Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Side 17
JJP"V LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997
17
%yiðsljós
Skemmtiþáttur Jay Leno á sjónvarpsstöðinni NBC nýtur vaxandi vinsælda:
Farinnaðylja
Letterman
undir uggum
- kom áður m.a. fram sem grínisti í þáttum Lettermans
ævisögu sína og síðast en ekki síst verið með skemmti-
og spjallþætti. Fyrst var hann með sinn eigin þátt, The
Jay Leno Show, og árið 1992 fékk hann að taka við hin-
um víðfrægu þáttum Johnny Carsons, Tonight Show.
Reyndar vann Leno um hríð með Carson í þáttunum
hans. En það var Letterman sem vildi stól Carsons,
Leno var bara á undan. Þess má til gamans geta að
Leno var oft tíður gestur sem grínisti í þáttum Letter-
mans á árum áður.
Helmingi lægri laun en Letterman
Jay Leno er ekki sagður fégráðugur, enda hefur hann
nærri helmingi lægri laim en Letterman. Hann er
stöðugt að. Vinnudagur hans er langur, allt upp í 18
tíma, og hefur aldrei tekið frí að ráði. Ef hann fái launa-
hækkun vilji hann frekar skipta þeim út til samstarfs-
manna sinna. Um tíma leit út sem forráðamenn NBC
ætluðu að reka Leno en hann sýndi mikla þolinmæði í
samkeppninni við Dave Letterman og hafði sigur að
lokum, a.m.k. í bili. Einstaka þættir hans hafa náð
metáhorfi, t.d. þegar hann fékk Hugh Grant til að koma
og lýsa kynlífsskandal sínum með vændiskonunni
Divine Brown. Það viðtal vakti heimsathygli.
Hinn smámælti Jay Leno er með skemmtiþætti sín-
um á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC, Tonight
Show, farinn að ylja konungi spjallþáttanna, David
Letterman, verulega undir uggum. Leno, eða Mr. Nice
Guy, eins og hann er kallaður í Bandaríkjunum, hefur
í mörgum könnunum náð meira áhorfi en Letterman og
stjömumar í Hollywood em famar að halla sér frekar
að Leno en Letterman. Talið er að á hverju kvöldi horfi
um 5 milljónir Bandaríkjamanna á Leno á meðan 4
milljónir horfa á Letterman. Þeir sem hafa Fjölvarpið
ná NBC hér á íslandi.
Lesblinda leiddi hann út í
skemmtanaiðnaðinn
Jay Leno er fæddur í New Rochelle í New York fylki
áriö 1950. Móðir hans er skosk, faðirinn ítalskur. Réttu
nafni heitir hann James Leno. Sagt er að leshlinda hafi
leitt hann út i skemmtanaiðnaðinn og fljótlega fór hann
að vinna fyrir sér sem grínisti i næturklúbbum. Hann
hefur leikið í nokkrum kvikmyndum, sú þekktasta er
sennilega American Hot Wax sem gerð var árið 1978,
komið fram í sjónvarpi, leikið í auglýsingum, skrifað
Jay Leno er mikill aödáandi Presleys og er ekki svo ólíkur honum á þessari
mynd.
Parasetamó
Verkjastillandi og hitalækkandi lyf
• •••
Fjölbreytt Ivfjaform parasetamóls fyrir atla atdurshópa.
Notkunarsvið:
Parasetamól er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Það er notað
við höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum o.fl. Einnig við sótthita af
völdum inflúensu og annarra umgangspesta, t.d. kvefs.
Varúðarregtur:
Fólk, sem hefur ofnæmi fyrir parasetamóli eða er með lifrar-
sjúkdóma, má ekki nota lyfið. Nýrna- og lifrarsjúklingum er bent
á að ráðfæra sig við lækni, áður en þeir taka lyfið. Of stór
skammtur af lyfinu getur valdið lifrarbólgu.
Aukaverkanir:
Parasetamól veldur sjaldan aukaverkunum og þolist yfirleitt vel í
maga. Langvarandi notkun lyfsins getur valdið nýrnaskemmdum.
Skömmtun:
Nákvæmar leiðbeiningar um skömmtun fylgja lyfjunum. Ekki má
taka stærri skammta en mælt er með.
Lesið vandlega leiðbeiningar, sem fylgja lyfinu.
Töflur
Munnlausnartöflur Dropar Mixtúra
Stílar