Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Qupperneq 32
rwm til nijW/í að vinf^ Vinningstölur 11.2/97 @@@ KÍN 'O V FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 Ákveðnir hópar sendir í verkfali? DV, Akureyri: „Það er rætt í okkar röðum að senda í verkfóll einhverja þýðingar- mikla aöila í þjóðfélaginu. Þar er ég t.d. að tala um hafnarverkamenn eða hleðslumenn á Keflavikurflug- velli, svo að einhverjir hópar séu nefndir, og við hin gætum haldið þeim uppi með því að greiða þeim laun fyrir að vera í verkfalli," sagði Aðédsteinn Baldursson sem sæti á í framkvæmdastjóm Verkamanna- sambands íslands á opnum fundi Alþýðubandalagsins um stöðu kjaramála á Akureyri í gærkvöldi. Aðalsteinn sagði að þessi leið, að lama ákeðna þætti atvinnulífsins, T0 gæti e.t.v. skilað jafnmiklum ár- angri og aðrar aðgerðir og væri hugsanlega hesta leiðin til að byrja með komist ekki skriður á samn- ingamálin á næstu dögum. „Ég ótt- ast ekki bakland okkar að þessu sinni. Það er mikil samstaða og það hefur aldrei verið jafnlítið um úr- töluraddir og núna þegar rætt er um verkfallsaðgerðir. Viðsemjend- ur okkar hafa hins vegar ekkert annað haft til málanna að leggja en að hækka kaupið um tíkall og að færa sumardaginn fyrsta til hausts- ins,“ sagði Aðalsteinn. -gk Hlöðversmáliö: Nákvæm rann- sókn skýrir málið „DNA-rannsókn á munnvatni úr sígarettustubb, sem fannst í bíl Hlöðvers heitins Aðalsteinssonar, sem fannst látinn 29. desember sl., og blóðrannsókn á manni, sem RLR hefur haft undir smásjánni frá því daginn eftir að Hlöðver fannst, sýn- ir að maðurinn hefur verið í bíl Hlöðvers nóttina sem Hlöðver dó. Þá hefur rannsóknardeild lögreglimnar sýnt fram á það með einstakri rann- , sókn að forhlaði úr haglaskoti, sem fannst í handlegg Hlöðvers, hefur veriö skotið úr haglabyssu manns- ins. í framhaldi af nefndum rann- sóknum var maðurinn handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa skotið að Hlöðveri. Rannsókn stendur enn yfir. -sv Ók niður Ijósastaur Einn ljósastaur á Keflavíkurflug- velli sinnir hlutverki sínu ekki í bráð eftir að hann var ekinn niður í nótt. Ökumaður bifreiðar missti stjóm á . ^bíl sínum í hálkunni með fyrrgreind- um afleiðingum. Bíllinn var óökufær eftir og staurinn ljóslaus. -sv Fyrirhugaö álver Colombia á Grundartanga: Raforkuverðið verður hlutfall af álverði - eins og hjá álverinu í Straumsvík Samkvæmt upplýsingum sem DV hefur fengið verður raforku- verð til álvers Colombia á Gnmd- artanga ákveðið hlutfall af álverði hveiju sinni. Heimildarmenn DV segja að það verði ekki minna en 2-3 mills yfír kostnaðarverði sem þykir mjög gott. Þeir segja jafhframt að þegar allt kemur til alls verði raforku- verðiö til Colombia það sama og álverið í Straumsvík greiðir. Raforkuverð þess er hlutfall af álverði á heimsmarkaði og er nú 18 til 20 mills. Um leið og heims- markaðsverð á áli lækkar þá lækk- ar raforkuverðið. Raforkuverð til Jámblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga er mun lægra en til álversins í Straumsvík. Það er að vísu tengt heimsmarkaðsverði á járnblendi en hlutfallið er lægra. Þannig greiðir Jámblendiverksmiðjan ekki nema 12 til 14 mills fyrir raf- magnið. Þetta kemur til af því að samið hefur verið um að það megi draga úr straumi til Jámblendiverk- smiöjunnar ef þörf krefur á mestu álagspunktiun hjá Landsvirkjun. Það er aftur á móti ekki leyfilegt samkvæmt samningum við álverið í Straumsvík og verður heldur ekki leyfilegt hjá fyrirhuguðu ál- veri á Grundartanga. -S.dór í dag er öskudagur og veröur eflaust mikiö um aö vera hjá yngri kynslóöinni. Venjan er aö börn og unglingar klæöi sig í grímubúninga og mörg hver ganga á milli húsa og sníkja sælgæti. Myndin er tekin á grímuballi í Snælandsskóla í gær þar sem var mikið fjör. DV-mynd BG 1» L O K I Veðriö á morgun: Allhvasst austanlands Á morgun er reiknað með aust- an stinningskalda eða allhvössu með snjókomu austanlands en slyddu eða snjókomu um landið sunnan- og suðvestanvert. Heldur hlýnar. Á Vestfjörðum og Norð- urlandi verður að mestu úrkomu- laust. Veðrið í dag er á bls. 60 Ferðamálaráð: Borðar hval en vill ekki veiða „Hótel Saga bað um hvalkjöt vegna Ferðamálaráðs og ég bjargaði því. Þeir fengu hjá mér 4 kíló af lan- greyði,“ segir Úlfar Eysteinsson, matreiðslumeistari á Þremur Frökkum, um hvalkjöt sem hann út- vegaði vegna veislu Ferðamálaráðs á Hótel Sögu í gærkvöld. Það þykir skjóta nokkuð skökku við að Ferðamálaráð skuli leggja sér til munns hvalkjöt i því ljósi að á mánudag samþykkti ráðið ályktun þar sem þeir telja ótímabært að hefja hvalveiðar á ný og slíkt geti skaðað ferðaþjónustu. Magnús Oddsson ferðamálastjóri vildi sem minnst um þetta mál segja í morgun. „Ég kannast ekki við að hafa á nokkum hátt borðað hvalkjöt lengi. Það er langt síðan ég hef gert það,“ sagði Magnús og vildi ekki ræða málið frekar. -rt Bílvelta á Ólafsfjarðarvegi DV, Dalvík: í gær lenti fólksbíll út fyrir veg og valt á Hámundarstaðahálsi skammt frá Dalvík. Ökumaður kvaðst hafa lent í snjódrift á veginum og misst stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Tveir voru í bílnum, ökumaður sem kvartaði um eymsli í hálsi og hlaut smávægilega áverka, og farþegi er slapp ómeidd- ur. Bifreiðin er mikið skemmd, bæði á hliðum og framenda. -hiá Hættuleg grýlukerti Víða á húsum má sjá stór og mikil grýlukerti hanga niður eftir veggjum húsa og samkvæmt lögreglu-sam- þykkt ber húseigendum að sjá til þess að ekki skapist hætta vegna þeirra og snjóhengja af þökum. Lögreglan í Reykjavík vill minna á þessa hættu og hvetja eigendur til að huga að þessum málum. Ekki er nefnilega ólíklegt að þeir væru ábyrgir ef eitthvert óhapp hlytist af vegna þessa. -sv Eldur I trillu Eldur kviknaði í trillunni Lilju VE 7 í höfninni í Vestmannaeyjum um klukkan 10 í gærkvöld. Eigandi trillunnar hafði kveikt upp í kab- yssu um borð og síðan farið eitt- hvað frá. Annar maður kom að nokkru síðar og þá höfðu orðið ein- hverjar skemmdir vegna eldsins. Vandræðalaust gekk að slökkva en skemmdimar höfðu ekki verið metnar til fulls í morgun. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.