Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Side 27
35
LAUGARDAGUR 11. JANUAR 1997
mik
Pétur Þorsteinsson, prestur í Óháöa söfnuðinum, hefur sópað að sér safnaðarmeðlimum:
Ekki í sva rtsta kkastó ðin u
„Ég nýt þess að vera ég sjálfur og
læt engan hafa áhrif þar á. Þrátt fyr-
ir að hafa vígst sem prestur hef ég
ekki tileinkað mér þær fóstu hefðir
sem tíðkast innan þjóðkirkjunnar.
Ég vil tala við fólkið eins og ég kem
til dyranna klæddur. Ég er óháður
og sé mig ekki fyrir mér sem prest-
ur í sókn þar sem allt er niður njörv-
að. Mér líður vel þar sem ég er.
Kannski að biskupinn og þjóðkirkj-
an þurfi fleiri presta á borð við mig
frekar en einhverja markaðsfræð-
inga. Fyrst og fremst þarf að líta til
Jesú og sjá hvers konar markaðs-
fræðingur hann var. Hann var al-
þýðlegur, gaf sig á tal við fólk og át
með því. Þannig vil ég starfa."
Maðurinn sem hér mælir í viðtali
við DV er séra Pétur Þorsteinsson,
prestur Óháða safnaðarins í Reykja-
vík. Pétur hefur verið þar prestur
frá haustmánuðum 1995 og náð að
fjölga meðlimum safnaðarins um ríf-
lega 500 á þeim tíma. Líklega er það
íslandsmet á jafn skömmum tíma í
jafn litlum söftiuði.
Fyrsti klerkurinn í ættinni
Pétur er fæddur fyrir rúmlega
flörtíu árum að bænum Mið- Fossum
í Andakílshreppi í Borgarfirði, son-
ur hjónanna Þorsteins Péturssonar
og Ástu Hansdóttur, elstur af sjö
systkinum. Fjölskyldan fLuttist að
Hömrum í Reykholtsdal þegar Pétur
var 10 ára. Pétur lauk landsprófi í
Reykholti og fór þaðan í MR. Stúd-
ent varð hann 1976 og skömmu síðar
skráði hann sig í guðfræði við Há-
skóla íslands. Hann segist ekki hafa
eina ákveðna skýringu á því af
hverju hann valdi guðfræðina, ekki
„einn einasti kjaftur" í hans ætt
væri prestlærður og hann hefði
meira farið í guðfræði til að mót-
mæla þeim hugmyndum sem þar
væru uppi. Hann hefði t.d. ekki ver-
ið mjög kristinn í menntaskóla.
Afdjöflaðist á öðrum vetri
„Á öðrum vetri í guðfræðinni má
segja að ég afdjöflaðist, eða varð
kristinn," segir Pétur en hann
kláraði guðfræðina 1983. Tólf ár liðu
þar til hann gerðist prestur. Á þeim
tíma starfaði hann á Elliheirfiilinu
Grund sem félagsmálafulltrúi, sem
hann gerir enn að hálfu leyti og vili
kalla sig frekar „æskulýðsfulltrúa"
Grundar.
Allt gerðist á einum mánuði
Það var síðan árið 1995 sem hlut-
irnir fóru að gerast, ef þannig má að
orði kveða. Reyndar gekk þetta yflr
á einum mánuði, maímánuði þegar
Pétur varð fertugur. Hann nefnir
þetta væga jarðarfór. Fimmtán árum
áður hafði hann nefnilega lofað vin-
um sínum að fyrir fertugt myndi
hann vera búinn að gifta sig, vígjast
tii prests, kaupa sér hús og skíra
barnið sitt. Þetta gekk nánast allt
upp nema að hann skírði stjúpdóttur
sína, Karen, sem þá var 12 ára og
hafði ekki tekið skírn. Árið eftir
eignaðist hann stúlkubarn með eig-
inkonu sinni, Helgu Briem kennara.
Auk Karenar átti Helga fyrir Stefán,
sem nú er á sautjánda ári, og gekk
Pétur þeim í föðurstað.
Pétur tók við Óháða söfnuðinum
haustið 1995, valinn úr hópi sex um-
sækjenda. Hann segist vera ánægður
í störfum sínum þar og hann viti
ekki annað en að það sé gagnkvæmt
hjá sóknarbömunum. Óháði söfnuð-
urinn er heimssókn, eins og Pétur
orðar það. Lögheimili meðlima sé
ekki lengur bundið við Reykjavík og
Kópavog heldur geti allir íslending-
ar gengið í söfnuðinn, óháð því
hvort þeir séu búsettir hér á landi
eða erlendis.
Þegar Pétur tók við voru meðlim-
ir safnaðarins rétt rúmlega 1 þúsund
talsins, hafði fækkað um 800 á síð-
ustu 30 árum. I dag eru þeir hins
vegar orðnir liðlega 1.500, þar af búa
nærri 50 erlendis. Markmið Péturs
er að árið 2000 verði meðlimir orðn-
ir 2 þúsund.
„Ég tel þetta góðan meðbyr.
Kannski af því að maður hefur boð-
ið vinum og vandamönnum að koma
yfir til okkar. Þannig hef ég náð
mörgum mínum bekkjar-
félögum úr
m e n n t a -
skóla og
vinnufélögum
mínum á
Grundinni.
Fólk hefur
ekki komið
til mín út af
Möðruvalla-
misskiln-
ingnum og
L a n g -
holtslöngu-
vitleysunni i
alríkiskirkj-
unni. Það
hefur kom-
ið hingað af
f ú s u m
vilja,“ segir
Pétur.
Missti af líkfylgd
Aðspurður segir hann ýmis
skondin atvik hafa komið upp í
prestsstarfinu. Frá einu atviki er
greint í nýlegri bók, Þeim varð al-
deilis á í messunni. Þess má til
gamans geta að til að fá Pétur ör-
ugglega í bókina gekk annar höf-
undanna, Pétur Ingi Eiríksson, í
Óháða söfnuðinn og öll hans fjöl-
skylda!
Atvikið er þegar Pétur var nærri
því búinn að „ræna“ líki frá
Pálma Matthíassyni í Bústaða-
kirkju. í góðlátlegu gríni, að sjálf-
sögðu, er nefni-
lega stundum
talað um að
p r e s t a r
s é u
Tíu útgáfur af orðabókinni
Eins og áður sagði hefur Pétur
getið sér gott orð fyrir Pétrísk- ís-
lensku orðabókina. Hún hefur
komið út i 10 útgáfum, í um 100
tölusettum eintökum í senn, fyrst
áriö 1988. Dæmi um nokkur orð má
sjá á meðfylgjandi orðalista en alls
eru hátt í 500 orð og orðasambönd
í bókinni. Ailur ágóði af sölu bók-
arinnar hefur runnið til Kristilegs
félags heilbrigðisstétta, til „afdjöfl-
unarstarfs" þess félags eins og Pét-
ur kemst að orði.
Þótt það sjáist kannski ekki utan
á Pétri þá er hann mikill matgæð-
ingur og innbyrðir mikið af nær-
ingu í föstu og
fljótandi en óá-
fengu formi. En
hann borðar ekki
hvað sem er.
„Ég borða ekki
ruslarétti eins og
falskar kartöflur
(franskar kartöfl-
ur), kjetkrullsam-
lokur (hamborg-
ara) og ekki
kransæðakítti
(majones) og
þessa rétti sem
lúguliðið liggur f
á þessum rusla-
réttastöðum.
Þangað fer ég
bara alls ekki. í
staðinn borða ég
rollukjöt og rjóma
og styð Bænda-
samtökin í einu
og öllu. Slátur og
andlitaát finnst
mér því vera afar
nauðsynlegur
hlutur. Ég hef
alist upp hjá
mömmu og
mömmumatur er
auðvitað bestur,“
segir Pétur.
Til marks um
matarást Péturs
stóð hann fyrir
„gúllasguðsþjón-
ustu“ síðasta vor í söfnuðinum. Að
lokinni messu settust kirkjugestir
að snæðingi og borðuðu ungversk-
an gúllasrétt með íslensku rollu-
kjöti að hætti organistans, Peter
Maté, sem er ungverskur að upp-
runa. Þetta gafst vel og verður lík-
lega fastur liður í safnaðarstarfinu,
að sögn Péturs.
Pétur hefur einnig tamið sér sér-
staka siði, eins og t.d. það að horfa
aldrei á sjónvarp.
„Sjónvarp er forheimskunarfjöl-
miðill sem mér finnst vera alveg
dæmalaus. Þetta er heimilisaltari
sem fólk tilbiður á kvöldin og
steinþegir á meðan. Stundum er
þetta bænabók djöfulsins þar sem
er verið að kenna fólki að stela,
slátra, eyða og aðra miður góða
hluti. Ég get alveg verið án sjón-
varpsins því það er margt annað
skemmtilegra með tímann að
gera.“
Þegar Pétur er beðinn að lýsa
sjálfum sér verður honum fátt um
svör. Aðspurður segist hann á viss-
an hátt vera kyndugur klerkur þar
sem hann fari ótroðnar slóðir, mið-
að við aðra presta, án þess þó að
meiða eða særa nokkurn.
„Ég er léttur og kannski létt-
geggjaður í leiðinni. Ég er alþýðleg-
ur og reyni að sjá hið grínathugula
við lífið og tilveruna. Þannig finnst
mér að við flestar jarðarfarir eigi
að létta aðeins ímyndina á Jesú.
Hann er sá sem sigraði djöfulinn
og dauðann og er upprisinn. Það
eru fagnaðarfréttir sem við eigum
aö færa, samanber fagnaðarerindið
í jólaguðspjallinu. Ég er ekki
kerfiskarl og myndi aldrei tilheyra
svartstakkastóðinu í kirkjunni. Á
síðustu prestastefnu var ég til
dæmis sá eini sem var í stutterma
bol. Mér leið ágætlega þama inni í
25 stiga hita á meðan hinir voru
kappklæddir i jakkafötum, jafnvel í
peysum, og emjuðu undan hitan-
um,“ segir Pétur Þorsteinsson að
endingu.
-bjb
„Ég er léttur og kannski léttgeggjaður í leiöinni. Ég er alþýðlegur og reyni að
sjá hið grínathugula við lífiö og tilveruna," segir sr. Pétur Þorsteinsson m.a.
í viötali við DV en hann er hér fyrir utan kirkju Óháöa safnaöarins, klæddur
stuttermabol með mynd af „randabrauði" með rjóma. DV-mynd GVA
Úr Pétrísk-
íslensku
orðabókinni
afdjöfla: snúa til kristinnar trúar
auðkúla: vömb á karlmönnum
biskupstunga: biskupsritari
blaðka: kvenkyns blaðamaður
bleðill: karlkyns blaðamaður
bráðabrauð: vöfflur
bumbubúi: ófætt barn
fálkaungi: barn fálkaorðuhafa
fjandafæla: signing
graðgreiðslur: barnsmeðlög
gráfíkja: kona fikin í gráa og
gisna karlmenn
grængandur: gúrka
Hálftíminn: dagblaðið Dagur-
Tíminn
hrökkbrauð: embætti farprests
kúkakróna: holræsagjald
limlesta: þegar karlmenn pissa
pottbrauð: kristniboði í Afríku
sem starfar mitt á meðal
mannætanna
ranaryk: neftóbak
randabrauð: kökur með rjóma
skaufaskjól: sundskýla
skófluskattur: kirkjugarðs-
gjöld
svartbaunaseyði: kaffi
svertingjasviti: kók
svipting: gifting
vínarbrauð: presftm SÁÁ
„líkræningjar" jarði þeir einhvern
sem ekki hefur verið í þeirra sókn.
Pétur segist líklega hafa komist
næst því innan stéttarinnar að ná
þessum vafasama titli.
„Þetta var þannig að ég var að
jarða einn mann í Óháða söfnuðin-
um. Var svolítið seinn fyrir, var
ekki á bílnum mínum og ekki var
pláss í líkbílnum. Ég fékk far með
bónda austan úr Kirkjubæjar-
klaustri til að aka mér upp í Gufu-
neskirkjugarð. Hann var á góðum
bíl og ók svolítið greitt á Vestur-
landsveginum. Þegar við vorum
komnir á móts við Laxalón sáum
við líkbil og skelltum okkur inn í
líkfylgdina. Líkbíllinn stoppar við
hliðina á gröfinni, við fórum út og
sem ég er að ganga þar að sé ég lík-
mennina opna skottið. Kannaðist
ekki alveg við þá en þegar ég sá
Tíska (orð Péturs yfir Pálma
Matthíasson „tískuprest“ - innskot
blm.) koma út úr líkbílnum upp-
götvaði ég að við höfðum lent í vit-
lausri líkfylgd. Við sáum okkar
óvænna og hófum leit að okkar
manni í kirkjugarðinum. Þegar við
fundum hann loksins vorum við
síðastir til að signa yfir líkið. Yfir-
leitt byrjar presturinn á því þannig
að greftrunin snerist alveg við,“
segir Pétur um atvikið og bætir við
að engir eftirmálar hefðu verið að
hálfu aðstandanda hins látna. Þeir
hefðu sýnt skilning á hans hremm-
ingum.
S ~--------------------------N
Leiðistþér stundum?...
Leiðist þér að skilja
ekkert ítilgangi tífsins?
• Ertu einn af þeim sem finnst líf sitt hálfinnantómt og sjá lítinn
tilgang í þessu „hangsi" hér á jörðinni frá vinnudegi til vinnudags?
• Vissir þú að sálarrannsóknir undanfarin 150 ár hafa sýnt hverjum
sem heyra vill að mikill og merkilegur tilgangur virðist vera með
lífinu þegar litið er til þeirra afar merkilegu niðurstaðna að spenn-
andi líf sé eftir dauðann í flestum tilvikum?
• Langar þig að vita hvar látnir vinir og vandamenn hugsanlega og
líklegast eru í dag og hversu örugg meint samband við þá og þessa
undarlegu heima er með stoð miðla. - í skóla þar sem
skólagjöldunum er stillt í hóf?
• Langar þig að setjast í mjúkan skóla eitt kvöld í viku, eða
eitt laugardagssíðdegi í viku, þar sem reynt er á sem víðsýnastan
hátt að gefa nemendum sem besta yfirsýn yfir hverjar séu
raunverulegar niðustöður þessara handanheimafræða sem
milljónir manna hafa haft persónulega reynslu af undanfama
áratugi í öllum löndum heims?
Þrír byrjunarbekkir hefja brátt nám í sálarrannsóknum I nú á
vorönn '91. Skráning stendur yfir. - Hringdu og fáðu allar nánari
upplýsingar um mest spennandi skólann sem í boði er í dag.
Yfir skráningardagana er svarað í síma Sálarrannsóknarskólans
alla daga vikunnar, kl. 14-19
y^Sálarrannsóknarskólinn
A... \ - Mest spennandi skólinn i bænum -
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050