Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
Fréttir
i>v
Hafnarstræti 100 á Akureyri á nauðungaruppboði:
Byggingasjóður ríkisins lán-
aði 24 milljónir til breytinga
- lítið framkvæmt og öll lán í vanskilum
DV, Akureyri:
Klukkan hálfellefu í morgun hóf
sýslumaðurinn á Akureyri uppboð
á húseigninni Hafnarstræti 100 þar
í bæ. Boðnir voru upp 11 hlutar
eignarinnar af 12 og lauk uppboðinu
ekki fyrr en í hádeginu. Uppboðs-
beiðendur voru Byggingasjóður rík-
isins, húsbréfadeild, Akureyrarbær,
Samvinnusjóður íslands og KPMG-
endurskoðun hf. fyrir hönd Spari-
sjóðs vélstjóra. Alls nema kröfur í
þessa 11 hluta eignarinnar ríflega 30
milljónum króna auk vaxta, verð-
bóta og dráttarvaxta.
Hafnarstræti 100 sem hýsti lengi
vel skemmtistað undir nafninu H-
100 er skráð í eigu Geymslusvæðis-
ins ehf. Hjá hlutafélagaskrá fengust
þær upplýsingar að Óskar Helgi
Einarsson væri einn skráður stjórn-
armaður fyrirtækisins en varamað-
ur Bergur Guðnason.
Geymslusvæðið ehf. eignaðist
Hafnarstræti 100 og hugðist breyta
húsnæðinu, sem er á þremur hæð-
um, í íbúðir og yrðu 4 íbúðir á
hverri hæð. Samkvæmt heimildum
DV hafa þær framkvæmdir einar
átt sér stað í húsinu að rifnir hafa
verið innan úr því milliveggir og
stigar og þá hafa gluggar að ein-
hverju leyti verið endumýjaðir.
Geymslusvæðið ehf. fékk 23. jan-
úar 1995 lán frá húsbréfadeild Bygg-
ingasjóðs ríkisins vegna breytinga á
húsinu. Veittar voru alls 24 milljón-
ir króna eða tvær miUjónir fyrir
hvem hluta hússins eftir að því
hafði verið skipt niður í 12 einingar.
Lánin era öU í vanskUum og í morg-
un voru 11 hlutar Hafnarstrætis 100
á uppboði en 12. hlutinn verður
seldur á næstunni. Kröfur Bygg-
ingasjóðs í hlutina 11 nema um 22
miUjónum króna auk
vaxta, dráttarvaxta
og verðbóta.
Akureyrar-
bær á um 657
þúsunda
kröfu í eignina sem em fast-
eignagjöld fyrir árið
1995, auk kostn-
aðar en án
drátt-
Slæmt atvinnuástand í Ólafsvík:
Þingmenn gerðust nemar:
Vísaö úr
Þjóðarbókhlöðu
„Mér fannst þetta skemmtileg og
lærdómsrík ferð þó hún væri stutt.
Það var gaman að setjast aftur á
skólabekk en það var ekki eins gam-
an þegar okkur var vísað út úr Þjóð-
arbókhlöðunni fyrir að borða nestið
okkar þar,“ segir Margrét Frí-
mannsdóttir þingmaður en hún
gerðist námsmaður í nokkra
klukkutíma í gær í boði Stúdenta-
ráðs. Með henni í för var Hjálmar
Árnason þingmaður.
Þingmennimir hófu ferðina í
kennslustund á 1. ári í hjúkranar-
fræði og fóra síðan í heimsókn tU
ungra hjóna með tvö böm.
„Við komumst að því að námslán
konunnar duga ekki fyrir leigu og
bamapössun en eiginmaður hennar
er í fullri vinnu og lán hennar
skeröast auðvitað við það þó hann
sé bara með meðaltekjur. Þau borga
yfir 40 þúsund i húsaleigu og yfir 20
þúsund til leikskóla," segir Margrét.
Þingmennimir fóm því næst í
bankann en þar var Jóhannes
Kristjánsson skemmtikraftur stadd-
ur í gervi Björns Bjamasonar
menntamálaráðherra. „Ráðherr-
ann“ var þar að reyna að fá ábyrgð-
armenn til að fá námslán.
„Við Hjálmar neituöum honum
auðvitað um að vera ábyrgðarmenn.
Skýring Hjálmars var að hann heföi
ekki borið það undir fjölskylduna
en ég treysti einfaldlega ekki á að
hann gæti skilað tilskildum árangri
og því eflaust ekki getað borgað lán-
ið til baka,“ segir Margrét. -RR
Sveit ólympíumeistara Frakka hampar sigurverölaunum sínum t mótslok. Frá vinstri eru Alain Levi, Philippe Croni-
er, Christian Mari og Henri Szwarc. DV-mynd Hilmar
Flugleiöamót í bridge:
Olympíumeistararnir sigruðu
Sveit ólympíumeistara Frakka
haföi sigur á Flugleiðamóti í sveita-
keppni sem lauk um kvöldmatar-
leytið i gær. Sveitin stóð uppi sem
öruggur sigurvegari og hafði 11
stiga forystu á næstu sveit er upp
var staðið. Sveitin var skipuð
Frökkunum Alain Levi, Philippe
Cronier, Christian Mari og Henri
Szwarc. Sveitakeppnin var fjöl-
menn, 98 sveitir tóku þátt í þessari
tveggja daga keppni. Þegar 6 um-
ferðum af 10 var lokið hafði sveit
Roche náð vænlegri forystu, 134 stig
á meðan tvær næstu sveitir voru
með 120 stig. Sveit Roche gekk hins
vegar afleitlega síðari daginn og
hafnaði í fimmta sæti. Lokastaða
efstu sveita varð þannig:
1. Frakkland 198
2. VÍB 187
3. Hjördís Eyþórsdóttir 186
4. Landsbréf 185
5. Roche 181
6. Samvinnuferðir-Landsýn 179
-ÍS
Ættum ekki aö sitja uppi
með atvinnuleysi og vesöld
- segir formaður Verkalýðsfélagsins Jökuls
DV, Vesturlandi:
„Atvinnuástandið er mjög slæmt
hjá okkur, á atvinnuleysisskrá em
25-30 manns. Skýringarnar eru
nokkuð margar og sumar hverjar
æði flóknar,“ sagði Jóhannes Ragn-
arsson, form. Verkalýðsfélagsins
Jökuls í Ólafsvík, í samtali við DV.
„Landfræðilega ættum við ekki
að sitja hér uppi með atvinnuleysi
og vesöld því við erum við ein bestu
fiskimið landsins og í hæfilegri fjar-
lægð frá höfuðborgarsvæðinu. Skýr-
ingin er að talsverðum hluta fólgin
í fiskveiðistjómunarkerfinu. Það er
enginn vafi á því. Stjómvöldum hef-
ur oft verið bent á það en þau hafa
tekið þá ákvörðun að halda í þetta
kvótakerfi eins og það er, alveg
sama hvað öllu öðm líður.
Efnahagsbatinn hefur ekki látið
sjá sig hér á Snæfellsnesi. Það getur
vel verið að einhverjir hagfræðing-
ar og pólitíkusar hafi talið sér trú
um einhvem efnahagsbata í þjóðfé-
laginu. Ef hann er staðreynd er hon-
um misskipt og hefur lítið orðið
vart á landsbyggðinni. Hins vegar
er niðurskurður á sjúkrahúsunum
og víðar. Ég hef talað við stjómar-
þingmenn og held að þeim sé full-
kunnugt um ástandið hér,“ sagði Jó-
hannes.
-DVÓ
arvaxta og annars kostnaðar. Sam-
vinnusjóður íslands er með kröfu
upp á um 5 milljónir króna. Höfuð-
stóll þeirrar skuldar er tæpar 4
milljónir króna samkvæmt fjórum
tryggingabréfum sem útgefin vora
árið 1995 af Selás-vinnustofu ehf. til
kröfuhafa. Þá er ógetið um kröfur
KPMG-endurskoðunar hf. fyrir
hönd Sparisjóðs vélstjóra sem nema
tæpum 3 milljónum króna auk
dráttarvaxta.
-gk
Hafnarstræti 100 á Akureyri sem
fara átti „undir hamarinn" í morgun
vegna stórskulda Geymslusvæðis-
ins ehf. DV-mynd gk
Stuttar fréttir
Columbia fær súrál
Columbia Ventures hefur
tryggt sér súrál, hráefni til álf-
ramleiðslu á Grundartanga. Við-
ræður við fjármögnunaraðila eru
þegar hafhar.
Enn einn frestur
Jámblendifélagið hefur fengið
enn einn frest, nú til 8. mars, til
að ganga frá samningum milli
eigenda um stækkun verksmiðj-
unnar.
Dagsbrún vill semja
Samninganefnd Dagsbrúnar og
Framsóknar átaldi i gærkvöldi
VSÍ fyrir seinagang og tregðu í
kjarasamningum.
Síminn sagður ódýrari
Símagjöld á Norðurlöndunum,
Bretlandi og Þýskalandi eru tug-
um prósenta hærri en á íslandi ef
marka má athugun Pósts og síma
á þessum málum.
24 þúsund
króna tekjuauki
Ráðstöfunartekjur hjóna með
202 þúsund á mánuði hækka um
24 þúsund krónur, ef hugmyndir
ASÍ um launahækkanir og skatta-
breytingar verða að veruleika.
RÚV sagði frá.
50 manns til Grænlands
50 manns frá íslandi taka þátt í
NuuRek kaupstefnunni í Nuuk á
Grænlandi sem hefst í dag. Tals-
verð og vaxandi viðskipti eiga sér
stað milli íslands og Grænlands.
Kolbeinseyjardeilan
Samningafundur var haldinn í
Kaupmannahöfn um skiptingu
hafsvæðanna milli íslands og
Grænlands og Islands og Færeyja
og hvort Kolbeinsey skuli vera
grunnlínupunktur. Viðræðufund-
ir hafa verið af og til síðan sl. vor
án samkomulags.
Hágöngumiölun
í dag verða opnuð tilboð í
vinnu við Hágöngumiðlun á veg-
um Landsvirkjunar. Miðlunin er
liður i að tryggja næga raforku
fyrir nýtt álver og stækkun járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga.
Páll vill breyta
Páll Pétursson félagsmálaráð-
hema vill breyta frumvarpi um
atvinnuleysistryggingar til móts
við kröfur fulltrúa launþega. ASÍ
og BSRB hafa viljað að frumvarp-
ið verði dregið til baka. RÚV
sagði frá. -SÁ