Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Síða 29
Fyrir tæpum þremur árum
renndi Zoran Djindjic sér á skíðum
niður fjallshlíðamar við Pale, aðal-
bækistöð Bosníuserba. Djindjic
kvaðst hafa farið til Pale í Bosníu til
að lýsa yfir stuðningi við þegna
bosnísk-serbneska lýðveldisins.
Hann sat átta klukkustundir á her-
ráðsfundi með hinum öfgasinnaða
serbneska leiðtoga, Radovan Kara-
dzic.
Mörgum þykir þess vegna undar-
Erlent fréttaljós
á laugardegi
hægri, segir Djindjic vera sam-
viskulausan lýðskrumara. Það þurfi
samt ekki endilega að vera slæmt.
„Hann er hentistefnumaður. Og það
er kannski það sem við höfum þörf
fyrir.“
Djindjic stóð sig vel í námi í há-
skólanum í Belgrad. Hann tók þátt í
ýmsum mótmælaaðgerðum stúd-
enta. Árið 1974 barðist hann fyrir
stofnun stúdentafélags sem yrði
óháð Kommúnistaflokknum.
Djindjic var handtekinn og dæmdur
í nokkurra mánaða fangelsi.
Þegar Djindjic hafði afplánað
refsingu sína fékk hann styrk til
náms í Þýskalandi. Hann kom heim
1979, ári fyrir andlát Titos, og fór að
Vuk Draskovic, Vesna Pesic og Zoran Djindjic fyrir framan vagn meö brúðu í líki Milosevics Serbíuforseta í fanga-
búningi. Símamynd Reuter
Serbnesku stjórnarandstöðuleiðtogarnir Zoran Djindjic og Vuk Draskovic
spjalla saman í mótmælagöngu. Símamynd Reuter
legt að nú skuli Zoran Djindjic vera
ein stærsta von manna um lýðræði
í Serbíu. Hann er nefnilega sá sem
verið hefur heilinn á bak við barátt-
una gegn Slobodan lyiilosevic
Serbíuforseta undanfarinn mánuð.
Djindjic er kominn í fremstu röð
hinna sundurleitu gagnrýnenda
kerfisins.
Svartir bolir
og Bossjakkar
Þokkalegt útlit, þægileg rödd,
svartir rúllukragabolir og Bossjakk-
ar þykja ekki hafa spillt fyrir á leið
Djindjics á toppinn.
Hann gæti verið rétti maðurinn
til þess að ýta Serbíu inn í nútím-
ann og losa hana við timburmenn-
ina eftir of mikla þjóðemishyggju
og kommúnisma. En það þykir þó
ekki víst.
Djindjic er 44 ára gamall heim-
spekiprófessor sem varð kaupsýslu-
maður og síðar stjórnmálamaður.
Hann talar um lýðræði, mannrétt-
indi og efnahagsumbætur á þann
hátt að hann gæti verið stjómmála-
maður í hvaða evrópsku landi sem
er.
Dularfullur og
ískaldur hentistefnu-
maður
Vinir hans segja hann hins vegar
dularfúllan og ískaldan hentistefhu-
mann. Eitt sinn var hann anarkisti.
í september síðastliðnum hélt hann
kosningaræður fyrir flokk Kara-
dzics. Djinjdic er sagður vera alls
staðar og hvergi í stjórnmálunum.
Desimir Tosic, einn af stofnend-
um Lýðræðisflokksins, sem yfirgaf
flokkinn þegar hann tók stefnu til
Sjálfur viðurkennir Djindjic að
skipta oft um skoðanir. Á námsár-
unum á áttunda áratugnum var
hann anarkisti. Hann gerðist frjáls-
lyndur á níunda áratugnum. í upp-
hafi þessa áratugar varð hann þjóð-
emissinni en nú er hann orðinn
lýðræðissinni. „Ef þú sækist eftir
heiðarleika skaltu fara í kirkju,"
segir Djindjic.
Andstæðingarnir
hrifnir af honum
Þrátt fyrir allar sveiflumar virð-
ast andstæðingar Djindjic í stjórn-
málum vera hrifnir af honum.
„Hann er svo aðlaðandi," segir
Ljubisa Ristic, formaður Sameinaða
vinstriflokksins, sem er í bandalagi
við Milosevic og skotmark stjómar-
andstæðinga.
kenna við háskólann í Novi Sad.
Skellti sár
fljótt til hægri
Árið 1990 stofnuðu Djindjic og ell-
efu aðrir Lýðræðisflokkinn. Ári
seinna hófu Milosevic og fjandmað-
ur hans, Franjo Tudjman Króatíu-
forseti, stríð í Króatíu. Um mitt ár
1992 hafði Serbíuforseti breitt strið-
ið út til Bosníu.
Djindjic skipti um skoðun þegar
þjóðernishyggjan fór að herða að
um of í Júgóslavíu. Hann skellti sér
til hægri ótrúlega skjótt.
Árið 1993 breytti Djindjic stefnu
Lýðræðisflokksins þannig að hún
speglaði nýjar skoðanir hans. Hann
studdi ekki lengur sjálfstæðishar-
áttu Kosovos. Flokkurinn hvatti
samt sem áður til aðgerða sem áttu
að takmarka barneignir Albana sem
voru í meirihluta. Flokkurinn
krafðist jafnframt þjóðaratkvæða-
greiðslu um endurreisn konung-
dæmis i Júgóslavíu. Karadzic og
aðrir öfgasinnaðir þjóðemissinnar
studdu þá kröfu. Lýðræðisflokkur-
inn krafðist þess einnig að allir
Serbar sameinuðust í einu ríki.
Þessi atriði em enn hluti af stefnu-
skrá flokksins.
Dansa eftir
dyntum forsetans
Vinir Djindjics og andstæðingar
hans sömuleiðis telja að sveiflur
hans í stjórnmálunum séu háðari
Milosevic en sannfæringu hans
sjálfs. Sumir útskýra þetta sem sál-
fræðilegt vandamál sem er einkenn-
andi fyrir serbneska stjómarand-
stæðinga.
Sfðustu sex árin, eða frá því að
vísir varð að fjölflokkalýðræði í
Júgóslavíu, hefur stjómarandstað-
an nær eingöngu skilgreint sjálfa
sig út frá sambandinu við Milos-
evic. Stjórnarandstæðingarnir
dansa eftir dyntunum í forsetanum.
Sagt er að í stað þess að berjast fyr-
ir einhverju séu þeir bara á móti
forsetanum.
Politiken, Washington Post.
Karatedeild HK
Karatefélag Vesturbæjar Símar: 555-3435 og 555-3436
KARATE Revkjav?k
Reykjavik-Vesturbæ
Byrjendanámskeið
eru að
hefjast!!!
Unglingaflokkar
Fullorðinsflokka
Barnaflokkar
frá fimm ára
Velkomín á vornámskeið
Bibliuskólans:
• ALFA - námskeiðið
Fjallað um gmndvallaratriði kristinnar trúar.
• Frá Lúther til upplýsingar
Stiklað verður á stóm í kirkjusögu seinni alda, frá Lúther til loka 18. aldar.
• Samskipti hjóna og sambandið við Guð
Fjallað um styrkingu sambandsins og eflingu trúarlega þáttarins i hjónabandinu.
• Boðun trúar með hjálp sjónhverfinga
Fjallað um hvernig noia má sjónhverfingar lil að ná athygli barna og unglinga.
• Boðun trúar og töflumálun
Hvernig nýta má töflu og málningu við boðun trúarinnar.
• Samkynhneigð og kristin trú
Textar Biblíunnar, ábyrgð kirkjunnar, sálgæsla samký'nhneigðra, fyrirspumir og
umræður. Getur breyting orðið á kynhneigð fólks?
• Leiðtogi í mótun
Fjallað um hlutverk leiðtoga og forsvarsfólks í kristilegu starfi.
• Fjallræðan
Á námskeiðinu verður heildarbygging og áhersluatriði Fjallræðunnar skoðuð.
Biblíuskólinn
við Holtaveg
Holtavegi 28, Reykjavík,
simi 588 8899, fax 588 8840
LEITIÐ NÁNARI
UPPLÝSINGA!
FÁIÐ SENT FRÉTTABRÉF
BIBLÍUSKÓLANS!
Eða íinniö okkur á netinu:
www.5peQdo.is/Bibliuskolinn.html