Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Qupperneq 22
34 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 Afmæli Gunnar Júlíus Júlíusson Gunnar Júlíus Júlíusson sjómað- ur, Ránargötu 9, Reykjavík, er átt- ræður í dag. Starfsferill Gunnar fæddist í Stykkishólmi en ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst í Fagurey á Breiðafirði til þriggja ára aldurs og í Hrafnsey eft- ir það. Gunnar fór kornungur til sjós og stundaði sjómennsku á ára- bátum og mótorbátum á unglingsár- unum. Foreldrar Gunnars fóru að Reykhólum 1937 og varð hann þá eftir í Hrafnsey í eitt ár hjá Áma Ketilbjamarsyni sem þar tók við jörðinni. Gunnar var síðan vetrar- maður að Keisbakka á Skógar- strönd 1933-39, var vinnumaður að Miðhúsum sumarið 1939 og vetrar- maður á Reykhólum 1939-40. Hann var síðan að Bæ og Króksfjarðar- nesi en fór síðan suður til Reykja- víkur 1941 þar sem hann stundaði Bretavinnu um skeið. Þá starfaði hann hjá Eyjólfi Jóhannssyni við húsasmíði og leikfangagerð. Gunnar fór til Vestmannaeyja 1944 og stundaði þar sjó- mennsku á bátum en var á síldveiðum á sumrin. Hann var síðan lengst af sjómaðin'. Gunnar flutti að Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd 1957 og var þar með búskap og trilluútgerð í þrjú ár. Hann var síðan aftur til sjós í Vestmannaeyjum en fLutti til Reykjavíkur og var þar á togara um skeið. Hann var síðan á bát frá Grindavík í niu ár en hætti þá til sjós 1980. Þá hóf Gunnar störf hjá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson þar sem hann starf- aði í sjö ár er hann hætti störfum. Fjölskylda Sambýliskona Gunnars var Guð- laug Sveinsdóttir húsmóðir sem nú er látin. Hún var dóttir Sveins Jóns- sonar, b. á Leirum undir Eyjaflöll- um. Dóttir Gunnars og Sigríðar Skarphéðinsdóttur er Kristín Gunn- arsdóttir sjóntækjafræð- ingur, búsett á Seltjarnar- nesi, gift Hannesi Ólafs- syni kennara. Kristín og Hannes eiga synina Atla Vigni Hannesson, f. 22.7. 1974, og Ólaf ísberg Hann- esson, f. 22.2. 1981. Dætur Gunnars og Guð- laugar Sveinsdóttur: Guð- rún, húsmóðir á Þórs- höfn. Hermar maki er Sig- urður Sigfússon bílstjóri og á hún þrjú böm; Hall- dór Stefánsson, f. 10.5. 1974, í sambúð með Önnu Lám Frið- bergsdóttur og eiga þau soninn Ósk- ar Þór, f. 28.12. 1991; Sigurborg Rán Stefánsdóttir, f. 14.2. 1977, og Tryggvi Gunnar Sigurðsson, f. 13.2. 1980. Júlía, sjúkraliði í Vogum, gift Helga Jónssyni húsasmið og eiga þau fimm böm; Gunnar Júlíus Helgason, f. 2.6. 1973; Jón Helgason, f. 26.5. 1975, í sambúð með Selmu Stefánsdóttur og eiga þau dótturina Anitu Máney, f. 14.6. 1996; Logi Helgason, f. 22.6.1981; Sandra Helga- dóttir, f. 22.9. 1986, og Sindri Helga- son, f. 28.12. 1991. Systkini Gunnars urðu sjö og komust sex þeirra á legg. Hann er nú einn á lífi systkinanna. Systkini hans: Skúli, f. 19.4. 1906, d. 1959, b. að Reykhólum; Sigurður Snædal, f. 26.10.1907, d. 1972, skrifstofumaður í Reykjavík; Friðjón sem dó í barn- æsku; Friðjón Ingólfur, f. 19.7. 1912, d. 1991, búfræðikandídat og kenn- ari; Ágúst Malmquist, f. 4.8. 1914, d. 1976, trésmiður i Reykjavík; Eva, f. 18.1. 1920, d. 1987, húsmóðir í Reykjavík; Karl, f. 28.4.1924, d. 1975, bryti i Reykjavík. Foreldrar Gunnars: Július Sig- urðsson, f. 8.6. 1877, d. 7.2. 1943, bóndi og sjómaður I Fagurey og Hrafnsey, og kona hans, Guðrún Marta Skúladóttir, f. 5.6. 1880, d. 14.10. 1954, húsfreyja. Júlíus var ættaður frá Miðhúsum í Mýrasýslu og Guðrún frá Fagurey á Breiðafirði. Gunnar tekur á móti gestum á heimili Kristínar dóttur sinnar, Lindarbraut 41, Seltjamamesi, milli kl. 18 og 22 á afmælisdaginn. Gunnar Júlíus Júlíusson. Pálína Snorradóttir Pálína Snorradóttir yfirkennari, Borgarheiði 14, Hveragerði, er sex- tug í dag. Starfsferill Pálina er fædd á Akureyri og bjó þar til ársins 1945 er hún flutti til Reykjavíkur. Hún varð stúdent frá MR 1957 og lauk kennaraprófi frá KÍ árið 1958. Pálína stundaði nám í sér- kennslu við framhaldsdeild Kf tíma- bilið 1970-71 og við Statens Spesiall- ærehogskole í Noregi tímabilið 1981-82. Hún stundaði kennslu á ísa- firði 1958-65 og frá 1965 hefur hún kennt í Hveragerði með þremur út- hlaupum, þ.e. kennslu við unglinga- skólann í Sandgerði 1969-70, kennslu í Laugagerðisskóla 1975-76, auk þess að vera fyrsti sérkennslu- fulltrúi við Fræðsluskrifstofu Suð- urlands timabiliö 1979-85. Pálína hefur verið yfirkennari við grunn- skólann í Hveragerði frá 1985. Pálina var ritari Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra, á ísafirði 1960-65 og gegndi sömu stöðu hjá Sjálfsbjörg í Ámessýslu 1965-84. Hún hefur síð- an verið formaður frá 1984. Pálína hefur setið í framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra, og setið þing samtakanna hér- lendis og annars staðar á Norður- löndum. Hún var í svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Suðurlandi og formaður um skeið. Pálína er félagi í Kvenfélagi Hveragerðis, Rotaryklúbbi Selfoss og Epsilon- deild Delta Kappa Gamma á Suður- landi. Fjölskylda Pálína giftist 31.12. 1959 ísaki E. Jónssyni, f. 6.10.1931, tónlistarkenn- ara. Hann er sonur Jóns Isaks Magnússonar, trésmiðs á ísafirði, og Þóreyjar Albertsdótt- ur húsmóður. Pálína og ísak skildu árið 1975. Böm Pálínu og ísaks: Atli, f. 6.6. 1960, smiður í Noregi. Fyrri kona hans var Jóna Ragnarsdóttir, f. 5.6. 1975, og eiga þau börnin Ragnar Þór, f. 16.5.1979 og Elvar Mar, f. 5.11. 1983. Þau skildu. Sambýliskona Atla er Steinunn Ólafsdóttir, f. 18.6. 1958. Bam þeirra er Friðrik Páll. Margrét Sigríður, f. 15.5. 1964, kennari við grunnskólann í Hvera- gerði. Hennar dóttir er Pálína Agn- es Kristinsdóttir, f. 1.5. 1995. Guðný Elísabet, f. 16.8. 1971, starfsmaður í Hverabakaríi. Alsystir Pálínu er Gunnhildur, f. 25.1. 1939, skrifstofustjóri hjá Frama, félagi leigubifreiðastjóra, gift Svavari Guðmunds- syni, f. 26.3. 1935, leigubif- reiðastjóra, og eiga þau börnin Margréti Sigríði, f. 16.11. 1962, hárgreiðslu- meistara; Guðmund, f. 2.3. 1966, starfsmann á Kleppi; Emu Björk, f. 15.7. 1969, starfsmann á leikskóla og Maríu Björk, húsmóður. Bróðir Pálínu, samfeðra, er Jón Steinar Snorrason matreiðslumeistari. Foreldrar Pálínu voru Snorri Jónsson, f. 1915, d. 1984, sjó- maður og síðar starfsmaður Áburð- arverksmiðjunnar og Margrét Sig- ríður Aðalsteinsdóttir, f. 1916, d. 1962, húsmóðir. Þau bjuggu á Akur- eyri en skildu. Margrét fluttist til Reykjavíkur árið 1945 og giftist þá Sigurði Magnússyni, f. 1898, d. 1979. Pálína tekur á móti gestum á heim- ili sínu kl. 17-19 á afmælisdaginn. Pálína Snorradóttir. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir Guðrún Pálína Guð- mundsdóttir, listmálari og myndlistar- og jóga- leiðbeinandi, Brekku- götu 35, Akureyri, er fer- tug í dag. Starfsferill Guðrún Pálína er fædd á Akureyri og bjó þar til tveggja ára ald- urs. Fram að 10 ára aldri bjó hún að Bólstað í Bárðardal en fram að 18 ára aldri var hún búsett á Akureyri. Hún flutti 18 ára til Sví- þjóðar og lagði þar stund á nám í lýðháskólum í 2 ár en síöar nam hún almenn málvísindi, hljóðfræði og siðfræði. Guðrún Pálína lauk Eiríkur Bogason, framkvæmda- stjóri Samorku, Furugrund 42, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Eiríkur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann lærði raf- virkjun hjá Neista í Vestmannaeyj- um, lauk námi 1967 og vann sem rafvirki, lengst af í Neista. Hann fékk meistararéttindi sem rafvirki árið 1969. Eiríkur hóf nám við Tækniskóla íslands árið 1979 og út- skrifaðist sem tæknifræðingm- frá Aarhus Teknikum árið 1984. Á námsárunum vann hann hjá BA-prófi frá Háskólanum í Gautaborg 1983 en lagði síðan stund á listnám í Hollandi og samsvarar sú menntum mastersgráðu. Hún var við grunnnám í Akl, Enschede og fram- haldsnám við Jan Van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi. Árið 1991 flutti Guðrún Pálína aftur til íslands eftir 16 ára íjarveru, sem þá var hálf hennar ævi, og hefur síðan fengist að mestu við kennslu. Hún kom af stað Menntasmiðju kvenna ásamt Valgerði H. Bjamadóttur á Akureyri 1994 og stjórnaði henni fyrsta árið. Síðan hefur hún kennt þar í 70% starfi. Guðrún Pálína heldur sjálfstæð námskeið í mynd- list og jógadansi og rekur listagall- eríið Gallerí+ ásamt eiginmanni sínum í kjallaranum á heimili sínu. Gallerí+ var opnað fyrir ári og leit- ast við að sýna nútímamyndlist í háum gæðaflokki og er ekki sölugallerí. Fjölskylda Guðrún Pálína giftistl5.ll. 1989 í Maastricht í Hollandi Joris Johann- es Rademaker, f. 4.10.1958, kennara og myndlistarmanni. Hann er son- ur Herman Rademaker hannaðar og Jules Rademaker arkitekts. Þau eru búsett í HoUandi. Guðrún Pálína og Joris Johannes eiga soninn Samúel Rademaker, f. 25.1. 1992. Systkini Guðrúnar Pálínu eru Anna María Guðmundsdóttir; Jónas Guðmundsson og Guðmund- ur Þór Guðmundsson. Uppeldissystkini hennar eru Ólafur Héðinsson; Guðrún Pálína Héðinsdóttir; Ragnheiður Héðins- dóttir; Sigrún Héðinsdóttir og Hösk- uldur Héðinsson, frá Bólstað í Bárð- ardEd. Foreldrar Guðrúnar Pálinu: Guð- mundm- Jónasson, f. 1929, d. 1962, kennari og Sigrún Höskuldsdóttir, f. 1928, kennari. Þau voru búsett á Akureyri. Afmælisbamið mun eyða degin- um á vinnustað og við undibúning 5 ára afmælis sonar sins daginn eft- ir. Hún stefnir að því að halda upp á afmælið að sumri til í góðu veðri utan dyra. 1970, hjúkmamema, gift Bemharði Ólasyni, f. 25.3. 1967, og eiga þau tvö böm, og Karl Eiriksson, f. 1.9. 1985. Systkini Eiríks: Jóhanna Boga- dóttir, f. 8.11. 1944, myndlistarmaö- ur; Kristján Bogason, f. 24.5. 1948, rafvirkjameistari; Soffla Bogadótt- ir, f. 13.7. 1950, d. 27.7. 1957; Svava Bogadóttir, f. 30.5. 1954, kennari; Gunnar Bogason, f. 15.8. 1962, sjó- maður. Foreldrar Eiríks em þau Bogi Jóhannsson, f. 30.9. 1920, rafvirkja- meistari og Halldóra G. Bjömsdótt- ir, f. 5.7. 1921, húsmóðir. Þau era búsett í Vestmannaeyjum. Eiríkur Bogason RARIK en eftir nám starfaði hann hjá Raf- hönnun. Árið 1986 var Eiríkur ráðinn sem veitustjóri við Bæjar- veitur Vestmannaeyja og gegndi því starfi til 1996 er hann hóf störf sem framkvæmdastjóri Samorku. Eiríkur er fé- lagi í Akoges og var for- maður Félags hjarta- sjúklinga í Vestmanna- eyjum 1991-95. Hann hefur átt sæti í mörgum félögum, s.s. Sveinafélagi rafiðnaðarmanna og Sambandi íslenskra rafveitna Eiríkur Bogason. ásamt því að hafa gegnt ýmsum trúnaðarstörfúm í orkugeiranum. Fjölskylda Eiríkur kvæntist 17.5. 1970 Guðbjörgu Ólafsdótt- ur, f. 17.7. 1949, húsmóð- ur. Foreldrar hennar eru Ólafur Árnason, fyrrv. bílstjóri, og Þorsteina S. Ólafsdóttir húsmóðir. Þau eru búsett í Vest- mannaeyjum. Eiríkur og Guðbjörg eiga tvö börn; Sofllu Eiríksdóttur, f. 23.1. Guðrún Pálína Guömundsdóttir. Til hamingju með afmælið 24. janúar 95 ára Stefán Stefánsson, Holtsgötu 7, Hafnarfirði. 90 ára Óskar Gíslason, Höfðahlíð 4, Akureyri. Óskar tekur á móti gestum laugardaginn 25.1. í Húsi aldr- aðra milli kl. 15 og 19. 85 ára Guðvin Gunnlaugsson, Vanabyggð 9, Akureyri. 70 ára Bjami Hólm Bjarnason, Hjallavegi 5, Reykjavík. Bjami Hólm Bjarnason, fyrrv. lögreglu- maður í Reykja- vík, tekur á móti gestum um borð í skemmtiferðaskipinu Árnesi, sem liggur við Ægisgarð, á milli kl. 20 og 24 laugardaginn 25.1. Sigríður Þóra Þorvaldsdóttir, Akraseli 7, Reykjavík. Ólafúr Skaftason, Gerði, Skriðuhreppi. 60 ára Kristíana Kristjánsdótt- ir, Háhæð 1, Garðabæ. Kristíana verð- ur stödd í sam- komuhúsinu Garðaholti í Garðabæ á afmæl- isdaginn milli kl. 17 og 20. Lundfríður Ögmundsdóttir, Túngötu 17, Sandgerði. Margrét Þóroddsdóttir, Laugalæk 62, Reykjavík. 50 ára Sigurður Jónsson, Víkingsstöðum, Vallahreppi. Sigurður Jónsson, bóndi á Vík- ingsstöðum, tekur á móti gest- um í félagsheimilinu Iðavöllum laugardaginn 25.1. frá kl. 19. Jón Bergmann Skúlason, Njálsgötu 20, Reykjavík. Anna Felixdóttir, Vallengi 3, Reykjavík. Guðrún Matthíasdóttir, Bjargartanga 13, Mosfellsbæ. 40 ára Þorgerður Jóhanna Einars- dóttir, Traðarlandi 8, Bolungarvík. Guðmundur Valur Gimnars- son, Lindarbrekku 2, Djúpavógs- hreppi. Margret Guttormsdóttir, Dunhaga 15, Reykjavík. Ambjörg Gunnlaugsdóttir, Heiðarbraut 29d, Reykjanesbæ. Ema Valdís Valdimarsdóttir, Lindargötu 22a, Reykjavík. Ólafia Margrét Magnúsdótt- ir, Hlyngerði 4, Reykjavík. Ásta Jónína Oddsdóttir, Norðurtúni 23, Siglufirði. Sigriður Jensdóttir, Laugatúni 5, Sauðárkróki. Lilja Sæmundsdóttir, Grundargarði 4, Húsavik. Francois Frans Heenen, Vesturgötu 23, Reykjavík. Ágústa Halldórsdóttir, Kleifarseli 15, Reykjavík. Trausti Haraldsson, Stórateigi 12, Mosfellsbæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.