Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Side 42
so kvihmyndir LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 JLlV K V I K IVI Y muni Háskólabíó - Sleepers: Fortíðin ber að dyrum ■kirk Sleepers er óhemjuyfirgripsmikil mynd og löng og satt best að segja er hún á mörkunum að þola alla þessa lengd. Hinn ágæti leikstjóri, Barry Levinson, hefði átt að vita að dramatísk kvikmynd, sem þarf á mikilli lengd að halda til að geta greint frá því sem gerist, þarf að hafa góða stígandi og þétta atburðarás en meginvandi Sleepers er hversu brokkgeng hún er. Sagan um vinina fjóra er áhrifamikil á alla kanta, hvort sem um er að ræöa þá reynslu sem þeir lenda í þegar þeir eru drengir eða hvemig þeir leysa úr vandamálum sínum en dramatíkin í mynd- inni er ójöfii, stundum djúp og áhrifamikil eins og í atriðunum á betrunarhæl- inu en einnig flöt og jafnvel væmin eins og þegar sigri er fagnað í lokin. Sleepers er þó aidrei leiðinleg og stundum er hún góð kvikmyndagerð og spennandi. Það hefði aftur á móti verið hægt að gera betur. Sleepers er byggð á sönnum atburðum (margir hafa orðið til að efast um sann- leiksgildi myndarinnar og líkt henni við söguskoðun á borð við þá sem Oliver Stone stundar), aðalpersónurnar eru fjórir drengir sem vegna bamaskaps, sem endar illa, lenda á betrunarhæli þar sem þeim er nauðgað og misþyrmt. Þeir verða aldrei samir eftir þessa reynslu. Snögg kaflaskipti verða í mynd- inni þegar hún er færð fram um nokkur ár og tveir drengjanna fjögurra sem hafa lent á glæpabraut drepa í vitna augsýn þann vörð sem fór verst með þá á betrunarhælinu. Nú verður Sleepers allt í einu að flóknu réttardrama sem ekki verður farið nánar út í hér. Það er sannkallað úrvalshð leikara í myndinni með stórleikarana Robert De Niro og Dustin Hoffinan í broddi fylkingar. Hlutverk þeirra em samt þess eðl- is að þeir gera lítið fyrir myndina, sérstaklega Dustin Hoffinann. Það er helst Kevin Bacon í hlutverki varðarins á betrunarhælinu sem nær til áhorfenda, kannski helst vegna þess að persónan, sem hann leikur, er einhver sú ógeð- felldasta sem sést hefur lengi á hvíta tjaldinu. Barry Levinson hefur gert betri myndir (Diner, Rain Man, Bugsy, Disclosure) en hann hefúr einnig gert verri myndir (Toys, Jimmy Hollywood), hér hefði hann mátt vanda sig betur, ekki vantar hráefnið. Leikstjóri og handritshöfundur: Barry Levinson. Kvikmyndataka: Michael Ballhaus. Tónlist: John Williams. Aðalleikarar: Kevin Bacon, Brad Pitt, Jason Patrick, Dustin Hoffman, Robert De Niro, Bruno Kirby og Minnie Driver. „ . Hilmar Karlsson Laugarásbíó - Flótti: Svindlað á mafíunni ** Flótti er ein þessara mynda sem byrja ágætlega en koðna fljótt niður í nánast ekki neitt og tekst síðan aldrei að ná sér á strik aftur þrátt fyrir nokkra þokkalega spretti. Ekki þar fyrir að leikararnir gera sitt besta, þótt sjaldnast sé það nú stórkostleg list, en handritið er bara svo aumt að allt kemur fyrir ekki. Góður leikari eins og Lurence Fishbume er ekki nema svipur hjá sjón. Myndin segir frá tveimur mönnum, þeim Dodge (Baldwin) og Piper (Fish- bume), sem tekst að flýja úr vinnuhópi sakamanna í Georglufylki. Dodge sat inni fyrir að brjótast inn i tölvukerfi símafélagsins en Piper..., nóg um það. Löggan er náttúrlega á hælunum frá fyrstu stundu og ekki líður á löngu áður en kúbverska mafían í Miami sendir morðingja sína á eftir vinum okkar. Þeir komast hins vegar í kynni við hina fögra Coru (Hayek), fráskilda löggukonu sem skýtur yfir þá skjóshúsi, ótínda glæpa- mennina að því er hún telur en veit betur innst inni, og aðstoðar þá á ýmsa lund. Öll snúast lætin um einhvem tölvudisk með gögnum sem geta komið mafiuforingjanum kúbverska á bak við lás og slá um aldur og ævi. Hér er allt sem prýða má eina hasarmynd: Spillta löggan, góða löggan úr sveitinni, briljantíngreiddir glæpamenn, stúdinan sem vinnur fyrir sér sem nektardansmær, skothríð og bílaeltingaleikir í „lange baner" og þannig mætti lengi áfram telja. Sumt virkar ágætlega, annað ekki eins vel. Og niðurstaðan er aðeins takmörkuð skemmtun. Leikstjóri: Kevin Hooks. Handrit: Preston A. Whitmore. Kvikmyndataka: Matthew F. Leonetti. Leikendur: Laurence Fishburne, Stephen Baldwin, Salma Hayek, Will Patton, Robert John Burke, Robert Hooks, Victor Rivers, Brittney Powell. Bönnuð innan 16 ára. Guðlaugur Bergmundsson Regnboginn — That Thing You Do: Augnabliksfrægð ** Ef blaðað er i poppsögu heimsins kemim það fljótt í ljós að óhemjumargar hljómsveitir og margir söngvarar hafa náð augnabliksfrægð, náð toppnum á vinsældalistum en nánast horfið jafnóðum. í fyrstu kvikmyndinni sem Tom Hanks leikstýrir, That Thing You Do, segir hann okkur frá hljómsveit sem fellur í þennan flokk. Tom Hanks er ekki aðeins leikstjóri heldur einnig handritshöfund- ur og satt best að segja stendur hann sig betur í fýrmefiida hlutverkinu. Handritið og sagan er ekki merkilegur pappír, en sem leikstjóri nær hann að spila vel úr eigin efiii svo myndin verður hin líflegasta. That Thing You Do gerist þegar The Beatles vora að sigra Ameríku. Skólahljómsveitin The Wonders hefur sömu hljóðfæraskipan og Bítlamir og einn meðlimanna hefur nógu mikla hæfileika til að semja lag sem sog- ast inn í ameríska táninga. Lagið That Thing You Do klifrar hratt upp vinsældalistann og nálgast efstu sætin þegar það kemur í ljós að hljóm- sveitin stendur á brauðfótum, ólíkir meðlimir hennar eiga fátt sameigin- legt og The Wonders hverfur á spjöld sögunnar. Tom Hanks byggir myndina vel upp og andi sjöunda áratugarins kemur vel fram, ekki aðeins í tónlistinni heldur einnig í kvikmyndum, en í ágætu atriði er gert stólpagrín að „Beach Party“ myndum sem vora vin- sælar hjá táningum á þessum áram. Það sem háir myndinni einna helst, fyrir utan frekar máttlausan texta, er tónlistin. Þar sem The Wonders gerðu aðeins eitt lag frægt þá glymur það í tíma og ótíma og satt best að segja var ég alveg búinn að fá nóg af laginu í lok myndar. Það er í raun ekkert annað er ómerkileg stæling af gömlum lögum og dettur mér helst í hug lög The Monkeys til samanburðar, en þau þóttu nú ekki merkileg á sínum tíma. Þrátt fyrir nokkra annmarka þá er That Thing You Do hin sæmiiegasta afþreying. Leikstjóri og handritshöfundur: Tom Hanks. Kvikmyndataka: Tak Fujimoto. Aðalleikarar: Tom Everett Scott, Liv Tyler, Tom Hanks, Jonathan Schaech, Steve Zahn og Ethan Embry. HUmar Karlsson. Ruglukollar í Stjörnubíói: Kennari með háleitar hugmyndir Þeir sem minnast grínsins Airplane og Naked Gun myndunum vita ná- kvæmlega að hverju ganga þegar horft er á Ruglukolla (High School High) sem er úr smiðju Dav- ids Zuckers sem er ábyrg- ur ásamt félög- um sínum fyr- ir fyrmefnd- um myndum. í myndinni er verið að gera grín að banda- rískiun menntaskóla- og háskóla- myndum, með- al annars Dan- gerous Minds og hinni klass- ísku Rebel without a Cause. Eitt er víst að Ruglukollar er ekki kvikmynd sem ber að taka alvarlega enda er það allt annað en raunsæi sem ræður ferð- inni og vert er að hafa aug- un vel opin því smátriðin eru mörg sem spaugileg era. Aðalpersónan er hugsjóna- maðurinn Richard Clark (Jon Lovitz) sem tekur til starfa í niðurníddum mennta- skóla þar sem hann er ákveöinn í að gera Tia Carrere leikur kennara sem hrífst af kraftaverk og fá ruglaða nemendur til að læra. Er takmarkið að gera monntaskólann að fyrirmyndarskóla. Fljótt nær Richard athygli fallegu kennslukonunnar, Victoríu Chappell (Tia Carrere), sem dáist að hugsjónum Ric- hards, en skólastýra menntaskólans (Louise Fletcher) er ekki jafn hrifin af Richard, sem hún telur vera mont- hana og aulabárð. Jon Lovits, sem leikur Richard, er einn margra gaman- leikara sem létu ljós sitt skína í skemmtiþáttunum Sat- urday Night Live en fyrir frammistöðu sína í þessari vinsælu þáttaröð hlaut hann tvisvar tilnefningu til Emmy-verðlauna. Lovits hefur þegar leikið í fimmtán kvikmyndum. Má þar nefna City Slickers II, A League of Their Own og Big. Þá hefur hann léð rödd sína í teiknimyndir á borð við An American Tail: Fievel Goes sig Aðrir leikarar í RuglukoOum era Tia Carrere, sem siðast sást í True Lies, þar sem hún lék á móti Amold Schwarzenegger, en hún hefur á undan- fömum árum leikið í nokkrum frægum myndum, má nefna Rising Sun og Wayne’s World. Carrera hefur einnig reynt fyrir sér sem söng- kona og gaf ný- lega út sólóplöt- una Dream. Louise Fletcher er margreynd leikkona úr fjöl- mörgum kvik- myndum. Hún hlaut ósk- arsverðlaun fyrir leik sinn í One Flew over the Cuckoo’s Nest en nýlega mátti sjá hana í Virtu- osity og Mul- holland Falls. í hlutverki nemandans Criffs Mc- Reynolds er Mekhi Phiffer en var í raun al- gjör tilviljun að hann skyldi leggja fyrir kvikmynda- leik. Þegar Spike Lee var að leita að ungum kynbræðr- um sínum í New York til að leika í Clockers heyrði Phiffer af því að verið væri að velja stráka á hans aldri í kvikmynd. Hann dreif sig á staðinn en eina myndin sem hann gat framvísað var tekin í myndaboxi í stórmarkaði. Lee sá eitthvað í drengnum sem honum líkaði og fékk honum hlutverk og hefur Phifer haft nóg að gera við að leika í kvikmyndum auk þess sem hann er nú að gera sína fyrstu rappplötu. Hart Bochner, leikstjóri High School High, hefur leikið í mörgum kvikmyndum en er nú að leikstýra annarri kvikmynd sinni. Áður hefúr hann leikstýrt PCU sem má segja að hafi verið í þeim flokki kvikmynda sem verið er að gera grín að í Ruglukollum. -HK bjartsýni og áhuga Clarks. Richard Clark (Jon Lovitz) lendir ekki bara upp á kant við nemendur sína heldur á skólastjórinn bágt með að þola hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.