Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Qupperneq 25
O’V'' LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997
útlönd 25
- þrátt fyrir hættu á verri lífskjörum
Grænland vill losna úr ríkjasam-
bandinu við Danmörku. 25 árum eft-
ir að Grænland fékk rétt til heima-
stjómar krefjast nú áhrifamiklir
stjómmálamenn, stéttarfélög og
ýmsar hreyfingar fullkomins sjálf-
stæðis. Takmarkið er að Grænland
verði orðið stjómmálalega og efna-
hagslega sjálfstætt eftir 15 ár.
Þegar hafa verið myndaðar ýms-
ar sjálfstæðishreyfingar í mörgum
hæjum. Það eru ekki síst afhjúpan-
imar um leynimakk bandariskra og
danskra yfirvalda um geymslu
kjamorkuvopna í Thuleherstöðinni
á Grænlandi sem hafa ýtt undir
sjálfstæðiskröfuna.
Viðhorf ungra menntaðra Græn-
lendinga eiga einnig sinn þátt. Þeir
em þreyttir á að búa i landi sem
danskir embættismenn stýra og
stjóma.
Danir skipaðir
í nýjar stöður
„Danir hafa enn tilhneigingu til
að skipa Dani í nýjar stöður. Það er
erfitt fyrir okkur að sætta okkur við
að óreyndur danskur þjóðhagfræð-
ingur sé skipaður til að hafa yfirum-
sjón með löggjöf um selveiðar.
Sennilegast er að maðurinn hafi
aldrei séð sel,“ segir Jorgen Wæver
Johansen, ritari landsstjórnar-
flokksins Siumut.
Verkalýðsfélagið SIK, sem um
fjórðungur Grænlendinga á vinnu-
markaðnum tilheyrir, beitir sér ák-
aft í baráttunni fyrir sjálfstæði
Grænlands. „Það er þörf á meiri
ábyrgðartilfinningu hjá þjóðinni.
Hún kemur ekki fyrir alvöm fyrr
en við verðum sjálfstæð. Núna er
alltof auðvelt að skella skuldinni á
Dani þegar eitthvað fer úrskeiðis og
atvinnuleysið eykst,“ segir formað-
ur SIK, Jess G. Berthelsen.
Framtíð Grænlands og sjálfstæöi er háð því hvort unga kynslóðin vill mennta sig svo hún geti sjálf stjórnað land-
inu. Núna hafa aðeins 165 Grænlendingar háskólamenntun. DV-mynd
E.J.
Draumur um
ekki fast ríkisframlag. Ég held að
við náum meiri árangri ef við ger-
um fleiri kröfur til okkar sjálfra
heldur en til annarra."
í því sambandi nefnir Johansen
atriði eins og vinnumóral, hæflleik-
ann til að gagnrýna hver annan,
uppbyggjandi hugsunarhátt og af-
stöðuna til hass og áfengis sem er
stöðugt viðkvæmt mál á Grænlandi,
jafhvel þó að snarlega hafi dregið úr
áfengisneyslu.
Sjálfstæðiskrafan var sett fram af
gamla sjálfstæðisflokknum IA í
kosningunum fyrir tveimur ámm.
Siðan hefur almenningur helgað sig
málinu. Myndaðar hafa verið sjálf-
stæðishreyfingar í mörgum bæjum
á vesturströndinni.
Sjálfstæðisnámskeið
í kvöldskóla
í kvöldskóla í næststærsta bæ
landsins, Sisimiut, fara fram kerfis-
Erlent fréttaljós
á laugardegi
bundnari umræður um möguleik-
ana á sjálfstæði. Og hjá SIK er búist
við að sjálfstæði verði mikilvægt
umræðuefni á haustfundi félagsins.
Formaður SIK segir að Grænlend-
inga skorti metnað og sjálfsvirð-
ingu. Það þurfi að skapa stemningu
þannig að hver einasti Grænlend-
ingur viti að hann sé ómissandi.
Sjálfstæði komi ekki af engu. „Við
þurfum að vera knúin áfram af
innri þörf og við þurfum að vera
reiðubúin að afsala okkur einhverju
gegn því að fá stolt okkcir og sjálfs-
virðingu aftur,“ segir Jess G.
Berthelsen.
Eins og í
lotteríi
Daniel Skifte, formaður
Atassutflokksins, sem er borgara-
legur flokkur, segir að það sé
draumurinn um olíu og gull sem ýti
undir sjálfstæðisumræðuna. Sagt er
að það sé eins og að taka þátt í lott-
eríi að búa á Grænlandi núna. Heil
þjóð á möguleika á að finna gull eða
olíu og fá þar með stóra vinninginn.
Samtímis er bent á að það þurfi
meira en lotterívinning til þess að
skapa sjálfstæða þjóð i harðbýlu
landi eins og Grænlandi.
Mikilvægt þykir að landið sjálft
útvegi meirihluta þess vinnuafls
sem nauðsynlegt er til að reka ný-
tísku hátæknisamfélag.
Fájr hámenntaðir
Árið 1995 höfðu aðeins 165 af 50
þúsund Grænlendingum stundað
nám á háskólastigi. Aðeins 100
þeirra starfa á Grænlandi. Af 7000
stöðugildum innan heilbrigðisþjón-
ustunnar, stjómsýslunnar, mennta-
kerfisins, samgangna og tæknimála
eru Danir í um 2000.
Oft þykja hámenntaðir, háttsettir
og háttlaunaðir Danir, sem margir
dvelja bara örfá ár á Grænlandi,
beinlmis ögrun.
Engin þjóðarhreinsun
Formaður landsstjórnarinnar,
Lars Emil Johansen, leggur áherslu
á að sjálfstæði sé ekki það sama og
þjóðarhreinsun. „Það er eðlilegt að
við reynum að leysa fleiri verkefni
sjálf. En menn mega ekki vona að
þörfin á innfluttu vinnuafli hverfi
því þá stöðnum við. Það væri mjög
slæmt.“
Hann segir það reyndar eölilegt
að unga fólkið vilji breytingar og að
þeir gömlu hvetji til varkámi. „Við
hugum allt of oft að framtíöinni
með gleraugum nútímans. En við
höfum góðan tíma til að skipu-
leggja. Þetta er engin mótmæla-
hreyfing gegn Danmörku eða þeim
Dönum sem búa hér í landinu. Þetta
er eðlileg þróun," telur formaður
landsstjómarinnar.
Byggt á Politiken
olíumilljarða
Hann tekur það fram að Græn-
lendingar eigi ekki að vera háðir
föstu ríkisframlagi frá Dönum. „En
sjálfstæði á samt ekki aö byggja á
drauminum um olíumilljarða. Það
þarf að aðlaga landið að þeim auð-
lindum sem við höfum."
Formaður landsstjórnarinnar,
Lars Emil Johansen, kannast við
þann áhuga sem speglast í sjálfstæð-
isumræðunni í dag. Það er sami
áhugi og hann fann sjálfur fyrir þeg-
ar heimastjómarlögin gengu í gildi.
Núna er Johansen varkárari.
„Sjálfstæði er eðlilegt takmark
þeirrar þróunar sem á sér stað á
Grænlandi núna. Við eigum að þróa
sjálfstæðið þannig að við fáum
ábyrgð á öllum sviðum, ekki síst í
utanríkismálum. En ég vil ekki
setja jafnaðarmerki á milli sjálf-
stæðis og þess að segja sig úr sam-
bandi við Danmörku. Það eru of
mörg bönd milli Grænlands og Dan-
merkur til þess,“ segir Johansen.
Með fæturna
a jorðinm
Hann bendir á að náttúruauð-
lindirnar takmarki möguleikana.
„Við verðum þrátt fyrir allt að vera
með fætuma á jörðinni. Hver í
ósköpunum vill berjast fyrir því að
lífskjörin versni um 20 prósent? Út-
koman gæti orðið sú ef við fáum
GoldStar
símabúnaður
GoldStar GT-9500
Þráðlaus sími fyrir heimili og fyrirtæki, með innbyggt
símtæki í móðurstöð og innanhússtalkerfi milli allt að
þriggja þráðlausra síma og móðurstöðvar. /
Grunnpakki:
Móðurstöð með einum þráðlausum síma og öllum fylgihlutum.
4 Verð kr. 24.490.- stgr.
Auka þráðlaus sími:
Þráðlaus sími með fylgihlutum.
GoldStar
GS-635
Símtæki með hátalara og endur-
vali.
Sérstaklega falleg hönnun.
Litir Rauðun grænn og Ijós grár
Síðumúla 37 »108 Reykjavík
Sími 588 2800 • Fax 568 7447
$ Verð kr. 3.900.- stgr.
Endursöluaðilar: Eyjaradíó-Vestmannaeyjum, Metró- Akureyri.Tölvuvaeðing- Keflavík,
Hátiðni- Höfn, Snerpa- ísafirði, Versl. Hegri- Sauðárkróki ogTölvuþjónusta Húsavíkur.