Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 Viðskipti Endurskipu- lagning ríkisverðbréfa Fjármálaráðherra hefur ákveðið að unnið skuli að end- urskoðun á útgáfu og sölu ríkis- verðbréfa. Þessi endurskoðun mun standa yfir fram á árið 1998. Stefnt er að því að fækka bréfunum úr 45 í 9 og með því veröur auðveldara að versla með þau á eftirmarkaði. Gert er ráð fyrir að verðmismunur milli smárra verðbréfaflokka og stærri flokka hverfi. Þá má ætla að eftirmarkaösvextir bréfanna muni með þessari ákvöröun mynda traustan grunn fyrir vaxtamyndun lántakenda á íjár- magnsmarkaði. Fjórir áfangar I fyrsta áfanga mun ríkissjóð- ur í einu lagi segja upp 9 flokk- um spariskírteina sem eru með gagnkvæmu uppsagnarákvæði í skilmálum þeirra. Eigendum þessara bréfa verður boðin þátt- taka i sérstöku útboði 26. febrú- ar nk. í öörum áfanga veröur eigendum 22 flokka, sem eru of litlir til að vera markaðsflokkar, boðið að skipta yfir í ríkisverð- bréf sem eru á eftirmarkaði. Þetta skref verður stigið í april. í þriðja áfanga, sem ákveðinn er í október nk„ verður eigendum tiltekinna spariskírteina, sem útgefin eru 1993, boöiö að skipta bréfum sínum fyrir ný bréf í markaðsflokkum í frumsölu. í lokaáfanga, sem er áformaður í janúar- febrúar 1998, er ætlunin að bjóða eigendum spariskír- teina, útgefinna 1989, skipti á nýjum markaðsbréfum. Endurskipulagningin mun m.a. geta stuðlað að lækkun vaxta þar sem samanburður við erlenda fiármagnsmarkaði verð- ur skýrari en verið hefur. Eimskip: Aukning um 11% - óánægja með afkomu Umtalsverð aukning varð í áætlunarflutningum til og frá ís- landi á milli ára, úr tæplega 540 þúsund tonnum 1995 í 600 þús- und tonn á liðnu ári, eða um 11%. Innflutningar með áætlun- arskipum félagsins jókst um 16% á milli ára en frá landinu var flutt tæplega 8% meira áriö 1996 en árið á undan. Stórflutn- ingar til og frá landinu með skipum Eimskips drógust sam- an um 8% á milli ára. Þá jukust áætlunarflutningar milli er- lendra hafna um 16%. Þrátt fyrir aukna flutninga og almennt meiri umsvif verður af- koman af hefðbundinni flutn- ingastarfsemi félagsins talsvert lakari en áætlanir gerðu ráð fyr- ir. Kemur þar bæði til tekju- lækkun vegna harðrar sam- keppni en einnig hefur kostnað- ur aukist á árinu vegna breyt- inga á siglingakerfi, nýrra verk- efna félagsins og kostnaöar- hækkana erlendis. Þróunarfélag íslands: Hagnaður 438 milljónir Þróunarfélag íslands skilaði 576 millj. króna hagnaöi fyrir skatta á árinu 1996. Eftir skatta nemur hagnaöurinn 438 milljón- um kr. samanborið við 221 millj. kr. árið áður. Liðið ár er þaö besta frá upphafi hjá Þróunarfé- lagi íslands. Á árinu keypti félagið hlut i 34 félögum að upphæð 326 millj. kr. og seldi hlutabréf alls að fiár- hæð 268 millj. kr. í 20 félögum. í árslok nemur eigið fé félagsins 1.524 millj. króna eða um 82% af heildareignum. Hlutafé er 850 mifljónir og var aukið um 161 milljón kr. með útgáfu jöfhunar- hlutabréfa og sölu nýrra hluta- bréfa. -sv DV Allrahanda hf. meö tvo langferðabíla í akstri í Evrópu: Keyra þúsundir Islendinga á skíðasvæðin á hverjum vetri - lengir vertíðina hjá okkur, segir Þórir Garðarsson Allrahanda í Evrópu Hamhorg „Við erum með þrjá bíla fasta í verkefnum ytra yfir vetrarmán- uðina, einn lítinn og tvo lang- ferðabíla, og erum í samstarfi við þýskt rútubílafyrirtæki sem á um 60 bíla. Með þessu fáum við betri nýtingu á bílunum, þeir eru í akstri hér heima á siunrin og síð- an flytjum við þá út þegar vertíð- in klárast á haustin. Með því að lengja vertíðina hjá okkur með þessum hætti styrkjum við stöðu okkar verulega," segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri Allrahanda hf., en fyrirtækið hef- ur verið að færa út kvíarnar í Evrópu upp á síðkastið. Þórir segir að fyrirtækið haldi sig mest á Lúxemborgarsvæðinu og keyri síðan á alla helstu áfangastaði Flugleiða í Evrópu, Lúxemborg, París, Munchen, Frankfurt og Hamborg. Hann seg- ir að áhersla sé lögð á íslenska bílstjóra fyrir íslenska farþega og segir samkeppnishæfni þeirra í Evrópu fela’st í því fyrst og fremst. „Farþegar okkar eru nær ein- göngu íslendingar og við leggjum mikla áherslu á það að bílstjórar okkar séu meira eins og ferðafé- lagar frekar en vinnudýr sem aka bara á áfangastað og hvika ekki frá einhverri fyrirfram skipu- lagðri dagskrá. Við erum eina is- lenska fyrirtækið með fasta að- stöðu ytra og með svokallað EES- leyfi frá samgönguráðherra. Við erum að flytja þúsundir íslend- inga á skíðasvæðin í Austurríki, Ítalíu og Frakklandi.“ Þórir segir umsvifin alltaf vera að aukast. Hann segir að sex bíl- stjórar hafi verið ytra í verkefh- um á dögunum en ítrekar að eng- inn þeirra búi ytra. Þeir fljúgi út, klári tiltekin verkefni og fljúgi síðan heim aftur. Allrahanda er með 25 bíla hér heima, í strætisvagnaferðum á höfuðborgarsvæðinu, áætlunum á milli Reykajavíkur og ísafiarðar og 3 bíla í föstum ferðum innan- bæjar á ísafirði. Síðan séu fólks- flutningabilar á ferð um allt land á sumrin. -sv Sameining sparisjóða á Vestfjörðum: Yrði sá fimmti stærsti í sparisjóðafjölskyldunni „Það eiga sér stað formlegar viðræður og næstu skref verða ákveðin í vikunni," segir Eiríkur Finnur Greipsson, sparisjóðsstjóri á Flateyri, um þær sameiningarviðræður sem eiga sér stað milli sparisjóðanna á norðanverðum Vestfiörðum. Um er að ræða Spafisjóð Önundarfiarðar á Flateyri, Sparisjóð Súðavíkur, Sparisjóð Þingeyrarhrepps og Sparisjóð Bolungarvíkur sem hugmyndin er að sameina undir einu merki. Ef af sameiningu verð- ur mun nýr sameinaður sjóður verða sá fimmti stærsti í sparisjóðafiölskyldunni með eigið fé upp á 700 milljónir króna. Eiríkur Finnm- segir að í sínum huga sé ekki vafi á því að sameining sé af hinu góða. „Ef við ætlum að taka þátt í slagnum á peninga- markaði þá er enginn vafi á því að þessar eining- ar eru samkeppnishæfari með sameiningu en hver fyrir sig,“ segir Eirikur Finnm. -rt ^ Verðbréfaviðskipti: Islandsbankabréfin vinsælust í liðinni viku Viðskipti voru nokkuð líflega á Verðbréfaþingi íslands og Opna til- boðsmarkaðnum í síðustu viku. Mest seldist af bréfum í íslands- banka, eða fyrir rúmar 59 milljónir króna, og hlutabréf að andvirði rúmar 30 milljónir skiptu um hend- ur í Eimskipafélaginu og Haraldi Böðvarssyni. Bréf í íslenskum sjáv- arafurðum seldust fyrir um 37 millj- ónir í vikunni sem leið og bréf upp á 33 milljónir seldust í Þróunarfé- lagi íslands. Bréf í Flugleiðum seldust fyrir rúmar 16 milljónir króna en lítið seldist í olíufélögunum, fyrir 1,6 milljónir í Olíufélaginu og rúma milljón í Olís. Bréf fyrir tæpar fimm milljónir króna skiptu um hendur í Skeljungi. Álverið tekur örlitla dýfu þessa dagana og er komið niður í 1552 dollara tonnið. Dollarinn heldur áfrcun að stíga, pundið er sömuleið- is á uppleið en þýska markið og jen- ið eru á hægri niðurleið. Þingvísi- tala hlutabréfa er enn á uppleið.-sv Hlutabréf: Rangartölur í vikunni 24. jan. til 31. jan. voru skráð inn kauptilboð í við- skiptakerfi VÞÍ um kaup á hlutabréfum í Vaka aö nafh- virði 100 þúsund krónur. Kaup- gengi var fyrir mistök skráð 455 i staö 4,55. Leiðréttingin sem gerð var skilaöi sér ekki til DV og því var sagt frá óvenjulífleg- um viðskiptum í fyrirtækinu. í vikunni seldust hlutabréf fyrir 580 þúsund krónur en ekki 45 milljónir eins og fram kom í upplýsingum VÞÍ. Þetta leið- réttist hér með. Dollar Þingvísrt. hlutabr. Eimskip Olíufélagið Skeljungur Haraldur Böðv. Flugleiðir < < i ( ( ( ( ( ( ( ( i ( ( 4 ( ( (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.