Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Blaðsíða 32
32
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997 JLlV
íþróttir
Gunnar Einarsson, fyrrum landsliðsmarkvörður og leikmaður með Haukum. Hann og félagar hans, „gamlir refir“ úr Haukaliðinu í gamla daga,
uppiifðu ótrúlegan dag fyrir viku er Haukar unnu bikarmeistaratitilinn í karla- og kvennaflokki. Hér sést Gunnar með bikarana. DV-mynd PS
- segir Gunnar Einarsson, eldheitur stuðningsmaður bikarmeistara
Hauka í handknattleik og fyrrverandi landsliðsmarkvörður liðsins
Gunnar Einarsson er með þekktari handknattleiksmönnum landsins
og einn af betri markvörðum sem íslenskur handknattleikur hefur átt.
Hann er mikill Haukamaður og lék á sínum tíma 350-400 leiki með
meistaraflokki félagsins og 59 landsleiki fyrir íslands hönd. Gunnar er
með dyggustu stuðningsmönnum Hauka sem gerðu sér lítið fyrir á dög-
unum og unnu tvöfaldan sigur í bikarkeppni Handknattleikssambands-
ins. Laugardagurinn fyrir réttri viku verður Gunnari sem og öðrum
Haukamönnum lengi eftirminnilegur. Sautján ár eru liðin frá því Hauk-
ar hömpuðu síðast bikarmeistaratitli. Þeir voru margir „gömlu refim-
ir“ sem fögnuðu titlinum innilega enda löng bið á enda.
„Dagurinn, sem úrslitaleikirnir fóru fram, var eins og fermingardag-
urinn minn. Tilhlökkunin var óskapleg en mér leið vel, var alltaf viss
um að við myndum sigra. Ég neita því ekki að þegar líða tók að leikn-
um fór hjartað að slá örar. Við erum nokkrir í hörðum kjarna gamalla
leikmanna og mætum á alla leiki liðsins og á heimaleikjunum erum við
alltaf á sama stað. Það kemur auðvitað fyrir að við látum ófriðlega á
pöllunum en þessi kjami, sem við köllum akademíuna, hefur þó róast
mikið eftir að Hörður Sigmarsson tók dómaraprófið. Nú segist hann
skilja betur þá svartklæddu," segir Gunnar Einarsson og glottir.
„Handboltinn skiptir óskaplega miklu máli"
„Handboltinn hefur alla tíð leikið stórt hlutverk í minu lifi. Ég byrj-
aði ungur að æfa og árið 1973 lék ég minn fyrsta landsleik. Þá vom að-
stæður öðmvísi en í dag. Eftir tíu klukkustunda erfiða vinnu við smíð-
ar utanhúss skaust maður heim til að ækja dótið sitt og síðan var farið
beint í landsleik. Það eru breyttir tímar í dag.
Fjölskyldan hefur lengi verið á kafi í þessu. Synir mínir tveir æfa
handbolta hjá Haukum. Einar Gunnarsson leikur með meistaraflokki í
stöðu skyttu og yngri sonurinn, Guðmundur Smári, er í sömu stöðu í 4.
flokki. Þá stóð konan að baki mér eins og klettur á meðan ég var í
þessu,“ segir Gunnar.
„Markviss uppbygging að skila sér"
- Liðin eru 17 ár frá því Haukar urðu bikarmeistarar í karlaflokki og
félagið hefur aldrei hampað íslandsmeistaratitlinum. Hvað er það sem
skilað hefur þessum árangri í dag?
„Fyrst og fremst markviss uppbygging og þrotlaust starf þeirra
manna sem verið hafa í kringum þetta. Þar verð ég að nefna formann-
inn okkar, Þorgeir Haraldsson, að öðrum ólöstuðum. Hann hefur verið
ódrepandi í því að byggja þetta upp og hefur verið formaður í 8 ár. Þá
olli það straumhvörfum er Petr Baumruk kom til félagsins fyrir
nokkrum árum. Hann er frábær íþróttamaður og hefur skilað stórkost-
legu starfi hjá okkur.
Þá má ekki gleyma leikmönnunum og þjálfaranum, Sigurði Gunnars-
syni, sem er að skila mjög góðu starfi. Nú er næsta takmark að inn-
byrða fyrsta íslandsmeistaratitilinn og ég er bjartsýnn á að það takist.
Sigurinn í bikarkeppninni veitir strákunum aukið sjálfstraust og mun
auðvelda þeim að innbyrða titilinn. Það er þó mikilvægt að menn kom-
ist niður á jörðina og skilji að þetta gerist ekki af sjálfu sér.“
Gunnar segir að hjá Haukum sé starfandi mjög öflugur stuðnings-
mannaklúbbur, Haukar í homi.
„Þetta er mjög öflugur klúbbur og í honum eru yfir 100 manns. Þetta
fólk greiðir mánaðarlega 1.500-4.000 krónur allt árið. Á móti fær þetta
fólk frítt á alla heimaleiki liðsins. Þetta er að mínu mati einstakur
klúbbur og hann er liðinu ómetanlegur. Ég held að svona klúbb væri
hvergi hægt að setja á fót nema hjá Haukum."
„Mæti á hvern einasta leik hjá Haukunum"
„Ég hef mjög mikinn áhuga á handbolta og mæti á hvern einasta leik
hjá Haukunum, bæði i kvenna- og karlaflokki. Það er ekki síður gaman
að fylgjast með stelpunum. Þær hafa náð frábærum árangri og það er
virkilega gaman að fylgjast með þeim.
Vonandi á mér eftir að ganga betur með að fylgjast með sonum mín-
um en pabba gekk að fylgjast með mér á sínum tíma. Hann gat aldrei
þolað spennuna og fékk hjartslátt og ónot á spennandi leikjum. Ég get
ennþá horft á leiki og vonandi verður það þannig sem lengst. Auðvitað
æsir maður sig mikið á leikjum og það er bara eðlilegt. Maður hefur
alltaf sínar skoðanir á dómurum og frammistöðu leikmanna.“
„Nú reyni ég að styðja við bakið á konunni"
Gunnar Einarsson segir að eiginkona sín, leirlistakonan Sigríður
Erla Guðmundsdóttir, hafi alla tíð staðið að baki sér sem klettur á með-
an hann var á kafi að keppa í handboltanum.
„Stuðningur hennar var mjög mikilvægur fyrir mig á sínum tíma.
Eftir að ég hætti að keppa hef ég reynt að styðja við bakið á henni í því
sem hún er að gera. Þá hef ég einnig reynt að gefa strákunum góð ráð
í sambandi við handboltann. Þeir eru báðir ungir og efnilegir, leika báð-
ir í stöðu skyttu, og ég ætti sem gamall markvörður að geta gefið þeim
góð ráð varðandi veikleika markvarða."
„Þorbjörn Jensson er frábær þjálfari"
Hvemig líst Gunnari á íslenska landsliðið og HM i Japan í maí?
„Mér líst vel á þetta allt saman. Þorbjörn Jensson er frábær þjálfari
og hann er að gera góða hluti með landsliðið, þó að maður sé ekki alltaf
alveg sáttur við val hans á liðinu. Ég er bjartsýnn á gott gengi
landsliðsins á HM í Kumamoto," sagði Gunnar Einarsson.
-SK