Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Page 36
L«TT« til miki/s að vln*»® \ > V Vinningstölur; -| 17.2/97 {23} (26) (28 KIN C3 C3 s: lo <c FRETTASKOTI0 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 Ógnaði manni með skrúfjárni Maður var staðmn að verki þar sem hann fór í peningakassa í húsa- kynnum Hjálpræðishersins í nótt. Maðurinn tóK peninga úr kassanum og ógnaði starfsmanni, sem ætlaði að skipta sér af, með stóru skrúfjárni. Lögregla var kölluð til og handtók hún manninn skömmu síðar. Hann skilaði þá peningunum, sem hann hafði tekið, en um var að ræða nokkur þúsund krónur. Maðurinn gisti fangageymslur í nótt. -RR Frjálsar veiðar: Erum dæmdir úr leik - segir skipstjóri „Þessar frjálsu veiðar eru algerlega út í hött. Kf þetta verður látið ganga svona í tvö ár og síðan settur á kvóti eftir veiðireynslu þá er verið að setja okkur og aðra þá út í horn sem ekki eru næstir miöunum," segir Sveinn ísleifsson, skipstjóri á Jóni Sigurðs- syni í Grindavík. Sveinn segir að auk þess þýði hinar frjálsu veiðar það að sérhver sótraftur verði á sjó dreginn því menn muni reyna að skapa sér eins mikla veiði- reynslu og mögulegt er með því að moka upp síldinni á sem skemmstum tíma sem þýði að gengið verði mjög illa um stofninn og hann nýttur eins illa og hægt sé að hugsa sér. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði í útvarpsfréttum í gær- kvöldi að engar lagaheimildir væru fyrir sjávarútvegsráðherra að styðjast við til að setja veiðar einstakra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum undir kvóta í samræmi við veiði- reynslu og hefði hann því ekki haft annan kost en að ákveða fyrirkomu- lag veiðanna með þeim hætti að setja heildarkvóta til skamms tíma og frjálsar veiðar sem síðan verða stöðv- aðar þegar honum er náð. Sjávarútvegsnefnd Alþingis mun Salia um málið í dag. -SÁ Sigló: Þrír teknir í bjórsmygli Þrír menn voru handteknir á Siglufirði á sunnudagskvöld vegna- aðildar að smygli á nokkrum kössum af bjór. Bjórnum var smyglað til Sigluljarðar í skipi og einn þeirra sem handteknir voru er skipveiji á viðkomandi skipi. Að sögn ólafs Jóhannssonar, aðal- varðstjóra hjá lögreglunni á Siglu- firði, er málið enn í rannsókn en meginhluti bjórsins hefur náðst. -RR Formaður Verkamannasambandsins: Eg vðiir mun bjartsýnni í síðustu viku „Eftir fundinn í gær er ég ekki bjartsýnn á að samningar séu að takast. Ég var mun bjartsýnni í síðustu viku. Það vantar svo mikið á að það sé nógur gangur í þessu, alveg sérstaklega því sem snýr að kaupaukunum/ sagði Björn Grét- ar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, í samtali við DV í morgun. „Ég tel að það sé góður gangur í þessum samningaviðræðum og þótt það hafi komið upp smámein- ingarmunur í gær þá fylgir slíkt spennunni. Ég er bjartsýnn á að góður gangur verði í þessu áfram,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, í morgun. Ljóst er á ummælum þessara tveggja manna að nokkur spenna er komin í samningamálin eins og oft vill verða þegar samningavið- ræður fara í gang fyrir alvöru. Það er þó ljóst að verkalýðsleiðtogarnir eru ekkert alltof ánægðir. „Það hefúr ekkert mjakast í okk- ar málum síðan í síðustu viku. Ég er allt annað en ánægður með gang mála og fæ ekki séð að við getum frestað því mikið lengur að láta kjósa um verkfall," sagði Halldór Bjömsson, formaður Dagsbrúnar, í samtali við DV. Af samtölum við menn að dæma eru það ekki kaupliðimir sjálfir sem strandar á núna, heldur em það ýmis sérmál félaga og lands- sambanda sem ósamið er um, svo sem bónusgreiðslur, sem heita kaupaukagreiðslur á fagmáli. í gær var samningafundur með samningamönnum landssambanda ASÍ og vinnuveitendum og annar fundur er boðaður í dag. Þá er einnig boðaður fundur með Dags- brún og viðsemjendum þeirra. Þá verður fundur með rikisstjóminni og talsmönnum verkalýðshreyfmg- arinnar í dag um þær kröfur sem gerðar eru á hendur ríkisstjóm- inni. -S.dór Þrátt fyrir aö loönuveiöin hafi engin veriö í nótt og loönan smá aö undanförnu var unniö af fullum krafti hjá Granda í morgun. Á myndinni er unniö viö vigtun loðnupakkninga sem fara í frystingu. Viðbúiö er að margir fái skell þar sem ekki takist aö framleiða upp í samninga viö Japani. Taliö er aö þjóöarbúiö verði af tveggja miiijaröa króna útflutningstekjum vegna þess._________________________________________________________________________DV-inynd S L O K I Veðrið á morgun: Allhvasst í fyrramálið Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, víða allhvöss í fyrramálið en lægir heldur er líð- ur á daginn. Éljagangur sunnan- lands og vestan en bjartviðri á norðaustanverðu landinu. Búist er við vægu frosti. Veðrið í dag er á bls. 36 Dómarar taki forsjármálið fyrir á ný Dómarar i áfrýjunarrétti í Ankara hafa fallist á að taka fyrir á ný forsjármál Halims A1 og Sophiu Hansen. Þar verður sú niðurstaða frá því í nóvember, þar sem knapp- ur meirihluti fimm manna dóms ákvað að faðirinn skyldi hafa forsjá, endurmetin. Samkvæmt upplýsing- um DV liggur ekki fyrir hvenær niðurstaðan muni liggja fyrir en endurmat dómaranna er fram- kvæmt að beiðni Hasips Kaplans, lögmanns Sophiu. Fimmta réttarhaldið í sakamáli á hendur Halims A1 vegna brota á dómsúrskurðum um umgengni móður og dætra var haldið í gær, að viðstöddum öllum málsaðilum. Þar er um aðskilið mál að ræða frá for- sjármálinu. Báðar dætur Sophiu komu fyrir sakadómara í gær og kom m.a. fram hjá þeim að þær óski ekki eftir að hitta móður sína. Mál- inu var síðan frestað til 7. mars -Ótt Úr réttarsalnum í gær. Reuter Engin veiöi DV, Akureyri: Engin veiði var á loðnumiðunum suður og vestur af landinu í nótt. Sú loðna sem fannst var ekki í veiðan- legu ástandi og i morgun var byrjað að bræla á miðunum. Um hádegi i gær höfðu íslensk skip landað 712 þúsund tonnum á vertíð- inni samkvæmt upplýsingum Sam- taka fiskvinnslustöðva og eftirstöðvar útgeflns loðnukvóta voru 505 þúsund tonn. Loðnan, sem veiðst hefur undan- fama daga, flokkast mjög illa fyrir Japansmarkað, allt of mikið veiðist af hæng miðað við hrygnu auk þess sem áta er í loðnunni og torveldar fryst- ingu á henni. Eru menn orðnir veru- lega áhyggjufullir yfir að ekki takist að frysta upp í samninga við Japani og ef fer sem horfir gæti þjóðarbúið orðið fyrir 2-3 milljarða króna tjóni vegna þessa. -gk Bílheimar ehf. :e|TR|ð <*»■ EfeTB ■■■ Sœvarhöfba 2a S(mi:525 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.