Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1997, Blaðsíða 9
MIÐVnOJDAGUR 19. MARS 1997
9
DV
Útlönd
Stjórn breska íhaldsflokksins fær góö tíðindi í dag:
Major bindur vonir við
minnkandi atvinnuleysi
Leiðtogar breska íhaldsflokksins
binda miklar vonir við að nýjar at-
vinnuleysistölur, sem birtar voru
skömmu fyrir hádegi I dag, muni
auðvelda þeim baráttuna fyrir þvi
að halda völdum eftir kosningamar
1. maí í vor, enda séu þær til marks
um að efnahagsstefna stjórnar
Johns Majors sé farin að bera tilætl-
aðan árangur.
Dagblaðið Daily Mirror sagði í
morgun að það hefði komist yflr
eintak af opinberri skýrslu um at-
vinnuleysi sem sýndi að atvinnu-
lausum hefði fækkað um liðlega 68
þúsund manns í febrúarmánuði.
Hagfræðingar höfðu spáð því að
fækkunin mundi nema um 40 þús-
und manns.
Ef tölumar í frétt Daily Mirror
reynast réttar þýðir það að atvinnu-
leysi í Bretlandi er nú 6,2 prósent af
mannafla. Það er miklu minna en I
mörgum öðrum löndum Evrópu-
sambandsins.
Tölur af þessu tagi mundu koma
John Major og flokksmönnum hans
ákaflega vel þar sem fylgi íhalds-
flokksins í skoðanakönnunum er
um 25 prósentustigum minna en
fylgi Verkamannaflokksins. Þá er
hver höndin upp á móti annarri í
flokknum í afstöðunni til Evrópu-
sambandsins og flokksmenn finna
greinilega fyrir því að margir Bret-
ar vilja breyta til eftir átján ára
stjómarsetu íhaldsmanna. Major
hefur spáð því að eftir því sem nær
dregur kjördegi mirni blómstrandi
efnahagslíf verða til þess að kjós-
endur muni aftur snúa sér að
íhaldsflokknum.
„Við ætlum okkur að koma fólki
aftur út á vinnumarkaðinn, eins og
við höfum gert svo um munar á
undanfomum átján mánuðum,"
sagði Major í þingi í gær.
íhaldsmenn segja að Verka-
mannaflokkurinn muni snúa þeirri
þróun við með því að lögfesta lág-
markslaun í landinu og fallast á
vinnureglur ESB. Reuter
Norsku konungshjónin, Haraldur og Sonja, eru í heimsókn f Tékklandi og hér eru þau ásamt Vaclav Havel forseta og eiginkonu hans, Dagmar, á Karlsbrúnni f Prag. simamynd Reuter
Fimmtíu létust í flugslysi í Rússlandi:
Sáu stéliö rifna af
Fimmtíu farþegar og flugliðar
létu lífið er rússnesk flugvél, AN-24,
fórst í áætlunarflugi til Tyrklands í
gær. Vélin fórst 37 mínútum eftir
flugtak frá flugveflinum í Stavropol
í suðurhluta Rússlands.
Talið er að eldur hafi komiö upp
í flugvélinni og hún hrapað í skóg-
lendi. Enginn komst lífs af í slysinu.
Flugumferðareftirlitsmönnum
barst engin tilkynning um að eitt-
hvað væri að en vélin hvarf skyndi-
lega af ratsjám.
Interfaxfréttastofan hafði þaö eft-
ir yfirvöldum á staðnum að slysið
gæti hafa orsakast af sprengingu í
vélinni. Sjónarvottar heyrðu
sprengingu og sáu stél vélarinnar
slitna af meðan hún var enn á lofti.
Stélið fannst í um 1,5 kílómetra fjar-
lægð frá öðrum hlutum vélarinnar.
Lögreglumaður á staðnum sagði
hins vegar að sjónarvottur sem
hann ræddi við hefði ekki orðið var
við sprengingu heldur aðeins séð
reyk.
Flugöryggi hefur verið ábótavant
í Rússlandi síðan Aeroflot-flugfélag-
inu var skipt niður í hundruð lítilla
flugfélaga í kjölfar hruns Sovétríkj-
aima 1991. Sérfræðingar segja aö
mörg flugfélaganna eigi í fjárhags-
vandræðum og komi það niður á
viðhaldi og öryggismálum. Reuter
Michael Jackson hrósar happi:
Fyrrverandi starfsmenn
töpuðu málarekstrinum
Kviðdómur í Kalifomiu úrskurð-
aði popparanum Michael Jackson í
vil í gær í máli sem fimm fyrrver-
andi starfsmenn hans höföuðu gegn
honum. Starfsmennimir fyrrverandi
héldu því fram að þeir hefðu verið
reknir vegna þess að þeir bám vitni
í bamaníðingsmáli sem höfðað var
gegn Jackson.
Kviðdómurinn fyrirskipaöi einnig
tveimur starfsmannanna fyrrverandi
að greiða Jackson rúmar fjórar millj-
ónir króna í skaðabætur.
Fimmmenningamir, þrír lífverðir,
þema og skrifstofúmaður, héldu því
einnig fram að Jackson hefði komið
fyrir hleranarbúnaði á búgarði sín-
um til að reyna að komast að því
hvað starfsmennimir vissu um staö-
hæfmgamar um að hann hefði mis-
notað ungan dreng kynferöislega.
Reuter
(j Hudson
Laganna verðir
með fíkniefni í
þvaginu
Þvagprufur á starfsmönnum á
skrifstofúm dómsmálaráðherra í
Mexíkóborg sýndu að 424 starfs-
menn höfðu neytt ólöglegra fikni-
efha. Af þessum 424 var 241 lag-
anna vörður.
Kókaín fannst í þvagi hjá 204
og róandi lyf hjá 130. 85 höfðu
neytt amfetamíns og 17
maríjúana. Ellefu starfsmenn
höfðu neytt fleiri en einnar teg-
imdar.
í yfirlýsingu frá skrifstofu rík-
issaksóknara kom ekki fram
hversu margir höfðu verið rann-
sakaðir. Reuter
Reiknabu meb...
...skrifstofutækjum
Ljosritunarvel
SHARP Z810
• 8 eintök á mínútu
• Fast frumritaborð
• Stækkun - minnkun 70%-l 41 %
• 250 blaða framhlaðinn
Sjóðvél
SHARP ER-A150
pappírsbakki
• Ljósmyndastilling
• Tóner sparnaðarstilling
89.900,- "
Ljósritunarvélar verð frá 39.900,-
• Fjórir vöruflokkar, stækkanlegt
• Þrjú sjálfvirk virðisaukaskatts-
þrep
• Hreyfanlegur skjár/turn fyrir
viðskiptavini
» Sérstaklega fyrirferðalítil sjóðvél
26.90^7 "'k
Reiknivél
SHARP EL 2630 L
9.890,-
Strimlareiknivélar verð fró 3.590,-