Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Page 18
18 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 DV dagur í líti Guðmundur Björnsson, forstjóri Pósts og síma hf.: Steiktur fiskur hjá einum þeim besta í faginu „Dagurinn var svo sem ósköp venjulegur mánudagur. Ég var kominn á skrifstofuna klukkan 8. Byrjaði á að ræða við Margréti, sem var fulltrúi minn í 16 ár, um nokkur mál er varða mitt gamla starf og flutning af skrifstofu fjár- málastjóra á þriðju hæð landssíma- hússins upp á fimmtu hæðina þar sem nýja skrifstofan mín verður. Fór síðan og ræddi við Jódísi skrif- stofustjóra um nokkur mál sem bíða afgreiðslu í hinu nýja starfi mínu. Eftir það átti ég spjall við Örn Skúlason gæðastjóra um skipulags- mál og framvindu gæðaverkefna sem hann hefur á sinni könnu. Fundað með ríkisendurskoðanda Eftir stutt morgunkaffi ræddi ég við Kristján Indriðason, nýráðinn fjármálastjóra og náinn samstarfs- mann minn til margra ára, um ýms- ar breytingar sem verða á bókhaldi fyrirtækisins nú um áramótin. Klukkan 10.30 var svo fundur með ríkisendurskoðanda, starfsmönnum hans og nokkrum starfsmönnum Pósts og síma um uppgjör nýliðins árs, nýjan stofnefnahagsreikning og ýmislegt varðandi bókhald fyrir- tækisins. Þeim fundi lauk upp úr kl. 11.30. Þá átti ég stutt spjall við Har- ald Sigurðsson framkvæmdastjóra um utanferðir starfsmanna og fleiri mál, Stefán Guðjónsson, deildar- stjóra i starfsmannadeild, um launamál og Ármann Ólafsson, að- stoðarmann samgönguráðherra, um ákveðiö mál er varðar samgöngu- ráðuneytið og Póst og síma. Rétt fyrir hádegi náði ég í Sigfús Björnsson prófessor vegna sam- starfsverkefnis Háskólans og Pósts og síma sem snýr að uppbyggingu aðstöðu til fjarkennslu fyrir Há- skólann og jafnvel fleiri aðila. Stelpurnar á stöðinni í heimsókn kom Ásthildur Stein- sen til að kynna fyrir mér talsíma- kvennatalið „Stelpurnar á stöð- inni“ sem er skrá yfir talsímakonur frá 1906 til 1991. Nú var orðið tímabært að fá sér smá matarbita. Fékk ég mér steiktan fisk i mötuneytmu hjá Sigurði kokki sem er án efa einn sá besti í faginu. í hádeginu fékk ég þær upplýsingar hjá Bergþóri Hall- dórssyni, fram- kvæmdastjóra fjar- skiptanetsins, að ljósleiðarinn yfir Skeiðarársand hefði slitnað og að öll fjar- skiptasambönd til Austurlands færu nú um Norðurland, sem á ekki að koma að sök. Fljótlega eftir há- degi hringdi Ingi- björg, blaðakona á DV, til að fá skýr- ingar vegna fréttatil- kynningar um beina aðild Pósts og síma að VSÍ fyrir hluta starfsmanna fyrirtækis- ins. Skýrði ég út fyrir henni tilgang aðildar- innar. Rætt um starfsmannamalin Klukkan 13.30 átti ég fund með Viðari Viðarssyni, nýráðnum framkvæmd- stjóra rekstrarsviðs, um málefni sviðsins en Viðar fer með starfsmannamál, fast- eigna- og bifreiðamál og tölvu- mál. Að þessu sinni ræddum við mest um tölvukerfí Pósts og síma og frekari uppbyggingu og þróun þessara kerfa. Einnig kom- um við inn á starfs- mannamálin en nú standa yfir samning- ar við starfsmanna- félögin. Klukkan 14.30 átti ég svo spjall við Emu Indriðadótt- ur þar sem ég hafði lofað að mæta hjá 'nenni í út- varpsþátt daginn eftir. Klukkan 15 ræddi ég við Einar Þorsteinsson, nýráðinn fram- kvæmdastjóra póstsviðsins, út af póstflutningum og ýmsu er varðar bókhalds- og fjármál póstþjónust- unnar. Ekki má gleyma viðskiptavinunum Þá ræddi ég við viðskiptavini um málefni þeirra við innanhússmenn, en viðskiptavinurinn má auðvitað ekki gleymast í önn dagsins. í lok dagsins ræddi ég svo við Jó- dísi skrifstofustjóra um fund með póststjórum Norðurlanda í Stokk- hólmi i næstu viku og fúnd síma- málasfjóra Norðurlanda sem hald- inn verður hér á landi eftir tvær vikur. Huga þarf að ýmsu vegna þessara funda, ekki síst þeim sem haldinn verður hér á landi. Auk þessa hef ég reynt að rýma skrifstofuna fyrir nýráðinn fjár- málasfjóra, en sé ekki betur með þessu áframhaldi en að það geti tek- ið nokkra daga í viðbót. Hér hefur verið tæpt á því helsta sem gerðist á skrifstofunni en þeg- ar klukkan var orðin rúmlega sjö ákvað ég að fara heim og borða með fjölskyldunni og sinna ýmsum verkefiium sem ég átti þar ólokið." Guðmundur Björnsson, nýráö- inn forstjóri Pósts og síma hf., hefur átt annríka daga nú í byrj- un ársins og lýsir hér einum slíkum. DV-mynd Sveinn Finnur þú fimm breytingar? 393 - Ó, eruö þaö þér, Edwin - bíddu aöeins, ég ætia aö slökkva á ryksugunni. Nafn:______________________________________________________________ Heimili:___________________________________________________________ Vinningshafar fyrir þrjú hundruð og nítugustu getraun reyndust vera: Stefán Öm Guðmundsson Haukur Ármannsson Skagabraut 38 Víðigrund 6 300 Akranes 300 Akranes Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtrnn við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi, aö verðmæti kr. 3.950, frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1790 - Ógnarást eftir Lindu Randall Wisdon og Sinnaskipti eftir Lyndu Kay Carpenter. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytmgar? 393 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.