Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Qupperneq 18
50
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
Fréttir
DV Flateyri:
„Það eru 18 ár frá því að ég gerð-
ist umboðsaðili fyrir Flugfélagið
Vængi og á þessum árum hef ég
sinnt þremur félögum sem hafa flog-
ið hingað, Vængjum, Arnarflugi og
nú síðast íslandsflugi sem hefur
þjónað okkur undanfarin ár,“ sagði
Sigríður Sigursteinsdóttir, fulltrúi
íslandsflugs á Flateyri, eða Sigga
flug, eins og hún er einatt kölluð af
heimamönnum, í samtali við DV.
Sigríður hefur sjálf haft með
höndum akstur til og frá flugvellin-
um í Holti. Á þeirri leið eru margir
erfiðir kaflar í vetrarfærð svo oft
hefur þurft að grípa til annarra far-
artækja en bílsins þegar leiðin hef-
ur verið lokuð vegna snjóa eða yfir-
vofandi snjóflóðahættu.
„Við höfúm stundum þurft að not-
ast við snjóbíl til að komast á milli
og iðulega hefur verið farið á bátum
yfir í Holt til að komast á völlinn.
Það munar þó miklu um brúna yfir
fjörðinn. Hún styttir leiðina um
helming og margir snjóþungir kafl-
ar hurfu með tilkomu hennar. Þó er
Hvilftarströndin eftir og hún er oft
ansi erfið yfirferðar," segir hún.
Þegar Sigríður hóf að sinna flug-
Farþegar ganga frá boröi f Holti nú f febrúar.
afgreiðslunni var flogið 2-3 í viku
til Flateyrar og var það mikil bylt-
ing í því að rjúfa einangrun staðar-
ins.
„Það hefúr orðið mikil breyting á
þessu. Nú flýgur íslandsflug daglega
hingað og fólk úr nágrannabyggð-
um hefur í auknum mæli nýtt sér
þessa þjónustu. Þó hefur orðið
nokkur fækkun á farþegum, m.a.
vegna fólksfækkunar hér á svæðinu
og svo vegna hættra samgangna á
DV-mynd Guðmundur
landi. Nú er orðið hílfært til Reykja-
víkur allt árið. Ég reikna með að
sinna starfinu á meðan flogið verð-
ur hingað.
Svo hef ég jafnframt þessu verið
umboðsmaður DV og áður Dag-
Sigríður Sigursteinsdóttir.
hlaösins frá því að það var stofnað
og haft af því ánægju enda gaman
að öllum svona störfum á meðan
maður þarf ekki að standa við færi-
band í einhverri verksmiðju," sagði
Sigríður. GS
Oft erfitt aö komast á flugvöllinn í Holti í vetrarfærð:
Hef þurft að notast
við báta og snjóbíla
- segir Sigríður Sigursteinsdóttir, umboðsmaður íslandsflugs og DV á Flateyri
Tálknafjörður:
Stóra-Laugardals-
kirkja 90 ára
DV, Tálknafirði:
Þess var minnst sunnudaginn 2.
febrúar að 90 ár eru frá vígslu
Stóra-Laugardalskirkju á Tálkna-
firði. Guðsþjónusta var í kirkjunni
þar sem sóknarpresturinn, séra
Sveinn Valgeirsson, þjónaði fyrir
altari, séra Karl V. Matthíasson pré-
dikaði og séra Hannes Björnsson las
ritnignarorð. Kirkjukór Stóra-
Laugardalskirkju söng ásamt félög-
um frá Bíldudal og Patreksfirði.
Það var 1990 sem Tálknafjarðar-
prestakall var stofnað og nær það
yfir kirkjumar á Barðaströnd, í
Haga og á Brjánslæk og svo Stóra-
Laugardalskirkju í Tálknafirði.
Fyrst í stað var hinu nýja presta-
kalli þjónað af séra Sigurði Jóns-
syni á Patreksfirði en Stóra-Laugar-
dalskirkja heyrði undir Patreks-
fjarðarprestakall áður en hið nýja
prestakall hér varð til.
Haustið 1991 var séra Karl V.
Matthíasson kallaður að Tálkna-
fjarðarprestakalli og þjónaði hann
því til hausts 1995. Það var svo í
febrúar 1996 sem séra Sveinn Val-
geirsson, núverandi prestur, vígðist
í prestakallið. Við messuna á
sunnudaginn var Stóra-Laugardals-
kirkja þétt setin af sóknarhömum
sínum og öðrum gestmn og eftir
messu var öllum boðið í kaffi sem
sóknarnefnd sá um.
Við kaffið vom flutt ávörp og
meðal annars fór Lilja Magnúsdótt-
ir yfir mjög svo merkilega sögu
Stóra-Laugardalskirkju og til gam-
ans má geta þess að timbrið í húsið
var allt flutt inn tilhöggvið frá Nor-
egi með hvalveiðiskipunum sem
lögðu upp við hvalstöðina á Suður-
eyri sem er handan fjarðarins.
Núverandi formaður sóknar-
nefndar Stóra-Laugardalskirkju er
Sigurður Magnússon.
-KA
Prestarnir við athöfnina. Frá vinstri: Karl V. Matthfasson, Sveinn Valgeirsson
og Hannes Björnsson. DV-mynd Kristjana
SkagaQörður:
Fjölmenn ráðstefna um atvinnumál í
DV, Fljótum:
» „Það þarf að leita nýrra kosta í
atvinnumálum á þessu svæði. Við
eigum möguleika að virkja hér raf-
orku og það hljóta aö vera tU iðnað-
arkostir sem henta Norðurlandi
vestra, en við þurfum að kynna
okkur og það sem okkar landsvæði
hefur upp á að bjóða,“ sagði PáU
Pétursson félagsmálaráðherra í
ávarpi sínu á fjölmennri atvinnu-
málaráðstefnu í Miðgarði í Skaga-
firði.
Á ráðstefhiumi var fjallað um
skýrslu sem atvinnumálanefnd
kjördæmisins skUaði frá sér fýrir
skömmu. Fjöldi framsöguerinda um
atvinnulífiö í kjördæminu, kosti,
gaUa og möguleg sóknarfæri var
fiuttur við þetta tækifæri og að
þeim loknum voru paUborðsumræð-
ur. Eins og búast mátti við snerist
umræðan mest um atvinnumál.
Ekki var að heyra á ráðstefnu-
gestum að landbúnaður og sjávarút-
vegur væru liklegir tU að veita
fleira fólki á þessu svæði vinnu í
framtíðinni en nú er. Þó var nefnt
að mögulega væri hægt að halda í
horfinu með því að efla ýmsa þjón-
ustu við sjávarútveginn og færa
heim í viðkomandi hérað. Helst
þóttust fúndarmenn eiga sóknar-
færi tU framtíðar í ferðaþjónustu og
iðnaði.
Húnaröst i höfninni á Höfn. DV-mynd Júlía
Höfn í Hornafiröi:
Húnarösl orðin dóttur-
fyrirtæki Borgeyjar
DV, Höfn:
Gengið hefúr verið frá kaupum
Borgeyjar hf. á 50% hlut Hákonar
Magnússonar og Rósu Sigurðardótt-
ur í Húnaröst ehf. og með þeim er
Húnaröst orðin dótturfýrirtæki
Borgeyjar. Áður hafði Borgey keypt
50% hlut Björgvins Jónssonar og
fjölskyldu í Húnaröst.
Frá 1993 hefúr skipið Húnaröst
verið kjölfestan í hráefnisöflun
Borgeyjar við vinnslu á uppsjávar-
fiskum og er nú aflahlutdeUd
Borgeyjar orðin meiri en þær sem
seldar voru frá félaginu fyrir
nokkrum árrnn, að því er segir í
fréttabréfi frá Borgey.
Húnaröst átti auk samnefnds
skips fiskimjölsverksmiðju á móti
Borgey og Skinney, sem átti þar
20% hlut, og er nú hlutur Borgeyjar
í fiskimjölsverksmiðjunni 80%.
Áhöfn Húnarastar verður sú
sama og verið hefur að því undan-
skUdu að Hákon Magnússon lætur
af skipstjórn en við tekur Jón Axels-
son. Hann hefur verið stýrimaður
þar undanfarin ár og í afleysingum
sem skipstjóri. JI
Skagafirði
Ferðaþjónustan hefúr verið í
stöðugri uppbyggingu í kjördæm-
inu undanfarin ár og kom fram að
svæðið ætti enn talsverða mögu-
leika ónýtta á því sviði. í afstöðu tU
iðnaöar heyrðust raddir bæði með
og á móti stóriðju en að efla þyrfti
eftir mætti uppbyggingu smærri
fyrirtækja t.d. væri víða hægt að
nýta betur jarðhita á þessu svæði
en nú er gert.
-ÖÞ
Jón Eiríksson f ræöupúltinu í Miö-
garöi. DV-mynd Örn