Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 25 I>V íþróttir NBA-DEILDIK Úrslitin í nótt: Washington-Milwaukee . . . 95-93 Howard 20, Strickland 18, Muresan 15 - Gilliam 17, Baker 15, Allen 15. Cleveland-New Jersey . . . 108-101 Brandon 22, Phills 19, Hiil 17, Ferry 17 - Gill 30, Kittles 30, McDaniel 13. Indiana-Toronto.........105-103 Miller 25, Rose 18, Smits 16, A.Davis 12 - Stoudamire 23, Christie 21. Charlotte-Orlando ......124-110 Rice 40, Mason 28, Bogues 14, Curry 14 - Anderson 28, Scott 18, Grant 17. Houston-Atlanta..........127-98 Barkley 21, Olajuwon 16, Maloney 16 - Smith 28, Blaylock 18, Laettner 12. Seattle-Boston .........113-108 Payton 26, Schrempf 24, Kemp 22 - Walker 27, Fox 21, Day 18, Wesley 17. Vancouver-Dallas.........95-100 Reeves 27, Rahim 24, Moten 13 - Green 21, Finley 21, Danilovic 19. Úrslitin í fyrrinótt: Chicago-Orlando..........110-89 Pippen 22, Kukoc 20, Jordan 19 - Hardaway 20, Seikaly 17, Scott 15. Philadelphia-Denver.....97-112 MacLean 24, Iverson 17, Davis 14 - L. Ellis 37, McDyess 21, Jackson 14. Sacramento-Golden State . 105-85 Polynice 23, Rauf 22, Richmond 19 - Sprewell 20, Smith 18, Armstrong 13. Portland-Boston.........118-106 Rider 40, Wallace 22, C. Robinson 19 - Walker 28, Williams 26, Day 13. Atlantshafsriöill: Miami 39 12 76,5% New York 37 14 72,5% Orlando 24 25 49,0% Washington 24 27 47,1% New Jersey 15 36 29,4% Philadelphia 12 38 24,0% Boston 11 40 21,6% Miðriðill: Chicago 45 6 88,2% Ðetroit 37 13 74,0% Atlanta 33 17 66,0% Charlotte 31 21 59,6% Cleveland 28 22 56,0% Indiana 24 26 48,0% Milwaukee 24 27 47,1% Toronto 17 34 33,3% Miövesturriöill: Utah 36 14 72,0% Houston 34 18 65,4% Minnesota 25 26 49,0% Dallas 17 31 35,4% Denver 17 35 32,7% San Antonio 12 37 24,5% Vancouver 11 44 20,0% Kyrrahafsriöill: LA Lakers 37 14 72,5% Seattle 36 15 70,6% Portland 28 24 53,8% Sacramento 23 29 44,2% LA Clippers 20 27 42,6% Golden State 19 30 38,8% Phoenix 19 33 36,5% Hill að hætta með Orlando? NBC-sjónvarpsstöðin skýrði frá því eftir leik Chicago og Or- lando í fyrrinótt að Brian Hill hefði þar stjómað Orlando í síð- asta skipti. Talsmaður Orlando sagði að Hill hefði ekki verið rekinn og að hann myndi stjórna liðinu gegn Charlotte (síðustu nótt) en viðurkenndi að miklar breytingar væru í vændum hjá félaginu. Iverson á margt ólært Allen Iverson hjá Philadelphia er talinn líklegastur til að verða valinn nýliði ársins í NBA-deild- inni. En Ijóst er að piltur á margt ólært og hann þykir sér- lega eigingjam. „Við eru að reyna að innprenta honum að hann sé ekki einn í liðinu og hann þurfi af og til að nota sam- herja sina,“ sagði Johnny Davis, þjálfari Philadelphia, eftir tapið gegn Denver í fyrrinótt. -VS NBA-deildin í körfuknattleik í nótt og fyrrinótt: Barkley ferskur í stórsigri á Atlanta - umdeildur dómur færði Indiana nauman sigur á Toronto Dennis Rodman hjá Chicago fær boltann í andlitið i slagnum við Orlando í fyrrinótt. Rony Seikaly, miöherji Orlando, gnæfir yfir honum og Luc Longley og Michael Jordan fylgjast meö. Símamynd Reuter Charles Barkley mætti endur- nærður til leiks með Houston í nótt eftir eins leiks fjarvera vegna leik- banns og meiðslavandræða þar á undan. Barkley skoraði 21 stig og tók 9 fráköst þegar Houston vann stórsigur á hinu öfluga liði Atlanta, 127-98. Mikilvægi Barkleys fyrir liðið sést hest á þvi að Houston hefur unnið 29 leiki af þeim 37 sem hann hefur spilað í vetur en aðeins 5 af 15 þegar hann hefur verið fjarverandi. „Þetta var frábær leikur hjá okk- ur í kvöld, einn sá hesti í vetur. Við náðum mörgum auðveldum stigum úr hraðaupphlaupum og allir spil- uðu frábærlega," sagði Barkley eftir leikinn. Indiana marði sigur á Toronto með umdeildum dómi á lokasekúnd- unni. Toronto var yfir, 102-103, og Reggie Miller reyndi 3ja stiga skot. Það geigaði en hann fékk 3 vítaskot, og eitt til viðbótar þegar Walker, þjálfari Toronto, mótmælti hressi- lega. Miller hitti úr þremur af fjór- um skotunum og tryggði Indiana sigurinn. Toronto var yfir allan leikinn og var með 19 stiga forskot í hálfleik. Þrjú vítaskot á síðustu mínút- unni, tvö þeirra frá Calbert Chean- ey, tryggðu Washington sigur á Milwaukee, 95-93. Glen Rice skoraði 40 stig, 18 þeirra úr 3ja stiga skotum, þegar Charlotte vann góðan sigur á Or- lando, 124-110. Anthony Mason átti líka stórleik og hitti úr öllum 11 skotum sínum utan af velli. Anfemee Hardaway hjá Orlando fór meiddur af velli í fjórða leik- hluta. Orlando tapaði þarna sínum fimmta leik í röð og svo virðist sem hléið vegna stjörnuleiksins hafi far- ið illa í liðið. Þar á undan hafði Or- lando unnið 13 leiki af síðustu 16. Seattle lenti í óvæntum vandræð- um með Boston og skoraði síðustu þrjú stigin í 113-108 sigri á síðustu hálfu mínútunni. Boston er nú á níu leikja ferðalagi um vesturdeildina og hefur tapað fyrstu sex leikjunum. Níundi sigur Chicago á Or- lando í röö Chicago lagði Orlando í níunda skiptið í röö þegar liðin mættust i Chicago í fyrrinótt. Lokatölur urðu 110-89 eftir að Chicago hafði stung- ið af í síðasta leikhluta og þá náð mest 26 stiga forskoti. Orlando var inni í leiknum fram að því en komst þó aldrei nær en átta stig. Scottie Pippen átti 11 stoðsend- ingar fyrir Chicago, sem vann sinn 16. heimasigur í röö, og Michael Jordan 10 og Dennis Rodman tók 13 fráköst. Aldrei þessu vant var Jord- an aðeins þriðji stigahæsti leikmað- ur liðsins, á eftir Pippen og Kukoc. Isiah Rider skoraði 40 stig fyrir ' Portland gegn hinu slaka liði Boston sem er með næstlakasta ár- angurinn í deildinni. LaPhonso Ellis setti persónulegt met þegar hann skoraði 37 stig í ör- uggum útisigri Denver gegn Phila- delphia. Þar af gerði Ellis 18 stig í fyrsta leikhluta. Mitch Richmond skoraði sitt 15 þúsundasta stig í NBA-deildinni þegar Sacramento malaði Golden State. Hann er 74. leikmaöurinn frá upphafl sem nær þessum áfanga. Dallas og New Jersey skiptu á níu leikmönnum Einhver stærstu leikmannaskipti i sögu NBA fóra fram í nótt þegar 9 leikmenn Dallas og New Jersey skiptu um félag. DaUas fékk Shawn Bradley, Robert Pack, Khalid Reeves og Ed O’Bannon frá New Jersey en lét í staðinn þá Chris Gatling, Jimmy Jackson, Sam Cassell, George McCloud og Eric Montross. Þar með era aðeins tveir leikmenn eftir hjá Dallas af þeim sem hófu tímabilið í vetur. -VS I St. Petersburg beach, Florida Olar otti DV og Flugleiða? Heppinn hlýtur vinning á iDV ' •* • FLUGLEIÐIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.