Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Síða 43
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 ikvikmyndir Diane Keaton, Goldie Hawn og Bette Midler leika þrjár fyrrum eiginkonur sem hafa verið látnar róa fyrir yngri konur. Kvennaklúbburinn í Bíóborginni: Fyrrum eiginkonur í hefndarhug Bíóborgin frumsýndi í gær gam- anmyndina Kvennaklúbbinn (The First Wives Club) en mynd þessi hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum allt frá þvi hún var frumsýnd fyrir tveimur mánuðum. Það eru þrjár margreyndar valkyrj- ur kvikmyndanna sem leika aðal- hlutverkin, Goldie Hawn, Diane Keaton og Bette Midler. Leika þær þijár konur sem voru miklar vin- konur þegar þær voru í skóla en þegar háskólanámi lauk fóru þær hver í sína áttina. Allar giftust þær s> þó og hjálpuðu til að byggja upp starfsferii eiginmannanna. Þegar þær hittast eiga þær það sameigin- legt að eiginmennirnir höfðu yfir- gefið þær fyrir mun yngri konur. Vinkonumar þrjár, Brenda, Elise og Annie, ákveða að leita heftida og þegar þessar gömlu vinkonur snúa bökum saman er eins gott að varast þær. Skotmörk þeirra eru eigin- mennimir fyrrverandi og þeir fá al- deilis að kenna á þvi að hafa yfirgef- ið þær. í aukahlutverkum í Kvenna- klúbbnum em meðal annars Sarah Jessica Parker, Maggie Smith, Dan Haedaya, Bronson Pinchot, Stockard Channing, Jennifer Dundas, Eileen Heckart, Stephen Collins, Victor Garber, Elizabeth Berkley, Marcia Gay Harden og Philip Bosco. Kvennaklúbburinn er gerður eftir skáldsögu Oliviu Goldsmith en bók þessi sló í gegn og fékk bæði góða dóma og var lengi á metsölulistum vestan hafs. Kvennaklúbburinn ger- ist í New York og er myndin tekin að öllu leyti þar og vora hvorki meira né minna en 60 staðir notaðir til kvikmyndatökunnar. Útisenur vom teknar að mestu í fyrravetur en þá voru einhverjir mestu snjóar í New York sem um getur og eitt er víst það þurfti engan gervisnjó til að gera vetrarsenur sannfærandi. Leikstjóri Kvennaklúbbsins er Huig Wilson sem á að baki langan feril í kvikmyndum en þó aðallega í sjónvarpi þar sem hann var meðal annars upphafsmaður gaman- myndaflokkanna Cincinnati og Frank’s Place. Árið 1988 hlaut hann Emmyverðlaunin sem besti hand- ritshöfundur gamanmynda. Wilson fæddist og ólst upp í Miami og lauk námi frá University of Florida. Um tíma vann hann sem höfundur aug- lýsingatexta og hóf ritstörf í sjón- varpi með því að skrifa handrit að The Mary Tyler Moore Show og The Bob Newhart Show. Leikstjórnarferill hans byrjaði þegar hann skrifaði og leikstýrði fyrstu Police Academy myndinni. Meðal mynda sem hann hefur leik- stýrt má nefna Rustler’s Rhapsody, með Tom Berenger og Selu Ward og Guarding Tess með Shirley MacLaine og Nicolas Cage. -HK Fagstefna Ljósmyndarafélags íslands Myndavélar, framköllunarvélar, digital tækni, studíóljós, þrífætur, skannerar og margt fleira. Sunnudaginn 12. janúar í húsi Samtaka iðnaðarins, Hallveigarstíg 1. Opiðfrákl. 12.00 til 18.00 Dagskrá: Aðgangseyrir 400 kr Kl. 13.00 Lauren Piperno: Bandarískur Ijósmyndari sýnir skyggnur I : Kl. 14.30 Er Intemetið hentugur miðill fyrir ljósmyndara? : ; Kl. 16.00 Frá þjóðminjasafhinu. n Einstakt tækifæri fyrir áhugafólk um Ijósmyndun. Á afmælisárinu verða einungis frumsýnd íslensk leikrit dómínó eftir JökulJakobsson Fersk, íslensk klassík! Dularíiillt leikrit, í senn flókið og einfalt, sem sýnir okkur ráðvillt fólk í þjóðfélagi allsnægta. Leiksýningin hefur nú þegar fengið stórkostlegar viðtökur. eftir Karl Ágúst Úlfsson og Gunnar Reyni Sveinsson Söngleikur byggður á ljóðum Tómasar Guðmundssonar, borgarskáldsins sem gerði Reykjavík spennandi, rómantíska og gáskafulla. Láttu þig ekki vanta á afmælissýningar Leikfélags Reykjavíkur! Finnst þér gaman að hlæja? Trúðaskólinn er eitt fyndnasta barnaleikrit í? * sem skrifað hefur verið! K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.