Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1997, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 1997 Viðskipti Samkeppnisráö: Bannar auglýsingar Á fundi Samkeppnisráðs voru teknar ákvarðanir um að banna Bræðrunum Ormsson að auglýsa Pioneer-hljómtæki sem „mest seldu hljómflutningstæki á ís- landi“ þar til fullyrðingin hefði verið sönnuð. Þá var bann lagt við dreifingu á auglýsingabæk- lingnum „Ég fer sem Au Pair“ frá íslensku Au Pair þjónustunni á þeim forsendum að útgáfan bryti í bága við góða viðskiptahætti i atvinnustarfsemi. Loks var Japis bannað að auglýsa stórútsölu og tilboð á vörum sínum nema að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Tvöfalt meiri útflutningur Borgarplast hélt upp a 25 ára af- mæli á síðasta ári og flutti þá rífleaga tvöfalt meira út en áður, fyrir um 140 milljónir króna. Ker eru 75% framleiðslunnar og alls seldust um 18 þúsund slík á ár- inu, 44% aukning. Veltan á af- mælisárinu var 370 milljónir króna og jókst um tæp 42% miðað við fyrra ár. Rekstrarafkoma árs- ins var viðunandi. Landsbanki íslands: 262 milljóna hagnaður Á árinu 1996 skilaði Lands- banki íslands 262 miUjón króna hagnaði eftir skatta og óregluleg gjöld. A.ukningin nam 48% en rekstramiðurstaðan er mun síðri en æskilegt væri. Bankinn af- skrifaði 1.237 milljónir vegna út- lána á síðasta ári til samanburðar við 1.366 milljónir árið áður. Fríkort: Punktum safnað Hagkaup, Skeljungur, Húsa- smiðjan, Flugleiðir og íslands- banki hafa sent ölliun landsmönn- um, 18 ára og eldri, Fríkort sem þeir geta notað þegar keyptar eru vörur eða þjónustu hjá fyrirtækj- unum eða greitt með debet- eða kreditkorti frá íslandsbanka. í hvert skipti sem greitt er fær fólk punkta sem safnast saman og eft- ir að hafa safnað nægjanlegum fjölda punkta, mismarga eftir áfangastöðum, fær fólk fría ferð með Flugleiðum eða getur breytt punktunum í eitthvað annað, leikhúsferð eða málsverð á veit- ingahúsi að eigin vali. Hlutabréf Elkem N.kr. 1 on 1*1 n /V. i/. ÍOO ?_// 1 yw V V 1 VaV/ j { rLx/ . * 5 11/2 25/2 ____l!l___________4/3asal Hlutabréf í Elkem hækka DV, Akxanesi: Geysileg hækkun hefur orðið á hlutabréfum Elkem síðasta mán- uöinn eða svo. Daginn sem fyrir- tækiö eignaðist meirihluta í ís- lenska Járnblendifélaginu seldust hlutabréf í Elkem á hlutabréfa- markaði í Osló á 123 norskar krónur. Daginn eftir voru þau á 123,5 og stuttu síðar 124 krónur. Hæsta boð í hlutabréf í Elkem var fyrir nokkru upp á 125 norskar krónur og lægsta boð 120 krónur og því hafa hlutabréf hækkaö um. Bréf í fyrirtækinu hafa hækkað mjög mikið í verði frá því í byij- un febrúar eins og sést á línurit- inu. -DVÓ DV Rekstrarkostnaður banka sem hluti af efnahagsreikningi: Tvöfalt hærri en víðast í Evrópu - hagræðum með sameiningu stofnana, segir Finnur Sveinbjörnsson „Við höfum reynt að benda á — að þegar litið er á einhverjar stærðir sem hlutfall af efna- hagsreikningi komum við eðli máls samkvæmt illa út. Hér á landi eru allar einingar smærri en gengur og gerist í nágranna- löndunum og íslenskir bankar eru ekki að lána hundruð millj- óna eða milljarða eins og gert er annars staðar. Kostnaðurinn við að veita stórt lán er nánast sá sami og þegar veitt er lítið lán. Einnig höfum við bent á að víða erlendis eru fjárfestingar- lán til atvinnulífsins og hús- næðislán innan bankakerflnsi en hér á landi eru þau í veru- legum mæli í höndum sér- stakra sjóða,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra við- skiptabanka. í Hagtölum mánaðarins fyrir skömmu voru sýndar sláandi tölur um tvöfaldan rekstrar- kostnað íslenskra lánastofn- ana, sem prósentur af efna- hagsreikningi. Eins og sjá má í grafi með fréttinni er rekstrar- kostnaðurinn hér á landi meira en tvöfaldur á við það sem hann er í Danmörku, Þýska- landi, Grikklandi og Noregi. Bankar í Danmörku taka 3,4% af efnahagsreikningi í hreinar vaxtatekjur en sambærileg tala ___ fyrir ísland er 5,0. Þá kemur fram í tölunum að framlag í afskrift- ir hjá íslenskum bönkum er 1,9% af efnahagsreikning á meðan það er 0,5% í Þýskalandi, 0,4% í Grikk- landi og 1,4% í Noregi og Dan- 6% 5 4 3 2 1 0 Rekstrarkostnaður bankastofnana - meöaltöl 1990-1994 - 5,1 Hlutföll (%) af efnahagsreikningi 3,1 2,4 (Q Q. <fí o já X (O «o > 2,2 «o 1° *3T ■c (0 2,4 <B C (B ■Q (0 4-> Q. 5 (0 «o > 2,6 2,6 <s c (0 (B X. c (B JD (B (0 iO > iO 'O (B CL <fí «o 'O *3T (B Q. <fí BJO O (B •Q (B 4-1 Q. X. <fí «o > Danmörk Grikkland Noregur Island Þýskaland Portúgal Noregur DV mörku. Finnur Sveinbjömsson segir að þegar kostnaður sé reiknaður út frá rekstrartekjum eöa rekstrargjöldum lagist samanburðurinn verulega fyrir ísland þótt enn séu menn held- ur í hærri kantinum hér á landi. „Það er sjálfsagt fyrir bankastofn- anir hér að halda áfram að reyna að gera betur og draga úr kostnaði og “ víða hefur náðst mjög góður ár- angur eins og nýjar tölur úr Is- landsbanka sýna.“ Aðspurður hvað sé hægt að gera til þess að minnka rekstr- arkostnaðinn enn frekar segir Finnur að það sé tvímælalaust með því að sameina stofiianir. Því hafi t.d. verið haldið fram að spara mætti milljarð með því að sameina Búnaðarbanka og Landsbanka og án efa muni kaup Landsbankans i VÍS leiða til hagræðingar. „Það er mjög mikilvægt markmið að hagræða í banka- kerfinu og bankarnir hafa sjálf- ir bent á þá hagræðingu sem í því er fólgin að fjárfesting- alánasjóðirnir sameinist bankakerfinu. Það kemur við- skiptavinunun tvímælalaust til ■ góða,“ segir Finnur Svein- bjömsson. í umfjölluninni i Hagtölum mánaðarins er vitnað í skýrslu OECD um afkomu banka í að- ildafríkjum OECD og rétt er að ítreka að í grafinu em valin þau lönd sem koma hagstæðast út fyrir ísland, þ.e. minni Evr- ópulöndin. Á það er lögð áhersla að enn séu ónýttir fjöl- margir möguleikar til frekari hagræðingar sem vissulega sé nauðsynlegt að grípa til vegna _LI harðnandi samkeppni við bank- ana, bæði erlendis frá og af hálfu annarra innlendra lánastofn- ana. -sv Hlutabréfamarkaður síðustu viku: Bréf í Þormóði ramma renna út Rúmlega 300 milljóna króna sala var á hlutabréfamarkaði Verðbréfa- þings íslands og Opna tilboðsmark- aðarins í síðustu viku. Mest seldist af bréfum í Þormóði ramma, fyrir tæpar 67 milljónir, og í íslands- banka, fyrir um 42 milljónir króna. Bréf fyrir um 24 milljónir vom seld í Eignarhaldsfélagi Álþýðubankans, fyrir um 18 milljónir í íslenskum sjávarafurðum. Bréf í Eimskip seld- ust fyrir tæpar 9 milljónir og hluta- bréf fyrir rúmar 8 milljónir seldust í Flugleiðum. Tæpar 11 milljónir vom notaðar í kaup hlutabréfa í Skeljungi. Tölulækkunin sem orðið hefur á gengi hlutabréfi í Eimskip skýrist af því að greiddur var út 10% arður og síðan gefin út jöfnunarhlutabréf. Sambærilegt verð hlutabréfa og fyr- ir aðalfund frá því í fyrri viku væri í kringum 7, er í dag 6,9 og því er lækkunin óveruleg. Þingvísitala hlutabréfa heldur áfram að hækka og hefur nú alls hækkað um 13,48% frá áramótum. Verð á dollara stendur nokkuð í stað frá fyrri viku en pundið lækk- ar úr 114,61 kr. í 113,43 kr. Þýska markið heldur áfram að sveiflast ör- lítið upp og niður en jenið fer að- eins niður á við eftir sveiflu upp á við um nokkra hríð. -sv Jen Þingvísit. hlutabr. 2500 2400 2300 2200 2100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.