Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
23
íþróttir
íþróttir
Gríski körfuboltinn:
Teitur meiddist á ökkla
- Larissa tapaöi og hörð fallbarátta blasir við
Teitur Örlygsson lék ekki með
Larissa í griska körfuboltanum um
helgina þar sem hann meiddist á
æfmgu í síðustu viku. Larissa lék
gegn Iraklis á sunnudag og tapaði
eftir framlengingu á heimavelli.
Eftir venjulegan leiktíma var stað-
an 51-51 en Iraklis hafði betur i
framlengingunni og sigraði, 57-61.
Þrjú lið heyja haröa fallbaráttu á
næstu vikiun en sex umferðir eru
eftir í deildinni. Larissa, Iraklis og
Peiraikos eru öll með 25 stig og
BAO er líklega fallið en það er í
neðsta sæti með 21 stig.
Beinflís þrýstir á taugar
„Ég sneri mig á ökkla á æfingu í
síðustu viku og horfði því á félaga
mína tapa um helgina. Læknamir
halda að beinflís í ristinni þrýsti á
taugar og sinar. í gær fór ég í
sprautumeðferð og get vonandi far-
ið að æfa í þessari viku. Úr því að
við fórum að tapa leik fyrir liði
sem var fyrir neðan okkur á töfl-
unni er spenna hlaupin í fallbarátt-
una. Við eigum eftir að leika við
fjögur efstu liðin þannig að það get-
ur ýmislegt gerst ennþá. Það em
tvö lið sem falla beint niður í 2.
deild. Deildinni lýkur upp úr miðj-
um mars en þá tekur við úrslita-
keppnin," sagði Teitur Örlygsson í
samtali við DV.
-JKS
Geir Sveinsson og félagar i Montpellier
úr leik í Evrópukeppninni:
„Svona brottvís-
anasyrpu hef ég
aldrei séð áður“
Geir Sveinsson og félagar hans í Montpellier féllu úr
leik í EHF-keppninni í handknattleik um helgina þegar
þeir töpuðu naumlega fyrir Granollers á Spáni, 26-24 og
samanlagt 46-45.
„Þetta byrjaði mjög vel fyrir okkur og eftir 20 mín-
útna leik var staðan orðin 6-12 okkur í vil. En þá hófst
þáttur króatisku dómaranna og aðrar eins tveggja brott-
vísana syrpu hef ég aldrei sé.
Þeir vísuðu okkur trekk í trekk af leikvelli og það
nýttu Spánverjamir sér í botn, skoraðu sjö mörk í röð
og komust yfír, 13-12, en staðan i hálfleik var jöfn, 13-13.
Einn leikmanna okkar afrekaði það að fá sína þriðju
brottvísun á nokkurra mínútna kafla í fyrri hálfleik og
ég fór sömu leið þegar 10 mínútur vom eftir. Staðan þá
var 22-20 og við vorum í sókn. Ég reif mig lausan á lín-
unni og skoraði en dómararnir dæmdu ólöglega
blokkeringu á mig og vísuðu mér af velli og sömuleiðis
einum leikmanna Granollers.
í kjölfarið varð allt vitlaust í herbúðum okkar og eðli-
lega misstu menn móðinn. Granollers náöi fjögurra
marka forskoti en við náðum að minnka muninn í tvö
mörk þegar 25 sekúndur vom eftir og okkur hefði því
dugað eitt mark til viðbótar til að fara áfram,” sagði
Geir í samtali við DV í gær en hann skoraði eitt mark í
leiknum.
-GH
KR vanní
Reiðhöllinni
KR sigraði Leiftur, 4-3, í úr-
slitaleik á afmælismóti Fylkis í
innanhússknattspyrnu sem fram
fór í Reiðhöllinni í Víöidal á
laugardaginn. Þormóður EgUs-
son skoraöi sigurmark KR í
hörkuspennandi leik.
Þetta er fyrsta stóra mótið
sem spilað er í ReiðhöUinni en
þar hafa mörg félög af höfuð-
borgarsvæöinu æft undanfama
vetur. Eins hafa reiðhaUirnar í
Kópavogi, Hafnarflrði og Mos-
feUsbæ verið mikið notaðar til
æfinga hjá knattspyraufélögun-
um. Átta lið tóku þátt í mótinu
sem haldið var í tUefni af 30 ára
afmæli Fylkis sem er á þessu ári.
-VS
Súgfíröingar
sigruöu í ftjklsr
um íþróttum
DV, Suðureyri:
Héraðssamband Vestur-ísfirð-
inga stóð fyrir innanhússmóti í
frjálsum íþróttum í íþróttahús-
inu á Flateyri í febrúarmánuði.
Súgfirðingar sigruðu á mótinu
en aUs tóku 90 manns þátt, frá
þremur íþróttafélögum; Suður-
eyri, Flateyri og Önundarfirði.
Lið Stefnis frá Súgandafirði
hlaut 324 stig, lið Grettis frá Flat-
eyri hafnaði í öðra sæti, hlaut
274 stig, og íþróttafélagið Önund-
ur hafnaði í þriðja sæti, hlaut
254 stig. Góð þátttaka var á mót-
inu, eða um og yfir 90 manns.
Lið Höfrungs frá Þingeyri tók
ekki þátt í mótinu. Keppt var í
hástökki, lang- og þrístökki, með
og án atrennu, kúluvarpi,
boltakasti og hlaupagreinum.
Þetta er fyrsta innanhússmót
sem HVÍ hefur staöið fyrir.
-R.Schmidt
Enn eitt áfallið hjá LA Lakers
Lið LA Lakers varð fyrir miklu áfaUi í NBA-deUdinni í fyrrakvöld er
framherjinn Robert Horry meiddist og verður hann frá í sex vikur hið
minnsta. MeiðsU Horrys koma i kjölfarið á meiðslum ShaquiUes O’Neals
sem verður frá næstu 8-10 vikurnar. -SK
Muster sigraði í Dubai
Austurríkismaðurinn Thomas Muster vann sigur á miUjón doUara
móti í Dubai. Muster lagði Króatann Goran Ivanisevic í úrslitaleik, 7-5,
7-6 (7-3). Á myndinni hampar Muster glæsUegum verðlaunagrip. Svíinn
Thomas Enqvist bar sigur úr býtum á opnu tennismóti í MarseiUe. Hann
sigraði þar Marcelo Rios frá ChUe í úrslitaleik, vann fyrri lotuna, 6-3, en
í annarri lotu varð Rios að hætta keppni vegna meiðsla. Loks var opiö
kvennamót í París og því lauk með sigri Martinu Hingis frá Sviss. Hún
sigraði Anke Huber í úrslitum, 6-3, 3-6, 6-3. -JKS/Slmamynd Reuter
Kim aftur á
sigurbraut
Kim Magnús Nielsen komst
aftur á sigurbraut í skvassinu
um helgina þegar hann vann
Jökul Jörgensen, 3-1, í úrslita-
leik á Hróa hattar skvassmótinu
í Veggsporti. Heimir Helgason,
sem vann Kim Magnús á síðasta
móti, varö í þriöja sæti í meist-
araflokki karla. Kristján Daní-
elsson vann Runólf Sveinbjöms-
son, 3-0, í úrslitaleik í opnum
flokki. -VS
Siglfiröingar
sigursælastir
SigUirðingar unnu í þremur
flokkum af sex í Hólsgöngunni á
Siglufirði um helgina. Mótiö er
liöur í íslandsgöngunni 1997.
Magnús Eiríksson sigraði í 20
km göngu í eldri flokki karla,
Ingólfur Magnússon í 10 km
göngu karla og Árni Teitur
Steingrímsson í 5 km göngu
karla. Einar Ólafsson, Akureyri,
sigraði í 20 km göngu í yngri
flokki karla, Guðrún Magnús-
dóttir, Ströndum, í 10 km göngu
kvenna og Bergljót Þrastardótt-
ir, Fljótum, I 5 km göngu
kvenna. -VS
Halla María
meö níu mörk
Halla María Helgadóttir skor-
aði 9 mörk fyrir Sola þegar liðið
tapaði, 27-33, fyrir Stabæk í
norsku 1. deildinni í handbolta
um helgina. Halla var talin besti
leikmaður vallarins og nokkur
norsk 1. deildar félög hafa áhuga
á að fá hana fyrir næsta tímabil
en allt bendir til þess að Sola
falli í 2. deild. -DVÓ/VS
Larvik komiö
í undanúrslit
Larvik frá Noregi, sem Krist-
ján Halldórsson þjálfar, komst
um helgina í undanúrslit í Evr-
ópukeppni bikarhafa kvenna í
handbolta. Larvik geröi þá jafn-
tefli, 22-22, við Corteblanco á
Spáni en Larvik vann fyrri leik-
inn í Noregi, 30-17. -VS
Missterkir riðlar í
Evrópukeppninni
Um helgina var dregið í riöla
fyrir 8-liða úrslitin í Evrópu-
keppni kvennalandsliða í knatt-
spymu. Mikill styrkleikamunur
þykir á riðlunum tveimur. í
þeim fyrri eru Noregur, Þýska-
land, Ítalía og Danmörk en í
þeim síðari Svíþjóð, Spánn,
Rússland og Frakkland. Fjögur
fyrrnefndu liðin hafa ávallt ver-
iö við toppinn í Evrópu og í
heiminum en af hinum hefur að-
eins Svíþjóð náð langt. Riðlarnir
verða leiknir í Noregi og Sviþjóð
í sumar. ,vs
Loks unnu þær
norsku í Svíþjóð
Noregur vann sinn fyrsta úti-
sigur á Svíþjóð í kvennalands-
leik í knattspymu um helgina,
2-0. Linda Medalen og Hege
Riise skoruðu mörkin. Leikur-
inn fór fram innanhúss á velli í
fullri stærð. .ys
Rosenborg með
þann fyrsta í ár
Rosenborg vann sinn fyrsta
titil á árinu í norsku knattspym-
unni um helgina og heldur
greinilega fyrri yfirburðum þar í
landi. Rosenborg vann þá Sta-
bæk, 4-0, í úrslitaleik norska
innanhússmeistaramótsins sem
leikiö er í norsku knattspymu-
höllunum.
-VS
Linta til liðs við Akranes?
Ivan Golac, hinn nýráðni þjálfari íslandsmeistara Akurnes-
inga í knattspymu, hefur í hyggju að styrkja lið meistaranna
fyrir átökin sem fram undan eru í sumar.
Líklegt er að landi Golacs, Aleksanda Linta, 21 árs gamall
miðvallarleikmaður, komi til Skagamanna fljótlega en Golac
hefur fylgst með honum um hríð og hefur verið í sambandi við
hann. Linta leikur með OFK Belgrad í Júgóslavíu en liðið leik-
ur í 2. deild.
„Ég veit að Golac hefur stúderað þennan strák og hann er
mjög hrifinn af honum. Þetta er sterkur vinstri fótarmaður og
ég held að það sé fullur vilji að fá hann til okkar mjög fljótlega.
Golac hefur verið að kynna sér leikmannahópinn síðan hann
kom til landsins og það er í hans höndum hvort hann vill fá
fleiri leikmenn," sagði Gylfi Þórðarson, formaður Knattspymu-
félags ÍA, í samtali við DV í gærkvöldi.
Mörg lið úr júgóslavnesku 1. deildinni hafa haft augastað á
Linta en hann hefur lýst yfir áhuga á að koma til Akraness.
Mál Bjarna Guöjónssonar eru ennþá í biöstööu
Ekki hefur enn skýrst hvað verður um Bjama Guðjónsson.
Ensku stórliðin Newcastle og Liverpool hafa eins og áður hefur
komið fram lýst yfir miklum áhuga á að fá Bjarna i sínar raðir
en Skagamönnum hefur ekki borist nein formleg tilboð enn þá
frá þessum félögum.
Fyrir helgina báðu forráðamenn Newcastle Skagamenn um
að gefa sér upp væntanlegt kaupverð sem og Skagamenn gerðu.
„Ég vil ekki nefna þá tölu á þessu stigi en ég býst fastlega við
að heyra frá báðum félögunum í vikunni," sagði Gylfi Þórðarson
við DV í gærkvöldi
-GH
leikur Larusar Orra
Dæmdu vel í Noregi
Stefán Amaldsson og Rögnvaldur Erlingsson dæmdu leik Drammen og Creteil
frá Frakklandi i 8-liða úrslitum borgakeppni Evrópu í handknattleik sem fram fór
í Noregi á sunnudaginn. Drammen sigraði, 26-19, en fyrri leiknum lauk með
jafntefli. Stefán og Rögnvaldur fengu mjög góða dóma hjá þulum norsku
sjónvarpsstöðvarinnar TV2 sem sögðu að þeir væra meðal bestu dómara á
Norðurlöndum, hefðu látið leikinn ganga vel og engin mistök gert. -DVÓ/VS
Allt um NBA-deildina í nótt og fyrrinótt á bls. 25
Urslitin voru ráöin í gærkvöldi þegar
Ríkharöur kom inn á.
Stór ósigur
Rikka og
Kalamata
Kalamata, lið Ríkharðar Daðasonar,
tapaði á heimavelli fyrir Olympiakos,
1-4, í grísku 1. deildinni í knattspyrnu
í gær. Ríkharður lék síðustu 30 mínút-
ur leiksins og spilaði þar með sinn
fyrsta leik fyrir félagið í deildinni.
„Öll mörkin komu í fyrri hálfleik
þannig að úrslitin vom ráðin þegar ég
kom inn á. Ég náði að skapa mér eitt
færi en varnarmaður Olympiakos
náði að bjarga á síðustu stundu. Við
vorum betri fyrstu 20 mínúturnar en á
skömmum tima skoraði Olympiakos
þrjú mörk og þar með var þetta búið,“
sagði Ríkhaður við DV í gærkvöldi.
Kalamata er í 11. sæti eftir ósigur-
inn með 25 stig en Olympiakos er efst
með 51 stig. -GH
Valdimar frá
í 6-8 vikur
Láras Orri Sigurðs-
son lék á laugardag-
inn sinn 100. leik með
Stoke City í ensku 1.
deildinni þegar liðið
beið lægri hlut fyrir
Southend, 2-1.
Þar af hefur Láms
Orri spilað 97 leiki í
röð, alla í byrjunarlið-
inu.
Hann er fyrsti ís-
lenski knattspyrnu-
maðurinn sem leikur
100 leiki fyrir sama fé-
lagið í ensku deilda-
keppninni.
Þeir Þorvaldur Ör-
lygsson og Guðni
Bergsson eiga báðir
fleiri leiki að baki en
hvorugur hefur náð
þessum fjölda fyrir
eitt félag. Þorvaldur
hefur spilað um 160
deildaleiki samtals
fyrir Nottingham For-
est, Stoke og Oldham
og Guðni Bergsson
um 140 deildaleiki fyr-
ir Tottenham og
Bolton.
-VS
16 undir pari
Valur og Henning á
meðal þeirra bestu
- komu Óðinsvéum í dönsku úrvalsdeildina
BK Óðinsvé tryggði sér á dögun-
um sæti í dönsku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á næstu leiktíð með
því að vinna sigur á Vejle, 86-79.
Tveir íslendingar hafa leikið stórt
hlutverk með liðinu í vetur, þjálfar-
inn Valur Ingimundarson, fyrrum
leikmaður Njarðvikur og Tinda-
stóls, og Henning Henningsson sem
lék með Haukum og Skallagrími.
ólokið erum við búnir að tryggja
okkur í úrvalsdeildina. Við erum
eitt af fáum liðum sem ekki eru með
Kana í liðinu en þrátt fyrir það hef-
ur þetta gengið vel,” sagði Henning
Henningsson við DV í gær.
Henning og Valur hafa verið
máttarstólpar liðsins. Henning leik-
ur nú í fyrsta sinn i stöðu leik-
stjórnanda og hefur verið að spila
Henning.
hefur komið okkur á óvart og ég
mundi segja að flest liðin í þessari
deild sem við erum í myndu sóma
sér vel í úrvalsdeildinni heima. Það
er mikill uppgangur í greininni hér
í Danmörku.
Úrvalsdeildin er sterk og það er
ljóst að Óðinsvé þarf að fá liðsstyrk
fyrir næsta tímabil. Ég reikna með
að koma heim um næstu áramót og
Fyrsti sigur Lonards á ferlinum
Heimamaðurinn Peter Lonard sigraði á ástralska masters mótinu í golfi sem
fram fór í Melboume um helgina. Lonard sigraði landa sinn Peter O’Malley í
bráðabana. Lonard, sem lék á 16 höggum undir pari, sést hér með hinn sérstaka
en fallega verðlaunagrip. Lonard ætti að eiga fyrir salti í grautinn á næstunni þvi
verðlaunafé fyrir fyrsta sætið nam 15 milljónum króna á mótinu. Stórt golfmót var
einnig haldið í Sun City í Bandaríkjunum um helgina en þar voru samankomnir
margir af bestu kylfingum heimsins í dag.
Nick Price, Zimbawe, sigraði þar með yflrburðum, lék á 268 höggum. Banda-
ríkjamaðurinn David Frost varð í öðru sæti á 276 högum og Daninn Thomas Björn
kom geysilega á óvart með því að ná þriðja sætinu á 277 höggum.
leikur ekki
Stjórnunni.
hef sjaldan getað stillt
upp mínu sterkasta liði,”
sagði Valdimar en hann
mun stjórna sínum
mönnum af varamanna-
bekknum það sem eftir
lifir íslandsmótsins.
Til marks um óheppn-
ina í röðum Stjömunnar
sleit Brynjar Kvaran að-
stoðarþjálfari liðbönd í
fæti fyrir skömmu og
gengur þessa dagana um
á hækjum. -GH
Lárus Orri Sigurösson varö fyrstur
til aö ná 100 leikja markinu.
Valdimar Grímsson,
. leikmaður og þjálfari
Stjömunnar, leikur ekki
meira með liði sínu á
þessu tímabili en eins og
kom fram í DV í gær
slasaðist hann illa í Evr-
ópuleik gegn Vigo á laug-
ardaginn.
„Það kom í ljós að
bein fyrir ofan þumal-
flngur fór í sundur. Ég
verð frá í 6-8 vikur svo
tímabilið með Stjöm-
unni er búið en ég hef
ekki útilokað þátttöku á
heimsmeistaramótinu í
Japan. Tímirin verður að
leiða það í ljós hvort ég
verð tilbúinn fyrir HM
en auðvitað stefni ég á
að vera með,“ sagði
Valdimar við DV í gær.
Slysið átti sér stað
þegar nokkrar sekúndur
vom eftir af fyrri hálf-
leik. Valdimar var að
skjóta á markið þegar
varnarmaður Vigo kom
með hnéð út á móti hon-
um og lenti hnéð á hönd
Valdimars.
„Nú verður maður
bara að stilla upp nýju
liði og leysa þetta á ann-
an hátt. Það þýðir ekki
að láta deigan síga því
það kemur alltaf maður í
manns stað. Óheppnin
hefur svo sannarlega elt
okkur í vetur hvað
meiðslin varðar og ég
Þessi árangur Óðinsvéa hefur kom-
ið mjög á óvart en liðið vann sér
sæti í 1. deildinni fyrir þetta tímabil
undir stjóm Vals.
„Þetta hefur gengið vonum fram-
ar og þegar tveimur umferðum er
32-36 mínútur í leik og Valur hefur
þurft að spila framherjastöðuna og
miðherjastöðuna til skiptis og hefur
eins og Henning verið að spila
megnið af leiknum.
„Körfuboltinn hér í Danmörku
spila i úrvalsdeildinni heima en á
þessari stundu veit ég ekki með
hvaða liði það verður,” sagði Henn-
ing.
-GH
Everton gerði
tíu á Jersey
Everton átti frí í ensku knatt-
spymunni um helgina og brá sér
því til Ermarsundseyjarinnar
Jersey.
Þar vann Everton úrvalslið
eyjaskeggja, 10-1, og skoraði
Nick Barmby fjögur markanna.
RichardRufus
til Newcastle?
Newcastle hefur síðustu daga
sýnt mikinn áhuga á varnar-
manninum Richard Rufús frá
Charlton.
Rufús er metinn á 275 milljón-
ir króna og átti stórleik með
enska 21-árs landsliðinu sem
vann ítali 1 síðustu viku.
Paul Gascoigne
kyrr hjá Rangers
Paul Gascoigne sagði í gær að
hann væri ekki á fórum frá
Rangers í Skotlandi og hygðist
skrifa undir nýjan samning við
félagið.
Sunderland hafði sýnt honum
mikinn áhuga síðustu daga.
Evrópukeppnin í
handknattleik
Evrópukeppni meistaraliða
Barcelona-Pick Szeged 40-17 (6642)
Badel Zagreb-Braga .. 26-22 (4946)
Kiel-Santander...24-18 (4745)
Lasko-Winterthur .... 28-19 (4940)
Evrópukeppni bikarhafa:
Irvy-Bogdand .....35-23 (7045)
Bidasoa-Plock.... 23-14 (44-35)
Lemgo-Magdeburg . . . 29-22 (4848)
EHF-keppnin:
Prato-Virum..... 26-26 (47-51)
Granollers-Montpell. . 26-24 (46-45)
Gorenj e-Flensburg . . . 17-28 (36-57)
Borgakeppnin:
Drammen-Creitel .... 26-19 (5043)
Sandefjord-Sittardia . . 16-14 (36-36)
Nettelstedt-Ademar . . 28-21 (4948)
Svíar fögnuðu
sigri í Bangkok
Svíar fóra með sigur af hólmi
á 4 landa knattspymumóti sem
lauk i Bangkok um helgina.
Svíar sigmðu Tælendinga i
úrslitaleik, 3-1. Gary Sundgren,
Joakim Persson og Robert Stein-
er gerðu mörk Svía sem léku án
margra sinna bestu manna. í
leik um þriðja sætið sigraði Jap-
an lið Rúmena, 2-0.
-JKS
Mætast risarnir í
skoska bikarnum?
Celtic og Hibernian gerðu 1-1
jafntefli í 16-liða úrslitum
skoska bikarsins í knattspyrnu í
Edinborg í gærkvöldi.
Liðin verða því að leika að
nýju og sigurvegarinn mætir
stórliði Glasgow Rangers.
Aðrir leikir eru þeir að Fal-
kirk mætir Raith, Hearts eða
Dundee United mæta
Motherwell eða Hamilton og
Morton eða Dundee mæta
Kilmamock. Leikirnir verða 8.
og 9. mars.
Mikil fótbolta-
veisla í London
Úrval-Útsýn gengst fyrir hóp-
ferð á tvo toppleiki í London dag-
ana 23. og 24, mars.
Á sunnudeginum 23. mars
verður leikur Wimbledon og
Newcastle og á mánudeginum
leikur Arsenal og Tottenham.
Takmarkaður miðaíjöldi er í
þessa ferð sem kostar kr. 42.500.
Innifalið: flug, skattar, gising og
miðar á báða leikina.
Nánari upplýsingar em í síma
569-9300.