Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Side 13
DV LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 13 íslenskur kokkur á hóteli í Kuala Lumpur: Stoltur af því að vera víkingur - segir m.a. í dagblaði um Gunnar Smára Einarsson „Hann er stoltur af því að vera víkingur og geta sem kokkur sagt fólki frá matarvenjum forfeðra sinna,“ segir m.a. í grein í dagblaði í Malasíu sem DV barst í hendur. Greinin er um íslenskan kokk, Gunn- ar Smára Einarsson, sem starfar á hóteli í borg- inni Kuala Lumpur. Gunnar lýsir hvernig sviðahausar verða til og hvernig við borðum svið á þorrablót- um. „Við borð- um kinnar, tungur, eyru og augu, svip- að eins og þið í Malasíu borðið augun af karrífisk!" segir Gunnar Smári í greininni. Greint er frá fleiri matar- venjum ís- lendinga, s.s. eins og hvemig há- karl er framreiddur. Gunnar Smári segir allan þennan holla mat gera það að verkum íslending- ar lifi lengur en flestir aðrir jarðar- búar. Hann er sagður tala ensku, dönsku, sænsku og norsku reiprennandi og geta bjargað sér í frönsku, þýsku og einu tungumála Malasíubúa. Fyrir utan matarlist- ina eru áhugamál hans sögð lestur góðra bóka og fluguveið- ar. Gunnar Smári er fæddur Reykvíking- ur og sam- kvæmt greininni nam hann kokkafræðin þar. Á veit- ingastað í Reykjavík í eigu Rikki Chan er hann sagður hafa kynnst ástinni, Ang- elu Chan frá Malasíu, frænku eig- andans. Sam- an fóru þau til heima- lands hennar en áður hafði Gunn- ar Smári starfað á þekktum veitingahús- um í Kaup- mannahööi, m.a. á Grouften þar sem Margrét Danadrottning snæðir reglulega. „Eftir kalda loftið á íslandi kom rakinn og hitinn í Malasíu honum í opna skjöldu en hann er að venj- ast aðstæðum," segir í lok greinar- innar um Gunnar Smára Einars- son. -bjb Gunnar Smári Einarsson, kokkur f Kuala Lumpur. Um hann er fjallaö í dagblaöi einu í Malasíu þar sem hann starfar á hóteli í Kuala Lumpur. p Innkaupaferð í stórmarkaðinn: *kviðsljós ik Nick Nolte eins og flækingur til fara Leikarinn Nick Nolte lét eitt sinn þau orð falla að hann færi nú sjaldnast troðnar slóðir. Alveg lauk- rétt hjá honum, ef marka má hvem- ig karlinn var klæddur þegar hann fór að kaupa sér í matinn í stór- markaðinum sínum í Los Angeles. Útgangurinn á Nick var slikur að hæglega hefði mátt rugla honum saman við flækinginn sem hann lék í myndinni Down and Out in Beverly Hills, maðurinn enda ekki þekktur fyrir að vera smekklega til fara þegar hann einn ræður ferð- inni. Sagt er að hann hafi búið sig undir alræmt atriði þar sem hann ræðst á mat heimilishundsins hjá ríku hjónunum, sem þau Richard Dreyfuss og Bette Midler léku, með því að borða alvöru hundamat. Hvað um það, bílastæðisvörður- inn viö stórmarkaðinn bar ekki kennsl á Nick í frakkanum síða og hólkviðu buximum og fór að skipta sér af þegar leikarinn opnaði skott- ið á rándýra Benzinum sínum til að koma innkaupapokunum fyrir. Misskilningurinn leiðréttist þó Nick Nolte veifar í kveðjuskyni. um síðir, sem betur fer fyrir vörð- inn. FÁÐU ÞÉR MIÐA FYRIR K L. 20.20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.