Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Qupperneq 33
I f * i i i i i Kristín Silla og Hallur Símonarson hjá Trygg- ingu hf. kynna feröatryggingar á feröahátíö Flugleiöa. Öryggi á ferðalagi Eitt af því sem nauðsynlegt þykir þegar farið er í ferðalögin er að hafa tryggingarnar í góðu lagi. Á sjötta áratugnum keypti fólk tryggingu, svokallaðan coupon, sem gilti aðeins í flugi, en þegar út var komið var fólk á eigin ábyrgð. í dag þykir mikilvægast að hafa góða tryggingu fyrir hugsanlegum sjúkrakostnaði, enda getur hann hlaupið á hundruðum þúsunda króna þeg- ar litið er til landa eins og Bandaríkjanna. Einnig er farangurstrygging nauðsynleg því að víða á ferðamannastöðum gera óprúttnir menn út á saklausa ferðalanga. Trygging hf. var með bás á ferðakynningu Fiugleiða um síðustu helgi þar sem sérstök áhersla var lögð á að kynna ferðatryggingar og þær lausnir sem eru í boði við kaup á ferða- tryggingu. Hjá þeim er í boði viðtæk Heimilis- vemd sem er trygging á innbúi en innifelur jafhframt ferðasjúkra- og ferðaorlofstryggingu ásamt farangurstryggingu. í þessu felst að tryggingartaki og fjölskylda hans fær greiddan kostnað á ferðalagi vegna slyss, sjúkdóms eða fráfails auk nauðsynlegra viðbótargjalda vegna heimferðar til íslands. Sölumenn ferða- og heimilistrygginga hafa orðið varir við útbreiddan misskilning um að hafi maður kreditkort sé maður sjálfkrafa ferðatryggður. Þetta er ekki algilt þar sem í sumum tilfellum er gerð krafa um að hluti ferð- ar sé greiddur með kortinu til að ferðatrygging sé í gildi í ferðinni. Sólarpottur DV og Flugleiða: Fyrsta Flórídaferðin dregin út - Þórir og Hanna í hópi skuldlausra áskrifenda „Þetta er kærkomin tilbreyting því við eram ekki vön því að vinna í svonalöguðu," sagði Hanna Karen Kristjánsdóttir en hún og maður hennar, Þórir Georgsson, voru á dög- unum dregin úr Sólar- potti DV og Flugleiða en í honum er allir skuldlausir áskrifendur DV. Hönnu Karenar og Þóris bíður nú vikuferð í sólarparadís vesturs- ins, St. Petersburg Beach á Flórída. „Við höfum aldrei komið til Flórída og það er sko ekki nokkur vafi á því að við munum nýta okkur þennan óvænta glaðning," sagði Hanna Karen. Hanna og Þórir hafa verið áskrifendur „svo lengi sem elstu menn muna“ og nú bíða aðrir níu ferðavinningar þess að verða dregnir upp úr Sólarpottinum góða. Skuldlausir áskrifend- ur DV geta því hugsað sér gott til glóðarinnar og geta átt von á því besta. Gjafabréfið að ferðinni var afhent í gær en það felur í sér flug fyrir tvo með Flug- leiðum og gistingu í 6 daga. Vinningurinn gildir frá 27.5. til 1.9. -sv Fyrsti skuldlausi áskrifandi DV fékk í gær afhent gjafabréf aö Flórídaferö fyr- ir tvo meö Flugleiöum og gistingu í sex nætur. Hanna Karen Kristjánsdóttir og Kristján Þórisson veittu því viötöku. Níu feröavinningar bíöa þess aö veröa dregnir úr Sólarpotti DV og Flugleiöa næstu níu vikurnar. DV-mynd Hilmar Úfremdarástand - / Flugumferöarstjórar í Ind-/ ' landi kvarta sáran undan ; ástandinu í háloftunum yfir landinu. Á siðustu mánuðum í hafa komið upp fjögur tilfelli J þar sem legið hefúr við árekstri j stórra farþegaþotna og heppnin J ein réð því aö ekki fór illa. Tæknibúnaður flugumferðar- - j stjóra við flugvelli Delhi og I Bombay er úreltur og ekki I hannaður til að anna meira en | 12 vélum á hverjum klukku- J tíma. Flugumferð er hins vegar ' miklu meiri og á annatíma s þurfa flugumferðarstjórar að J sinna allt að 28 á hverjum j klukkutima. Verið er setja upp . nýtt kerfi við flugvöllinn í Del- j hi sem á að geta annaö upp í 40 flugvélum á klst. Meiri arður J Boeing-flugvélafyrirtækið til- I kynnti að arður af rekstri fyrir- tækisins hefði aukist um 52% frá árinu á undan. Aröur síð- ' !asta árs nam rúmlega 450 millj- örðum króna. Þýskir (til Englands j Þýska flugfélagið Lufthansa j hefúr fengið leyfi til að fljúga á " nokkrum innanlandsleiðum í 1 Englandi. Lufthansa mun fyrst j um sinn fljúga á milli j Newcastle og Birmingham. f i i s i i i i BÆKLINGURINN er kominn! Opié sunnudag 16. febrúor kl. 13-16 Lóttu sjú þig og fóðu bækling cojmoCP1 OUCljö I urcclona-Dominilcansl<a ■ . . n r x. j'skaland-Borgarfcrdir , _ ~ .... J> 'Jx'Sr?:! FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR Aðcalstræti 1 €> - sími 552-3200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.