Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 Utlönd Stefnubreyting talin sjáanleg í Norður-Kóreu: Virðast sætta sig við flótta Hwangs Yfirvöld í Norður-Kóreu gáfu í skyn í gær að þau myndu sætta sig við flótta helsta hugmyndafræðings síns, Hwangs Jang-yops, sem leitaði hælis í sendiráði Suður-Kóreu í Peking í síðustu viku. Norður- Kóreumenn tóku jafnframt fram aö honum yrði vikið frá hafi hann ósk- að eftir hæli í Suður-Kóreu. „Það er greinilegt að norður- kóresk yfirvöld eru að breyta um stefnu. Þau virðast vera farin að viðurkenna fyrir sjálfum sér að hlutimir þróast ekki eins og þau vilja í máli Hwangs Jang-yops,“ sagði embættismaður í Suður-Kóreu í gær. Norður-Kóreumenn hafa sakað yfirvöld í Suður-Kóreu um að hafa rænt Hwang en þeirri ásökun er vísað á bug. Utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu lýsti því yfir í gær að ef Hwang hefði verið rænt yrði grip- ið til harðra gagnaðgerða. Yfirlýsingin frá norður-kóreska utanríkisráðuneytinu var gefin út eftir að sendiherra Norður-Kóreu var talinn hafa setið fund með emb- ættismönnum kínverska utanríkis- ráðuneytisins í gær. Forsætisráðherra Suöur-Kóreu, Lee Soo-sung, hvatti í morgun til sérstakrar árvekni gagnvart Norð- ur- Kóreu. Sagði hann flótta Hwangs Jang-yops sýna ffarn á al- varlegan óstöðugleika í norðri. Lee tjáði þingmönnum að norður- kóreskum árásarsveitum hefði fjölg- að nálægt landamærunum við Suð- ur-Kóreu þrátt fyrir efnahags- kreppu og skort á matvælum. For- sætisráðherrann sagði jafnframt að skotárásin á landflótta Norður- Kóreumann við Seoul um helgina minnti þjóðina á mikilvægi öryggis. Lee sagði að allt yrði reynt til þess að Hwang fengi pólítískt hæli í Suður-Kóreu. Reuter Vopnaöir kínverskir lögreglumenn ganga fram hjá brynvörðum bíl viö sendiráö Suöur-Kóreu í Peking. Simamynd Reuter Astma- og ofnæmisfálagið heldur fræðslufund um fæðuofnæmi. Þriðjudaginn 18. febrúar verður haldinn fræðslufundur um fæðuofnæmi. Kolbrún Einarsdóttir næringarráðgjafi flytur erindi. Fundurinn verður haldinn í Þjóðarbókhlöðunni við Birkimel (salur 1) og hefst kl. 20. Allir félagar eru hvattir til að mæta og foreldrar barna með fæðuóþol og fæðuofnæmi eru sérstaklega boðnir velkomnir. Kaffiveitingar í bodi Giaxo Wellcome. AÐALFUNDUR FÉLAGS JÁRNIÐNAÐARMANNA verður haldinn laugardaginn 22. febrúar 1997, kl. 13.15, að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Vangaveltur um æösta leiðtoga Kína: Engar stórbreytingar á heilsufari Diengs - segir talsmaður utanríkisráðuneytisins Utanríkisráðuneyti Kina skýrði frá því i morgun að engar stórbreyt- ingar hefðu orðið á heilsufari hins 92 ára gamla Dengs Xiaopings, æðsta leiðtoga landsins. „Það hafa ekki orðið neinar stór- vægilegar breytingar á heilsu félaga Dengs Xiaopings," sagöi talsmaður utanríkisráðuneytisins á fundi með fréttamönnum í morgun. Embættismenn i ríkisráði landsins gátu ekki veitt hefðbundin svör við spumingum um heilsufar Diengs í þá veru að það væri eins og við væri að búast hjá manni á hans aldri. Þess í stað sögðust þeir vera að kanna málið. Kínverskir heimildarmenn sögðu á mánudag að Jiang Zemin, leiðtogi kommúnistaflokksins, og Li Peng for- sætisráðherra hefðu snúið heim um helgina úr ferðum út á land, fyrr en til stóð, og heimsótt leiðtogann. Dieng Xiaoping, æðsti leiötogi Kína. Sfmamynd Reuter Helsti sérfræðingur stjómarinnar á Taívan í málefnum meginlandsins sagði að ástand Diengs væri alvarlegt og að stjórn sín mundi fylgjast náið með framvindu mála. Reuter DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. Breytingar á reglugerð sjóða. Kaffiveitingar. Félagsfundur um samningamál hefst að loknum aðalfundi um kl. 15.00. Ath.: Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni milli kl. 15.00 og 18.00 miðvikudag 19., fimmtudag 20. og föstudag 21. febrúar nk. Mætið stundvíslega. STJÓRNIN Logreglumaður myrtur í Bilbao Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, er talin ábyrg fyrir morði á lög- reglumanni í Bilbao á Spáni í gær. Lögreglumaðurinn, Modesto Rico Pasarin, lést samstundis þegar sprengja, sem komið hafði verið fyr- ir undir bifreið hans, sprakk um a Spáni leið og hann ók út úr bílskúr sínum á leið til vinnu. Bíllinn breyttist á svipstundu í logandi eldhaf í aðeins fimm metra fjarlægð frá skóla með um 2 þúsund nemendum. Engan þeirra sakaði við sprenginguna. Reuter Stuttar fréttir dv 700 milijónir Bandarikin hyggjast leggja fram 700 milljónir íslenskra króna í matvælaaðstoð handa N- Kóreu. Er það talsvert meira en í fyrra. Fujimori bjartsýnn Forseti Perú, Alberto Fuji- mori, kveðst vera bjartsýnn á lausn gísla- deilunnar þrátt fyrir lit- inn árangur í viðræðum við skæruliða. Forsetinn vís- ar á bug fregn- um um sam- eiginlega árás Bandaríkjamanna og Perúhers á sendiráðsbústaðinn þar sem gíslamir eru í haldi. Búigaría í NATO Petar Stoyanov, forseti Búlgaríu, telur að aðild að NATO myndi efla pólítísk og e&iahagsleg samskipti við aðild- arrikin. Gíslar lausir Tveir rússneskir sjónvarps- menn, sem saknað hefur verið í mánuð í Tsjetsjeníu, voru látnir lausir í morgun. Salinas neitar Fyrrum forseti Mexikó, Car- los Salinas, vísar á bug ásökun- um um að hann og fjölskylda hans tengist fíkniefnabarónum. Minni kostnaður Ný könnun sýnir að stækkun NATO muni kosta Bandaríkin miklu minna en talið var. Marquez ekki heim Nóbelsverðlaunarithöfundur- inn Gabriel Garcia Marquez frá Kólumbíu hef- ur svo mikið ógeð á heima- landi sínu að hann hefur ákveðið að snúa ekki heim fyrr en Ernesto Samper forseti fer frá í ágúst á næsta ári. Meirihluti með NATO Meirihluti kjósenda í Slóvak- íu mundi greiöa atkvæði með inngöngu í Atlantshafsbandalag- ið ef þjóðaratkvæðagreiösla færi fram um málið, aö því er kemur fram í nýrri skoðanakönnun. Teknir í Líbanon Yfírvöld í Líbanon hafa hand- tekið allt að sex lykilmenn í hinni alræmdu japönsku skæru- liðahreyfingu, Rauða hemum, þar á meðal mann sem var við- riðinn fjöldamorð á Lod flugvelli i Tel Aviv árið 1972. Sex ár nóg Fidel Ramos, forseti Filipps- eyja, sagði í morgun að sex ára valdaseta væri nóg og vísaði á bug staðhæfingum stjómarand- stöðunnar um að hann væri að skipuleggja vaddarán og ætlaði að gerast einræðisheiTa. Póstmenn mótmæla Rúmlega tuttugu þúsund þýskir póstmenn komu til Bonn í gær til að mótmæla áformum rík- isstjórnar Helmuts Kohls kansl- ara um að einkavæða póstþjónust- una. Mótmælin fylgja i kjölfar verkfalla í pósthúsum í 52 borg- um í síðustu viku. Forsetinn útskýrir Sali Berisha, forseti Albaníu, hélt til borgarinnar Lushnje í gær til að útskýra aðgerðir sín- ar vegna fjárglæframálsins sem leiddi til gjaldþrots almennings. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.