Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Síða 18
w
k
18
• •
gur í lífi
LAUGARDAGUR 15. JANUAR 1997
Dagur í lífi Gísla Rúnars Jónssonar, þáttastjórnanda á Stöð 2 og leikara:
upp með brjóst í hlustunum
Gísli Rúnar Jónsson i undirbúningi fyrir Gott kvöld. DV-mynd Hilmar Þór
„Ég vakna með herðakistilinn á
Kvasímódó uppi í annarri nösinni.
Ágæt tilbreyting út af fyrir sig; í
gærmorgun hrökk ég upp með
bæði bijóst indjánastúlkunnar
Pókahontas í hlustunum.
Sonur minn þriggja ára sefur á
milli pabba og mömmu ásamt fræg-
um ævintýra- & skáldsagnapersón-
um. Dvergamir sjö og galdranom-
in em sérlega skæð vegna smæðar:
hver fígúra u.þ.b. einn og háifur,
sinnum tveir sentímetrar í þver-
mál og eiga þær til að sópast upp í
göt og rifur ef maður gætir ekki að
sér. Einn morguninn rauk ég t.d. í
dauðans ofboði til læknis eftir að
hafa þjáðst alla nóttina af óþægind-
um undir handlegg, sannfærður
um að ég væri með illkynja æxli.
Eftir stutta skoðun fann læknirinn
eina Mjallhvlti og tvo dverga, ræki-
lega skorðaða undir handarkrikan-
um á mér.
Níðþungur
í morgunsárið
Hjartkær yngri sonur minn er
árrisull, sem er afbragð því ég er
níðþungur í morgunsárið. Það helg-
ast af því að ég er nátthrafn og flýg
stjómlausu hugmyndaflugi i hund-
rað þúsund fetum fram eftir allri
nóttu. Það breytir því hins vegar
ekki að ég er nauðbeygður til að
fara á fætur, gera á mér morgun-
verkin og moka bifreiðina út úr
skaflinum því drengurinn minnir
mig í sífellu á að það sé „Gott
kvöld“ í kvöld, sem þýðir: tækni-
fundur, æfingar og undirbúningur
í Saga-Film, fyrir beina útsendingu
í kvöld. En það er svo auðvitað allt
annar handleggur.
Aðalstuðið er þegar þeir gista
báðir, jafnaldramir, dóttursonur
minn þriggja ára og móðurbróðir
hans, sonur minn. Þeir komast upp
með aö taka seint á sig náðir pilt-
amir því dagurinn hefur verið
annasamur hjá þeim. Þeir hafa
m.a. kannað áhrif tómatsósu og
Gunnars-majóness á silkilampa-
skerma, aukheldur sem þeir hafa
gert tilraunir með hversu vel park-
etið í stofunni þolir súrmjólk og
þeir hafa komist að þeirri niður-
stöðu að súrmjólk hrin nánast ekk-
ert á venjulegu eikarparketi í sam-
anburði við t.d. rauðan matarlit.
Berserksgangur
bak við válarnar
Söngkonan sem kemur fram í
lok þáttarins er í hljóðprufu með
Sniglabandinu inni á sviði Leik-
hússins við Sundin blá. Sminkan
okkar er ekki boðuð fyrr en eftir
tæpa klukkustund svo ég gríp tæk-
ifærið og bregð mér í sturtu. Ég
renni augum yfir handritið um leið
og ég raka mig og freista þess að
stytta. Stytta, skera, sníða af. Þátt-
urinn er of langur. Ég loka augun-
um fyrir því. Sannleikurinn er sá
að í beinni útsendingu finnst mér
ég tæpast búinn að bjóða fyrsta við-
mælanda mínum sæti, þegar Eyþór
sviðsstjóri tekur að ganga berserks-
gang bak við tökuvélamar með
spjöld á lofti með þeim skilaboðum
frá upptökustjóra að viðtalinu sé
lokið, sem þýðir m.ö.o. að ég á að
vísa í auglýsingar sem allra fyrst.
Auglýsingahléið er stutt en að-
standendur brúka tækifærið og
skjóta á skyndiráðstefnu í leik-
myndinni. Áhorfendur í leikhúsinu
sperra eyrun. Samkvæmt ömá-
kvæmri útsendingaráætlun erum
við komin allnokkuð fram yfir fyr-
irhugaðan tíma. „Þú ættir að vera
byrjaður að ræða við gest númer
tvö,“ segir Ella Sveins upptöku-
stjóri og stelst til að fá sér smók.
„En ég var varla búinn að taka í
höndina á gesti númer eitt þegar ég
fékk skilaboð um að reka hann aft-
ur út,“ segi ég og halla mér aftur á
bak í stólnum svo Hanna Mæja geti
púðrað óæskilega endurspeglun af
nefinu á mér og undirhökunni.
„Það er þér sjálfum í rass rekið að
hafa þáttinn svona drekkhlaðin,"
segir Randver leikstjóri og ekki er
laust við að gæti smá meinfýsni í
raddblænum. Eða kannski er hann
- bara svona kvefaður. Þau skötuhjú
þykjast sérlega úrræðagóð og era
með styttingartillögur á hraðbergi.
Ella leggur til að ég sleppi öllmn
„pósti“ í þessum þætti. Ég legg til
að hún sleppi öllum reykingum það
sem eftir er ævinnar. Hún lætur
það sem vind um eyrun þjóta.
Keyrður ofan í stólinn
Nú eru tuttugu sekúndur eftir af
auglýsingarhléi. „Allt i lagi, allt í
lagi, ég geng að öllum þessum þétt-
ingartillögum," segi ég æðruleysið
uppmálað, „bara ef þið látið mig í
friði eitt andartak, því ég má til að
segja fáein orð við Pálma hljóm-
sveitarstjóra.“ Lengra kemst ég
ekki því ég er keyrður ofan í rán-
dýran skrifborðsstólinn minn eins
og óknyttastrákur af Eyþóri sviðs-
stjóra um leið og hann otar ógn-
andi framan i mig öllum sínum tíu,
skagfirsku fingrum, sem þýðir á
sjónvarps-táknmáli að það séu að-
eins tíu sekúndur þangað til við
fórum í „loftið" (eins ^g það heitir
á sjónvarps-talmáli). Ég set mig í
stellingar og freista þess að þurrka
út af innbyggða minninu þau atriði
sem eiga að falla niður um leið og
ég reyni að koma skikk á atriðaröð-
ina í huganum. „Gott kvöld og vel-
komin aftur ..." - og svo framvegis.
„Desjavu" dembist yfir
Eftir útsendingu sitjum við inni í
búningsherbergi og ræðum það
sem miður fór. Við emm staðráðin
í að gera betur næst. Yfir mig
dembist kunnugleg tilfinning, eins
konar „desjavu", þegar ég átta mig
á þvl að flest það sem mér var ráð-
lagt að nema brott úr dagskrá þátt-
arins í kvöld, verður efnislega í
fullu gildi að viku liðinni. Skrítið -
ég geng í gegnum þetta um hverja
einustu helgi. Ofhleðslutilhneiging
og ótti við að verða uppiskroppa er
böl okkar sem haldin erum
áráttukend og ölum fikil í brjósti.
Sonur minn bíður heima. Hann
er búinn að hreiðra um sig upp í
Disneylandi (hjónarúminu okkar).
Á koddanum mínum sifja Batmann
og Viddi úr Toystory hálfslæptir og
Mikki Mús er skammt undan. Á
því svæði Disneylands sem ég er
vanur að hvíla dauðþreytta hand-
leggi mína og axlir hefur vandlega
verið raðað sjö, öreindasmáum
leikfangadvergum, ásamt Mjall-
hvíti (hver figúra u.þ.b. einn og
hálfur, sinnum tveir sentímetrar í
þvermál) og það vekur með mér ill-
an gmn að nornin skuli hvergi
vera sjáanleg. Ég fæ aftur
„desjuvu“ en að þessu sinni er það
ekki í tengslum við of langan og
drekkhlaðinn sjónvarpsþátt, heldur
snúast afturhvörfin um læknis-
skoöun og banvænt æxli 1 handar-
krika. Ég breiði upp fyrir haus,
klemmi handleggina niður með síð-
mn og reyni að sofna.“
Finnur þú fimm breytingar? 398
Lemdu mig bara, pabbi, og losaöu þig viö árásargirnina og höftin.
Þetta auöveldar þér aö fá þaö út úr kerfinu.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð
nítugustu og sjöttu getraun reyndust vera:
Thelma Theodórsdóttir Alexander Heiðarsson
Vatnsholti 5A Hátúni 11
230 Keflavík 230 Keflavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Aö tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi að
verðmæti kr. 3950, frá Bræðmnum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1790 - Ógnarást eftir Lindu Randall
Wisdon og Sinnaskipti eftir Lyndu
Kay Carpenter.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fhnm breytingar? 398
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík