þegar ég var leikhús-
stjóri Leikfélagsins var ver-
ið að berjast við að komast í
hús en Leikfélagið var eins og
Grámann í garðshomi. Fjárhagur-
inn hefur oft á tíðum verið erfiður
hjá Leikfélaginu en það er iöulega
raunin hjá leikhúsum. Menn stíga
yfirleitt yfir þannig erfiðleika og
slíkt gleymist
en listaafrekin
sitja eftir," seg-
ir Vigdís.
Andinn
qóðurí
Iðnó
„Andinn var
afskaplega góð-
ur og sam-
heldnin mikil í
Iðnó. Ef ekki
eru mikil áföll
þá er andi í
leikhúsum yfir-
leitt góöur.
Leikarar vinna
saman sem
einn maður og
róa í eina átt.
Svo getur
hann hvesst svo á norðan og menn
kalið en þá eru orkan og styrkurinn
ekki eins mikil og menn verða sárir
og móðir,“ segir Vigdís.
Vigdís segir að listamennimir í
Iðnó hafi verið sannkallaðir töfra-
menn en þeim tókst alltaf að leyna
því að þar var ekkert sviðsrými.
Markmiðið var mjög snemma að
byggja hús og húsbyggingarsjóður
var stofnaður árið 1953. Það var öll-
um tiltækum ráðum beitt, efnt var
til happdrættis, skrúðgöngm* gengn-
ar og borgarbúar ákallaðir. Síðan
var tekið upp á því að halda mið-
nætursýningar í Austurbæjarbíói
til að afla tekna. Ár eftir ár þyrptist
þangað fólk eftir síðustu bíósýning-
ar. Miðnætursýningarnar voru
mjög skemmtilegar, að sögn Vigdís-
ar, en þangað komu yfirleitt tvær
kynslóðir.
Safnað í tuttugu ár
„I gegnum byggingarsjóðinn safn-
aðist heilmikið fé. Að tuttugu árum
liðnum var byrjað að teikna Borgar-
leikhúsið. Þá vom komnar á við-
ræður við borgina um að leikhúsið
skyldi rísa og gerður var stofnsamn-
ingur. Fyrstu skóflustunguna tók
Birgir ísleifúr Gunnarsson, sem þá
var borgarstjóri, og ég undirritaði
stofnsamninginn þar sem ég var þá
leikhússtjóri. Á meöan þessi ár
voru að liða var tíminn lengi að líða
og draumurinn fjarlægur. Þegar ég
stóð við sviðið þegar búið var að
steypa í kringum það trúði ég ekki í
hjarta mínu að ég myndi nokkurn
tíma fá að upplifa að sjá húsið ris-
ið,“ segir Vigdís.
Það liðu síðan fimmtán ár þangað
til húsið var fúllklárað og hægt var
að taka það í notkun. Að sögn 'Vig-
dísar hafa Iðnó og BorgarleikhuSið
hvort sinn karakter.
„Borgarleikhúsið er nýtískulegra
og aðstæður rýmri fyrir listamenn-
ina sjálfa. Það er aðalatriðið að
listamennimir séu glaðir og ánægð-
ir og þess vegna hryggir það riiíg
þegar áfoll dynja á listgreinum því
mér finnst að við verðum ætíð aö
umgangast listir okkar og sköpun-
argetu af virðingu og væntumþykju.
Það væri mikill sjónarsviptir ef list-
imar yrðu teknar frá okkur,“ segir
Vigdís.
-em
Núna standa yfir sýningar í Borgarleikhúsinu á leikritinu Ef
væri ég gullfiskur eftir Árna Ibsen.
r....
Verðhönnun 9 /1 1 99 7 hl. U.00
Fákafeni Hagkaup Skeifunni Bónus Kópavogi
Lambakótilettur 667 kr/kg 730 kr/kg Ekki til
Svínalundir 1.379 kr/kg 1.549 kr/kg Ekki til
Ný lambalæri (ófrosin) 610 kr/kg 795 kr/kg Ekki til