Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
13
Meira en oröin tóm!
Segja má að stúdentar eigi
margt sameiginlegt með háskóla-
yfirvöldum og hagsmunir þeirra
fari saman í mikilvægum málum,
en það er alls ekki sjálfgefið.
Ákaflega mikilvægur þáttur í
hagsmunabaráttu stúdenta bein-
ist einmitt að ráðandi öflum inn-
an stjórnsýslunnar í Háskólan-
um. Úmbætur í réttindamálum
mæta að jafnaði ákveðnum mót-
byr og stúdentar verða að beita
samtakamætti sínum til þess að
koma brýnum málum í gegn.
Eflum Réttindaskrifstof-
una
í valdatíð Vöku var stofnuð
svonefnd Réttindaskrifstofa til
þess að gæta hagsmuna stúdenta
í Háskólanum. Þessi skrifstofa
hefur ekki sinnt sínu hlutverki
nægilega vel að undanförnu og
viljum við í Vöku efla starfsemi
hennar verulega. Vaka hefur
sýnt í vetur að henni er vel
treystandi fyrir þessum mála-
flokki. Það er Vaka sem hefur
haft frumkvæðið í háskólaráði,
t.d. með því að fá í gegn sam-
þykktir um skýrara verklag við
prófsýningar og með mótmælum
við töfum á birtingu próftaflna.
Við leggjum áherslu á að Rétt-
indaskrifstofan sé órög við að
taka upp ýmis réttindamál en
einskorði sig ekki við að bjarga
málum þegar i óefni er komið. í
samkeppnisprófum í læknadeild í
desember sl. áttu sér stað alvar-
leg mistök við prófvörslu en sem
betur fer fékk málið farsæl enda-
lok þar sem 9 nemum var hleypt
inn til viðbótar. Vaka lét sér ekki
nægja að tala máli þeirrar niður-
stöðu í Háskólaráði heldur fylgdi
málinu eftir með tillögugerð um
gagngera endurskoðun prófa-
framkvæmdar. Það er þetta sem
við í Vöku meinum þegar við töl-
um um aukið frumkvæði.
„Mjög mikilvægt er að auka samráð og uppiýsingaflæði milli þeirra sem standa í hagsmunabaráttu fyrir hönd
stúdenta í Háskólanum," segir Hulda m.a. í grein sinni.
Samráö og betri kynning
Mjög mikilvægt er að auka
samráð og upplýsingaflæði milli
þeirra sem standa
í hagsmunabar-
áttu fyrir hönd
stúdenta í Háskól-
anum. Stúdentar
eiga t.d. fufltrúa á
fundum allra
skora og deilda í
skólanum. Eðli-
legt samráð er for-
senda þess að
kraftar stúdenta
nýtist til fúfls og
möguleikar skap-
ist á því að hafa veruleg áhrif til
umbóta.
Þennan þátt vantar í starf-
rækslu Réttindaskrifstofunnar
nú en einfalt ætti að vera að
kippa þessu í liðinn með regluleg-
um samráðsfundum með fulltrú-
um á deildar- og skorarfundum.
Auk þessa þarf að standa mun
„Vaka hefur skýrar hugmyndir
um það hvernig megi efía rétt-
indabaráttuna innan Háskólans
og víst er að sigri Vaka í komandi
kosningum verður réttindaskrif-
stofan meira en orðin tóm.u
betur að kynningu á
þeirri mikilvægu starf-
semi sem á að fara fram
innan Réttindaskrifstof-
unnar, annars nýtist
hún stúdentum ekki til
fúfls.
Andlit út á viö
Vaka vill stofna emb-
ætti réttindafulltrúa til
þess að hafa yfirmnsjón
með þessum viðtæka
málaflokki. Stúdentar
vita þá af einum aðila
sem þeir geta leitað til.
Þessi mál eru oft við-
kvæm í eðli sínu og þvi
traustvekjandi að geta
leitað til ákveðins aðila.
Kjallarinn
Hulda Þórisdóttir
sálarfræöinemi, skipar
3. sæti á lista Vöku til
Stúdentaráös
Með því að gera
réttindafufltrúa
ábyrgan yrði
einnig betur
tryggt að réttinda-
málum yrði fylgt
eftir.
Vaka hefur skýrar
hugmyndir um
það hvemig megi
efla réttindabarátt-
una innan Háskól-
ans og víst er að
sigri Vaka í kom-
andi kosningum
verður réttinda-
skrifstofan meira
en oröin tóm.
Hulda
Þórisdóttir
Með viljann að vopni
Öflug forysta í hagsmunabar-
áttu stúdenta skiptir öllu máli. Að-
gerðir og árangur Stúdentaráðs
undanfarin ár sýnir þetta glöggt.
Við í Röskvu höfum sýnt að með
málefnalegum málflutningi og
sanngjörnum kröfum höfum við
áhrif.
Háskólinn hefur verið í
fjársvelti undanfarin ár. Það hefur
hamlað framfórum á mörgum
sviðum. Forsvarsmenn Háskólans
hafa ekki haft svigrúm til athafna.
Flest þau skref sem hafa verið
stigin til framtíðar á þessu tíma-
bili hafa verið fyrir tilstilli stúd-
enta.
Staða stúdenta til þess að láta til
sín taka í framfaramálum er
ákjósanleg. Meðferð þessara mála
er hins vegar vandasöm. Óábyrg
framganga stúd-
enta í þessum efn-
um er til þess fall-
in að skaða mál-
flutning okkar um
ókomna tíð.
Kraftur í
hverjum
dropa
Við í Röskvu ger-
um okkur grein
fyrir þeirri
ábyrgð sem fylgir því að vera leið-
andi afl í hagsmunabaráttu stúd-
enta. Við höfum lagt áherslu á
frumkvæði, frumleika og vel
ígrundaðar aðgerðir. Aðgerðir
„Við þurfum öfíuga hagsmuna-
baráttu. Við þurfum málefna-
lega hagsmunabaráttu. Við þurf-
um sex nýja Röskvuliða í Stúd-
entaráð.“
sem hafa skilað ár-
angri.
Hagsmunabar-
átta stúdenta hefur
breyst mikið frá
því sem hún var á
níunda áratugnum
og byijun þess tí-
unda. Kröfur stúd-
enta á þeim tíma
voru óraunhæfar
oghlutuþar afleið-
andi ekki hljóm-
grunn hjá almenn-
ingi. Við í Röskvu
lítum björtum aug-
um til framtíðar. Á
hverju ári bætist
nýtt fólk í hópinn,
fullt af krafti og
áhuga.
Sífelld endumýj-
un á sér stað, þó
þannig að þess er
gætt að sú reynsla
áunnist á
Kjallarinn
Asdís
Magnúsdóttir
laganemi, skipar fimmta
sæti á lista Röskvu til
Stúdentaráös
sem
undanfórnum
hefur
árum
gangi manna í milli.
Lögð er áhersla á að
fólkið við stjómvölinn
sé atorkusamt, frumlegt
og síðast en ekki síst vel
inni í öllum málum.
Sex nýir
Röskvuliöar í Stúd-
entaráö
Við í Röskvu erum stolt
af verkum síðustu ára.
Starf okkar er í fullum
blóma og hugmyndirnar
era óþrjótandi. í ár eins
og undanfarin ár er
nýtt fólk á listanum.
Fólk með ferskar hug-
myndir og viljann að
vopni. Við þurfum öfl-
uga hagsmunabaráttu.
Við þurfum málefna-
lega hagsmunabaráttu.
Við þurfum sex nýja
Röskvuliða í Stúdentaráö.
Ásdis Magnúsdóttir
Með og
á móti
Verður KA bikarmeistari í
handbolta þriðja árið í röð?
Höfum
meiri
reynslu
„Já, KA heldur bikamum
norðan heiða og það byggi ég
fyrst og fremst á því að við höf-
um meiri reynslu úr bikarúr-
slitaleikjum en Haukarnir. Við
erum í úrslit-
um fjórða árið
í röð. í fyrsta
úrslitaleikn-
um, gegn FH,
sáum við aldrei
til sólar og töp-
uðum illa en
síðan höfum
Við SÍgrað Erlingur
tvisvar Og Kristlánsson,
þekkjum þetta fV,lrilðlKA-
þvi betur en Haukarnir.
Þetta verður hinsvegar mjög
erfiður leikur því Haukar eru
með gott lið og leikir þessara liða
undanfarin ár hafa alltaf verið
hnífiafnir og tvísýnir.
Við fengum slæman skell í síð-
asta leik, í Ungverjalandi, en við
ákváðum strax að honum lokn-
um að hann hefði engin áhrif á
framhaldið hjá okkur. Við vor-
um einfaldlega að spila við at-
vinnulið sem var mörgum klös-
um fyrir ofan okkur.
Þetta er hápunktur vetrarins,
ég held að það hefði ekki verið
hægt að fá betri bikarúrslitaleik
eins og staöan er í handboltanum
í dag og ég vona svo sannarlega
að við vinnum þriðja árið í röö.“
Hungrið
meira hjá
Haukum
„Nei, KA verður ekki bikar-
meistari af þeirri einföldu
ástæðu að við í Haukum munum
stöðva sigurgöngu norðan-
manna. Við ætlmn okkur bikar-
inn eftir langa
bið og ég tel að
það sé ýmis-
legt sem mælir
með því að það
takist.
Við höfum
verið að spila
betur en þeir í
vetur, töpuð-
um reyndar Hauka.
fyrir þeim
heima í byrjun móts en imnum
þá siðan sannfærandi í seinni
leiknum á Akureyri. Síðan tel ég
aö hungrið í okkar mönnum
verði meira en hjá KA vegna
þess að KA er að spila sinn fiórða
bikarúrslítaleik í röð en Haukar
hafa ekki komist i úrslit i
sautján ár.
Það verður mikill hamagangur
í Laugardalshöllinni á laugar-
daginn og tekið á af krafti, enda
tvö hörkulið á ferðinni. Liðin
spila ólíkan handbolta, við erum
kerfisbundnari en þeir byggja
meira á einstaklingsframtaki.
Þeir em með fleiri stjörnur i
sínum röðum en við höfum jafn-
ara lið og breiðari hóp og það
mun vega þungt í þessum úr-
slitaleik. Bikarinn fer í Hafnar-
fiörð, það er ekki nokkur
spurning." -VS
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaöið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á netinu.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@centmm.is