Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 Neytendur Verðkönnun á þorramat og innihald þorrabakkanna: Þorrabakkarnir bæði margir og misjafnir - oft mikill verðmunur á þorramat í lausu Þorrinn byrjar í dag en væntan- lega hafa margir beöið dagsins meö óþreyju. Þorramatur hefur verið í boði í mörgum verslunum alla vik- una þó sumar þeirra bíði til dagsins i dag með að bjóða sérstök kjör á bökkum eða súrmat i lausu. Við höfðum samband við nokkra stórmarkaði á höfuðborgarsvæðinu og tvö veitingahús til að forvitnast um verð, þyngd og innihald á þorrabökkunum. Þeir eru eins mis- jafiiir og þeir eru margir og því ómögulegt aö bera eingöngu verðið saman. Það er hins vegar hægt með súrmat í lausu sem fæst í kjötborð- um stórmarkaðanna og niðurstað- an úr slíkri verðkönnun birtist í grafi hér á síðunni. Eini aðilinn sem átti til einhvem hval var Pott- urinn og pannan en birgðirnar eru litlar og einungis um að ræða hrefnurengi. Innihald bakkanna: Hagkaup: 500 g bakki frá Kjamafæði á 677 kr.: hangikjöt, reyktir bringukollar, saltkjöt, magádl, hrossabjúga, hákarl, harðfiskur, svínasulta, súr sviðasulta, súrir bringukollar, súrir lundabaggar, súrir hrútspungar, rúgbrauð, flatbrauð, kartöflusalat og smjör. 1.000-1.200 g bakki frá KEA á 1.059 kr.: sama innihald en helmingi meira. 10-11: 500 g bakki frá KEA á 498 kr.: sviðasulta (súr og ný), súrir lunda- baggar, súrir bringukollar, hangi- kjöt, saltkjöt, soðið lambakjöt, mag- áll, hákarl, harðfiskur, flatbrauð, rúgbrauð og smjör. 1 kg bakki frá KEA á 902 kr.: sama innihald, bara helmingi meira. Fjölmargir landsmenn hafa beöiö dagsins I dag meö óþreyju, þ.e. upphafi þorrans. Þá telst viö hæfi aö úöa í sig gam- aldags mat, jafnt súrum sem ósúrum. DV-mynd BG Fjarðarkaup: 600 g bakki frá Kjamafæði á 598 kr.: kartöflusalat, hákarl, harðfisk- ur, hangikjöt, reyktar bringur, salt- kjöt, magáll, reykt hrossabjúgu, sviðasulta (súr og ósúr), svínasulta Verðmunur - súrmatur í Lundabaggar á þorramat lausu kr/kg - Hrútspungar Lægst Hæst Lægst Bringukollar Sviðasulta ; Hæst Lægst Lægst 1.069 Hæst 1.098 Hæst Blóðntör Ufrarpylsa Lægst Hæst Lægst Sviðakjammar Hðkart Lægst Hæst Lægst Hæst Hæst OV (súr og ósúr), súrar bringur, súrir lundabaggar, súrir hrútspungar, rúgbrauð, flatbrauð og smjör. 1.250 g bakki frá Kjamafæði á 1.198 kr.: sama innihald, bara helm- ingi meira. 500 g bakki frá KEA á 712 kr.: hangikjöt, lambasteik, saltkjöt, sviðasulta, magáll, hákarl, smjör, harðfiskur, súrir hrútspungar, súrir bringukollar, súr sviðasulta, súrir lundabaggar. 1.000 g bakki frá KEA á 1.288 kr.: sama innihald, bara helmingi meira. 500 g bakki með eing. súrmat á 280 kr.: lundabaggar, sviðasulta, svínasulta, bringukollar og hrútspungar. Nóatún: 500 g bakkar með súrmat á 299 kr.: hrútspungar, lundabaggar, bringukollar, slátur og sviðasulta (líka ný). 1.000-1.100 g bakki á 849 kr.: sama og á þeim minni, að viðbættri grísa- sultu (súr og ný), hangikjöti, rúg- brauði, smjöri og harðfiski. 500 g bakki frá KEA á 712 kr.: sviðasulta (súr og ný), súrir hrútspungar, súrir lundabaggar, súrir bringukollar, hangikjöt, salt- kjöt, lambakjöt, magáll, hákarl, harðfiskur, flatbrauð, rúgbrauð og smjör. 1.000 g bakki frá KEA á 1.288 kr.: sama innihald, helmingi meira. Súrmatur frá Borgamesi á 1.051 kr. kg: bringukollar, lundabaggar, sviða- sulta, grísasulta og hrútspungar. Súrmatur frá Borgamesi á 1.161 kr. kg: sama og á hinum, að við- bættu hangikjöti. Bónus: 500 g bakki frá KEA á 299 kr.: súr sviöasulta, súrir hrútspungar, súr- ir lundabaggar, súrir bringukollar, hangikjöt, saltkjöt, lambakjöt, mag- áll, sviðasulta, hákarl, harðfiskur, flatbrauð, rúgbrauð og smjör. 900 g bakki frá KEA á 549 kr.: súr sviðasulta, súr svínasulta, súr blóð- mör, súrir lundabaggar, magáll, súr lifrarpylsa og súrir hrútspungar. 2 1 fötur með súrmat frá SS á 849 kr.: hrútspungar, lundabaggar, bringukollar, sviðasulta, lifrarpylsa og hrútspungar. Kaupgarður í Mjódd: 500 g bakki frá KEA á 712 kr.: rúg- brauð, hákarl, flatbrauð, hangikjöt, súrir lundabaggar, sviðasulta (súr og ný), hrútspungar, hákarl, harð- fiskur og smjör. 1.000 g bakki frá KEA á 1.288 kr.: sama innihald, bara helmingi meira. Súrmatur á 1.095 kr. kg frá Kjöt- umboðinu: hrútspungar, lunda- baggar, bringukollar, blóðmör og sviðasulta. Múlakaffi: 1.200 g bakki (fyrir tvo) á 1.790 kr.: hrútspungar, súr sviðasulta, súrir lundabaggar, blóðmör, súr lifrarpylsa, hákarl, hangikjöt, harð- fiskur, rúgbrauð, flatbrauð, síld, rófustappa, ítalskt salat og smjör. Trog fyrir 5 eða fleiri, 1.490 kr. fyrir manninn: sama innihald og á bakkanum auk eftirfarandi: ný sviðasulta, sviðakjammar, 3 teg. síldarsalat, heitt saltkjöt, kartöflur, uppstú og heitur pottréttur með meðlæti ef óskað er. Potturinn og pannan: Þorrabakki fyrir fjóra eða fleiri á 1.190 kr. fyrir manninn: sviðasulta (súr og ný), hrútspungar, bringu- kollar, limdabaggar, súr blóðmör og súr liffarpylsa, hangikjöt, harðfisk- ur, hákarl, flatbrauð, rúgbrauð, smjör, ítalskt salat og síld (hlutfall súrmatar að óskum hvers og eins). Þorrabakki á 1.390 kr. fyrir mann- inn: sama innihald, auk sviða- kjamma, saltkjöts, uppstús og kart- aflna. -ingo Smðauglýilngar rro Mnaooo Dstarnir í nýjum umbúðum. sömu vörunúmerum og áður. Eina breytingin er sú að í stað þess aö nota glæra plastfilmu og límmiða er plastfilman nú áprentuð. Litirnir sem voru á limmiðun- um voru lagðir til grundvallar í nýju umbúðunum. Þannig er Brauðostm- í rauðum umbúðum, Gouda í gulum (17%) og vínrauð- um (26%), Óðalsosturinn í græn- um umbúðum og Maribo í blá- um. Ostasneiöarnar. ostasneiðanna er talin batna verulega í umbúðum af þessu tagi því þær haldast ferskari og verða síður fýrir hnjaski. Á bakkanum eru 8 sneiðar, 14 g hver, og nú á að vera mun auð- veldara aö ná þeim í sundur. -ingo Nýjar osta- umbúðir Dala Brie í ostaöskju Sneiðar á plastbakka Breytingin á umbúðum osta- sneiðanna er líklega mesta bylt- ingin því í stað einfaldra plast- umbúða er ostasneiðunum nú raðað á stífan plastbakka sem síðan er pakkað í plastfilmu. Öll meðhöndlun Vinsælustu föstu ostamir fara um þessar mundir að birtast í nýjum umbúðum í verslunum. Hér er um að ræða Brauðost, Gouda 17% og 26%, Maribo og Óðalsost. Ostamir sömu stærðum Dala Brie hefur nú verið sett í nýjar 200 g umbúðir sem sýna betur form ostsins sjálfs. Um er að ræða vín- rauða og Nýju öskjurnar. smekklega ostaöskju sem talin var hæfa betur markaðsstöðu og ímynd ostsins hjá neytendum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.