Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 Spurningin Hvernig bíl ekur þú? Krisíján Júlíusson bifvélavirki: Mustang sem ég hef átt í 16 ár. Ég vil enga japanska bíla. Svanur Sigurðsson bóndi: Ég er á LandCruiser sem ég hef átt í hálft ár. Halldóra Halldórsdóttir nemi: Ég ferðast um í strætó. Einar Njálsson bæjarstjóri: Ég ek Bronco sem ég hef átt frá 1990 og líkar vel við. Ágúst Sumarliðason blikksmið- ur: Ég er núna á Volvo 244 en ég á tvo bíla. Jóna Björg Vilbergsdóttir leik- skólakennari: Ég er á Bronco sem ég hef átt í þrjú ár. Mjög góður bíll. Lesendur Keflavíkurflugvöllur brátt í fjársvelti - borgaralegt flug í hættu é m Keflavíkurflugvöllur hefur verið (slendingum aö kostnaðarlausu að mestu frá upphafi. Bjöm Jónsson skrifar: Sú ákvörðun bandaríska flotans að taka ekki á sig neinn nýjan kostnað vegna fyrirhugaðrar stækk- unar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eða annarra framkvæmda á Kefla- vikurflugvelli ætti ekki að koma ís- lendingum á óvart. Ákvörðunin tek- ur einnig til allra umsvifa vegna borgaralegs flugs um Keflavíkur- flugvöll. Það hefur verið opinbert leyndar- mál lengi, þótt því hafi ógjamcm verið flaggað, að Bandaríkjamenn hafa í raun rekið KeflavíkmflugvöO aflt frá því viðauki var gerður við vamarsamninginn á sjötta áratugn- um. Eiga enda Bandaríkjamenn helftina af öOum byggingum og tækjum á Keflavikurflugvelli sem máli skipta fyrir flugið. íslendingar hafa ekki einu sinni þurft að hreinsa snjó af flugbrautunum, hvað þá að sjá um viðhald á þeim. Góðverkum Bandaríkjamanna fyrir íslenskar samgöngur i lofti er sem sé að ljúka. Svar íslenskra stjómvalda er hins vegar það að þau séu að vísu tflbúin í sparnað, verði þau nauð- beygð til, en kostnaðarþátttaka ís- lendinga í rekstri Keflavíkurflug- vaflar sé ekki í myndinni. íslending- ar misskilja líklega meira en lítiö starfsemi þessa eina mfllilandaflug- vaOar í landinu. FlugvöOurinn var byggður sem herflugvöOur sem ís- lendingar tróðu sér síðan inn á með miUilandaflugið. Merkflegt er að Bandaríkjamenn skuli yflrleitt hafa ljáð máls á því að taka þátt í kostnaði við að aðskilja borgaralegt flug frá sinu eigin. Væri sú vitneskja almennt á vitorði bandarískra skattborgara yfli það miklu uppþoti sem eðlilegt er. Og nú hafa Bandaríkjamenn knú- ið á um kostnaðarþátttöku íslend- inga við KeflavíkurflugvöU og sér- stök nefnd sett á laggirnar til þess aö við íslendingar gætum komið með raunhæfar tfllögur um spamað i rekstri. Sú nefnd hefur ekki skflað neinu frá sér og raunar ekki fundið neitt til að lækka kostnaö við rekst- ur flugvaUarins. í dag er svokallað borgaralegt flug um Keflavíkurflug- vöU orðið ívið meira en það hernað- arlega og myndi líklega aukast ef aUt væri með feUdu. íslendingar eru hins vegar ekki í stakk búnir tfl að taka við auknum umsvifum borgaralegs flugs vegna fjárskorts. Að óbreyttu mun því við- hald til borgaralegs flugs drabbast niður og þar meö er flug af hálfú ís- lands í hættu. - Eitt merki þessa er að stækkun Flugstöövar Leifs Ei- ríkssonar hefur verið frestað. Hugs- anlega mætti fínna leið til að íslend- ingar gætu tekið á sig meiri kostn- að af flugi um KeflavíkurflugvöU. Það felst í því að loka Reykjavíkur- flugveUi að fuUu. Þar með fengist ljármagn sem fært yrði til reksturs á KeflavíkurflugveUi. Það væri skynsamleg lausn. Við getum ekki ætlast til að Bandaríkin reki flug- vöU fyrir íslendinga um ókomin ár. Hinn rómaði félagsmálabær, Kópavogur - snýst í andhverfu sína Unnur Ósk Tómasdóttir skrifar: Það er með ólíkindum hvað hiö opinbera gengur hart fram í því að koma fjölskyldum á götuna. Hjón með 3 böm misstu íbúðina sína í verkamannakerfinu á uppboði sl. haust. Þau fengu að vera í henni gegn leigu til 15. janúar 1997. Þau voru svo heppin að fá aðra íbúð á sama skólasvæði leigða hjá einstaklingi. Þau voru búin að vera þar í 3 vikur þegar þau fá boðsent bréf á laugardegi frá lögfræðingi Húsnæðisstofnunar Kópavogs þar sem þeim er gert að rýma íbúðina innan hálfs mánaðar. Þetta er hrein og klár persónuárás á þetta fólk, að mínu mati. Hvaö geta þau gert aö þvi þótt eigandi íbúðarinnar standi sig ekki gagnvart reglum Húsnæðis- nefndar? Ég tek það fram að eigandi íbúðarinnar fékk ekki bréf varðandi þetta mál. Þau töluðu við Félagsmálastofh- un Kópavogs þar sem þau verða á götunni þann 25. febrúar nk. Félags- málastofnun svaraði því til að henni kæmi það ekki við hvort þau yrðu á götunni eða ekki. Þetta er hinn rómaði félagsmálabær, Kópa- vogur, sem hefur svo gjörsamlega snúist í andhverfu sína í orði og á borði. Ef hið opinbera hefur ekki skyldur til að hjálpa fólki í þessari aðstöðu, hver er það þá? Hvaða embætti eða stofnun sem er yfir húsnæðisnefhdum landsins ætti að fara að efla eftirlit með starfshæfni og starfsreglum þessara nefnda. Það er of mikið um mistök og geðþóttaákvarðanir hjá þeim. Ungliöar stjórnmálanna: Sterkara siöferöi en hinna eldri Einar Sigurðsson skrifar: Þær ógnvekjandi upplýsingar sem komið hafa fram síðustu daga um siðspfllingu stjómsýslukerfis- ins og tregðu stjómmálamanna til að láta undan þrýstingi cdmenn- ings tfl að lækka skatta, draga til baka launahækkanir hæstlaun- uðu embættismannanna og nú síðast bankastjóra ríkisbankanna hafa hvatt ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks til að skora á einstaka ráð- herra beggja flokka að taka söns- [LÍÍHitM þjónusta allan sólarhringii fldeins 39,90 r -eða hringið ísíma 5000 milli kl. 14 og 16 Þarf að líta til ungliöahreyfinga stjórnarflokkanna þegar siöferöi í pólitík er annars vegar? um og afnema misræmiö í skatta- og launamálum. Hér er vel að verki staðið hjá ungliðahreyfingum stjómarflokk- anna. Ég minnist þess ekki að hafa lesið um slíkar samþykktir A-flokkanna t.d. eða annarra stjórnmálasamtaka. Ætla verður að siðferðið sé mun betra hjá yngri kynslóðinni í stjórnmálun- um. Slæmt að ekki skuli vera hægt að skipta út mönnum fyrr en að loknum kosningum. DV Fínt að fá frétt- irkl. 22.30 Ásgeir skrifar: Það er frábær ákvörðun hjá Stöð 2 að ætla að koma með kvöldfréttir kl. 22.30. Þetta var búið að margbenda Sjónvarpinu á en án árangurs. Seinni fréttir kl. 23 eru heldur seint á ferð. Það munar um hálftíma. Nú verða allar fréttir dagsins inni hjá Stöð 2, innlendar sem erlendar. Þá getur maður sleppt einhverjum fréttatímanum um kvöldmatar- leytið. Stöð 2 verður að vera inni líka um helgar. Annað er plat. Hvatning til þrautpíndra B.S.J. skrifar: Ég hvet menn eindregið til að tjá sig opinberlega nú, og það fremur en endranær, um meint óþurftarverk kaldrifjaðra ráða- manna og framkvæmdaraðila þeirra í öllum stéttum og sam- tökum - til dæmis í lífeyrismál- um. Þegar við, sem þeir sitja á og þrautpína, kvörtum og bend- um á ósvífnina þá eru það þeirra fyrstu viðbrögð að kíma lítið eitt og bera við „hörðum skrápi“. Samlíkingin er ekki út í hött. Hákarlinn hefur t.d. það orð á sér að eira engu, hrifsa og gleypa. Menn geta svo velt því fyrir sér hvemig þeir stofna til skrápsins. Ég segi viö ykkur, hina þrautpíndu: Skrifið um dapra reynslu annars vegar og hins vegar um „rausnarskap- inn“ og „gjafmildina“. Rússneskar rottur á land? Soffía hringdi: Maður trúir því varla að ís- lensk heilbrigðisyfirvöld séu svo glámskyggn að hafa ekki þann fyrirvara á að rússneskum tog- ara verði ekki leyft að koma að bryggju á Akureyri nema öllum rottum í skipinu hafi verið út- rýmt. Svona áhætta er óverjandi af landlækni eða hans fulltrúa á Akureyri. Smit er mjög fljótt að berast með rottunum og það verður ekki aftur tekið þegar einhver ókennfleg pestin eða þaðan af verra skellur á okkur. Þetta háttalag verður að for- dæma og það sterkt. íslenska smygl- stúlkan í Dan- mörku Steinþór hringdi: Nú hefur verið upplýst að ís- lenska stúlkan sem er í haldi í Kaupmannahöfn vegna smygls á eiturefnum frá Suður-Ameríku fór tvær ferðir en ekki eina eins og flestir héldu hér á landi eftir fréttum að dæma. Og svo var ver- ið að básúna óvitaskapinn í henni! Einnig tók hún þátt í að tæla íslenska aðfla í Danmörku tfl að leika sama leikinn. Svona fólki þarf ekki að vorkenna og vonandi fara nú ekki einhverjar sálir að væla um að ráðuneytin hér óski eftir framsali til að hún geti af- plánað refsinguna i heimaland- inu. Megi hún verða sem lengst fjarverandi, þessi vesalingur. Rætin árás á Dagsljós Björn Magnússon skrifar: Ég tek undir skrif Kristínar Magnúsdóttur í DV sl. föstudag um óréttmæta gagnrýni í grein í Degi-Timanum á Dagsljósþáttinn og rætni í garð Kolfinnu Bald- vinsdóttur, Loga Bergmanns Eiðssonar og stjómanda þáttar- ins, Svanhildar Konráðsdóttur. Svo rætin og ómakleg ski-if eru sjaldgæf i garð einstakra per- sóna. Dagsljós er einmitt að flestra mati langtum betra en þegar það var ein listamanna- vella og nánast óskfljanlegt. Nú er þátturinn stórfínn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.