Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Side 29
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997
28 %}lgamðtalið
+
tjfelgarviðtalið
37
Össur Skarphéðinsson, þingmaður jafnaðarmanna og ritstjóri Aiþýðublaðsins, og Árný Erla Sveinbjörnsdóttir jarðfræðingur eiga von á öðru ættleiddu barni:
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur jafnaðarmanna og nýráðinn rit-
stjóri Alþýðublaðsins, og kona hans,
Árný Erla Sveinbjömsdóttir jarð-
fræðingur, eiga von á öðru ættleiddu
barni og biða bara eftir svari frá ætt-
leiðingarstofnun í Bogota í Kól-
umbíu. Þau gera sér vonir um að fá
annað barn á þessu ári eða í byrjun
þess næsta, „ef Guð lofar“, eins og
Össur orðaði það þegar hann tók á
móti blaðamanni og ljósmyndara á
heimili þeirra Ámýjar á Vesturgöt-
unni í vikunni.
Birta tók líka á móti okkur, hress
og kát, en sem kunnugt er ættleiddu
þau hana frá Kólumbíu fyrir
rúmum tveimur
árum. Össur og Árný
komu til íslands með
hana rétt fyrir jólin
1994, þá aðeins sex
vikna gamla. Birta fagn-
ar 3 ára afmæli sínu
næsta haust. Birta hefur
svo sannarlega fært hirtu í
líf þeirra hjóna, sem höfðu
reynt bameignir í 20 ár eftir
ýmsum leiðum, eða eins og
Össur segir:
„Þetta litla kríli er náttúrlega
algjör sólargeisli og breytti öllu,
ekki síst fyrir harðvítugan stjóm-
málamann sem skyndilega sér að
lífið snýst um allt annað en að
standa á þingi og rífa kjaft."
Á síðasta snúningi
Össur og Árný hafa gengið frá
flestum þeim skjölum sem þarf til að
sækja um ættleiðingu í Kólumbíu en
hann bendir á að þau séu á „síðasta
snúningi" vegna aldurs. Bæði 43 ára
gömul og reglur stofnunarinnar í
Kólumbíu segja að láta böm helst
ekki til fólks mikið yfír fertugu.
„Við höfum verið að senda stofn-
uninni skjöl og m.a. yfirlýsingar um
að við ölum Birtu upp í kristilegum
anda. Það gerir það að verkum að ég
fer annan hvem sunnudag i messu
hjá sr. Cecil í Fríkirkjunni. Þar er
troðfullt af krökkum og mikið fjör,“
segir Össur og hefur greinilega yndi
af pabbahlutverkinu, glaðbeittur og
12 kílóum léttari frá því Birta kom
inn á heimili þeirra Árnýjar.
Vilja frekar stelpu
Þegar þau fengu Birtu höfðu þau
óskað eftir að fá stelpu - og fengu.
Nú hafa þau einnig óskað eftir
stelpu og Össur útskýrir af hverju:
Daginn eftir fóru Össur og Árný í
bandaríska sendiráðið í Bogota , en
þar höfðu þau mætt lítilli kurteisi
daginn áður. Það var bókstaflega allt
á hvolfi því um nóttina hafði
sprengju verið varpað á sendiráðið.
Vatnselgur var mikill eftir slökkvi-
starf og gengu þau vatn i skóvörp
um ganga sendiráðsins.
„Þetta var svona hjá breska aðlin-
um. Þeir létu eins og ekkert hefði í
skorist. Tóku okkur opnum örmum
og sýndu allt annað viðmót. Buðu
okkur að setjast og gáfu okkur kaffi.
Á meðan vall vatnsstraumur eftir
gólfinu og menn út um allt með
vatnssugur og tæki til að rannsaka
verksummerki sprengingarinnar.
Þetta var eins og í „absúrd" leikhúsi,
líkt og atriði klippt út úr kvikmynd.
En þetta gekk upp, Birta fékk vega-
bréfsáritun og við náðum flugi í
tæka tíð til Bandaríkjanna," segir
Eins og klippt út úr kvik-
mynd
til Kól-
3^°' ’ umbíu fór út ár ið
1990 og ári síðar héldu
þau að málið væri í höfn. En
annað kom á daginn.
Suður-amerísk flækja
„Við vorum búin að skrifa nokkur
bréf og senda til að fá upplýsingar
um hvemig mál okkar gengi. Síðan
kom upp dæmigerð suður- amerísk
flækja. Þeir skrifuðu okkur og báðu
okkur að vera ekki alltaf að skrifa,
það flækti málið. Við hættum að
skrifa og bara biðum. Svo var ég á
ráðstefnu í Karabíska hafinu með
Castro sem fulltrúi ráðherra frá
Norðurlöndum þegar að ég skaust
yfir til Kólumbíu. Fór í stofnunina í
Bogota og forvitnaðist. Þar fannst
mönnum skrítið að ekkert hefði
gerst, ættleiðing ætti ekki að taka
meira en tvö ár. Þeir fóru að skoða
plögg og sögðu: „Því miður, við héld-
um að þið væruð hætt við. Þið hætt-
„Ámý
hringdi í mig og
sagði að við værum búin
að fá litla stúlku með brúnt hár og
brún augu. Annað sögðu þeir henni
ekki. Ég man þetta svo vel því þetta
hafði verið mæðudagur í pólitíkinni,
dagurinn sem einn af ráðherram Al-
þýðuflokksins hrökk fyrir borö.“
Davíð sent fax
um miðja nútt
En það gekk ekki þrautalaust fyr-
ir Össur og Ámý að fara með Birtu
út úr landi. Þau voru stöðvuð á leið
sinni frá Bogota til Bandaríkjanna
þar sem Birta var vegabréfslaus.
„Hún var áfram kólumbískur rík-
isborgari þótt við vorum búin að
ættleiða hana fyrir framan þarlend-
um dómstólum í fjórar vikur.
Hversu smáir sem kólumbískir rik-
isborgarar em þá fá þeir ekki auð-
veldlega að fara í gegnum Bandarík-
in vegna eiturlyfjasmygls og þess
háttar. Þetta stefndi í óefni því við
vorum að falla á tima. Við urðum að
fá atbeiná Davíðs Oddssonar, og
bcmdaríska sendiherrans á íslandi
til að komast úr landinu. Þeir settu
allt í gang. Ég sendi Davið fax, hann
hringdi í Parker Borg sendiherra
um miðja nótt og hann kippti þessu
í lag,“ segir Össur.
„Fyrst vildum við stelpu kannski
út af því að ég hafði vantrú á sjálfum
mér sem uppalanda. Ég ímyndaði
mér að ef við fengjum stelpu þá
myndi hún og mamma hennar ná
góðu sambandi. Þá vissi ég ekki, sem
mér hefur síðar verið sagt, að stúlk-
ur hænist meira að feðrum sínum.
Þetta hefur gengið mjög vel og við
viljum frekar að Birta fái systur."
Áður en Birta kom í lok árs 1994
höfðu þau hjónin reynt ætt-
leiðingu í tíu ár.
Fyrsta bréf-
ið
uð að skrifa okkur.“ Þetta gæti verið
úr sögu eftir Gabriel Garcia Marqu-
ez. Ringulreið í skriffinnsku er al-
gjör þarna,“ segir Össur en tekur
fram að ekkert hafi verið við sjálfa
stofnunina að athuga. Enda hefur
stofnunin 70 ára reynslu af því að
koma börnum í fóstur víða um heim.
Össurri er
minnisstæður
dagurinn þegar
þau fengu
hringingu frá
Kólumbíu og
tilkynnt að
búið væri
að finna
bam
handa
þeim.
Mæðgurnar skemmta sér konunglega yfir lestri einnar af uppáhaldsbókum Össur.
Birtu. Hann segir það skemmtilega við
ættleiðinguna að fjöldi fólks hafi síð-
an haft samband við þau og leitað
ráða. Fólk sem hafi m.a. viljað leita
til Kólumbíu eftir barni eða til ann-
arra landa. Enn sé haft samband
vegna þessa. Enda lét Össur til sin
taka á þingi í málefnum fólks sem
var að ættleiða böm. Markmiðið var
að jafna stöðu foreldra ættleiddra
barna og þeirra sem fæddust eðli-
lega. Össur segir þessi mál hafa
mætt góðum skilningi á þingi og
fékkst frumvarp stjórnarandstæð-
ings samþykkt, aldrei þessu vant!
Meðal þess sem fékkst í gegn var að
fæðingarorlof er veitt jafnt vegna
ættleiddra barna sem annarra.
TryggingalöggjöFinni var sömuleiðis
breytt.
Barnleysi er tabú
Aðspurðm’ hvort það hafi skipt
máli að breytingar náðu í gegn þar
sem það var fyrrum ráðherrann
Össur sem hafði ættleitt barn telur
hann það vafalaust. Hann hafi
mætt ákveðinni velvild fyrrum
samstarfsmanna sinna úr Sjálf-
stæðisflokknum. Hann segir að árið
eftir að Birta kom hafi umsóknum
um ættleiðingar á íslandi fjölgað
verulega.
„Ég tel að sú mikla athygli sem
hin ættleidda ráðherradóttir fékk
hafi leyst vissa höfn á þessu máli
vegna þess að bamleysi er tabú.
Menn tala ekki um barnleysi. Við
höfðum verið gift í 20 ár og
allir vinir okkur með börn.
Fljótlega hættu menn að
spyrja hvort ekki væri bam
á leiðinni hjá okkur. En mér
finnst mikilvægt að menn
geri sér grein fyrir að ætt-
leiðing er ákveðinn valkost-
ur, alveg eins og glasafrjóvg-
un. Við vorum búin að
reyna tvisvar glasafrjóvg-
rm. Þegar það var að
klikka var mikill
styrkur að vita að
ættleiðing var
möguleg," segir
Össur og Ámý
bendir á að þau
hafi ekki talað við
neinn um umsókn
þeirra til Kól-
umbíu. Enginn
hafi frétt af
þessu fyrr en
Birta var feng-
in.
Þegar þau
fengu Birtu
voru þau ekki
búin að
ákveða að fá
annað barn.
Sú ákvörðun
var tekin fyrir
um ári síðan,
að sögn Össur-
ar. Þá hafi þau
gert sér endan-
lega grein fyrir
hve vel hefði
tekist til með
Birtu.
henni því hún er mikið fyrir hefð-
bundnar íslenskar landbúnaðaraf-
urðir, borðar gríðarlega mikið af
kjöti,“ segir Össur og gerir hlé á tali
sínu á meðan Birta réttir honum
skál af súkkulaði!
Brosað frá fyrstu stundu
„Þegar við tókum hana fyrst í
fangið brosti hún og hefur eiginlega
haldið því áfram síðan. Ég hugsaði
auðvitað með mér að þetta væri ein-
stök lukka og áttum við að freista
gæfunnar aftur? Niðurstaðan varð
sú, bæði vildi Árný það kannski
meira en ég og það er betra fyrir
Birtu að eiga systkini. Við ákváðum
þetta ekki síst hennar vegna,“ segir
Össur.
Eins og áður segir er hann 12
kílóum léttari. Hefur ræktað sjálfan
sig og stærir sig m.a. af því að hafa
einu sinni hlaupið í kringum
Reykjavikurkjördæmið. Geri aðrir
þingmenn betur! Össur lofar þó
ekki því að léttast um önnur 12 kíló
þegar næsta bam kemur enda seg-
ist Árný vera afskaplega ánægð
með bónda sinn eins og hann er í
dag.
Otrúleg tilviljun
Og varðandi nafnið þá uppgötv-
uðu Össur og Ámý eftir á, þegar
bamið var fengið og þau búin að
skíra
Fram-
sokn-
arslag-
síða!
„Arný hringdi í mig og
ekki,“ segir Össur um
Erlu.
„Hún er vel
heppnuð, fljót
til og afskap-
lega skýr og
greind að upplagi. Mér finnst hún
ofsalega geðgóð, heilsuhraust og
alltaf kát. Reyndar er hún athyglis-
fíkin likt og ég er stundum en ekki
get ég fullyrt strax hvort hún er jafn-
aðarmaður. Það hefur komið fram
ákveðin framsóknarslagsíða hjá
sagöi aö viö værum búin aö fá litla stúlku með brúnt hár og brún augu. Annað sögöu þeir henni
daginn sem þeim var tilkynnt aö þau heföu fengiö Birtu sem hér er í fangi móöur sinnar, Árnýjar
DV-myndir GVA
En aðspurð um nafnið Birta segir
Ámý að það hafi einfaldlega verið
valið sökum þess hve það væri fal-
legt. Það hefði verið vel viðeigandi
þar sem hún birti upp þeirra líf.
Nafnið var valið þegar þau voru
komin út til Bogota.
það, að lífmóðir hennar héti Blanca
sem á íslensku þýðir nánast það
sama og Birta. Hreint ótrúleg tilvilj-
un! Fóstrur hennar á munaðarleys-
ingjahælinu skírðu hana Marsilíu og
fullu nafni heitir hún Birta Marsilía.
Um uppruna Birtu segjast þau
ekki vita mikið. I framtíðinni ætla
þau að rækta tengsl við Kólumbíu
þannig að Birta viti vel hvaðan hún
kemur. Þannig fá þau á næstunni
stúlku i nokkurra mánaða heimsókn
til sín frá Kólumbíu en hún er dóttir
lögfræðings sem aðstoðaði þau við
ættleiðinguna í Bogota .
Össur viðurkennir að tilkoma
Birtu hafi breytt sér verulega sem
pólitíkus. Og Árný tekur undir
það, ekki bara að hann hafi
breyst heldur hafi heimilislífið
tekið stakkaskiptum. „Líf okkar
snýst fyrst og fremst í kring-
um hana en áður um okkur
og okkar vini. Maður leyfir
sér að verða barn upp á
nýtt. Heimilislífið er allt
annað og maður vinnur
vitanlega ekki eins mikið
og áður,“ segir Ámý sem
starfar á Raunvísindastofn-
un Háskólans.
Birtir nýja
sýn
„Maður var að
verða miðaldra
menntamaður á
jaðri tilvistar-
kreppunnar. Þetta
birtir manni nýja
sýn á lífið og öðru-
vísi tilgang. Ég hef
komist að því að
það sem Kvenna-
listinn segir um
reynsluheiminn
eigi við rök að
styðjast. Ég hef
öðruvísi áhuga en
áður á málum sem
tengjast fjölskyld-
um og börnum, t.d.
dagvistunarmál-
um. Ég hafði áður
skilning á þessum
málum en ekki
svona lifandi.
Núna fárast ég yfir
því að fóstrum
skuli vera greidd
svona lág laun,“
segir Ögsur.
Hefði farið
yfir á taug-
um
Hann segist
einnig hafa betri
stjórn á tilfinning-
um sínum, hann
sé umburðarlynd-
ari en áður. Því til
stuðnings nefnir
hann að með
klukkutíma fyrir-
vara hafl hann
samþykkt að ger-
ast ritstjóri Al-
þýðublaðsins,
blaðs sem var flutt
í nýtt húsnæði.
Um leið hafi tölvu-
kerfið bilað, hluti
ritstjómar rekinn
og hluti veikur.
Hefði þetta ástand
komið upp fyrir 10
ámm þegar henn
gerðist ritstjóri
Þjóðviljans hefði-
hann farið yfir á
taugum. Þetta
hefði ekki gerst
nú i vikunni.
„Þetta stökk af
manni eins og vatn af gæs. Málin
bara leystust. Maður er yfirvegaðri
og hættur að vera uppstökkur. Lífið
er í góðum gangi og okkur líður af-
skaplega vel. Ég held að það sé fyrst
og fremst Birtu að þakka,“ segir Öss-
ur og Ámý tekur undir að þau séu
mikill í slíkri hreyfingu. Hann
myndi sjálfsagt ekki hafna boði um
formannsstólinn ef það byðist. Aðrir
séu þó betur kallaðir og nefnir Öss-
ur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til
sögunnar í því sambandi. Nýr flokk-
ur þurfi að hafa „feminíska slag-
síðu“.
„Það eina sem ég get sagt með
góðri samvisku um framtíð mína í
pólitík er að ég vildi gjarnan verða
ráðherra aftur. Mér fannst nefnilega
furðu gaman að vera ráðherra. Aðr-
ar mannvirðingar skipta mig minna
máli,“ segir Össur og er greinilega
ekki á leið út úr pólitík.
Aðspurðri list Ámýju alls ekki
illa á það þótt fjölgun standi fyrir
dyrum í íjölskyldunni, Össur þríFist
vel í pólitík og þar eigi hann að vera
á meðan vilji sé fyrir hendi. Hún við-
urkennir að meiri ró sé yfir honum
í fræðimannsstörfum en Össur er
sem kunnugt er doktor í lífeðlisfræði
með áherslu á fískeldisfræði, gaf
m.a. út bók um urriðann í
Þingvallavatni um síð-
ustu jól.
Á kafi í grúski
í tengslum við bókina
lagðist Össur í mikið grúsk
í Þjóðarbókhlöðunni. Ámý
hefur meðal annars sett
hann í það verk að safna upp-
lýsingum um hafís og hvíta-
birni í tengslum við rannsókn-
ir hennar á veðurfari til forna. í
grúskinu komst Össur m.a. að
því upp úr annálum að alls hafi
um 400 ísbirnir komið hér á land
en ekki 200 eins og bestu menn
töldu áður. Össur segist mikið hafa
skemmt sér í þessu grúski og er full-
viss um að hann muni einhvern
tíma yflrgefa pólitikina til að koma
sér endanlega fyrir við handritahlað-
ana í Þjóðarbókhlööunnmi. Árný er
fullviss um það einnig.
Tvö börn nág
En að ijölskyldulífinu að lokum.
Þau em bjartsýn á að annað barn
komi innan árs. Þau eru harðákveð-
in í að börnin verði ekki fleiri, tvö
séu þeim alveg nóg, komin vel á
fimmtugsaldurinn.
Næsta barn verður líklega jafnvel
tveggja ára gamalt og aðspurð segj-
ast þau ekki óttast að umhverfið í
Kólumbíu verði búið að móta það
barn svo mikið að áhrifa gæti síðar
meir.
„Birta er svo vel heppnuð og við
vitanlega komin með góða reynslu í
uppeldinu. Við kvíðum alls ekki
næsta bams og hlökkum bara til.“
-bjb
bæði mjög hamingjusöm. Aðspurður
hvort hamingjan hafi tekið úr hon-
um pólitiskar vígtennur segir Össur
að hamingjusamur maður bíti ekki
frá sér, hann verjist fimlega.
Old hinna mjúku stjórn-
málamanna
En skyldi annað bam þýða enn
mýkri Össur, svo mjúkan að hann sé
á leiðinni út úr pólitík? Kappinn
þvemeitar því, rís upp í leðursófan-
um og færist allur í aukana.
„Næsta öld, sú tuttugasta og
fyrsta, er öld hinna mjúku stjóm-
málamanna. Þar að auki gengur mér
allt í haginn í pólitík. Þegar ég fór í
pólitík hafði ég eitt markmið, að
sameina þessa svokölluðu vinstri
flokka. Það var von en ekki lengur,
nú er þetta að verða að veruleika.
Hinn örsmái Alþýðuflokkur mælist
nú stór í skoðanakönnunum og þetta
er vegna þess að menn sjá mögu-
leika. Alþýðubandalaginu gengur
líka vel. Svo er ég skyndilega
dottinn í þetta rit-
stjórahlut-
verk,“
En skyldu þau finna fyrir ein-
hverjum fordómum í garð Birtu?
Þau neita því að Birta hafi orðið fyr-
ir einhverju slíku en Össur viður-
kennir að kynþáttafordómar hafi
birst þeim með öðnun og óbeinum
hætti.
„Það vora afskaplega margir sem
óskuðu mér til hamingju með hvað
hún væri hvít.
Hún lítur bara
út eins og vest-
firskur íslend-
ingur, verður
fljót brún í
sól en þið
sjáið að
hún er
bara eins
og það
fólk sem
er und-
an
frönsku
skipbrotsmönnun-
um fyrir vestan,“ segir
Össur og glottir við tönn.
Þau segjast ekki óttast um fram-
tíðina í íslensku samfélagi fyrir
hönd Birtu, Össur segist aðeins ótt-
ast það eitt að þegar hún verði kom-
in á táningsaldur verði þau orðin
helst of öldrað til að hafa hemil á
gáska hennar og fjöri!
Fjúrðungi bregður til...
Aðspurð hvað hafi komið þeim
mest á óvart að fá barn allt i einu
inn á heimilið nefhir Árný að strax
hafi Birta orðið mikill félagi þeirra.
Samband hefði strax tekist við hana
sem manneskju. Össuri kom mest á
óvart hvað margir hafi sagt hvað
hún sé lík þabba gamla, breiðleit og
hláturmild.
„Merkilegast er að maður sér að
máltækið, fjórðungi bregður til fóst-
urs, sannast. Við sjáum í henni
ýmsa takta, bæði frá
Árnýju og sjálfum
mér. Árný hallar
stundum undir flatt
og Birta gerir
það líka.“
Össur sem telur
að Alþýðublaðið muni
lifa. Þar ætli hann að nota tæki-
færið til að stuðla að sameiningu
vinstri flokkanna. Blaðið verði opið
öOum.
Hann er minntur á að hann hefði
verið ráðinn til bráðabirgða og því
spurður hvort sameiningu verði þá
lokið fyrir næstu áramót. Össur neit-
ar því og segir að ákveðin bið sé í
stöðunni. Margir bíði til dæmis eftir
landsfundi Alþýðubandalagsins
næsta haust.
Fordómar birtast óbeint
Vill verða ráðherra
Aðspurður hvort Össur sjái sig í
forystusveit sameinaðs flokks jafn-
aðarmanns segist hann
gjaman vilja vera áhrifa-
„Það eina sem ég get sagt með góðri samvisku um framtíð mína í pólitík er aö ég vildi gjarnan veröa ráðherra aftur,“
segir Össur og lætur fara vel um sig í leöursófanum ásamt Birtu.
t